Morgunblaðið - 10.02.1979, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRUAR 1979
47
Stjarnan lagði Ármann
óvænt í Ásgarði í gær
ÞAÐ URÐU heldur betur óvænt
úrslit í Ásgarði í gærkvöldi,
þegar Stjarnan, í öðru sæti
deildarinnar neðan írá, vann
góðan sigur á einu af tuppliðun-
um, Ármanni. Var þetta annað
tap Ármenninga í röð og mikið
áfall fyrir liðið. Stjarnan vann
19 — 18, en þegar rúm mínúta
var til leiksloka hafði Stjarnan
3 mörk yfir og var sigurinn því
öruggari heldur en tölurnar
gefa til kynna. Staðan í hálfleik
var jöfn, 10 — 10.
Fyrstu 20 mínútur fyrri hálf-
leiks voru hreint ótrúlega leiðin-
legar á að horfa, bæði liðin, eink-
um þó Stjarnan, sýndu ráðleysi og
fum í sóknarleiknum, þannig að
tvívegis dæmd leiktöf á Stjörnu-
menn. Þennan leikkafla höfðu
Ármenningar oftast forystu, 3—1,
Handbolti um helaina:
Toppleikir
HANDKNATTLEIKSFÓLK landsins á ekki frí um helgina. öðru nær.
Fjöldi leikja fer fram í öllum deildum. þ.á m. 3 í 1. deild karla. Þar má
fyrst geta um vandræðabarnið FH-Valur sem mótanefnd HSÍ skellti á
sunnudagskvöldið, en átti að vera á þriðjudagskvöldið. Leikurinn sá
fer fram klukkan 19.00 og hyggja FH-ingar vafalaust á grimma og
vægðarlausa hefnd, enda burstuðu Valsmenn FH síðast þegar liðin
áttust við eigi alls fyrir löngu.
ÍR-ingar, sem berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni. fá Víkinga
sem mótherja og hér getur margt gerst. Víkingar eiga nefnilega í
vandræðum með meiðsi leikmanna. nú síðast brákaðist markvörður-
inn Eggert Guðmundsson á hendi og verður ekki með frekar en
Sigurður Gunnarsson og e.t.v. fleiri.
Þriðji 1. deildar leikur helgarinnar er leikur HK og Fram. Er ekkert
um þann leik hægt að segja og hann gæti hæglega orðið tvísýnasti leikurinn af þeim öllum. Leikir helgarinnar eru þessir: LAUGARDAGUR:
Vestmannaeyjar 2. deild kvenna Þór Ve-IR kl. 13.15
Vestmannaeyjar 3. deild karla Týr-Grótta kl. 14.15
Laugardalshöll 1. deild karla ÍR-Víkingur kl. 15.30
Laugardalshöll 2. deild karla KR-KA kl. 18.05
Njarðvík 2. deild kvenna UMFN-Þróttur kl. 13.00
Njarðvík 2. deild kvenna UMFG-ÍBK kl. 14.00
Njarðvík SUNNUDAGUR: 3. deild karla UMFN-ÍBK kl. 15.00
Laugardalshöll 2. deild karla Ármann-KA kl. 14.00
Hafnarfjörður 1. deild kvenna Haukar-Valur kl. 14.00
Ilafnarfjörður 1. deild karla FILValur kl. 14.00
Laugardalshöll 1. deild karla Fram-HK kl. 19.00
Laugardalshöll 1. deild kvenna Víkingur-UBK kl. 20.15
7—4 og 8—6. En síðustu mínútur
hálfleiksins voru fjörugar og tókst
Stjörnunni þá að jafna og var það
ekki óverðskuldað.
Framan af síðari hálfleik voru
jafnteflistölur allt upp í 13—13 en
nýr maður var kominn í markið
hjá Stjörnunni Birkir Sveinsson,
og markvarsla hans ásamt betri
varnarleik Stjörnunnar en í fyrri
hálfleik var farin að slá Ármenn-
inga út af laginu. Stórgóður kafli
Stjörnumanna fylgdi þar sem þeir
skoruðu 4 af 6 mörkum og staðan
var þá orðin 17—14. Ármenningar
minnkuðu muninn i eitt mark með
tveimur mörkum í röð, en Stjarn-
an lét ekki bugast og tvö næstu
mörkin komu úr þeirra herbúðum.
