Morgunblaðið - 03.02.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1979
13
Mercedes Benz 450 SLC, dýrasti Benzinn á sýningunni, kostaði um 15 milljónir.
Plymouth Horizon, einn hinna nýju, „litlu“, Megastar II, nýjasta „smástjarnan" frá Ford.
sparneytnu sem kynntur var á sýningunni.
Cadillac, model 1929.
GM eru nú komnir með framdrif, en
það eru Cadillac Eldorado og
Tornado og er jafnvel talið að flestir
bílar GM verði komnir með framdrif
árið 1985. Einnig er Buick Riviera
nú fáanlegur með framdrifi og
einnig þar er talið að hann sé aðeins
sá fyrsti af Buickgerð en hinir fylgi í
kjölfarið síðar meir. Ekki tjáðu
sýnendur sig beint um hvers vegna
framdrif væri að komast í tízku
vestra, en vera má að það sé vegna
aukinnar samkeppni erlendra bíla.
Honda er nú í þriðja sæti yfir
innflutta bíla til Bandaríkjanna, og
eru japanskir bílar þar með komnir
í þrjú fyrstu sætin. Sem fyrr segir
leggja bandarísku framleiðendurnir
nú mun meiri áherzlu en áður á
hagkvæmni í rekstri bíla og verða
um leið betur undir það búnir að
Hinn írægi Excalibur sem handsm/ðaður er fyrir þá sem eiga peninga. Kostar litlar 25 milljónir í
Bandaríkjunum.
keppa við evrópsku og japönsku
bílana.
Nú er í fyrsta sinn hafinn inn-
flutningur Reunault-bíla til Banda-
ríkjanna, en það eru American
Motors sem hafa umboðið og kynntu
þeir Reunault-bíla á sýningarsvæði
sínu.
Verðið frá
1,3 m.kr. — 32 m.kr.
Á sýningunni mátti finna bíla í
öllum verðflokkum, en vissulega
kemur það Islendingum undarlega
fyrir sjónir að líta augum Cadillac
og aðra bandaríska lúxusbíla sem
eru á þvi verði sem ýmsar „stand-
ard“ gerðir af t.d. Oldsmobile,
Chevrolet o.fl. eru seldir á hérlendis.
Ódýrustu bílarnir voru á um 4.000
dali eða sem næst 1.300 þúsund ísl.
kr. en það eru t.d. Fiat 128,
Chevrolet Chevette, Ford Pinto,
Honda Civic, Datsun 210 og Toyota
Corolla. I efri verðflokknum eru
hins vegar glæsivagnar frá Rolls
Royce sem kosta um 100 þúsund dali
eða kringum 32 milljónir ísl. króna.
Mjög margir af þeim venjulegu
gerðum bandarísku bílanna sem
fluttir eru hingað til lands kosta á
bilinu 5.000—8.000 dali eða 2—4
milljónir króna, en hingað komnir
hækka þessir bílar tvöfalt til þrefalt
og kosta þá 6—8 milljónir eins og
flestum er kunnugt.
sb/jt.
„Beðið eftir pabba og mömmu"