Morgunblaðið - 09.06.1979, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ1979
Myndlista-
konur sýna
í Ásmund-
arsal
NÆST komandi laugard-
ag, 9. júní, verður ognuð
myndlistarsýuning í Ásm-
undarsal við Freyjugötu
og verða þar sýnd verk
myndlistarkvenna, sem
flestar hafa nýlega lokið
myndlistarnámi eða eru í
þann mund að ljúka því.
Að sýningunni standa
Rauðsokkahreyfingin og
Suðurgötu 7 samtökin og
er sýning þessi einn liður í
dagskrá um konur í listum
sem stendur yfir um þess-
ar mundir.
Þegar hafa tvær myndlistarsýn-
ingar verið haldnar í tengslum við
þessa dagskrá um konur í listum
en það eru sýningar þeirra Mary
Beth Edelson og Eddu Jónsdóttur
í Gallerí Suðurgötu 7. Þá var
bókmenntadagskrá í Norrænahús-
inu sl. fimmtudagskvöld, þar sem
fjallað var um verk Jakobínu
Sigurðardóttur. Á næstunni
stendur til að The Feminist Impr-
ovistion Group komi til landsins
til hljómleikahalds.
Á sýningunni í Ásmundarsal
verða hin fjölbreyttustu verk að
því er segir í frétt frá aðstandend-
um sýningarinnar, s.s. málverk,
svartlistarmyndir, silkiþrykksm-
yndir, performans, vefnaður, verk
unnin með ljósmyndum. Sýning
þessi er sérstæð fyrir þær sakir að
engin eiginleg sýningarnefnd hef-
ur valið eða hafnað verkum, held-
ur setja konurnar sýninguna upp í
sameiningu.
Sýningin verður opnuð kl. 20 á
laugardagskvöldið og verður opin
til 19. júní, virka daga frá kl. 17 til
22 og um helgar 14 til 22.
Sadat er öruggur
Kaíró, 8. júní. Reuter.
FLOKKUR Anwar Sadats
forseta, Þjóðlegi lýðræðis-
flokkurinn, er öruggur
um sigur í fyrstu kosning-
um í Egyptalandi í 27 ár
með þátttöku fleiri en eins
stjórnmálaflokks.
Samkvæmt spám byggðum á
úrslitum sem hafa verið birt fær
NDP 84% atkvæða og 321 þing-
sæti af 382 sem kosið er um. Sadat
skipar 10 þingmenn.
Átök sem kostuðu tvo menn lífið
og urðu til þess að 27 særðust
settu svip sinn á kosningarnar
sem fóru fram í gær. Ásakanir um
kosningasvik hafa einnig komið
fram.
Hörður Ágústsson við verk sitt á sýningunni. Á myndinni er
einnig Sigrún Guðjónsdóttir formaður Félags íslenskra mynd-
listarmanna. Ljósm. Kristján.
Alþjóðlegur viimuhóp-
r
ur sýnir í FIM-salnum
Sjómannadags-
blaðið komið út
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 1979
er komiö út og er það 82 sfður að
þessu sinni. I blaðinu er meðal
annars grein eftir Ólaf Jóhannes-
son forsætisráðherra, „Á sjó-
mannadegi 1979“, og Pétur Sig-
urðsson formann Sjómannadags-
ráðs, „Vinnumarkaður, togara-
ntarkaður“.
Þá skrifar Ásgeir Jakobsson um
40 ára afmæli sjómannadagsins á
ísafirði, sagt er frá fyrstu ferðum
gufuskipanna yfir Atlantshaf og
Oskar Vigfússon formaður SSI
segir frá æsku sinni og sjó-
mennsku. Júlía Sveinbjörnsdóttir
ritar um Jón Sörla og Guðmundur
Ingimarsson um fiskiskipastólinn
1978. Einnig er að finna í Sjó-
mannadagsblaðinu viðtöl við Egg-
ert Gíslason skipstjóra, Konráð
Gíslason kompássmið og Kristján
Guðmundsson skipstjóra hjá Eim-
skip, auk ýmislegs annars efnis.
Ritstjórar Sjómannadagsblaðs-
ins eru Guðmundur H. Oddsson og
Jónas Guðmundsson.
J öklarannsóknafé-
lag íslands reisir
skála á Goðahnúk
Myndlistarsýningin Max-
mal-minimal verður opnuð f
Fím-salnum, Laugarnesvegi
112, kl. 16. Sýningin verður
opin daglega frá kl. 18 til 22
virka daga en frá kl. 14—22 um
helgar. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 17. júní.
