Morgunblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979
29
Hljómleikar í Höllinni
• 12. júnf kl. 9 stendur til að halda hljómleika í
Laugardalshöllinni með Hinum íslenska
þursaflokki, Ljósunum í bænum og Magnúsi og
Jóhanni.
Þursarnir og Ljósin munu þar kynna efni af
væntanlegum hljómplötum sfnum sem koma í
verslanir um lfkt leyti og hljómleikarnir verða
haldnir.
Kynnir á þessum hljómleikum verður svo annar
sem á plötu á markaðnum þessa dagana, Helgi
Pétursson.
Þess má geta að stefnt verður að þvf að halda
miðaverði mjög lágu og hefur verið rætt um verðið
3.500 til 4.000 kr.
Ljósin munu gera vföreist um landið eftir
hljómleikana, ásamt Magnúsi og Jóhanni og Ilelga
Péturssyni.
Plata ljósanna mun bera nafnið „Diskó Friskó“!
Þursarnir munu aftur á móti gera víðreist á
Norðurlöndum eins og fram hefur hefur komið hér
í blaðinu áður, en plata þeirra kemur út í fyrstu
viku í júní ef allt gengur að óskum.
Þursum hefur bæst liðsauki fyrir þessa hljóm-
leika, Lárus Grfmsson, hljómborðsleikari, en hann
mun sfðan taka sæti Karls Sighvatssonar í Norður-
landaferðinni. Þeir verða þó báðir á hljómleikun-
um.
Nýmæli verður við þessa hljómleika að útbúinn
verður dagskrárbæklingur með æviágripum og
sögu aðstandenda, og er það vel. HIA.
Illjómsveit Paul McCartney, Wings, hefur nú lokið gerð breiðskífu sem
kemur út í Bretlandi föstudaginn 8. júní næstkomandi. Plata þessi mun
bera heitið „Back To The Egg“ og er stúdíóplata. Á plötunni eru 14 lög, 13
eftir McCartney sjálfan og eitt eftir Denny Laine. Meðal gcsta á plötunni
eru Hank B. Marvin (Shadows), David Gilmour, Pete Townsend og Kenny
Jones (Who). Þess má geta að McCartney til aðstoðar við upptökustjórn
var Chris Thomas, en McCartney hefur einn séð um þá hlið málsins hingað
til.
1
5
Heklahf
nýja umboðsmenn
Bifreiðaverkstæðið
ÞÓRSHAMAR HF
sinaa
a sama stað í dag
frá Kl.1-6
Sýndir verða:
Sigurvegarinn GOLFdíesel,
5 strokka AUDI100,
VW DERBI og AUDI80.
I
Auói
I
Verið velkomin!
HEKIAHF