Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979
11
Ungt fólk á Ítalíu snýr
baki við kommúnistum
Italski kommúnistaflokkurinn hefur tapað í kosningum í
fyrsta sinn síðan ítalska lýðveldið var stofnað fyrir 33
árum vegna þess að ungir kjósendur hafa snúið við honum
baki í stórum stíl og þar með hefur hinn svokallaði
Evrópukommúnismi orðið fyrir alvarlegu áfalli í því landi
þar sem hann varð til
Fréttaskýrendur segja að það aðdráttarafl sem kommún-
istar hafi haft á Ítalíu, heyri sögunni til og það sé ekki
Iengur í tízku að taka sömu afstöðu og kommúnistar. Ungir
og óánægðir kjósendur hafa í þess stað fundið athvarf í
Róttæka flokknum, þar sem er að finna samsafn fólks sem
berst fyrir mannréttindum og umhverfisvernd. Fylgi þess
flokks þrefaldaðist í kosningunum (úr 1,1 í 3,4%) og
þingmönnum hans fjölgaði úr
Kommúnistar töpuðu fjórum
af hundraði í kosningunum til
fulltrúadeildarinnar þar sem
kosningaaldur var 18 ár og 2,3%
í kosningunum til öldungadeild-
arinnar þar sem kosningaaldur
var 25 ár. Þeir fengu 201 þing-
sæti af 630 í fulltrúadeildinni og
töpuðu 27 sætum. Þeir fengu
11.107.883 atkvæði í kosningun-
um, eða 30,4 af hundraði miðað
við 34,4 af hundraði 1976.
Kommúnistaforinginn Enrico
Berlanguer viðurkenndi að
flokkurinn hefði orðið fyrir
greinilegu fylgistapi miðað við
kosningarnar 1976, en heldur því
fram að flokknum hafi tekizt að
treysta í sessi verulegan hluta
þeirrar fylgisaukningar, sem
flokkurinn átti að fagna í síð-
ustu kosningum. Annar
kommúnistaleiðtogi, Luciano
Barca, viðurkenndi að ungir
kjósendur hefðu snúið baki við
flokknum og sagði að flokkurinn
yrði að koma á „nýjum tenglsum
við ungu kynslóðina".
Misheppnað
samstarf
Fylgistapi kommúnista hafði
verið spáð í kjölfar tveggja ára
misheppnaðs samstarfs þeirra
og kristilegra demókrata. Ber-
linguer lagði á það áherzlu í
í 18.
Berlinguer: áfall fyrir Evrópu-
kommúnismann.
kosningabaráttunni, að sam-
kvæmt hugmyndum evrópu-
kommúnismans væri byltingum
afneitað og þingræðiskerfið við-
urkennt, en þar með hefur hann
styggt gamladags Moskvu-
kommúnista. Kommúnistar
sögðu, að þeir væru í engu háðir
stjórninni í Moskvu og hétu því
að halda Ítalíu í NATO. Þeir
sögðu líka í áróðri sínum, að í
landi, sem væri þjakað af
hryðjuverkum og atvinnuleysi,
þyrfti styrkja „þjóðareiningar-
stjórn“.
Ótti við hryðjuverk hefur líka
átt þátt í hrakförum kommún-
ista, svo og krafa almennings um
að haldið verði uppi lögum og
reglu og vaxandi álit manna á
Jóhannesi Páli páfa II sem nýtur
mikilla vinsælda, og róm-
versk-kaþólsku kirkjunni, sem
styður kristilega demókrata.
Þótt kommúnistar hafi tekið
eindregna afstöðu gegn hryðju-
verkum hefur verið á það bent,
að núverandi vinstrisinnaðir
byltingarmenn sé fyrrverandi
flokksfélagar.
Óánægja með kommúnista
hefur sézt á því, að félögum í
flokknum hefur fækkað. Enn eru
tæplega 1,7 milljónir manna
flokksfélagar, en nýjum félögum
hefur fækkað stöðugt, einkum
fólki af ungu kynslóðinni.
Kristilegum demókrötum
hafði verið spáð fylgisaukningu,
en þeir spádómar rættust ekki.
Þeir fengu 262 þingmenn í full-
trúadeildinni, einum færra en
1976, og skorti 54 þingsæti til að
fá meirihluta. Þeir fengu
14.997.594 atkvæði, eða 38,3 af
hundraði, miðað við 38,7 af
hundraði 1976.
