Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979 29 tvær hæðir, sem enn standa ónotaðar, en eins og ég sagði áðan er mjög erfitt að verzla á efri hæðum, en ég hef engar hug- myndir að sinni um hvað við gerum. — Þú rekur einnig Nýja Bíó og skemmtistaðinn Bergás? — Já, ég tók við Nýja Bíó eftir að tengdafaðir minn og mágur létust og hef rekið það síðan. Það var afi konu minnar, Guðnýjar Ásberg Björnsdóttur, Eyjólfur Asberg, sem byggði húsið fyrir 30 árum og þótti þá gífurlegt mann- virki á tímum, er ekkert efni var að fá hér suðurfrá. Húsið tekur 440 manns í sæti. Við leigjum mest af myndunum frá húsum í Reykjavík, en höfum einnig frumsýnt svolítið. Þarna eru sýningar öll kvöld, tvær á laugar- dögum og 4 á sunnudögum. Þetta hefur gengið allvel en töluverð aukning varð á aðsókninni, er Keflavíkursjónvarpið endanlega lokaði. Nú hugmyndina að Bergási fékk ég, er kjallarinn undir bíóinu losnaði úr leigu. Veitingarekstur þar var þó eng- inn nýlunda, því að 1955—60 var Bíókjallarinn rekinn þar og var eina danshúsið í Keflavík. Mér datt í hug að setja þarna upp diskótek og við skelltum okkur í að innrétta sal, sem nú tekur 200 manns. Þetta virtist falla unglingum vel í geð og hafa þeir sótt staðinn vel. Nú höfum við í hyggju að breyta þessu í alvöru- veitingahús og höfum sótt um vínveitingaleyfi og fengið jákvætt svar frá Matsnefnd vín- veitingahúsa með nokkru skilyrði, sem við höfum uppfyllt og síðan mun bæjarstjórn greiða atkvæði um málið. Svona hús vantar tilfinnanlega í Keflavík og ef þetta gengur í gegn liggur þegar fyrir teikning að nær helmingsstækkun salarins þar sem fullkomið eldhús yrði. Manni virðist að tími ætti að vera kominn til að Keflvíkingar og aðrir Suðurnesjamenn eignuðust sinn eigin veitingastað, þannig að ekki þurfi að fara til Reykjavíkur ef menn vilja gera sér dagamun með mat og drykk. — Á að láta staðar numið í bili, eða ertu með einhver stór áform? — Ætli þetta dugi ekki, ég held að ekki sé meira að gera að sinni, annað en að vinna að því að bæta það, sem komið er. Þetta er gífurleg vinna, auk þess að reka verzlanirnar er ég á hverju kvöldi upp í bíói. Ingólfur Halldórsson skip- stjóri á Svani KE er búinn að stunda útgerð og sjósókn úr Keflavik í 13 ár. Svan er hann búinn að eiga í 8 ár, en báturinn er 37 tonn að stærð. Áður átti Ingólfur 27 lesta bát með sama nafni. sem hann gerði fyrst út frá Akureyri, áður en hann fluttist suður. Svanur var á lfnuveiðum í haust. Við hittum Ingólf er hann var að koma úr róðri með 4'A tonn og spurðum hann tíðinda um aflabrögð á haust- vertíðinni. Hann sagði að í september hefðu gæftir verið afar góðar, þeir náð 20 róðrum, en eftirtekj- an hefði ekki verið að sama skapi, mánaðaraflinn 70 tonn, sem rétt hefði marið það að ná hlut. í október og nóvember hefðu gæftir hins vegar verið afleitar, en hægt að reka í sæmilegan róður er gefið hefði. Heildarafli þessa tvo mánuði var því um 110 lestir og var langt frá því að.dygði til að ná hlut. Við spurðum Ingólf hvað þætti sæmilegur róður nú á tíðum og hann sagði að menn teldu það gott ef þeir næðu 5 tonnum, en yfirleitt mætti segja að aflinn legði sig að jafnaði á 3% lest í róðri. Aðspurður um hvernig gengi að láta enda ná saman sagði Ingólfur að það þyngdist stöðugt að láta ná saman og hefði verið óheillaþró- un allt þetta ár. Beitikílóið á sl. ári hefði verið á þriðja hundrað krónur og þannig væri öll þróun í sambandi við kostnaðinn. — Við erum fjórir, sem róum í stað 5 og það er aðeins gert til þess að þeir sem róa fái meira til skiptanna. Það fæst ekkert út úr þessu nema með því að þeir sem um borð eru streði meira og skipti síðan á milli sín hlut 5. og 6. manns. Allir um. borð eru yfirmenn og fá því hlut 5. manns og fjórðung að auki til skipta til viðbótar við sinn hlut. Þetta er allt á öfugri leið. Aflinn fer ört minnkandi og þá sérstaklega á netavertíðunum undanfarin ár. Hér áður fyrr var það netaafl- inn, sem yfirleitt hélt þessu uppi hinn tíma ársins, það var eina úthaldið, sem skildi einhvern arð eftir sig og náði þá að bæta upp aðra mánilði, ef manni Ingólfur Halldórsson. Ingólfur á Svan- inum KE aðeins tókst að halda í horfinu. Það virðist nú vera liðin tíð. Við spurðum Ingólf hvernig fiskur það væri sem fengist og hann svaraði því til að yfirleitt væri þetta sæmilegasti fiskur. — Við höfum heyrt að það sé alltaf verið að selja báta úr Keflavíkinni. Hvernig lízt þér á þá þróun? — Ég er hræddur um að hún eigi eftir að halda eitthvað áfram, því að þetta er alltaf að þyngjast. Hins vegar er málum svo hreinlega komið, að ef aflinn heldur áfram að minnka er ég hræddur um að ekkí verði um nema eitt að ræða, að leggja bátunum. Þetta er komið í al- gert lágmark. Fiskverð hefur ekkert hækkað í hlutfalli við laun og allan kostnað. 