Morgunblaðið - 06.03.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.03.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARZ 1979 17 staðreynd, sem við verðum að horfast í augu við. Þegar þessar reglur um gúmmíbjörgunarbáta voru settar, þá var ekki talið fært að gera meiri kröfur en að á þessum fiskiskipum 15—50 rúm- lestir að stærð, væri einn gúmmí- björgunarbátur. (Á fiskiskipum yfir 50 rúmlestir eru þeir tveir). Vel má verá að nú sé orðið tima- bært að breyta þessum lágmarks- kröfum þ.e.a.s. gera meiri kröfur með því að færa neðar ístærð fiskiskipa kröfuna um tvo gúmmí- björgunarbáta sem lágmark. Þetta atriði tel ég rétt að athuga nú í ljósi fenginnar reynslu. Hins vegar hefur áður komið fram, og ég vil enn vekja athygli á því, að reglur sem þessar ákveða lágmarkskröfur. Það er eins og ég hefi áður nefnt til fyrirmyndar að gera betur en lágmarkskröfur reglna segja til um, en þá tel ég æskilegt að hvor gúmmíbátur um sig sé af viður- kenndri gerð gúmmíbjörgunar- báta, og hvor um sig nægilega stór fyrir alla áhöfn. Þá má staðsetja þessa tvo gúmmíbjörgunarbáta á þeim tveim stöðum, sem beztir verða taldir í bátnum. Það er alger misskilningur hjá Ágústi Sigurlaugssyni að reglur krefjist þess að gúmmíbjörgunar- bátur sé staðsettur á þaki stýris- hússins. Það má staðsetja gúmmí- björgunarbátana hvar sem er ofan þilja. Meginatriðið er að staðurinn sé þannig valinn að 1) Hann sé aðgengilegur hvenær sem slys kann að bera að höndum. 2) Að hægt sé að athafna sig eins og bezt er hægt um borð við að koma bátnum í sjóinn. 3) Að báturinn sé á stað þar sem hann verður ekki fyrir hnjaski við vinnu um borð. 4) Að báturinn sé á stað, þar sem hann er eins vel varinn og hægt er fyrir sjó. Af þessum kröfum má sjá að ekki er völ á mörgum góðum stöðum fyrir gúmmíbjörgunarbáta í litlum fiskiskipum, og nokkur við starfsfólk ráðsins að gera af fremsta megni, með þeim krónum sem við fáum til þess. Það er því með velvilja sem við tökum á móti félögum J.C. og öðrum sem vilja leggja eitthvað af mörkum til aukins umferðar- öryggis, enda er Umferðarráði ætlað samkvæmt framansögðu „að vera til hjálpar og ráðuneytis, eftir því sem óskað er og aðstæður leyfa“. Þetta reynum við að gera og viljum gjarnan aðstoða þau félagasamtök sem vilja láta gott af sér leiða á þessu sviði. Með því móti einu er hægt að hafa sam- ræmi í umferðarfræðslu. Engum er til góðs ef einn aðili t.d. gengur í berhögg við það sem áður hefur verið gert, slíkt þjónar einungis þeim tilgangi að rugla fólk og það er ekki vænlegt til árangurs. Markviss fræðsla og upplýsinga- miðlun er aftur á móti líkleg til þess að auka skilning fólks á margþættum vandamálum umferðarinnar. Eru íslendingar slæmir öku- menn? Þessari spurningu er að sjálf- sögðu ekki hægt að svara með já-i eða nei-i, svo misjafnir eru ökumenn. En oft hefur hvarflað að mér, hvort það geti hugsast að fjölmargir ökumenn væru hrein- lega haldnir minnimáttarkennd á háu st.igi. Við Islendingar erum fámenn þjóð en stór samt. Við viljum ekki láta troða á okkar rétti, eins og okkur hættir til að kalla það. Því miður held ég að þessa gæti um of í umferðinni. Við sjáum það víða erlendis, að allt annað viðhorf er þar ríkjandi i þessum efnum. Akreinaskipti, svo tekið sé dæmi, ganga yfirleitt sjálfkrafa og hljóðalaust fyrir sig. En hvernig er þessu háttað hérlendis? Því miður er hér allt annað uppi á teningn- um. Hver kannast ekki við það á akreinaskiptum götum, að ætlir þú að skipta um akrein þegar færi gefst, máttu alveg eins búast við að sá sem við hlið þér ekur, auki hraðann til þess eins, að því er virðist, að eyðileggja möguleika þína á akreinaskiptingunni. Þessum hugsunarhætti þurfum við að útrýma í eitt skipti fyrir öll. Okkur hættir nefnilega til streitu í umferðinni svo oft á tíðum stafar af ímynduðu tímaleysi. Okkur getur ekki legið svo óskaplega á að ekki gefist tími til tillitssemi við náungann. Ég held að það sé gott að hugsa til þess hvernig umferðin væri ef allir ækju og höguðu vegferð sinni eins og við sjálf. Ef komandi umferðarvika J.C. Reykjavíkur eykur á skilning á einhverjum þáttum umferðarinn- ar verður hún til góðs. Við erum öll ferðafélagar