Aukin verkföll?
Stjórnmálaleiðtogar og
kaupsýslumenn höfðu gert sér
vonir um, að stjórnarflokkurinn
efldist í kosningunum þannig að
hann stæði betur að vígi til þess
að taka djúpstæð vandamál
landsins, pólitísk og efnahags-
leg, föstum tökum. í Mílanó hafa
nokkrir framkvæmdastjórar lát-
ið í ljós ugg um, að verkalýðs-
félögin taki upp herskárri af-
stöðu í væntanlegum samning-
um um kaup og kjör, er munu ná
til níu milljóna verkamanna í
flestum meiriháttar atvinnu-
greinum.
Verkalýðsfélögin fylgja
kommúnistum að málum og hið
volduga félag málmverkamanna,
sem felldi ríkisstjórn 1975 með
langvinnu verkfalli, hefur þegar
boðað verkfall 21. júní. Leiðtogi
félagsins er Pio Galli, kommún-
isti.
Ummæli Berlinguers eftir
kosningarnar gætu líka bent til
þess, að verkalýðsfélög kommún-
ista muni herða á kröfum sínum
þannig að hægur efnahagsbati
Itala kafni í fæðingunni og
verðbólgan, sem er 14%, magn-
ist. Hann sagði þegar úrslit
Marco Pannella, leiðtogi Rót-
tæka flokksins, sem bætti við
sig fylgi.
kosninganna voru kunn, að
kommúnistar mundu „berjast
fyrir því að varðveita sigra og
réttindi hinna vinnandi stétta."
Ósigur Berlinguers hefur
einnig valdið efasemdum um
kenningar hans um Evrópu-
kommúnismann. Hann hefur
sagt í viðtölum við blöð, að
honum finnist hann vera óhult-
ari í NATO-landi eins og Ítalía
er nú en ef Ítalía væri aðili að
Varsjár-bandalaginu, en þessum
ummælum hans var sleppt í
flokksmálgagninu L’Unita.
Léttir í Evrópu
Tap kommúnista hefur vakið
mikinn létti í öðrum Vest-
ur-Evrópuríkjum og Bandaríkj-
unum, þar sem óttazt var að nýr
sigur stærsta kommúnistaflokks
Vesturlanda gæti leitt til þess,
að þeir fengju einhverja aðild að
stjórn landsins. Kommúnista-
flokkurinn fer þegar með völdin
í stórborgum eins og Róm,
Torino, Flórenz og Napoli.
Bandaríkjamenn hafa hvað
eftir annað barizt gegn aukinni
hlutdeild kommúnista í ríkis-
stjórnum í Vestur-Evrópu,
meðal annars af ótta við að
leyndarmál NATO gætu lekið til
Sovétríkjanna ef kommúnistar
fengju stjórnaraðild. Carter for-
seti sagði fyrir einu ári: „Við
viljum helzt, að kommúnismi
verði í lágmarki í hinum vest-
ræna heimi og aukist ekki... Við
treystum dómgreind frjálsra
þjóða í frjálsum þjóðfélögum til
þess að sjá að kommúnismi
þjónar ekki beztu hagsmunum
þeirra sjálfra."
Bandaríkjamenn hafa gert
samstillt átak til að sýna áhuga
sinn á Italíu og sent að minnsta
kosti sjö ráðherra þangað á
undanförnum tveimur árum og
aukið heimsóknir ítalskra for-
ystumanna til Washington.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
kom við í Róm í siðustu vikunni
fyrir kosningarnar á leið sinni
heim frá Miðausturlöndum og
heimsókn hans var túlkuð sem
yfirlýsing um stuðning við and-
stöðuflokka kommúnista.
Til þess að mynda 38. ríkis-
stjórn Italíu frá stríðslokum án
stuðnings kommúnista verða
kristilegir demókratar að taka
tillit til sósíalista, þriðja stærsta
flokksins, sem hlaut 9,8% í
kosningunum og 60 þingsæti í
fulltrúadeildinni, og annarra
lítilla miðjuflokka. Vitað er að
sósíalistar krefjast þess að fá
embætti forsætisráðherra eða
helming ráðherraembætta gegn
aðild að rikisstjórn.
Nýkjörið þing kemur saman
20. júní. Giulio Andreotti for-
sætisráðherra segir þá af sér og
Sandro Pertini forseti mun til-
nefna eftirmann hans.
LAUGAVEGUR
44
X verðlækkun