Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABL AÐI
129. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hægrimenn sigruðu
í Evrópukosningum
Bru&el, 11. Júní. Reuter.
HÆGRI flokkar unnu á og tilraunir sósíalista til að ráða lögum og lofum á Evrópuþinginu fóru út um
þúfur f fyrstu beinu kosningunum til þess.
Samkvæmt tölvuspám fá sósfalistar 111 þingsæti af 400 og verða fjölmennasti þingflokkurinn, en þeir
hafa tapað fylgi og áhrif þeirra verða ekki eins mikil og á fráfarandi þingi sem var minna. Hrakfarir
Verkamannaflokksins f Bretlandi áttu mikinn þátt f slakri frammistöðu sósfalista.
Önnur mikilvæg niðurstaða
kosninganna var alvarlegt áfall
sem Gaullistaflokkurinn í Frakk-
landi undir forystu Jacques Chirac
varð fyrir. Simone Veil heilbrigð-
isráðherra varð hlutskörpust í
frönsku kosningunum með stuðn-
ingi Valery Giscard d’Estaing for-
seta og frú Veil kemur sterklega til
greina sem forseti nýja þingsins.
Giscardisinnar munu taka hönd-
um saman með Frjálslynda flokkn-
um í Bretlandi, kristilegum dem-
ókrötum og brezkum íhaldsmönn-
um þannig að miðjumenn og hægri
menn munu setja svip sinn á þingið
Sótt tíl borgar
í Afghanistan
Islamabad, 11. Júní. Rcuter, AP.
RÚMLEGA 35.000 ættflokka-
strfðsmenn fjandsamlegir kommún-
istum sækja til annarrar stærstu
borgar Afghanistans, Jalalabad að
sögn talsmanns uppreisnarmanna f
höfuðborg Pakistans f dag.
Uppreisnarmenn eru um 15 km
frá borginni sem er 80 km frá
landamærunum við Pakistan f
Khybcr-skarði og 120 km frá höf-
Festingar
kannaðar
Washinftton, 11. júní. Reuter.
BANDARÍSKA flugmálastjórnin
(FAA) sagði f dag að grunur léki
á að grundvallar hönnunargallar
séu á festingum sem tengja hreyfil
og væng á DC-10 flugvélunum sem
hafa verið kyrrsettar.
Yfirmaður FAA, Langhorne
Bond, sagði þingnefnd að rann-
sóknin á flugslysinu i síðasta
mánuði beindist að festingunni
sem tengir hreyfil og væng. Hann
sagðist ekki vita hvenær flugvél-
arnar fengju að fljúga aftur. Flug-
bannið yrði í gildi „þangað til við
erum vissir um að þær séu örugg-
ar“.
uðborginni Kabul. Ef árásin á
Jalalabad heppnazt gæti það lamað
vegasamgöngur milli Kabul og
Pakistans.
Ættflokkastríðsmennirnir ákváðu
fyrir sex vikum að gerast þátttak-
endur í heilögu stríði sem hefur
verið lýst yfir að undirlagi hópa sem
eru fjandsamlegir Noor Mohammed
Tarakki forsætisráðherra. Hann er
vinveittur kommúnistum og tók
völdin í byltingu í apríl í fyrra.
Ættflokkarnir telja umbótaáætl-
un ríkisstjórnarinnar sem Rússar
styðja ógnun við íslamska hefð
þeirra og lénsfyrirkomulag. Stjórnin
hefur kennt innrásarliði frá Pakist-
an um bardaga í nokkrum héruðum
en Pakistanar hafa vísað þessum
ásökunum á bug og segjast engin
afskipti vilja hafa af innanlands-
málum Afghanistans.
Bardagarnir hafa breiðzt út til
nágrennis Kabul þar sem diplómatar
hafa séð þyrlu sem Rússar leíu í té
gera eldflaugaárásir rétt hjá borg-
inni. Nokkrar sprengjur hafa
sprungið í Kabul.
Pakistanar kröfðust í dag rann-
sóknar á ásökunum um að 32 konur
og böm hafi verið skotin til bana í
Polui-Chara-fangelsi í Kabul. Þau
voru úr 700 manna hópi sem ruddist
til fangelsisins fyrir hálfum mánuði
til að leita að týndum ættingjum:
hermenn skutu á mannfjöldann og
nokkur börn tróðust undir.
' sem kemur saman 17. júlí í
Strassborg. Kjörsóknvar lítil, eink-
um í Bretlandi, en kristilegir dem-
ókratar geta verið ánægðir þar sem
þeir fá 107 þingsæti samkvæmt
tölvuspám og einnig íhaldsmenn
sem fá 63 og frjálslyndir sem fá 44.
Kristilegir demókratar sigruðu
samsteypu jafnaðarmanna og
frjálslyndra undir forystu Helmut
Schmidt kanzlara. Sósíaldemókrat-
ar sem voru undir forystu Willy
Brandts fyrrum kanzlara urðu
fyrir vonbrigðum og ljóst er að
Brandt getur ekki orðið forseti
þingsins.
Aðeins 32% kusu í Bretlandi og
mun skýringin andúð á EBE. Séra
Ian Paisley vann óvæntan sigur á
Norður-Irlandi.
Á Ítalíu sögðu enn fleiri kjósend-
ur en áður skilið við tvo aðalflokk-
anna og sósíalistar og smáflokkar
unnu því á. Kristilegir demókratar
fengu 30 og kommúnistar 24 þing-
sæti á þinginu sem fær aðeins
I ráðgefandi hlutverk. Þingið mun
þá setja 19 milljarða dollara fjár-
lög bandalagsins.
