Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979
41
felk í
fréttum
+ STJÓRN og frammámenn Sölusambands ísl. saltfiskframleiðenda, á aðalfundi
S.Í.F. í síðustu viku. — Sitjandi frá vinstri: Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri,
Sigurður Markússon, varaformaður Rvík., Tómas Þorvaldsson, stjórnarfor-
maður, Grindavík, Bjarni Jóhannesson, Akureyri, Víglundur Jónsson, Ólafsvík,
Guðbergur Ingólfsson, Garði, Soffanías Cecilsson, Grundarfirði. — Standandi frá
vinstri eru: Hallgrímur Jónasson, Reyðarfirði, Einar Sveinsson ritari stjórnar
Reykjavík, Sigurður Einarsson Vestmannaeyjum, Stefán Runólfsson, Vestmanna-
eyjum, Hermann Hansson, Höfn, Þorsteinn Jóhannesson, Garði, Ólafur
Björnsson, Keflavík, Valgarð J. ólafsson, framkvæmdastjóri og Sigurður
Ilaraldsson, skrifstofustjóri. Á myndina vantar Benedikt Thorarensen,
Þorlákshöfn.
„FÉLAGI”
ekki forstjóri
+ DAGBLAÐ Alþýðunnar í Peking hefur nýlega fjallað um það í
grein að flokksmenn í áhrifastöðum leggi ekki nægilega áherzlu á
notkun titilsins „FÉLAGI“. Haíi það farið vaxandi að þessir
flokksmenn láti ávarpa sig forstjóra, ritara eða formann, vegna
þess að það hljómi betur og gefi til kynna að viðkomandi eigi mikið
undir sér. — Blaðið leggur á það áherzlu að allir flokksmenn ávarpi
hverjir aðra sem „Félaga“, því að jöfnuður verði að ríkja milli
flokksmannanna sem í æðri stöðum eru og hinna.
+ EINS OG vera ber um frægar konur, veit enginn um aldur
þeirra. Margir segja líka að árin skipta ekki máli, enginn verði
eldri en hann sjálfur vilji vera. — Víst er það að síung virðist hin
fræga kvikyndaleikkona Zsa Zsa Gabor vera. — Og lítt ku hún
draga af sér í samkvæmislífinu kringum þessa kvikmyndaleikara
vestur í Ameríku. — Hún var t.d. nýlega á diskoskemmtistaðnum
Regine í New York. Þar var þessi mynd tekin af Zsö Zsu sem lék á
als oddi.
+ BARNAMORÐINGI.
Þctta er annar þeirra tveggja
Afríkumanna, sem vakið hafa
á sér athygli fyrir fjöldamorð
og misþyrmingar, Bokassa
keisari í Mið-Afríku
keisaradæminu ... Sendiherra
hans í París, sem er hershöfð-
ingi að tign, Sylvester Bangui
að nafni, staðfesti á fundi með
blaðamönnum að skólabörn í
keisaradæmi Bokassa hefðu
verið myrt. Hann hefði sjálfur
talað við hermenn í heimalandi
sínu, sem hefðu sagt sér frá
þessu. Þar var hann nýlega á
ferð. — Sylvester sendiherra
hefur nú beðið um hæli í
Frakklandi. — Hann sagði að
100 börn hefðu verið drepin. —
Er hann sagði fréttamönnum
frá þessu á fundinum klappaði
starísfólk sendiráðsins scndi-
herranum lof í lófa.
Byrjið
daginn snemma
á Esjubergi
I sumar opnum viö kl. 700
alla morgna.
Viö bjóöum upp á nýlagað
kaffi, ný rúnstykki og heit
vínarbrauö.
Fjölbreyttar veitingar.
Það er ódýrt að borða hjá okkur
Veriö velkomin,
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
10100
■ lli £%. mm *
#:■ fs n ■% M
22480