1977 þurfti 55 tonn til að ná hlut, í dag þarf 70 tonn. Það sér hver maður að þetta getur ekki geng- ið. — Nú er hagur fiskvinnsl- unnar ekki beisinn. Hvernig gengur að fá greitt fyrir það sem þó berst að landi? — Ég hef verið heppinn. Ég keypti þennan bát af Hrað- frystistöð Keflavíkur fyrir rúm- um 8 árum og lagði upp hjá þeim fyrstu 5—6 árin, en hef síðan lagt upp aflann hjá aðila í Garðinum og hef verið heppinn með það að fá greitt. Hins vegar heyri ég það á félögum mínum sumum að það er erfitt að fá greiðslur og þyngist stöðugt. Við spurðum hvar hann héldi að þetta endaði allt saman. — Þessu er vandi að svara. Það er klárt mál að það verður að fara að gæta mikils aðhalds, meira en verið hefur. Vandinn er sá að ef af gengur króna til næsta árs er hún skattlögð þannig að aðeins eru eftir 20 aurar og manni heyrist að þrengingarnar komi úr öllum áttum. — Hvað finnst þér um fisk- verðshækkunina um áramót? — Það er slungið mál. Það er greinilegt að fiskverðið hefur ekki fylgt eftir hækkunum á kostnaði og launum. Sjómenn verða að fá sína kauphækkun eins og annað fólk. Hækki út- flutningsverðið hins vegar ekki, er ekki svo gott að hækka fiskverðið nema þá að gengis- felling fylgi í kjölfarið. Hafa þeir ekki alltaf orðið að bjarga þessu með slíkum ráðstöfunum. Það er ekki góðra kosta völ framundan og skrýtið finnst manni að ekki skuli vera hægt að koma þessu á einhverja rétta stefnu. — Hvað gerist ef netavertíðin bregst enn einu sinni? — Þetta bara má alls ekki versna, því þá verður bátunum lagt. Mér lízt ekki á tilhugsun- ina um lélegri aflabrögð, en það þýðir ekkert fyrir mann annað en að vona. Er við spurðum Ingólf hvernig honum gengi að manna bátinn svaraði hann því til að hjá sér hefðu þetta verið mikið til sömu mennirnir ár eftir ár, þannig að hann hefði ekki átt svo erfitt, en sér heyrðist á öðrum að það eins og annað væri farið að þyngjast. „Efaflinn minnkar er ég hrœddur um að leggja veríU bátunum” enn eingöngu fyrir báta og eru rafalarnir frá 7 kw upp í 15 kw og fyrir áramót setja þeir á markaðinn 35 kw rafal. Þórarinn sagði að fram- leiðslan hefði gengið mjög vel og hefðu þeir nú frá upphafi fram- leitt um 200 rafala í báta og hefðu þeir ekki verið fluttir inn frá því að fyrirtækið hóf fram- leiðslu. Verðið er frá 617 þús. kr. upp í 1300 þús. kr., en verðið á 35 kw tækjunum verður um 2Vz milljón kr. Útflutningurinn nemur í dag um 10 milljónum króna einungis til Noregs og er framleiðslan fyllilega sam- keppnisfær þar að sögn Þórar- ins. Sagði hann að stöðugt væri verið að vinna að útflutnings- málum og væru þeir bjartsýnir á aukningu á því sviði. Fyrirtækið veitir alla þjónustu fyrir fram- leiðsluna. Aðeins' 3 menn vinna hjá Alternator og sagði Þórarinn, að vinnuaflsskortur háði þeim mjög alvarlega, nú vantaði þá 4—5 menn til viðbótar svo vel ætti að vera, rafvirkja, rafvélavirkja og rennismiði, en samkeppnin við Keflavíkurflugvöll um vinnuafl stæði þeim mjög fyrir þrifum. I dag er framleiðslan 2—3 rafalar á viku. Þórarinn sagði • að illa gengi að byggja upp svona iðnað þegar ekki fengist mannskapur til hans. Um hráefnið í framleiðsluna sagði Þórarinn, að það væri að mestu leyti flutt inn, en Hella H/F í Reykjavík hefði steypt fyrir þá allt, sem þyrfti, úr áli. Við spurðum Þórarin um framtíðaráform og hann svaraði því til að beint lægi við, er aðstæður leyfðu, að fara út í smíði riðstraumsrafala fyrir stærri skip, t.d. togara, og þann- ig byggja upp alhliða þjónustu fyrir fiskiskipaflotann, togara og báta. Þeir stefndu að því að framleiða rafala á lager, en það hefði ekki verið hægt hingað til sökum manneklu. Hann sagði að því miður væri enginn skilningur á iðnaði sem þessum á íslandi og t.d. fengju þeir enga fyrirgreiðslu í sambandi við hönnunarverk, sem kostuðu allt upp í 15—20 milljónir króna, það yrði allt að fjármagna með eigin fé. Þá væri húsnæðið orðið alltof lítið, en ekkert svigrúm til að stækka enn sem komið væri. Væri þetta hart, er á það væri litið, að framleiðslan sparaði um 60 milljónir króna á ári í gjald- eyri, auk þess, sem góðir mögu- leikar væru á útflutningi. Séð yfir verkstæðið. Eyjólfur og Þórarinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.