Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 45 ómögulegir, heldur aðeins það að kröfur nútímans eru það miklar að sérmenntun þarf til. Að framansögðu er ljós sú stað- reynd að góð kennaramenntun hlýtur að vera börnunum fyrir bestu. Þess vegna er brýn nauðsyn á að þessu ófremdarástandi linni og það strax. Guðrún Edda Ólafsdóttir, Helga Haraldsdóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Þórdís Mósesdóttir, nemendur í K.H.Í. • Áhrif áfengis Áfengi veldur því að rauðu blóðkornin límast saman en það veldur truflun á blóðrásinni. Þetta hefur komið í ljós við rannsóknir dr. Melvins Knielys við lækna- háskólann í Suður-Karólínu í Charleston. Eftir því sem áfengismagn í blóðinu eykst þykknar það og hættir að streyma um þrengstu æðarnar, háræðarnar og síðan um víðari æðar. Það eð súrefni berst taugafrumunum aðeins með blóð- inu verður brátt súrefnisskortur í taugavefjunum. Þessi súrefnis- skortur bitnar fyrst og fremst á heilanum sem þarfnast sérlega mikils súrefnis til að starfa á eðlilegan hátt. Heilafrumurnar deyja ef þær vantar súrefni, þótt ekki sé nema stuttan tíma. Er það súrefnið sem veldur ölvun? Slysavarnafélagskona. Hjá Tómasi Helgasyni yfirlækni á Kleppsspítalanum fékk Velvak- andi þau svör að súrefnið hefði ekki áhrif á ölvun manns og að ölvun hefði ekkert með blóð eða blóðflutning að gera. Hjá Þorkeli Jóhannssyni prófessor í lyfjafræði fékk Valvak- andi þau svör að það sem ylli ölvun væri enn sem komið er ekki endan- lega þekkt. Hins vegar sagði hann að það væri hér um bil öruggt að ölvun gripi inn í starfsemi tauga- fruma sem flytja boð frá einni taugafrumu til annarrar. í sambandi við þá fullyrðingu að áfengi hefði þau áhrif á blóðkornin að þau límist saman sagðist Þor- kell halda að svo væri ekki. Ef svo væri, sagði hann, að slíkt yrði aðeins eftir mjög mikla áfengis- neyslu. Þessir hringdu . . . • Spor í rétta átt Mig langar til þess að lýsa stuðningi mínum við nýja áfengis- löggjöf sem nú er til umræðu. Ég vil einnig fá að þakka þeim þing- mönnum sem hafa borið þetta frumvarp fram. Ég tel þetta nýja frumvarp vera spor í rétta átt til frjálsræðis. Það vinnst ekkert með boðum og bönn- um og þeir sem eru á móti nýju löggjöfinni vita ekki hvað þeir eru að tala um. Það er verið að skapa þjóðfélag eins og í austantjalds- löndunum með því að vera sífellt að segja mönnum hvað þeir megi og megi ekki gera. Ég tel að ný löggjöf muni stórbæta áfengis- og skemmtanamenningu okkar Is- lendinga eins og það hefur sýnt sig að gerst hefur í öðrum löndum. En annars staðar þar sem boðin og bönnin ríkja ennþá eru þessi mál enn í ólestri og ættum við að læra eitthvað af því. Einnig langar mig til að minn- SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti sovézka hersins í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Karasevs, sem hafði hvítt og átti leik, og Legkins. 23. Dh6! (Lakara var 23. Rf6+ — Bxf6, 24. gxf6 — Dxe4) gxh6, 24. gxh6+ - Kf8, 25. Bg7+ — Kg8, 26. BÍ6+ og svartur gafst upp, því að eftir 26... Kf8, 27. Hdg3 er hann óverjandi mát. ast enn einu sinni á bjórinn sem mér finnst að ætti að fást hér á landi þótt ekki væri nema í áfengisverslunum ríkisins. Eitt er það enn sem skapar okkur Islendingum lélega áfengis- menningu. Áfengi á skemmtistöð- um er allt of dýrt. Fólk svolgrar I sig heila flösku áður en inn er farið og kaupir síðan 1—2 glös inni og þá er ekki að því að spyrja. Ég tel að þetta skapi að miklu leyti hina ógurlegu drykkju fólks á skemmtistöðum um helgar og þetta myndi stórbatna ef verð á áfengi á skemmtistöðum lækkaði eða ef þar fengist bjór. Örn Ásmundsson. HÖGNI HREKKVÍSI 'Mo h£Fu£ íb&onur/nh '• fR/uriiw'" Vörumarkaðsverð MATVÖRUDEILD: Pitlsbury hveiti 5 Ibs....... kr. 351 Libbys tómatsósa ............ kr. 207 Libbys bakaðar baunir ....... kr. 305 WC pappír 2 r................ kr. 195 Kaaber kaffi ................ kr. 560 Ljómasmjörlíki .............. kr. 218 Nautahakk 1 kg............... kr. 1.650 Kindahakk 1 kg............... kr. 1.557 Þorramatur í úrvali Marineruð síld á kynningarverði Opið til hádegis í dag Vörumarkaðurinn hf. ÁRMÚLA 1A. Matvörud. S. 86-111. Húmgagnad. S 86-112. VafnaSarvörud. S. 86-113. Haimiliataakjad. S. 86-117. Ný og betri þjónusta Sendum heim á kvöldin Tóbak, sælgæti, pylsur, samlokur, blöð og tímarit, hreinlætisvörur, klaki í pokum. Allt gos beint úr kæli, ís og ístertur o.fl. o.fl. Kaupum allar tómar flöskur. Söluturninn NÓRI Háteigsvegi 52 — Sími 21487. JlírtlpsjiMa§)4l> óskar eftir blaðburðarfólki AUSTURBÆR: □ Laugavegur 1— 33 ~ VESTURBÆR: □ Skerjafj. sunnan flugvallar II. □ Hávallagata □ Garöastræti ÚTHVERFI: □ Sogavegur KÓPAVOGUR: □ Hrauntunga UPPL. I SIMA 35408

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.