Leikur í sumarregni.
Ljúem. Mbl. Krlstlnn.
Árásir frá öllum
hfiðum á Managua
Managua, 11. júní. Reuter.
VINSTRISINNAÐIR skæruliðar réðust á höfuðborg Nicaragua frá öllum hliðum f dag og sjónarvottar
sögðu að tugir manna hefðu verið drcpnir.
Skæruliðarnir lokuðu aðflutningsleiðum til Managua, tóku úthverfi vestan og austan við borgina
herskildi og sóttu fram úr norðri f suður. Nú mun vera vatnslaust í Managua vegna bardaganna. 50 féllu f
gær.
í Leon náðu skæruliðar skrið-
dreka af hermönnum og beittu
honum gegn liðsauka stjórnarinn-
ar. Skæruliðar munu einnig hafa
hluta bæjanna Matagalpa og
Masaya á sínu valdi.
Somoza hershöfðingi sagði í dag
að skæruliðar hefðu undir hönd-
um þung vopn sem stjórnarher-
menn ættu ekki. Þegar hann
ávarpaði blaðamenn í neðan-
jarðarskrifstofu sinni sem er köll-
uð „loftvarnabyrgið" heyrðist
skothríð úr öllum borgarhverfum.
„Pólitískt sjálfsmorð að draga
þessi200 mílna mörk til baka”
—segir Benedikt Gröndal í vidtali við norska blaðið „Verdens Gang” —
Fri fréttarltara Mbl. f Ósló f gœr.
NORSKA blaðið „Verdens Gang“ sagði um helgina að íslendingar myndu ekki sætta sig við 200 mílna norska efnahagslögsögu umhverfis Jan Mayen
og að bæði Benedikt Gröndal utanrfkisráðherra og Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra drægu f efa þjóðréttarlegan og siðferðilegan rétt
Norðmanna.
Haft er eftir utanríkisráðherra að íslendingar hafi aukið lögsögu sfna innan 200 mflnanna. Þegar íslendingar hefðu tekið sér efnahagslögsögu
1975 hefði verið sagt að „fyrst um sinn“ yrði ekki haldið fram réttindum handan miðlfnunnar við Jan Mayen. Nú hafi þetta orðalag nýlega verið fellt
niður. Héðan í frá áskildu íslendingar sér allan rétt innan 200 mflnanna.
í þessu felst að íslendingar hafa
eignað sér um 25.000 ferkílómetra
stórt hafsvæði sem er „Noregsmeg-
in“ miðlínunnar við Jan Mayen,
segir blaðið. „Það væri pólitískt
sjálfsmorð að draga þessi 200
mílna mörk til baka,“ sagði Bene-
dikt Gröndal í viðtalinu.
Hann tók einnig fram að íslend-
ingar kynnu að gera kröfu til
landgrunnsins handan 200 míln-
anna að Jan Mayen. Ekki væri víst
að fiskveiðimörk og landgrunns-
mörk þyrftu alltaf að fara saman.
Haft er eftir Kjartani Jóhanns-
syni sjávarútvegsráðherra að loðn-
an sé íslenzk fiskitegund sem haldi
sig að mestu innan íslenzkrar
fiskveiðilögsögu. Hann var spurður
hvort íslendingar vildu þá ekki að
Norðmenn fengju engan hluta af
loðnunni þegar íslendingar og
Norðmenn semdu um kvótaskipt-
ingu. Hann neitaði því, en sagði að
gefið hefði verið í skyn að þessar
veiðar ætti eingöngu að stunda frá
Islandi.
Sjávarútvegsráðherra staðfesti
að Islendingar myndu héðan í frá
halda fram efnahagslögsögu sinni
allt út í 200 mílur gagnvart Jan
Mayen og fara þar yfir miðlínuna.
Hann var spurður hvort þetta
merkti að ef norskir loðnusjómenn
kæmu á þetta svæði án leyfis þegar
loðnu veiðin hefst í ágúst yrði þeim
vísað burt. Hann játaði því.
Mánudaginn 19. júní kemur ís-
lenzk sendinefnd til Óslóar til að
halda áfram viðræðum um loðnu-
kvóta Norðmanna og íslendinga.
— Lauré.
Hann sagði að skæruliðar hefðu
hafið allsherjarárás til að ein-
angra Managua en hann ætlaði
ekki að leggja niður völd. Somoza
hershöfðingi kvað hermenn sína
hafa fellt eða sært 1,000 skæruliða
en 300 hermenn hefðu fallið eða
særzt.
Hann sakaði stjórn Panama um
að senda skæruliðum hergögn sem
hún hefði keypt í Bandaríkjunum
og kvað stjórn sína hafa til athug-
unar að slíta stjórnmálasambandi
við Panama.
Bandaríska sendiráðið reyndi í
dag að flytja um 60 bandaríska
borgara úr landi, en varð að hætta
við það vegna bardaganna.
Samsæri
í Ghana
Accra, 11. júnl. Reuter
NÝJA herforingjastjórnin í Ghana
hefur sakað líbanska og indverska
íbúa í landinu um samsæri um að
myrða Jery Rawlings flugliðsfor-
ingja, foringja byltingarinnar í síð-
asta mánuði.
í opinberri yfirlýsingu sagði að
Líbanir og Indverjar hefðu sett þrjár
milliónir dollara til höfuðs Rawlings
flugliðsforingja, en þeir hafa neitað
því og lýst yfir hollustu við nýju
stjórnina.