Hinn alþjóðlegi vinnuhópur,
sem helgar sig hinni svokölluðu
„konstrúktiv" list, stendur að
sýningunni. Hópurinn var
stofnsettur í Antwerpen 1972. Á
stefnuskrá sinni hefur hann m.a.
að láta prenta grafíkmöppur.
Frumkvæðið að þessari sýningu,
sem hófst í Amos Anderson-
listasafninu í Helsingfors, áttu
hinir finnsku félagar í hópnum.
Sýningin hefur síðan farið til
fleiri og fleiri staða í Finnlandi
og þaðan til annarra Norður-
landa. Hingað kemur hún frá
Noregi.
Á árunum 1972—75 hafa alls
28 listamenn frá 11 löndum tekið
þátt í sýningum þessa vinnu-
hóps. Á þessari sýningu eru 14
listamenn frá 10 löndum og sýna
þeir alls 54 verk. Þeir eru:
Hörður Ágústsson frá íslandi,
Ad de Kejzer frá Hollandi,
Vladimir Kopsteff frá Finnlandi,
Jose Breval frá Frakklandi,
Matti Kujasalo frá Finnlandi,
Peter Lowe frá Englandi, Pierre
de Pootere frá Þýskalandi, Tor-
sten Reidell frá Svíþjóð, Helge
Roed frá Noregi, Hans Dieter
Schrader frá Þyskalandi, Ole
Schwalbe frá Danmörku, Jeffrey
Steel frá Englandi, Rysgard
Winiarsky frá Póllandi og Al-
berto Zitocchi frá Ítalíu.
Nafn sýningarinnar „Maximal
minimal", er dregið af því þema
sem þaftakendum var gert að
vinna út frá. Verkin áttu öll að
vera í svart-hvítu, þótt út af því
hafi verið brugðið, og enginn
stærri en 100 x 100. Ein slík
þemasýning hefur áður verið
haldin í Englandi og hét „Plus-
minus".
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG
íslands reisti nú íyrir skömmu
áttunda skála sinn. Er hann
staðsettur á Goðahnúkum f
austurhluta Vatnajökuls, norðan
Goðaborgar. Á félagið nú fjóra
skála á Vatnajökli, þ.e. á Gríms-
fjalli, í Esjufjöllum og Kverk-
fjöllum og nú síðast í Goða-
hnúkum. Um síðustu páska var
settur upp skáli við Fjallkirkj-
una í Langjökli, vestan Hrútfells.
Fjórir síðastbyggðu skálarnir
eru allir svipaðir, 15 fermetrar
að stærð með sex tveggja manna
kojum. Voru þeir smíðaðir á
Reykjavíkursvæðinu og fluttir
fullfrágengnir á ákvörðunarstað.
Lagt var af stað með skálann á
Gnoðahnúk á uppstigningardag,
24. maí og komið til baka þriðju-
daginn 29. maí. Þeir sem stóðu að
ferðinni voru Jöklarannsóknar-
félagið og Hjálparsveit skáta í
Reykjavík, sem lagði til
Wisil-snjóbifreið, Flugbjörgunar-
sveitin í Reykjavík og „Tjaldlausa-
félagið", en þessir aðilar hafa átt
drýgstan þátt í að koma upp
síðustu fjórum skálum félagsins.
Tveir aðrir beltabílar voru fengnir
frá Landsvirkjun og Orkustofnun,
sem veitt hafa félaginu drjúga
aðstoð við flutninga á jöklum.
Alls tóku 37 manns þátt í
ferðinni. Gekk hún ágætlega,
veður var gott en þoka tafði
nokkuð fyrir og varð m.a. til þess
að byrjað var að grafa fyrir
skálanum 1 kílómetra sunnan þess
staðar sem honum var ætlaður á
Goðahnúk. Skyggni batnaði,
þannig að skálanum var komið
fyrir á réttum stað.
Að sögn Stefáns Bjarnasonar
hjá Jöklarannsóknarfélaginu var
ferðin mjög vel heppnuð. Sagði
hann að ferðalöngunum væri
heimilt að gista í skálaunum gegn
sama gjaldi og Ferðafélag íslands
tekur fyrir gistingu í sæluhúsum
sínum. Hann tók það sérstaklega
fram, að ekki væru hitunartæki í
skálunum.
Skálinn kominn á sinn stað. Nyrðri hnúkurinn í baksýn.
AFMÆLISHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
GIÐ í KVÖLD
Afgreiöslan í Sjálfstæöishúsinu, Háaleitisbraut 1,
er opin í dag til kl. 22.00
Sími82900
Greiðsla sótt heim ef óskað er.