Morgunblaðið - 09.06.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979
suðvesturhorni
eiga
Inn á þessa samsettu mynd heíur verið færð teikning af húsunum sem rísa
Landakotstúns. Er teikningin á myndinni í eðlilegum stærðarhlutföllum.
Landakotstún:
Húsin verða þar sem
minnst ber á þeim
— segir Frehen biskup
Um nokkurt skeið hefur kaþólska kirkjan á íslandi
undirbúið byggingarframkvæmdir í suðvesturhorni
Landakotstúns, sem er í eigu kirkjunnar. Er í ráði að
reisa þar þrjú hús, sem verða bústaðir biskups og
presta, skrifstofur þeirra og bókasafn. Nokkrir íbúar í
Vesturbænum hafa andmælt fyrirhuguðum framkvæmd-
um og m.a. er hafin undirskriftasöfnun þar sem skorað
er á borgaryfirvöld að afturkalla byggingarleyfi, sem
þegar hefur verið veitt. Mbl. sneri sér til dr. Hinrik
Frehens biskups og Hannesar Kr. Davíðssonar arki-
tekts til að heyra viðhorf kirkjunnar til þessara
andmæla og afla upplýsinga um fyrirkomulag bygging-
arinnar á túninu og skýrist það af meðfylgjandi
ljósmynd og teikningum.
— Það sem fyrir okkur vakir
með þessum byggingum á horni
Landakotstúnsins, sagði biskup,
er að sameina á einum stað
íbúðir biskups og presta
kaþólsku kirkjunnar, en íbúð
prestanna, presthúsið við kirkj-
una, var byggt árið 1835 og er
orðið alveg óíbúðarhæft. Það
heldur vart vindi eða vatni og
segja má að hvorki sé hægt að
loka þar um glugga eða dyrum
svo vel sé. Fólk gerir sér heldur
ekki grein fyrir því, að það er
grundvallarregla hjá kaþólsku
kirkjunni að biskup kirkjunnar
búi sem næst henni. Kirkjan er
miðstöð safnsins, þar er minn
vinnustaður fyrst og fremst og
því er talið nauðsynlegt að
biskup búi sem næst henni.
Biskup lagði áherzlu á þetta
atriði og sagði að þannig væri
uppbyggingu starfsemi kaþólsku
kirkjunnar háttað og að þetta
væri grundvallaratriði. Einnig
lagði hann áherzlu á, að svæði
það, er fer undir byggingarnar,
sem verða 3 tveggja hæða hús
með kjallara, er í suðvesturhorni
túnsins, sem hefur verið afgirt
og ekki verið gönguleið um túnið
og að reynt hefði verið að taka
það svæði af túninu er minnst
áberandi væri. Það væri á bak
við kirkjuná, sú hliðin er sneri
að Túngötu væri aðalhlið túnsins
og yrði það áfram. Þá lagði hann
áherzlu á, að í samningi er
gerður hefur verið við Reykja-
víkurborg er kveðið svo á um, að
kaþólska kirkjan leyfi Reykja-
víkurborg einni og án leigu-
greiðslu afnot af austurhluta
Landakotstún og séu þau afnot
takmörkuð við að koma upp
opnum almenningsgarði með að-
stöðu til leikja og yrði ekki leyft
að byggja þar né ráðstafa því til
þriðja aðila. Reykjavíkurborg
lætur þess í stað kaþólsku kirkj-
unni í té afnot og án leigu-
greiðslu landspildu í Rreiðholti
til byggingar og ræktunar fyrir
starfsemi kirkjunnar.
Þá kom fram í spjalli við
Hannes Kr. Davíðsson og biskup
Frehen, að Reykjavíkurborg
verður falin umsjá svæðisins
kringum kirkjuna, sem til þessa
hefur verið girt af og verður því
allt umhverfi hennar ein heild, í
samhengi við þann skrúðgarð
sem verður austan kirkjunnar.
Einnig bentu þeir á, að jafnvel
þótt nú væri tekinn lítinn hluti
túrisins undir byggingar mætti
spyrja að því hversu mikið væri
eftir af túni þessu nú hefði það
verið í eigu annarra aðila en
kirkjunnar, hvort það væri þá
ekki allt löngu undirlagt hús-
byggingum.
Þessi götumynd sýnir húsin við Hávallagötuna. Lengst til hægri eru hús kaþólsku kirkjunnar þrjú, en húsin til vinstri
eru núverandi byggingar við götuna og verða byggingarnar allar jafn háar.
: jj
T' i
• “T
u.....i
\ f
j-LL
J, .L
/leikhús
London ersvo sannarlega lífleg borg.
Leikhússtarfsemi í miklum blóma,
nýjustu kvikmyndir í hverju bíói,
konsertar færustu listamanna og hvaö
eina. Þaö leiöist engum í London.
LONDON - EINN FJÖLMARGRA
STAÐA ÍÁÆTLUNARFLUGI OKKAR.
FLUGLEIDIR