Morgunblaðið - 10.02.1979, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979
Einn umsvifamesti einka-
aðili í verzlun í Keflavík í
dag og er Árni Samúelsson
forstjóri Víkurbæjar. Hann
fluttist til Keflavíkur árið 1%4
og tók þremur árum síðar við
rekstri Nýja Bíós, stofnaði síðan
Víkurbæ 1973 og 1977 opnaði
hann skemmtistaðinn Bergás,
sem er í kjallara Nýja Bíós. Mbl.
leit við á skrifstofunni hjá Árna
í nýlegu stórhýsi við Hafnargötu
mitt í önnum dags og við spurð-
um hann fyrst hvert hefði verið
upphafið að þessum mikla
rekstri.
— Samhliða því að reka Nýja
Bíó, sem var í eigu tengdafólks
míns, var ég einnig með heild-
verzlun í Reykjavík og flutti inn
plast frá Hong Kong. Þetta þýddi
að ég varð að aka á milli sex daga
vikunnar og gerði í nokkur ár. 2.
marz 1973 opnaði ég svo verzlun-
ina Víkurbæ að Hafnargötu 28,
en það var hljómplötu-, ljós-
myndavöru- og hljómflutnings-
tækjaverzlun og síðar var þar
einnig sett upp blómadeild. Ég
hélt engu að síður áfram
rekstrinum í Reykjavík en auð-
vitað kom að því, að ég þreyttist á
þeytinginum fram og aftur svo og
að umsvifin uxu jafnt og þétt
þannig að ég gat ekki sinnt öllu
sem skyldi og seldi því heild-
verzlunina. 1975 losnaði svo hús-
næði að Hafnargötu 21, sem var í
eigu tengdafólks míns og hafði
verið í leigu, og þá fór ég að velta
fyrir mér að setja upp vörumark-
að með matvæli og nýlenduvörur,
því að mér fundust alltof margir
Suðurnesjamenn fara til Reykja-
víkur til að gera innkaup um
helgar. Við byrjuðum í 100
fermetra húsnæði, sem strax
varð of lítið og þá var ákveðið að
ráðast í byggingu húss á lóðinni.
Átti það upphaflega að vera ein
hæð, en varð á endanum 4 og var
byggt á aðeins 8 mánuðum.
Grunnflötur hússins er 200
fermetrar og er búið var að taka
neðstu hæðina undir markaðinn
var húsnæðið orðið 300 fermetrar
auk lagers í kjallara. Fram til
þess tíma höfðum við lagerinn í
húsi handan götunnar og þurft-
um að sækja allar vörur þangað.
Á 2. hæð var síðan opnuð
tízkufataverzlun og gjafavöru-
deild í nóvember 1976 og skömmu
síðar fluttum við blómadeildina
þangað. Hins vegar varð raunin
sú, að það er afar erfitt að verzla
á 2. hæð, það virðist, sem fólkið
þurfi að geta dottið inn í búðirnar
af götunni, ef svo má að orði
komast. Nú þróunin varð sú, að
verzlunin jókst gífurlega og brátt
Árni
Samúelsson
Rætt viÖ
Arna
Samúelsson
i Víkurbœ
var markaðurinn orðinn of lítill
og ákveðið að ráðast í viðbygg-
ingu bak við húsið upp á 200
fermetra og 17. nóv. var viðbótin
opnuð og verzlunarrýmið því
orðið 500 fermetrar og vona ég að
það muni duga næstu ár. Sama
dag opnuðum við einnig spari-
markað í kjallaranum, þar sem
fólk getur keypt stærri einingar
beint af lagernum. í vöru-
markaðinum erum við einnig
búin að koma upp kjötvörudeild,
ávaxtadeild og krydddeild og er
greinilegt að fólk kann að meta
þetta, en innréttingar allar eru
ákaflega skemmtilegar og teikn-
aðar af Jóni Kaldal í Arkó.
