Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 Gunnar Guðbjartsson á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins: „Verða teknar 1,3 milljónir kr. af hverjum bónda? 99 „ÞAÐ ER hjá Framsóknarflokkn- um sagnvart hændum eins og hjá Evu Kagnvart óhreinu börnunum,“ satrói Gunnar Guöbjartsson formað- ur Stéttarsambands bænda í ræðu á miöstjórnarfundi Framsóknar- flokksins í gær. „ÞinKmcnn Fram- sóknarflokksins hafa ekki kynnt á Alþintíi ýmis mál hænda vetcna ótta við afstiiðu fólks á þéttbýlisstöð- um.“ Gunnar fjaliaði í ra'öu sinni um tfreiöslur til bænda fyrir afurð- ir þeirra og satíöi hann aó nú vantaði 5 milljarða króna til þess að ná endum saman ■ ttreiðslu útflutniniísbóta. í heild er þarna um að ra-ða nær 11 milljarða króna cn samkvæmt áætlunum er ttert ráð fyrir fjármattni upp á tæpa 6 milljarða króna otf sattöi Gunnar að það fé yrði uppurið um mánaðamót- in apríl-mai. „Þá verður það búið sem ríkið greiðir," sagði Gunnar, „og ef ekkert verður að gert þarf að taka 1,2—1,3 milljónir króna að meðaltali af hverju búi, eða jtriðjung af árstekj- um bænda. Arstekjur eru 3,6 milljónir króna og fari svo að taka þurfi þriðjung af tekjum bænda til þess að fylla í þetta 5 milljarða gat, þá hættir mikill fjöldi bænda búskap og mér sýnast allar líkur á því að þessir peningar verði teknir af bændum.“ Gunnar sagði að það hefði valdið forystumönnum bændasamtakanna vonbrigðum að ekki hefði verið hlustað á þá í þessari rikisstjórn og þó kvað hann það hafa komið skýrt fram hjá talsmönnum bænda að bændur væru tilbúnir til að taka á sig eðlilegar byrðar í erfiðri stöðu. Þá vék Gunnar að skrifum um landbúnað í Tímanum að undan- förnu og sagði að greinaskrif þar virtust sett fram til þess að valda glundroða í bændastéttinni. „Tíminn er að hafa æruna af okkur forystu- mönnum bændasamtakanna með birtingu þessara greina," sagði Gunnar. Þá vék Gunnar nokkuð að efna- hagsmálum og atvinnumálum. „Undirstöðuatriði í raunhæfum árangri i efnahagsmálum er að hafa rétta vísitölu," sagði Gunnar, „og í þessar efnahagsmálatillögur finnst mér vanta að fjallað sé um öryggi atvinnuveganna, því það má ekki íþyngja þeim með of háum sköttum og vöxtum. Eg veit um virt fyrirtæki sem varð að greiða 25% af veltunni á s.l. ári í vexti. Traustur atvinnu- rekstur er undirstaða öryggis í atvinnu- og efnahagsmálum." Þorlákshöfn: Það óhapp varð í höfninni í Vestmannaeyjum þegar línubáturinn Kópur var að koma úr róðri, að báturinn lenti á milli Bátaskersbryggjunnar og Herjólfs. Stefni bátsins sem var með járnskúffu, gekk inn í síðu Herjólfs bakborðsmegin og kom stóreflisgat á skipið. Hins vegar sá ekki á litla bátnum og fór hann í róður að nýju strax og hann hafði landað aflanum. Viðgerð var strax hafin á Herjólfi og tókst að koma henni þannig fyrir, að skemmdin kom ekki niður á ferðum skipsins. Á myndinni sést Þórður Sigurðsson, skipaeftirlitsmaður, gægjast út um rifuna sem kom á Herjólf Ljósm. Sigurgeir. LAGNING II km stofnæðar fyrir Þorlákshöfn er nú langt komin, en samkvæmt upplýsingum sem Loðnuveiðin yfir 180 þúsund tonn NÍTJÁN loðnuskip tilkynntu Loðnunefnd um afla frá því í fyrrinótt þar til í gærkvöldi og var sólarhringsaflinn þá orðinn 12.200 lestir. Eftirtalin skip tilkynntu um afla frá því á fimmtudagskvöld: Fimmtudagur: Kap II 600, Magnús 510, Hrafn 630. Samtals 11760 lestir þann sólarhring. Föstudagur: Arnarnes 500, Húnaröst 620, Helga Guðmundsdóttir 700, Skírnir 370, Hákon 800, Sæbjörg 620, Jón Kjartansson 1050, Guðmundur 950, Sæberg 660, Rauðsey 550, Súlan 780, Hilmir 500, Jón Finnsson 600, Harpa 630, Freyja 340, Víkingur 900, Sigurður 1200, Gunnar Jónsson 250. Heildaraflinn á vertíðinni