Morgunblaðið - 10.02.1979, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1979
Sorpeyðingarstöðin
í gang í ágúst nk.
Iágúst næstkomandi mun
taka til starfa á Suðurnesj-
um sameiginleg sorpeyðing-
arstöð fyrir öll sveitarfélögin á
svæðinu sem eiga hana svo og
Keflavikurflugvöll. Fram-
kvæmdir eru þegar hafnar við
grunn og undirstöður bygging-
arinnar og er stöðin verður
komin upp mun hún um
ókomna tíð geta eytt öllu sorpi
sem til feilur.
Mál þetta hefur lengi verið í
gangi þar syðra, hvernig bezt
væri að koma fyrir því sorpi,
sem til félli. Samstarfsnefnd
sveitarfélaga á Suðurnesjum tók
síðan málið upp fyrir tveimur
árum og bauð stöðina út. Menn á
vegum nefndarinnar fóru víða
um lönd til að kynna sér slíkar
stöðvar og rekstur þeirra. Ymsir
möguleikar komu til greina, að
hakka sorpið og framleiða úr því
skarna o.fl. og svo brennsla.
Eftir nána athugun var ákveðið
að einbeita sér að stöðvum, sem
notuðu brennslu til eyðingar,
því að menn voru sammála um
að Suðurnes hefðu ekki efni á
frekari jarðvegsmengun, en allt
neyzluvatn þeirra Suðurnesja-
manna er regnvatn, sem fellur á
Reykjanesskagann. Sú stöð, sem
fyrir valinu varð, veldur aðeins
örlítilli loftmengun og það töldu
ráðamenn S.S.S. ráðlegri kost.
Milli 20—30 tilboð bárust í
stöðina, en síðan voru þrjú
fyrirtæki valin úr og menn
sendir til að kynna sér stöðvar
þeirra og bera saman kosti,
galla og verð. A endanum var
ákveðið að taka tilboð frá
franska fyrirtækinu Laurent
Baullier. Var það álit manna að
sú verksmiðja, sem Frakkarnir
buðu upp á, væri fullkomnasta
stöðin, sem völ væri á og verðið
hagstæðast, en heildarkostnað-
ur mun verða 5—600 milljónir
króna.
Stöð þessi eyðir sorpi, úr-
gangsolíum og úrgangslýsi með
brennslu. Út úr stöðinni kemur
aðeins gja.ll, eins og úr kolaofn-
um, sem aðeins nemur 2% af
rúmmáli þess úrgangs, sem í
Ellert Eiríksson.
hana er látið. Þá er gert ráð
fyrir að til viðbótar verði keypt-
ur búnaður til að pressa málma,
sem síðan yrði reynt að selja á
sem hagstæðustu verði. Það sem
færi í þessa pressu yrðu bílhræ,
brotajárn og fleira.
Ellert Eiríksson, yfirverk-
stjóri Keflavíkurbæjar, sem
sæti á í stjórn stöðvarinnar,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að til að byrja með væri gert
ráð fyrir að stöðin eyddi um 30
lestum af sorpi á dag, en þá er
miðað við að hún verði starf-
rækt í 10 klukkustundir, fimm
daga vikunnar. Það magn er
einmitt talið að falli til á þessu
svæði í hverri viku. Þetta þýða
um 7—8000 lestir á ársgrund-
velli. Tölur þessar eru stað-
reyndar í sveitarfélögunum, en
áætlaðar á Keflavíkurflugvelli
að sögn Ellerts. Stöðin verður
reist í landi Njarðvikur rétt við
flugvallargirðinguna hjá Mal-
bikunar- og steypustöð Is-
lenzkra aðalverktaka. Aðspurð-
ur um loftmengunina frá stöð-
inni sagði Ellert að íbúar yrðu
ekki fyrir neinum óþægindum af
völdum stöðvarinnar, því að það
eina, sem kæmi úr reykháfum
hennar, væri blámóða og vatns-
gufa.
Við spurðum Ellert hvernig
stöðin yrði starfrækt.
— Gert er ráð fyrir að við
stöðina verði sett upp sameigin-
leg sorphreinsun fyrir öll sveit-
arfélögin og er verið að semja
sérstaka reglugerð í því sam-
bandi. Festa þarf kaup á bíl eða
bílum og gámum, sem hafðir
yrðu í hverju sveitarfélagi þar
sem íbúar geta losnað við sorp,
sem þeir sjálfir vilja koma frá
sér. Starfsmenn stöðvarinnar
verða 2 við reksturinn, auk
stöðvarstjóra. Þá verða einnig
starfsmenn við sorpsöfnunina,
en ekki er enn vitað hve þeir
verða margir. Við höfum í
hyggju að reyna nýjar og endur-
bættar aðferðir til sorphreins-
unar, sem verða ódýrari en þær
aðferðir, sem notaðar eru í dag.
Við gerum ráð fyrir að stöðin
Sorpeyðingarstöð eins og sú, sem
geti tekið til starfa um miðjan
ágúst.
Um byggingu stöðvarinnar
sagði Ellert að samstarfsnefnd-
in sæi um alla jarðvinnu, stein-
steypta stöpla og girðingu um-
hverfis stöðina, en frönsku aðil-
arnir sæju um allan vélbúnað
hennar, stöðvarhús og annan
búnað og skiluðu af sér stöðinni
í fullum rekstri. Framkvæmdir
væru þegar hafnar við þá þætti,
sem að Suðurnesjamönnunum
sneru. Ellert sagði að eins og
fram hefði komið yrði stöðin
aðeins keyrð 50 klukkustundir í
viku til að byrja með en síðar er
sorpmagn ykist yrði farið í
vaktavinnu og gæti stöðin með
starfrækslu allan sólarhringinn
unnið úr um 84 lestum af sorpi
en drjúgur tími liði þar til svo
byrjað er á í Njarðvíkum.
mikið sorp félli til á Suðurnesj-
um.
Að sögn Ellerts verður kostn-
aðurinn við rekstur stöðvarinn-
ar skipt á milli sveitarfélaganna
og flugvallarins í samræmi við
það sorpmagn, sem kæmi frá
hverjum stað og eins og nú væri,
kæmi langstærsti hluti sorpsins
frá flugvellinum og því væri
hans hlutur í rekstrinum
stærstur.
I stjórn stöðvarinnar eiga
sæti auk Ellerts þeir Albert K.
Sanders formaður, Gylfi Gunn-
laugsson, Þröstur Gíslason,
Jósef Borgarsson og Gunnar
Jónsson, en fyrsti starfsmaður
stöðvarinnar hefur verið ráðinn
Haraldur Gíslason og hefur
skrifstofa verið opnuð í Kefla-
vík.