Morgunblaðið - 09.06.1979, Page 2

Morgunblaðið - 09.06.1979, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979 2 Sjómaðurinn séður með aug- um Gunnlaugs Schevings. Málverk eftir Scheving til Lista- safns DR. SVEN B. Jansson, fyrr- verandi þjóðminjavörður Svía, sem var hér á fyrirlestr- arferð nýlega, færði Lista- safni íslands höfðinglega gjöf. Er hér um að ræða olíumál- verk af sjómanni eftir Gunn- laug Scheving, málað 1934. Þegar Jansson dvaldist hér á árunum fyrir seinni heims- styrjöldina keypti hann mál- verk þetta. Gjöf þessi er Listasafninu afar kærkomin ekki aðeins fyrir það hversu gott verkið er heldur einnig vegna þess að safnið á mjög lítið af verkum Gunnlaugs Schevings frá þess- um tíma. (Fréttatilkynning). Yfirvinnubann um helgar vid fiskvinnslu VERKALÝÐSFÉLÖG auglýsa nú yfirvinnubann við fiskvinnslu víða um land um helgar og gildir bannið frá 9. júní til 1. sept- ember. Slíkt bann hefur verið sett undanfarin sumur, þó um mismörg ár. T.d. er þetta gömul regla í Vestmannaeyjum, en á Reykjavíkursvæðinu mun þetta vera annað sumarið, sem þetta bann er sett á. Verðá tómötum lækkar VERÐ á íslenzkum tómötum var lækkað um síðustu helgi og að sögn Níelsar Marteinssonar hjá Sölufélagi garðyrkjumanna nemur lækkunin f heildsölu 350 krónum eða nær 25%. Gert er ráð fyrir að þetta verð haldist óbreytt fram eftir sumri. í smá- sölu er verð á hverju kílói yfir- leitt um 1600 krónur. „Það er ekki á hverjum degi, sem vörur hér á landi lækka og þessi lækkun á tómötum kemur á sama tíma og aðrar landbúnaðar- vörur hækka," sagði Níels og bætti því við að sala á gúrkum hefði verið góð það, sem af er sumrinu. Af öðrum grænmetistegundum, sem hér eru ræktaðar, eru nú komnar á markað salat, steinselja og paprika. Von er á íslenskum púrrum á markað um miðjan þennan mánuð en aðrar tegundir koma vart fyrr en upp úr miðjum júlí, ef tíð verður góð. V æringar innan forystu BSRB TALSVERÐ óánægja hefur verið meðal fólks innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja með það að starfsmenn bandalagsins eru hinir sömu og sitja í stjórn þess. Nú eftir helgina hefst þing BSRB, þar sem kjörinn verður forysta samtakanna næstu 3 árin. Þær óánægju- raddir, sem mest hefur kveðið að, beinast einna mest gegn Haraldi Steinþórssyni, varaformanni sambands- ins, en hann er einnig framkvæmdastjóri þess. Þeir, sem einna helzt hafa kom- ið til greina sem frambjóðendur til varaformanns, hafa verið þeir Örlygur Geirsson og Haukur Helgason. Örlygur mun hafa haft talsverðan áhuga á framboði, en eftir að ljóst varð, að Kristján Thorlacíus, formaður BSRB, styð- ur Harald Steinþórsson, virðist sem Örlygur hafi síður viljað bjóða sig fram. Ekkert ákveðið framboð mun hafa verið ákveðið enn og segja sumir, sem Morgun- blaðið ræddi við, að ólíklegt væri að þessi mál kæmu upp á yfirborð- inu fyrr en á þinginu sjálfu. Ráðinn fram- kvæmdastjóri Háskólabíós FRIÐBERT Pálsson viðskipta- fræðingur heíur verið ráðinn framkvæmdastjóri Háskólabfós og tekur hann við því starfi um áramót af Friðfinni Ólafssyni. Haraldur Steinþórsson mun hafa látið í það skína, að hann bjóði sig nú fram í embætti varaformanns í síðasta sinn. Telja menn að hann hyggi þá á for- mannsstarfið, dragi Kristján sig í hlé að þremur árum liðnum. Gagnrýni hins almenna félaga innan BSRB beinist ekki sízt að því, að á undanförnu kjörtímabili stjórnarinnar hafi verið mikið sambandsleysi milli hins almenna félagsmanns og forystunnar, sem m.a. hafi sýnt sig í úrslitum allsherjaratkvæðagreiðslunnar um samkomulagiö við fjármála- ráðherra. Þar gekk forystan í berhögg við vilja hins almenna félagsmanns, svo sem atkvæða- greiðslan bar vitni um. Segja menn að það hafi í raun sýnt og sannað að sú forysta, sem verið hefði í BSRB, hefði ekki hugmynd um það, hvernig hinn almenni félagsmaður hugsaði. „EIN MEÐ ÖLLU‘ Ljósm. Krlstinn. 