er þá orðinn talsvert yfir 180 þúsund tonn. Morgunblaðið hefur aflað sér hefur Þorlákshafnarhreppur ekki gengið frá greiðslu röranna ennþá. né tollafgreitt vöruna sem fjármálaráðuneytið veitti á sínum tíma heimild til að yrði skipað upp í Þorlákshöfn þar sem meiningin var að hreyfa ekki pipurnar fyrr en búið væri að ganga frá öllum pappírum. Hér er um að ræða rör fyrir 50—60 millj. kr. með gjöldum. Rör þessi áttu að koma til landsins í júlí s.l., en komu ekki fyrr en í október og í nóvember lét sveitarstjórnin hefja lagningu rör- anna þótt ekki hefði verið gengið formlega frá málum. Samkvæmt upplýsingum Þorsteins Garðars- sonar sveitarstjóra var sótt um greiðslufrest eða afslátt til erlendu verksmiðjunnar vegna W Meiri loðna en ég þorði að búast við ” Segir Hjálmar Vilhjálmsson um loðnugöngumar úti af Vestfjörðum, en telur ólíklegt að tillögum um 350 þús. t hámarksveiði verði breytt — ÉG ER NOKKURN veginn viss um það, að ef hér hefðu verið skip siðastliðna nótt, þá hcfðu þau getað fengið góðan afla, sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur í samtali við Mbl. í gær, en Hjálmar er leiðangurstjóri um borð í Bjarna Sæmundssyni, sem nú kannar loðnusvæðin úti af Vestfjörðum. — Síðastliðinn sólarhring höfum við kannað loðnugöngur á svæðinu norðvestur og vestur af Vestfjörðum eða það svæði, sem togararnir urðu varir við mikið af loðnu, sagði Hjálmar. — Á því leikur enginn vafi, að hér er verulega mikið af loðnu og áberandi meira en var hér veturinn 1977 þegar sem lengst var fylgst með loðnu af þessu sama svæði. I gærkvöldi og fram eftir nóttu stóð loðnan djúpt og virtist þá aðallega mynda gisna dreifða flekki, suma nokkuð stóra. Seinni hluta nætur og í morgun fundust nokkuð margar stórar torfur, aðallega vestur og norður af Halanum. — Þessar torfur komu efst upp á 25 faðma dýpi, en héldu sig aðallega nokkuð dýpra, eða á 30—45 faðma dýpi. — Ilcfurðu heyrt um einhver skip, sem ætla að reyna fyrir sér á þessu svæði? — Nei, ég hef nú ekki frétt af því og hef grun um að þeir verði tregir að fara af gamla svæðinu fyrir austan, sem þeir þekkja betur og þar gengur líka ágætlega eins og er. En hingað þyrftu að koma skip til þess að athuga veiðilíkur almennt á þessu svæði. — Við höfum tekið nokkur sýni hérna og niðurstöður eru svipaðar úr þeir öllum. Þetta er frekar smávaxin hrygningar- loðna, en einnig að einhverju leyti ókynþroska, en það er þó ekki umtalsvert. Þetta er ekkert ósvipað því, sem er fyrir austan, þó svo að hrygnan sé kannski heldur smærri. — Kann þetta loðnumagn fyrir Vestfjörðum að breyta einhverju um tillögur Hafrannsóknastofnunar um 350 þúsund tonna hámarks- veiði á vetrarvertíðinni? — Burtséð frá því hvað hér er í tonnum talið, þá er hér meira af loðnu en ég eiginlega þorði að búast við. Við erum hinsvegar ekki búnir að leggja þetta endanlega niður fyrir okkur, en í fljótu bragði get ég ekki séð að þetta breyti tillögum okkar. Fyrir austan er ekki mjög mikið magn á ferðinni og ég er hrædd- ur um að það sé gengið nokkuð nærri því. svika í afgreiðslu og fyrirsjáanlegs aukins kostnaðar og var veittur greiðslufrestur til 31. marz n.k. en dráttur hefur orðið á staðfestingu. Hins vegar veitti fjármáiaráðu- neytið, samkvæmt upplýsingum Sigurgeirs Jónssonar fulltrúa, í haust leyfi til útgáfu skuldabréfs til þess að greiða aðflutningsgjöld af vörunni til ríkissjóðs sam- kvæmt lögum um hitaveitur, en kostnaður af gjöldum við stofnæð er lánaður til 10 ára. Hreppurinn hefur lagt skuldabréfið inn. Vegna síðbúinnar afhendingar hækkar kaupverð sem nemur síðustu gengisfellingu, en aðflutningsgjöld af hitaveiturör- um eru tollur, söluskattur og vörugjald. Væntanlega