Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 5 örn Petersen sem séð hefur um framkvæmd diskódanskeppn- innar og Þórdís Bachmann framkvæmdastjóri „Gleymd börn 79“ með verðlaunagrip þann sem íslandsmeistarinn í diskódansi fær til eignar. Ljósm. Emilía. Úrslit íslands- meistara keppn- innar í diskó- dansi ÚRSLITAKEPPNIN um íslandsmeistaratitilinn í diskódansi fer fram í Háskóiabíói í dag. laugardag ok hefst kl. 15. Allur ágóði af keppninni rennur til söfnunarinnar „Gleymd börn '79“. Undanfarin 5 sunnudagskvöld hefur farið fram á vegum Öðals og Vísis undankeppni um Islandsmeistaratitilinn í diskódansi. Þátttakendur hafa eingöngu verið áhugafólk og hafa um 10 manns keppt hverju sinni. Af þessum 10 hafa síðan 2—3 verið valdir úr og keppir sá hópur, alls 14 manns, til úrslita í dag. Dómarar verða atvinnudansarar og er Heiðar Ástvaldsson danskennari yfirdómari. Auk keppninnar sjálfrar verður áhorfendum boðið upp á ýmiss konar skemmtiatriði, m.a. hljómsveitina Geimstein, Islenska dansflokkinn, Sæma og Diddu og sýningarfólk frá dansskólum Sigvalda og Heiðars Ástvaldssonar. Verð aðgöngumiða er 2.500 krónur en allir listamenn gefa vinnu sína. Stöðva loðnu- löndun í 3 daga á Austf jörðum LOÐNUNEFND hefur ákveðið að stöðva loðnulöndun n.k. sunnudag. mánudag og þriðjudag í verksmiðj- ur á Seyðisfirði, Neskaupstað. Eskifirði. Reyðarfirði. Fáskrúðs- firði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvik og Djúpavogi. Ástæður þessar eru þær að þróar- rými á þessum stöðum er mjög takmarkað og biðtími loðnuskipa eftir löndun þar orðinn svo langur að rétt þykir eins og á stendur að veiði næstu tvo sólarhringana fari til fjarlægari staða segir í frétt frá Loðnunefnd. Við þetta vinnst það, að vinnsla getur hafist fyrr en ella hjá verksmiðjum sem fjarri miðunum eru og það hráefni verður betra sem verksmiðjurnar á Austfjörðum fá væntanlega að lokinni þessari stöðv- un. Veiðihorfur og veðurútlit næstu daga er gott og telur loðnunefnd rétt við þessar aðstæður að flytja afla nú til hafna sem liggja fjær veiðisvæð- inu. Löndunarstöðvun þessi er enn- fremur miðuð við það að sem stærst- ur hluti loðnuflotans sigli þannig með aflann en fyrirsjáanlegt var að mörg skipanna hefðu þurft að sigla hvort eð var alveg á næstunni að óbreyttum aðstæðum. INNLENT Lögreglufélag Reykjavíkur: Tilskipun raðuneyt- isins um skömmtun fjölmiðla er móðgun STJÓRN Lögreglufélags Reykja- víkur hefur sent Steingrími Ilermannssyni bréf vegna til- skipunar ráðuneytisins um að fjarlægja skuli sjónvarpstæki úr lögregluvarðstofum. Bréfið er svohljóðandi: Hæstvirtur dómsmálaráðherra. Borizt hefir frá ráðuneyti yðar tilskipun til lögreglustjóra lands- ins þess efnis að fjarlægð skuli úr lögreglustöðvum sjónvarpstæki lögreglumanna, þetta skal fram- kvæmt fyrir 30. júní n.k. Fyrirlestrar um mannréttindamál „MANNRÉTTINDIN og einstakiingurinn“ verður fundar- efni á almennum fundi er Lagadeild Háskólans gengst fyrir kl. 14 í dag í Norræna húsinu. Flutt verða þrjú stutt erindi: Gaukur Jörundsson prófessor talar um mannréttindanefnd Evrópu, Jakob Möller ræðir störf S.