— Nú var mikið af verzlunum
fyrir í Keflavík, hverju þakkar þú
þessi miklu umsvif?
— Ég hef greinilega hitt á það
sem vantaði hérna. Fólk vill geta,
verzlað þar sem mikið úrval er á
boðstólum. Þetta hefur sett mikla
sprautu í verzlunarlífið hér og
leitt til harðrar samkeppni með
vörulækkun og aukna þjónustu
og nú er svo komið að hér eru
allar matvöruverzlanir opnar alla
daga vikunnar til kl. 22.00 og
ekkert selt gegnum lúgur. Ég
hugsa líka að ég hafi byrjað á
þessu á réttum tíma, hugsanlega
hefði annar aðili, sem ráðist hefði
út í svona, náð sama árangri. Við
bjóðum upp á sambærilegt vöru-
úrval og markaðirnir í Reykjavík
og sama verð þótt við þurfum að
keyra allar vörurnar hingað úr
Reykjavík.
— Er mest verzlað um helgar?
— Já, það er verzlað jafnmikið
á föstudögum og alla hina daga
vikunnar. Fólk verzlar mest í
mörkuðum um helgar, en síðan
venjulegar daglegar þarfir hina
dagana. Hins vegar erum við að
reyna að fá fólk til að breyta
verzlunarvenjum og hefur okkur
þegar tekizt að auka verzlunina
hina dagana töluvert, eftir að við
byrjuðum um kjötdeildina. Þess
ber líka að gæta að Keflavík er
verzlunarmiðstöð fyrir öll Suður-
nesin og á svæðinu eru nálægt
14000 manns.
— Hvað er á döfinni hjá þér?
— Nú það þarf að nýta þessar
„Hef greinilega hitt á
það sem vantaði hér”
Þórarinn Eyjólfsson við vinnu.
Alternator H/F
Sjá íslenzkum bátum
fyrir öllum rafölum
og flutja að auki út
Að öllum líkindum eru fá
fyrirtæki hérlendis, sem
hafa þá sérstöðu, sem
Alternator H/F í Keflavík
hefur, en það fyrirtæki er hið
eina í Evrópu utan eins í Dan-
mörku, sem framleiðir
alternatora, rafala af þessari
gerð, fyrir fiskibáta. Hefur
hluti framleiðslunnar verið
fluttur út, en aðeins 7 ár eru
sfðan fyrsti rafallinn frá fyrir-
tækinu var framleiddur og
settur niður f bát hérlendis.
Fyrirtækið var stofnað af
Eyjólfi Þórarinssyni árið 1971 og
þá strax fenginn hönnunaraðili í
V-Þýzkalandi til að hanna frum-
hugmynd að rafal eftir fyrirsö,';n
Eyjólfs. Þetta kom mjög vel út
og hægt að byrja framleiðslu
fljótlega eftir að efni til fram-
leiðsfunnar hafði verið útvegað
erlendis frá. Skömmu síðar var
byrjað að framleiða
jafnstraumsmótora og í fram-
haldi af því omformer, tæki, sem
breytir jafnstraum í riðstraum. í
samtali við son Eyjólfs, Þórarin,
sem vinnur við fyrirtækið ásamt
föður sínum, kom fram, að þessi
framleiðsla fyrirtækisins þykir
mjög góð og fyllilega sam-
keppnisfær við erlenda fram-
leiðslu bæði hvað verð og gæði
snertir. Tækjabúnaður fyrir-
tækisins er að sögn Þórarins
orðinn mjög góður og verkfæri
til framleiðslunnar mjög full-
komin, einkum til omformers-
framleiðslunnar, en riðin mega
ekki breytast mjög mikið í sam-
bandi við fiskleitartæki,
siglingartæki og önnur rafeinda-
tæki. Hafa þeir riðstýringu, sem
aðeins gefur hálft rið í frávik frá
fullu álagi í ekkert álag.
Framleiðsla fyrirtækisins er