Og þegar Eggert Isdal skoraði það
síðara, nítjánda mark Stjörnunn-
ar, var 1 mínúta og 20 sekúndur til
leiksloka. Pétur Ingólfsson minnk-
aði muninn, en Stjörnumenn skutu
í stöng úr dauðafæri, Ármenning-
ar brunuðu upp og Jón Viðar
skoraði síðasta mark leiksins,
Stjarnan hafði gert það óvænta,
gert sér lítið fyrir og unnið leikinn.
Að öðrum ólöstuðum stóð mark-
vörðurinn Birkir Sveinsson sig
Stjörnumanna best. Hann stóð í
markinu í síðari hálfleik og varði
eins og hann ætti lífið að leysa.
Eyjólfur átti mjög góðan dag og
sýndi auk þess mikið öryggi í
mikilvægum vítaköstum. Magnús-
arnir Teitsson og Andrésson voru
og að vanda góðir og héldu liðinu á
floti þegar illa gekk í fyrri hálf-
Francis fór
á millión
ÞAR kom að því að enskur knatt-
spyrnumaður rauf milljón punda
múrinn. Fregnir herma, að enski
landsliðsmaðurinn Trevor Franc-
is, leikmaður með Birmingham
City, hafi komist að samkomulagi
við enska meistaraliðið Notting-
ham Forest um kaup og kjör. Og
kaupverðið er ein milljón sterl-
ingspunda og samkvæmt reglum,
renna 45.000 þeirra beint í vasa
Francis, vegna þess að hann fór
ekki sjálfur fram á söluna.
Trevor Francis lék síðasta sum-
ar með bandaríska liðinu Detroit
Express og er talið víst að Brian
Clough, framkvæmdastjóri For-
est, hafi samþykkt að Francis
fengi að leika þar til næsta sumar
til að drýgja tekjur sínar.
Francis, sem að öllum líkindum
tekur stöðu enska landsliðsmanns-
ins Tony Woodcock, verður ekki
löglegur í næstu Evrópuleiki For-
est, sem komið er í 8 liða úrslit
Evrópukeppni meistaraliða. Kom-
ist liðið hins vegar i úrslitin sem
eru 30. maí í Múnehen, verður
kappinn orðinn löglegur í Evrópu-
leiki.
Nokkur félög sitja nú eftir með
sárt ennið, félög eins og Coventry
og Manchester Utd. voru tilbúin að
leik. Það var ekki síður góður
leikur heildarinnar sem stuðlaði
að sigrinum, allir lögðu sitt af
mörkum og liðið hefur nú dregið
mikið á liðin í miðri deildinni.
Ármenningar áttu sinn annan
lélega leik í röð, en ýmsir stóðu þó
vel fyrir sínu og einn meira að
segja vel það, en það var Ragnar
markvörður, sem var eins og klett-
ur í markinu og hann er hiklaust
hálft Ármannsliðið. Björn skoraði
mikið en skaut líka mikið. Friðrik
var hættulegur með uppstökkum
sínum, svo og Pétur í horninu. En í
heildina var lið Ármanns afar
lélegt og þegar syrta tók í álinn
undir lok leiksins var engu líkara
en að skora ætti 4—5 mörk í hverri
sókn. Það tókst að sjálfsögðu eigi.
Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur 8 (5
víti), Eggert 4, Magnús Andrésson
3, Magnús Teitsson 2, Logi og
Gunnlaugur eitt hvor.
Mörk Ármanns: Björn og Pétur
5 hvor, þar af 2 víti hjá Birni,
Friðrik og Jón Viðar 3 mörk hvor,
Einar og Jón Ástvaldsson 1 hvor.
— gg-
borga mikið og láta marga snjalla
leikmenn, en þegar verðið fór upp í
milljón, svimaði forráðamenn fé-
laganna og þau drógu sig í hlé. Nú
mætti ætla, að Forest hafi misst
áhugann sem félagið hafði á því að
kaupa Malcolm McDonald frá Ar-
senal og hafi hægt um sig á
leikmannamarkaðinum á næst-
unni. Birmingham mun hins vegar
vafalaust steypa sér út í búð, enda
er hægt að kaupa marga góða
leikmenn fyrir milljón pund.
Þjálfar Holl-
endingur ÍA?
í dag kemur til landsins
hollenskur þjálfari til viðræðna
og hugsanlega samningsgerðar
við Skagamenn. Kemur þjálfari
þessi hingað í gegn um
Feyenoord. Er þetta fyrrverandi
hollenskur landsliðsmaður, og
einn af snjöllustu útherjum
Ilollands fyrr og síðar. Skaga-
menn hafa að undaförnu æft
undir stjórn Benedikts Valtýsson-
ar. Nokkrir leikmenn af Skagan-
um dvelja nú í æfingabúðum í
Ilollandi. -Þr.