Þ. að mannréttindamálum og Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari fjallar um störf mannréttindadóm- stóls Evrópu. Stjórn Lögreglufélags Reykja- víkur leyfir sér að vekja athygli hæstvirta ráðherrans á eftirfar- andi: Sótt var um leyfi til lögreglu- stjórans í Reykjavík, hr. Sigurjóns Sigurðssonar, þess efnis að lögregluþjónar fengju að setja upp og nota, þegar færi gæfist, sjón- varpstæki í setustofum lögreglu- stöðva embættisins. Leyfi fyrir fjórum tækjum var gefið í nóv. síðastliðinn og eru nú tvö í notkun. Það verður að ætla að lögreglu- þjónar njóti þess réttar að vera ekki dæmdir á ákærunni einni og ekki fram á mikið farið að hún sé þá birt þeim ef borizt hefir. Ekki er okkur kunnugt um viðhorf lögreglustjóra til annarra embætta, en eðlilegt að hver éti úr sínu í þessu máli og hið háa ráðuneyti ruglist ekki á bakaran- um og smiðnum. Lögregluþjónar eru því vanastir að þurfa sjálfir að taka stórar ákvarðanir í starfi sem er í eðli sínu erfitt og viðkvæmt. Nýtur lögregluþjónn verður enginn nema hann hafi tamið sér sjálfstæði í hugsun og sjálfsögun. Skólinn heitir Heiðarskóli KRISTINN Júlíusson á Leirá hringdi til Morgunblaðsins og vakti athygli á þvi að skóli sá, sem stcndur nálægt bænum Lcirá heitir Ileiðarskóli en ekki Leirárskóli, eins og hann var kaliaður í Morgunblaðinu sl. miðvikudag. Tilskipun dómsmálaráðuneytis- ins í þessu máli, þar sem gert er ráð fyrir því að skammta okkur lögregluþjónum fjölmiðla verður því að skoðast sem móðgun. Stjórn Lögreglufélags Reykja- víkur mun leggja fyrir aðalfund félagsins, sem haldinn verður þ. 14. þ.m., tillögur um varnir í þessu mannréttindamáli m.a. könnun á lagahlið þess. Stjórn L.F.R. væntir þess, að þér, hhr. dómsmálaráðherrá, afturkallið þessa tilskipan svo af okkur verði létt óþarfa fargani. ÍOO. ártíó Jóns Sigurðssonar: Minnispeningarn ir að seljast upp NÝJU minnispeningarnir, sem slegnir voru í tilefni 100. ártíðar Jóns Sigurðssonar forseta, eru að seljast upp. Samkvæmt upplýsingum Ragnars Borg, myntsérfræðings Mbl., voru í þessari viku aðeins til 30 sett af silfur- og bronzpeningum hjá Seðla- bankanum auk þess sem nokkur sett voru til hjá Myntsölum. Settin eru aftur á móti uppseld hjá bönkum og útibúum þeirra. Þá eru til nokkrir stakir bronzpeningar. Peningarnir komu á markaðinn fyrir tveimur mánuðum og hafa þeir selzt ótrúlega vel. Gefin voru út 1000 sett og 1500 bronzpeningar að auki. Settið kostar 35 þúsund krónur en stakir bronzpeningar kosta 10 þús- und krónur. GRISAVEISLA SUNNUHATID Hótel Saga — Súlnasalur Sunnudagskvöld 11. febrúar Húsið opnað kl. 19.00. Hressing við barinn Ókeypis happdrættismiðar afhentir. SPANSKUR VEISLUMATUR Grísasteikur og kjúklingar með öllu tilheyrandi. Sangria. Verö aðeins kr. 3.500- HALLI OG LADDI meö nýja, sprenghlægilega gamanþætti FERÐAKYNNING — LITKVIKMYNDIR Glænýjar litkvikmyndir frá eftirsóttum áfangastööum Sunnu, á Kanaríeyjum, Mallorca, Costa del Sol og Grikklandi, og einnig af skemmtiferðaskipinu FUNCHAL, sem Sunna leigir næsta sumar. Sagt frá mörgum spennandi feröamöguleikum sem bjóðast á þessu ári. GLÆSILEGT FERÐABINGÓ Vinningar 3 sólarlandaferðavinningar með Sunnu eftir frjálsu vali. TÍSKUSÝNING Fegurðardrottningar íslands 1978 og 1977, ásamt stúlkum frá Karon, sýna þaö nýjasta í kvenfatatískunni. FEGURÐARSAMKEPPNI ÍSLANDS Gestir kvöldsins kjósa fulltrúa í lokakeppnina um titilinn Fegurðardrottning Reykjavíkur 1979. DANS TIL KL. 1.00 Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamt söngkonunni Þuríði Sigurðardóttur leika og syngja. ÓKEYPIS HAPPDRÆTTI Þeir matargestir sem mæta fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happdrættismiða, en vinningur er Kanaríeyjaferð 23. febrúar. Missið ekki af glæsilegri grísaveislu á gjafverði. Ókeypis Kanaríeyjaferð í dýrtiðinni, fyrir pann heppna. Pantið borð tímanlega hjá yfirpjóni daglega frá kl. 16.00 í síma 20221. HOT«L iAGA SÚLNASALUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.