Morgunblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ1979 Jóhannes Eðvaldsson Arnór Guðjhonssen Ásgeir Sigurvinsson Marteinn Geirsson Pétur Pétursson Sóknarleikur að sjálfsögðu AGUST INGI ll JÓNSSON:m A EFTIR BOLTANUM ÆTLI íslendingar sér sigur í Evrópukeppni landsliða í knatt- spyrnu verður sá sigur að vinn- ast í dag þegar leikið verður gegn Svisslendingum á Laugar- dalsvellinum. Vissulega getur allt gerzt í knattspyrnunni, en það er ekki raunhæft að gera sér sigurvonir í leikjum við stórveldi í þessari íþrótt, þjóðir eins og Holland, Á-Þýzkaland og Pól- land. Reyndar vann landinn sig- ur gegn a-þýzka liðinu fyrir nokkrum árum, en það voru úrslit, sem skóku knattspyrnu- heiminn. Því miður gerist slíkt varla aftur á þessu ári. Forystumenn KSÍ voru sókn- djarfir þegar þeir ræddu við blaðamenn og tilkynntu landsliðið á miðvikudag. Þar var lofað sóknarleik og haft var eftir Ellert B. Schram formanni KSÍ að menn sættu sig ekki við annað en sigur. Sóknarleikur frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu, sagði hann í Mbl. og í Þjóðviljanum var vitnað í formanninn er hann sagði: „Allt verður gert til að sigra og það mun takast." Þar höfum við það, spurningin er aðeins hversu stór sigurinn verður. Við höfum ekki áður leikið við Svisslendinga á heimavelli og fyrsti leikur þjóðanna var í Sviss á dögunum, þá tapaði landinn 0:2. Hins vegar léku unglingalandslið þjóðanna saman fyrir nokkrum árum og þá varð jafntefli án marka. Undanfarin ár höfum við iðu- lega leikið gegn þjóðum, sem í raun eru minnst einum og stund- um tveimur eða þremur gæða- flokkum fyrir ofan okkur á knatt- spyrnuvellinum. Þessir leikir hafa því miður of á tíðum orðið leiðin- legir fyrir áhorfendur. Landinn hefur legið í vörn, en náð góðum hraðaupphlaupum á milli. Úrslit hafa náðst, sem glatt hafa stórt hjarta áhugamannsins, en leikirn- ir sem slíkir hafa ekki alltaf verið sérlega eftirminnilegir. 1 dag verður leikið gegn þjóð, sem sennilega er heldur sterkari en við í íþróttinni. Það bætir þó upp þennan mun og vonandi ríf- lega það, að leikið er á heimavelli. Ef sigur vinnst í dag yrði það fyrsti landsliðssigurinn undir stjórn Youri Ilytchev. Það er alls engin goðgá að reikna með sigri í dag, en hins vegar finnst manni það hálfleiðinlegt tímanna tákn að það skuli þykja stórfrétt þegar landsliðið leikur sóknarleik. Einhvern tímann hefði það þótt svo sjálfsagt, að ekki þyrfti að hafa orð á því, en mennirnir hafa breytzt og tímarnir með. Það eina, sem undirrituðum kemur í hug, að geti komið í veg fyrir sigur í leiknum í dag, er öll sú bjartsýni, sem ríkir fyrir leikinn. Það kann sjaldnast góðri lukku að stýra og árangurinn verður oft beztur þeg- ar við minnstu er búist. Landsliðshópurinn gegn Sviss- lendingum er firnasterkur á íslenzkan mælikvarða og gæti ekki verið sterkari að mínu mati. Hins vegar er ekki hægt að ræða um þetta landslið, sem bezta landslið Islands fyrr og síðar. Slíkan samanburð er einfaldlega ekki hægt að gera, en sterkari 16 leikmenn var ekki hægt að velja meðal íslenzkra knattspyrnu- manna. Jóhannes jafnar met VERÐI Jóhannes Eðvaldsson fyrirliði íslenska landsliðsins sem mætir Svisslendingum á Laugardalsvellinum í dag hefur hann með því unnið merkilegt afrek. AHar líkur eru á að Jóhannes verði fyrirliði, hann hefur unnið það starf með sóma síðustu árin og leikurinn í dag