Shrewsbury vann
SHREWSBURY steig einu skrefi
nær 2. deildinni í Englandi í
gærkvöldi, þegar liðið vann South-
end 2—0 í 3. deildarkeppninni.
Staðan í hálfleik var 0—0, en
leikið var á heimavelli Shrews-
bury.
Bikarleikur
fyrir norðan
Enginn leikur fer fram í
úrvalsdeild körfuboltans um
helgina. en eigi að síður leika
saman tvö liðanna. Þór og ÍR.
Leikur þeirra er liður í bikar-
keppni KKÍ og fer hann fram á
Akureyri einhvern tímann í dag.
Nokkrir leikir fara einnig fram í
1. deild. en þeir eru þessir:
LAUGARDAGUR:
IIAGASKÓLI:
1. deild karla: Fram-ÍV kl. 14.00
1. deild karla: KFÍ-UMFG kl. 15.30
1. deild kvenna: ÍR-ÍS kl. 17.00
SUNNUDAGUR:
HAGASKÓLI:
1. deild karla: KFÍ-ÍV kl. 13.30
1. deild karla: Árm.-Tindast. kl
14.00
Eggert
brákaður
Eggert Guðmundsson mark-
vörður meistaraflokks
Víkings í haldknattleik varð
fyrir því óhappi að bráka illa á
sér hægri haldlegg í síðasta
leik sínum með Víkingi er þeir
léku við IIK í Mosfellsveit.
Eggert hefur verið mjög á
uppleið og átt góða leiki að
undanförnu og er í mikilli
framför sem markvörður. Þá
kemur þetta sér mjög illa fyrir
Víkinga þar sem erfiðir leikir
eru framundan.
Þr.
Sigfús Gæir
formaður TBR
Aðalfundur Tennis- og
hadmintonfélags Reykjavíkur
var haldinn 31. janúar 1979.
Formaður félagsins
Ríkarður Pálsson baðst undan
endurkosningu, en í hans stað
var Sigfús Ægir Árnason kjör
inn formaður. Aðrir í stjórn
voru kosnir Danfel Stefánsson.
Gunnsteinn Karlsson.
Haraldur Kornelíusson
Lovísa Sigurðardóttir,
Magnús Magnússon og Ólafur
Gústafsson.
IA
tapaði
AFTURELDING sigraði ÍA
uppi á Skaga í 3. deild íslands-
mótsins f handknattleik í
fyrrakvöld, en leikur þessi átti
að fara fram í dag, en var
flýtt. UMFA skoraði 19 mörk,
en ÍA 18. Jafnt var í hálfleik
8-8.
I
Skíðaboðganga
í Bláfjöllum
Skíðaboðganga verður haldin í
Bláfjöllum í dag og verður gengið
á svæðinu neðan og austan við
Eldborgina. Gengið verður 3x10
kílómetra og standa að þessu móti
skíðadeildir þriggja félaga, Skíða-
deild Reykjavíkur, Hrönn og
Fram.
Það má fastlega búast við
spennandi keppni, þar sem reyk-
vískir göngumenn hafa æft mjög
vel undanfarið og eru í góðri
æfingu. Urslit punktamótsins um
síðustu helgi sýndu það og
sönnuðu.
s
i
Meistaramót Islands
í frjálsum íþróttum
innanhúss
fer fram dagana 17 og 18. febrúar n.k. Keppnisgreinr eru þessar:
Fyrri dagur:
Laugardalshöll kl. 13.00 800 m hlaup karla og kvenna. Kúluvarp karla
og kvenna. hástökk karla.
Baldurshagi kl. 15.30 50 m hlaup karla og kvenna. langstökk karla.
Seinni dagur:
Laugardalshöll kl. 10.00 Hástökk kvenna. 1500 m hl. karla. 1x3
hringir boðhl. karla og kvenna.
Baldurshagi kk. 14.00 50 m grindahl. karla og kvenna, langstökk
kvenna, þrístökk.
Keppni í stangarstökki fer fram síðar.
Þátttökutilkynningar skulu berast til skrifstofu FRÍ íþróttamið-
stöðinni Laugardal. eða pósthólf 1099 í síðasta lagi þriðjudaginn 12.
febrúar. ásamt þátttökugjaldi kr. 200 fyrir hverja einstaklingsgrein
og kr. 600 fyrir hverja boðhlaupssveit.
Tilkynningar sem berast eftir þennan tíma verða ekki teknar til
greina.
Frjálsíþróttasamband íslands.