í umferðinni. óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs. vandi er að finna hentugustu staði við allar aðstæður. Þótt stýrishús- þakið hafi ýmsa galla, t.d. er þar oft þröngt, klifra þarf þrep upp á þakið og halda í handrið meðan unnið er við að losa gúmmíbátinn, þá hefur þessi staður líka ýmsa kosti. Þarna er báturinn lítið fyrir veiðarfærum, hann er nálægt stjórnstað í stýrishúsi, og hann er það hátt að miðað við þilfarið eru minni líkur á brotsjó, þótt sjór geti auðvitað lent á litlum fiskibáti hvar sem er. — Ef gott pláss er á framþilfari báts, t.d. í skjóli við lúkarskappa, þá er ekkert því til fyrirstöðu að gúmmíbjörgunar- bátur sé þar staðsettur, þótt oftast sé það nokkru lengra frá stjórn- stöð. Ef tveir gúmmíbjörgunar- bátar eru um borð, er að sjálf- sögðu eðlilegt að þeir séu hvor á sínum stað um borð, t.d. annar á stýrishúsþaki, eða á hillu aftan á stýrishúsi ef það er hægt, og hinn á framþilfari. Þá eru það hylki gúmmí- björgunarbátanna. Flestir eða allir þeir gúmmíbjörgunarbátar, sem nú eru viðurkenndir af Siglingamálastofnun ríkisins eru í sivölum glertrefjahylkjum, sem mynda tvær skálar. Þessu hylki öllu er fleygt í sjóinn þegar gúmmíbjörgunarbáturinn er tekinn í notkun, og þegar kippt er í snúruna þenst báturinn út og sprengir utan af sér hylkið. Snúr- an liggur á milli hylkishlutanna, og þeir hverfa því í sjoinn þegar báturinn blæst upp. Eldri gúmmíbjörgunarbátar voru í strigatösku, og varð því að smíða utan um þá trékistu til að verja gúmmíbátana skemmdum t.d. frá hnífum eða goggum. Fyrst voru kistur þessar eins og fastur kassi með loki. Síðar var sam- kvæmt tillögum Skipaskoðunar ríkisins (nú Siglingamálastofnun) farið að smíða kassana þannig, að ein hlið eða fleiri féllu niður og út þegar loki var lyft af kassanum. Þá þarf ekki að íyfta gúmmíbátn- um upp úr kassanum. Þessir kassar voru af ýmsum gerðum, enda smíðaðir af ýmsutn aðilum víða um land. Nú munu þessir trékassar um gúmmí- björgunarbátana enn vera mest í notkun á minni og eldri fiski- skipum. Ég er sammála Ágústi í því að það er hvergi nærri nógu gott, að til að ná gúmmíbjörgunar- bátnum á m/s Guðmundi Ólafs- syni upp úr kassanum þurfti hörkuátak tveggja manna, til að lyfta bátnum upp úr kassanum, þar eð hliðar hans féllu ekki niður þegar lokið var tekið af. Þetta væri æskilegt að skipstjórar eða vél- stjórar báta athugi nú hver hjá sér, og að bætt verði úr þar sem þörf er á . Þetta atriði tel ég rétt að sé athugað sem bezt af áhöfn, því að mjög oft er það áhöfnin, sem tekur gúmmíbjörgunarbátinn úr kassanum við árlega skoðun, fer með hann á viðurkennda skoðunarstöð gúmmíbjörgunar- báta, sækir hann þangað aftur, setur í kassann og gengur frá honum — og þá má ekki gleyma að festa fangalínu gúmmiðbjörgunar- bátsins strax á öruggan hátt í fastan hlut í skipinu, eins og skýrt er frá á límmiða, sem settur er á eftirlitsstöðinni á hvern gúmmíbát eftir skoðun hans, svonefnt „ÞÚ“ skilti. (Sjá meðfylgjandi mynd). Skipaeftirlitsmenn fá vottorð frá eftirlitsstöð gúmmibjörgunarbáta um árlega skoðun og prófun gúmmíbátanna, en engu minna atriði er að rétt og vel sé frá gúmmíbátunum geíigið um borð, eins og hér hefur komið fram. Þessar hugleiðingar mínar í tilefni greinar Ágústs Sigurlaugs- sonar vélstjóra eru orðnar miklu lengra mál en ég hafði hugsað mér í upphafi. Hér er hinsvegar af svo miklu efni að taka, að vel mætti rita um ýms fleiri áhugaverð atriði þessa máls. Það verður þó að bíða betri tíma. Að lokum vil ég þó endurtaka þakkir mínar til Ágústs Sigur- laugssonar fyrir hans ágætu grein, sem ég tei vera þarfa og málefna- lega hugvekju um ýms atriði, sem eru fréttnæm fyrir almenning þegar sjóslys verða, en áhugaverð alla daga fyrir þá, sem starfa að sjómennsku og siglingum, og fyrir þá sem vinna eiga að auknu öryggi á sjó. Með samstarfi og samstilltu átaki þessara aðila er nokkur von um árangur. Reykjavík 27. febrúar 1979. Hjálmar R. Bárðarson. WIPP EXPRESS í allan handþvott Enn eitt úrvalsefniö frá Henkel Fæst í næstu búö. ^reyöandi þvottaefni í allan handþvott. Þægilegt, handhægt, fer vel meö hendurnar. IVIYIMDAMáT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.