verður 24. landsleikurinn þar sem hann stýrir Iiðinu. Með því hefur hann jafnað metin við Ríkharð Jónsson, sem var fyrir- liði landsliðsins 24 sinnum. Jó- hannes slær þetta met að öllum b'k.indum á næstu misserum. Fyrirliðar íslands frá upphafi eru þessir. Ríkharður Jónsson 24 Jóhannes Eðvaldsson 23 Jóhannes Atlason H Ellert B. Schram 9 Guðni Kjartansson 7 Karl Guðmundsson 6 Árni Njálsson 4 Sveinn Teitsson 4 Jón Pétursson 4 Ásgeir Sigurvinsson 3 Skotar unnu stórt SKOTAR halda enn í vonina um sigur í riðli sfnum í Evrópu- keppni landsliða f knattspyrnu, eftir að hafa lagt Norðmenn að velli í Ósló í fyrrakvöld. Sigruðu Skotar 4—0, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 3—0. 3-litblindir! DÓMARAR í Júgóslavíu fóru nýlega allir sem einn í margþætt hæfnispróf. Þar bar helst til tíðinda, að þrír reyndust vera litblindir! Misstu þeir samstundis réttindin, enda ótækt að vita ekki hvort verið er að sýna gult eða rautt spjald, hvað þá að þekkja í sundur búninga liðanna til að sjá hvort verið er að brjóta af sér eða ekki. Samherjar gætu hlaupið saman inn í eigin vítateig og dómarinn blásið og dæmt samstundis víti! Karl Þórðarson Menn hafa hnotið um það, að Jón Pétursson er ekki í landsliðs- hópnum, en þó Jón sé sterkur, þá sakna ég hans ekki. Við eigum gnótt leikmanna, sem geta komið í hans stað og ef um tvo svipaða leikmenn er að ræða, þá á að sjálfsögðu að velja þann, sem enn iðkar íþrótt sína hér uppi á skerinu. Breytingar hafa orðið á landsliðinu frá fyrsta leik ársins, en aðeins til bóta. Sérstaklega verður spennandi að sjá hvernig framlínumönnun- um Teiti, Pétri og Arnóri tekst til í dag. í dag ættu þeir að fá að sýna hvers þeir eru megnugir í sínum réttu hlutverkum, en ekki að vera einhverjar hlaupatíkur á milli miklu fjölmennari varnarmanna í lið andstæðinganna, eins og Pétur og Arnór voru í leiknum við Sviss á dögunum og Teitur hefur svo oft fengið að reyna í landsleikjum undanfarinna ára. Að baki þeim verður snillingur- inn Ásgeir Sigurvinsson og með honum á miðjunni trúlega þeir Atli Eðvaldsson og Guðmundur Þorbjörnsson, en Karl Þórðarson gæti þó hugsanlega byrjað inn á fyrir Guðmund og þá yrði hið hættulega Skagatríó á vinstri vængnum. Bakverðir verða væntanlega Janus Guðlaugsson og Árni Sveinsson, miðverðir þeir Jóhannes fyrirliði Eðvaldsson og Marteinn Geirsson. í markinu verður Keflvíkingur, Þorsteinn að nafni. Hvort það verður Ólafsson eða Bjarnason er ekki gott að segja, en ekki kæmi á óvart, þó Þorsteinn Bjarnason yrði í mark- inu. Skotar voru ávallt sterkari þó að ekki hefðu þeir sýnt stórleik. Var sigur þeirra sanngjarn, en of stór miðað við gang leiksins. Joe Jordan (32. mi'n.), Kenny Dalglish (39. mín.) og John Robertson (43. mfn.) skoruðu mörk Skota í fyrri hálfleik, Gordon McQueen bætti því fjórða við á 54. mínútu, eftir að knöttur- inn hafði hrokkið út af.þver- slánni. Staðan í riðlinum er nú þessi: Portúgal 4 3 1 0 5:2 7 Austurríki 4 2 2 1 7:5 6 Skotland 4 2 0 2 9:6 4 Belgía 4 0 4 0 3:3 4 Noregur 5 0 1 4 3:10 1 Þá unnu Svíar góðan sigur á Lúxemborgurum, 3—0 í Evrópu- keppni landsliða í knattspyrnu. Anders Grönhagan, Tore Cervin og Hasse Borg skoruðu mörk Svía. Staðan í riðlinum er nú þessi: Tékkóslóvakía Frakkland Svíþjóð Lúxemborg 3 3 0 0 8:1 6 4 2 1 1 8:5 5 3 1 1 1 6:5 3 4 0 0 4 1:12 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.