Morgunblaðið - 21.01.1979, Side 27
Eiríkur Stefánsson:
Vilji er
allt sem
þarf
Nokkru fyrir síðustu jól skrifaði
María Skagan grein þá, er hún
nefndi S.O.S. og birtist í flestum
dagblöðum borgarinnar.
Grein þessi vakti mikla athygli,
hún var, eins og nafn hennar
bendir til, hróp um hjálp — eins
konar ákall til mannúðarinnar.
María hefur dvalið á vistheimili
Sjálfsbjargar að Hátúni 12 nokkuð
á annað ár. Þar er aðbúnaður
vistfólks að flestu leyti góður, má
líklega segja mjög góður, en eitt
skortir: sundlaug við hæfi fatlaðs
fólks. Hennar er mikil þörf, en
orsök þess, að hana vantar enn er
fjárskortur — fjárskortur opin-
berra aðila, sem nú eiga í stríði við
meinvætti þá, er Verðbólga nefn-
ist. En sú meinvættur er þó ekki
magnaðri en svo, að margir
einstaklingar láta hana ekki koma
sér á kné. Og því gerðist það, að
fljótt eftir að María sendi út
neyðarkallið fóru peningar að
streyma í sundlaugarsjóð. Hafa nú
safnazt rúmlega fjórar milljónir
kr.
En betur má efa duga skal.
Áætlað er að laugin kosti fullgerð
röskar 80 milljónir, en sú áætlun
mun ekki standa lengi, ef verð-
bólgan heldur stöðugt áfram að
grassera. Er því skynsamlegt að
reyna að gera nú snöggt átak og
hrinda þessu nauðsynjamáli fram.
Og það er auðvelt, ef viljann ekki
skortir.
Reykvíkingar eru rúmlega 80
þúsund. Ef deila ætti kostnaðinum
við sundlaugarbygginguna niður á
þá, yrðu það 1000 kr. á hvern
einstakling, jafn yngri sem eldri.
En þessi laug er ekki ætluð
Reykvíkingum einum. Ef öll þjóðin
vildi láta þetta gerast — sýndi
alvöru — yrði það léttur baggi.
Mér reiknast svo: Ef 150 þúsund
manns legði fram verð eins
sígarettupakka hver einstaklingur,
væri þegar hægt að byrja á
byggingunni og ljúka henni án
óeðlilegra tafa.
Já, vel á minnzt, talað er um að
23. janúar n.k. verði reyklaus
dagur á öllu Islandi. Ef allir
reykingamenn á landinu gæfu
andvirði þess tóbaks, sem þeir
reykja venjulega á einum degi,
mundi það að líkindum nálgast
það að nægja til þess að byggja
umrædda sundlaug. En það er
auðvitað engin sanngirni í því, að
ætla reykingamönnum fremur að
leggja fé til þessa nauðsynja verks
en hinum, sem ekki reykja. Þeir
ættu að segja sem svo við sjálfa
sig: „Ef ég reykti úr einum
sígarettupakka á dag, kostaði það
mig kr. 565,00. Nú geri ég það ekki,
og því ætla ég að senda þessa
peninga til Sjálfsbjargar, sem þarf
að eignast sundlaug."
Undirritaður er einn þeirra, sem
tóbaksfýsnin hefur ekki náð tökum
á. En hann hefur nú ákveðið að
gerast „stórreykingamaður" í hug-
anum 23. jan. n.k. og reykja úr
tveim pökkum. Það kostar hann
kr. 1130.00 og þessa aura ætlar
hann að senda til sundlaugarsjóðs-
ins að Hátúni 12, (enda þótt hann
hafi áður sent þangað stærri
upphæð). Og nú vill hann í fullri
hógværð mælast til þess, að sem
flestir fylgi dæmi hans í þessu
efni. Það verður enginn fátækari
fyrir það, en nauðsynjamáli yrði
hrundið fram, margir hafa gott af
og gleðjast.
skéle
MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1979
27
Stjómunarfélag íslands
Áttu í vanda með bókhaldið?
VILTU LÆRA UNDIRSTÖÐUATRIÐI
BÓKFÆRSLU?
Oagana 29. janúar — 1. febrúar n.k. gangst Stjórnunarfélag
íslands fyrir námskeiói í Bókfærslu I aó Skipholti 70. Némskeióið
stendur yfir kl. 13:30—19:00 dag hvern eöa alls í 22 klst.
Námskeiöiö er sniöiö fyrir einstakl-
inga sem:
— hafa litla eða enga bókhalds-
menntun
— vilja geta annast bókhald smærri
fyrirtækja
— hyggja á eöa hafa með höndum
eigin atvinnurekstur og vilja geta
annast bókhaldiö sjálfir.
Námskeiðiö er einnig mjög hagnýtt
fyrir einstaklinga sem vilja aðstoða
maka sína við rekstur, svo og fyrir
konur sem eru að halda út á
vinnumarkaðinn eftir að hafa sinnt
heimilisstörfum í lengri eða skemmri
tíma.
Leiðbeinandi er Kristjón Aðal-
steinsson viöskiptafræðingur.
Nánari upplýsingar og skrðning
pátttakenda á skrifstofu félagsins,
Skipholti 37, sími 82930.
Lítið barn hef ur lítið sjónsvið
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
□ Baldursgata
□ Flókagata 1—47
□ Laugavegur 1—33
□ Skipholt 1—50
VESTURBÆR:
□ Skerjafj. sunnan flugvallar
□ Hávallagata
□ Garöastræti
□ Túngata
UPPL.I SIMA
35408
stutt og þvf miður verður það ekt
vegna þess að það eru aðeins til
25 SKODA 120 L AMIGO á þess
lága verði. Sölumenn okkar veita
allar nánari upplýsingar.
Auðbrekku 44-46, Kópavogí,
simi 42600.