864 atvinnulaus- ir auk skólafólks 45 konur í Siglufirði hafa misst vinn- una vegna farmannaverkfallsins ÁTTA hundruð sextíu og f jórir voru atvinnulausir hér á landi um síðustu mánaðamót, samkvæmt upplýsingum félagsmálaráðuneytisins, en um mánaðamótin apríl og mai voru fimm^ hundruð tuttugu og tveir skráðir atvinnulausir. í þessum tölum er ekki að finna atvinnulaust skólafólk, en hjá vinnumiðlun námsmanna fékk Morgunblaðið þær upplýsingar í gær, að um það bil tvö hundruð og fimmtíu skólanema vantaði enn sumarvinnu, og að ástandið hefði sjaldan verið jafn slæmt og nú í vor. Samtals eru því eitthvað á annað þúsund manns atvinnulausir á landinu öllu. Friðbert Pálsson Friðbert er fæddur árið 1951, ættaður frá Súgandafirði. Hann lauk prófi frá viðskiptadeild Háskóla íslands 1978 og hefur síðan fengist við kennslu í stjórnunarfræðum hjá Verk- stjórnarfræðslunni, sem starf- rækt er á vegum Iðntæknistofn- unar ásamt því að sinna rann- sóknarverkefnum á þessu sviði. Alls voru umsækjendur um stöðuna 16 og að sögn Jónatans Þórmundssonar, prófessors og for- manns stjórnar bíósins verða nöfn umsækjendanna ekki birt að svo stöddu, þar sem nokkrir umsækj- enda hefðu óskað sérstaklega eftir því að nöfn þeirra yrðu ekki birt nema að höfðu samráði við þá. í Reykjavík voru um mánaða- mótin 544 atvinnulausir, á móti 246 mánuði áður. í Siglufirði voru 50 atvinnulausir á móti 40 mánuði fyrr, á Akureyri 45 á móti 29, í Hafnarfirði 26 á móti 10, á Sauð- árkróki 22 á móti 12, í Keflavík 15 (8), Selfoss 12 (11) og í Kópavogi voru 7 atvinnulausir á móti 3 mánuði áður, og færri í öðrum kaupstöðum. Upplýsingar vantar þó ítá Húsavík, en þar voru 20 atvinnulausir fyrir mánuði í kauptúnum var mest atvinnu- leysi á Patreksfirði, en þar eru 26 manns á atvinnuleysisskrá, en LÁTINN er í Keflavík Alexander Magnússon, skrifstofumaður. Alexander var um árabil mjög virkur í starfi Sjálfstæðisflokks- ins á Suðurnesjum og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og félagssamtök hans. Hann var 56 ára að aldri er hann lést. Kvæntur var Alexander ólafíu Haraldsdóttur og áttu þau saman fimm börn. enginn var skráður þar fyrir mánuði, á Hólmavík eru 24 at- vinnulausir á móti 29, en mest atvinnuleysi var á Stokkseyri, þar sem 36 manns voru á skrá, en þar var enginn skráður atvinnulaus fyrir mánuði. Atvinnuleysisdagar í síðasta mánuði voru alls 7970 á móti 8190 mánuði fyrr. Skýringin á hinu mikla atvinnu- leysi í Siglufirði er að sögn Bjarka Arnasonar hjá bæjarskrifstofum Siglufjarðrkaupstaðar það, að 45 verkakonur hjá Siglóverksmiðjun- um hafa misst atvinnu sína vegna farmannaverkfallsins. Vantar verksmiðjuna dósir til að geta unnið fisk í, en dósirnar eru tepptar í skipi í Reykjavíkurhöfn, og hefur ekki fengist undanþága til að flytja þær norður. Að öðru leyti sagði Bjarki atvinnuástand í Siglufirði ekki vera slæmt, þvert á móti væri gott atvinnuútlit eftir bví sem séð yrði. Heimsókn Geng Biao lokið OPINBERRI heimsókn Geng Biao, varaforsætisráðherra Kína, lauk í gær og átti ráð- herrann og fylgdarlið hans að halda utan í morgun. ísland var síðasta landið af fjórum Norðurlandanna sem ráðherr- ann heimsótti í þessari för og heldur hann nú heim til Kína. Enginn opinber dagskrá var skipulögð fyrir ráðherrann og fylgdarlið hans í gær og notaði ráðherrann daginn til að hvíl- ast auk þess, sem hann heim- sótti kínverska sendiráðið í Reykjavík og ræddi við landa sína, sem þar starfa. Af m æ lishappdr æ tti Sjálfstæðisflokksins: Dregið í k völd í DAG eru síðustu forvöð að tryggja sér miða í afmælishappdrætti Sjálfstæðisflokksins, því dregið verður í kvöld — og drætti ekki frestað. Þeir, sem ennþá eiga ógerð skil á heimsendum miðum, eru vinsamlegast beðnir að gera það strax í dag — það verður aðeins dregið úr seldum miðum. Afgreiðsla happdrættisins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og verður hún opin til kvölds — síminn er 82900 og geta þeir sem óska látið sækja greiðslu til sín og einnig er hægt að fá heimsenda miða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.