verður vatni hleypt á hitaveitu Þorlákshafnar á þessu ári, en dreifikerfið verður lagt í sumar. Þing Alþýðusambands Suðurlands á Hellu 5. ÞING Alþýðusambands Suður- lands hefst á Hellu kl. 14 í dag. Mun þingið m.a. fjalla um kjara- ,og atvinnumál, en þingið sækja 40—50 fulltrúar úr þremur sýsl- um. Formaður þingflokks Framsóknarflokksins: „Er á móti einkasölu olíu og trygginga” HALLDÓR E. Sigurðsson formaður þingflokks Framsóknarflokksins flutti ræðu á miðstjórnarfundi flokksins í gær og fjallaði hann þar m.a. um aðgerðir stjórnvalda. „Ég hef alltaf fylgt meirihlutaákvörðun í Framsóknarflokknum, jafnvel þótt mér hafi ekki líkað niðurstaðan, en ég vil taka það fram nú, að tvennu fylgi ég ekki sem rætt hefur verið um hjá aðilum í ríkisstjórninni. Ég mun aldrei fylgja því að ríkið taki yfir olíueinkasölu eða trygginga- starfsemi í landinu." Búið að leggja 50 millj. kr. hitaveiturör ótollafgreidd Hlegið að „nákvæmnis- skekkju” Alþýðufiokksins STEINGRÍMUR Hermannsson dómsmálaráðherra fjallaði í gær á miðstjórnarfundi framsóknar- manna um ráðherraskýrsluna í sambandi við væntanlegt frum- varp þar að lútandi. Steingrímur var formaður ráðherranefndar- innar og rakti hann m.a. ýmsar sérskoðanir samstarfsflokkanna þriggja. Segir m.a. í ráðherra- skýrslunni: Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur leggja til að í kaflann (um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun) bætist ný grein: Á árunum 1979 og 1980 skal heildarfjárfesting þjóðarbúsins eigi fara fram úr 25 af hundraði (Alþýðuflokkur vill 24,5) vergrar þjóðarframleiðslu. „Það hefur verið aðhlátursefni hjá okkur í þessu tilviki að Alþýðuflokkurinn er mjög ákveð- inn í því að miða við 24,5% og ekkert annað,“ sagði Steingrím- ur, „en mismunurinn þarna, 0,5%, er ekki einu sinni það sem hlýtur ávallt að rokka til, þetta er ekki einu sinni lágmarksskekkja, en er stórmál hjá þeim.“ 11 Einar Ágústsson: Ekki of eftir- gefanlegir við þessa herra” „ÉG TEL að forsætisráðherra okkar eigi ekki að vera of eftir- gefanlegur við þessa herra þegar hann setur saman frumvarpið um efnahagsmál, samstarfsflokkarn- ir hafa fyrr sett skilyrði sem þeir hafa ekki staðið á og ég tel að það sé alveg sama hvort éið erum nær Alþýðubandalaginu eða Alþýðu- flokknum í þessu efni, ef við aðeins getum ráðið sjálfir hvað verður ófan á“ sagði Einar Ágústsson varaformaður Fram- sóknarflokksins á miðstjórnar- fundinum í gær þegar hann ræddi um stjórnarsamstarfið. Þorrablót um hverja helgi... ... Og skagfírzk hjón þykkna undir belti Bæ, Ilöfðaströnd — 9. febrúar. í Skagafirði er nokkur snjór, þótt oft hafi hann verið meiri. Hiti og frost hafa verið mjög misjöfn, allt frá 20 gráða frosti niður í 0 sama sólarhringinn. Hrossum er víða gefið úti, þar sem ekki eru því betri hagar. Þorrablót og aðrar árshátíðir eru nú haldnar á 1—2 stöðum um hverja helgi hér í héraðinu, og mér er nú sagt að hjón þykkni verulega undir belti, enda lifa allir hóglífi. Ég veit ekki hvað út úr þessu kemur, en ekki er ólíklegt að þetta ástand batni þegar vora tekur. Vegum er haldið opnum eins og hægt er vegna mjólkurflutninga, mannaferða til og frá Siglufirði og um héraðið vegna hátíða. Eitthvað ber á útafkeyrslum vegna hálku á vegum, en snjórinn utan vega bjargar býsna vel frá áföllum á farartækjum og fólki. Sjósókn er nú lítil héöan úr Skagafirði nema togararnir sem alltaf eru áð og veita fólki dýrmæta atvinnu, sem ekki er vanþörf á vegna dýrtíðar, sem mörgum virðist aukast en ekki minnka. Skattframtöl sem lítið eru komin af stað ennþá, gefa bendingu um að afkoman 1978 hafi verið sæmileg. — Björn í Bæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.