Morgunblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ1979
31
Hátíðahöldin á sjó-
mannadaginn í Rvík
með hefðbundnu sniði
Hátíðarhöld á sjómannadaginn í Reykjavík n.k. sunnudag verða með mjög
hefðbundnum hætti og hefjast með því að skip í Reykjavíkurhöfn draga skrautfána
að húni kl. 8 að morgni. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur fyrir aldraða dvalargesti á
Hrafnistu kl. 10.
Síðan er sjómannamessa í Dómkirkjunni kl. 11 þar sem séra Hjalti Guðmundsson
þjónar og minnist drukknaðra sjómanna. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar og Halldór Vilhelmsson syngur. Einnig mun drengjakór frá
Dómkirkjunni í Gautaborg
Eftir hádegi verður útihátíðar-
samkoma í Nauthólsvík á vegum
Sjómannadagsráðs í Reykjavík
og verður þar ýmislegt til
skemmtunar svo sem kappsigl-
ing, kappróður og koddaslagur.
Þá mun og Tóti trúður (Ketill
Larsen) skemmta ásamt börnum
og unglingurti. Er líða tekur á
skemmtunina mun verða skraut-
sigling inn Skerjafjörðinn. Eig-
endur smábáta munu fylkja liði
úti í firðinum og sigla inn hann
þegar líða tekur á daginn.
A undan skemmtiatriðunum
verða flutt ávörp. Kjartan
syngja.
Jóhannsson sjávarútvegsráð-
herra mun tala af hálfu ríkis-
stjórnarinnar, Sverrir Leósson
útgerðarmaður frá Akureyri af
hálfu útgerðarmanna og Ingólfur
Ingólfsson formaður Farmanna-
og fiskimannasambands íslands
af hálfu sjómanna. Síðan mun
Pétur Sigurðsson formaður Sjó-
mannadagsráðs heiðra aldraða
sjómenn með merki sjómanna-
dagsins.
Strætisvagnaferðir verða í
Nauthólsvík, frá Hlemmi og
Lækjartorgi á 15 mínútna fresti.
Um kvöldin verður útvarps-
dagskrá tileinkuð sjómönnum í
umsjá Sveins Sæmundssonar. Þá
verður sjómannahóf á Hótel
Sögu sem hefst með borðhaldi kl.
19.30 og verða þar einnig
skemmtiatriði. Miðasala og
borðapantanir verða í anddyri
Hótel Sögu á föstudag og laugar-
dag kl. 17—19 báða dagana.
Hrafnistuheimilið í Hafnar-
firði verður opið almenningi á
sjómannadaginn og þar verður
kaffisala frá kl. 15—17. Allur
ágóði rennur í skemmtiferðar-
sjóð vistmanna heimilisins.
Pétur Sigurðsson formaður Sjómannadagsráðs skýrir blaðamönnum
frá tilhögun hátíðahalda í tilefni sjómannadagsins n.k. sunnudag. Við
hlið hans sitja fulltrúar úr stjórn sjómannadagsráðs. Talið frá vinstri:
Hilmar Jónsson, Garðar borsteinsson, Pétur Sigurðsson og Tómas
Guðjónsson. Á myndina vantar Guðmund IL Oddsson gjaldkera
stjórnarinnar. Ljósm. Kristján.
Erlendum ferðamönnum f ækk-
adi — f erðir íslendinga jukust
I maímánuði sl. komu til landsins
10.269 ferðamenn en í sama mánuði í
fyrra komu hingað 10.072.
Ferðamenn, sem hingað komu í
maí sl. skiptast þannig að 6037 eru
útlendingar en 4232 íslendingar og
hefur erlendum ferðamönnum fækk-
að miðað við sama mánuð í fyrra en
þá voru þeir 6116. íslendingar, sem
komu hingað í maí í fyrra voru hins
vegar 3956. Ferðamönnum, sem
komið hafa til landsins frá áramót-
um til maíloka hefur fækkað sé
miðað við sömu mánuði árið 1978.
Nú komu til landsins á þessu tíma-
bili 36.733 ferðamenn, 18.087 íslend-
ingar og 18.646 útlendingar en á
árinu 1978 38.105, íslendingar voru
19.227 og útlendingar 18.878.
Flestir þeirra erlendu ferða-
manna, sem hingað komu fyrstu
fimm mánuði ársins, voru Banda-
ríkjamenn, eða 1989, þá 691 Svíi, 689
Vestur-Þjóðverjar, 559 Danir, 506
Bretar, 425 Norðmenn, 289 Sviss-
lendingar og 101 Hollendingur. Frá
öðrum þjóðlöndum komu færri
ferðamenn.
Göngudagur Ferðafé-
lagsins á sunnudag
SUNNUDAGINN 10. júní
efnir Ferðafélag íslands til
göngudags og verður
gengin 12—13 km leið frá
Kolviðarhóli umhverfis
Skarðsmýrarfjall, vestur
Innstadal, um Sleggju-
beinsskarð og að Kolviðar-
hóli aftur. í frétt frá Ferða-
félaginu segir m.a. að ekki
ætti að taka meira en 5
tíma að ganga leiðina með
góðum hvfldum.
Tilgangur félagsins með
göngudegi þessum er að fá
sem flesta til að iðka göngu-
ferðir, en fyrrgreind leið
verður merkt þannig að ekki
á að vera hætta á að villast.
Þeir sem vilja geta komið á
eigin bílum að Kolviðarhóli
og gengið þaðan, en þar mun
félagið hafa bækistöð
meðan gangan stendur yfir
og verður hægt að fá þar
upplýsingar og merki dags-
ins. Þrjár ferðir verða farn-
ar frá Umferðarmiðstöð-
inni, kl. 10, 11.30 og 13.
Á kortinu má sjá leiðina sem gengin verður og telja
Ferðafélagsmenn að hana megi fara á 5 tímum með
góðum hvfldum.
Veislumatur,
skemmtiatrioi
Við bjóðum stórsteikur sem smárétti
AUt aföllu í mat og drykk.
Munið ókeypis sérrétt fyrir
börn 10 ára og yngri.
„The Bulganan Brothers skemmta matargest
um Esjubergs í kvöld kl. 6—9 og á morgun
sunnudag kl. 12—2 og 6—9.
Þaö er odyrt aö boröa hjá okkur
Veriö velkomin