Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979
13
Svend-Aage Malmberg:
V íðistaðir í Haf narfirði
Ú tivistarsvæði eða kirkjustaður ?
í dag, þriðjudaginn 12. júní kl.
17.00, mun bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar taka fyrir mál um kirkju-
stað og safnaðarheimili fyrir Víði-
staðasókn í Hafnarfirði.
Ymsir staðir í firðinum koma til
greina í þessu sambandi. í skipu-
lagi Norðurbæjar í Hafnarfirði,
sem er stór hluti Víðistaðasóknar,
var gert ráð fyrir kirkju- og
safnaðarheimili nálægt þeim stað
þar sem Engidalsskóli stendur. Af
handahófskenndum samtölum við
marga Norðurbæinga sýnist mér,
sem flestir haldi að sá staður sé
enn gildur. Nú þykir hann aftur af
öðrum vera of utarlega í byggð-
inni, en heldur beri að hafa
kirkjustaðinn miðsvæðis í sókn-
inni.
Nokkrir staðir hafa komið til
álita, einkum þó útivistarsvæðið
við Víðistaði, og þá vegna
miðsvæðishugmynda og náttúru-
fegurðar. Tveir staðir þar hafa
verið til umræðu, annar miðsvæð-
is uppi á klettum við túníð (slátur-
hús), hinn við jaðarinn við Flóka-
götu (hænsnahús).
Enn einn staður hefur komið til
álita, þ.e. við Reykjavíkurveg og
Hraunvang gegnt Skátaheimilinu.
Þar er náttúrufegurð e.t.v. ekki
eins auðsæ og í Víðistaðatúni, en
staðurinn er nokkuð miðsvæðis
þegar hluti Víðistaðasóknar í
Vesturbænum í Hafnarfirði er
hafður í huga. Einnig gæti góð
byggð á þessu svæði aukið fegurð
staðarins og tengt nýrri og eldri
hluta Hafnarfjarðar betur en nú
Ráðstefna
kirkjuvarða
og með-
hjálpara
LIÐLEGA 300 meðhjálparar og
kirkjuverðir sátu ráðstefnu um
málefni sín dagana 24. og 25. maí
s.l.
Ráðstefna þessi var haldin
fyrir kirkjustarfsmenn í Kjalar-
nes- og Reykjavíkurprófastdæm-
um og var hin fyrsta sinnar
tegundar hér á landi.
Ráðstefnan hófst í Safnaðar-
heimili Bústaðakirkju, en fluttist
síðari daginn að Hlégarði í Mos-
fellssveit.
Framsöguerindi voru þrjú:
Vígslubiskup, síra Sigurður
Pálsson, ræddi um helgihald
kirkjunnar og umgjörð þess.
Helgi Angantýsson, Dómkirkj-
unni, flutti erindi um kirkjuna og
meðhjálparann.
Kristján Einarsson, Lang-
holtskirkju talaði um þjónustu
við einstakar athafnir.
Miklar umræður urðu um þessi
málefni og samþykkti ráðstefnan
ályktun um nauðsyn þess að
kirkjan haldi uppi fræðslu um
þennan þátt kirkjustarfsins.
I lok ráðstefnunnar var kosin
fimm manna undirbúningsnefnd
til að undirbúa stofnun Félags
meðhjálpara og kirkjuvarða.
(Fréttatilk.)
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
er. Þetta svæði er nú í endurskoð-
un hjá skipulagsyfirvöldum og
geta þau vel leitt hugann að
hugsanlegri kirkju á nefndum
stað.
í þessu stutta máli hér verður
ekki frekar reynt að færa rök fyrir
einum staðnum né öðrum. Þó skal
bent á nokkrar frekari staðreynd-
ir í málinu.
Á skipulagsuppdráttum af þess-
um hluta Hafnarfjarðar er gert
ráð fyrir að Víðistaðatún verði
útivistarsvæði, en svæðið uppi við
Skátaheimilið stofnunarsvæði.
Náttúruverndarnefnd Hafnar-
fjarðar hefur fengið málið til
umfjöllunar, og telur hún ein-
róma, að frá náttúruverndarlegu
sjónarmiði komi Víðistaðatún
ekki til greina fyrir kirkju, en
nefndin bendir aftur á svæðið
gegn Skátaheimilinu sem gott og
fallegt kirkjustæði. Nefndin legg-
ur einnig áherslu á að gert verði
heildarskipulag að útivistarsvæð-
inu við Víðistaði. Náttúruverndar-
nefnd Hafnarfjarðar hefur ekki
fengið nein svör frá yfirvöldum
um málið.
Stjórn íþróttabandalags Hafn-
arfjarðar ásamt mörgum fyrrver-
andi formönnum þess hefur einnig
lýst yfir andstöðu við kirkjubygg-
ingu á Víðistaðatúni, enda hafi um
langan tíma verið stefnt að því að
koma þar upp íþróttasvæði og
ýmsu fleiru. Það sjonarmið er í
samræmi við útivistarsvæði
skipulagsins, og má gjarnan til
þess að forðast allan misskilning
um tilganginn, kalla svæðið
almcnningsgarð.
Þessar fáu línur eru skrifaðar í
tilefni þess að bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar mun í dag fjalla um
málið. Margir viðmælendur undir-
ritaðs hafa gagnrýnt, að engin
opinber kynning hefur farið fram,
og telja þeir jafnframt að allt of
mikill asi sé á málsbúnaði.
Tel ég því rétt, að bæjarráð
Hafnarfjarðar fresti ákvörðunar-
töku í dag í þessu þýðingarmikla
máli.
Svend-Aage Malmberg
Að lokum vil ég taka fram, að
þessar línur eru skrifaðar í nafni
og ábyrgð undirritaðs, sem þakkar
fyrir birtinguna með svona stutt-
um fyrirvara.
Hafnarfirði, 11. júní 1979.
Anarea Þorleifsdóttir
Sigriður Gestsdóttir
Starfsfólk á söluskrifstofu
okkar í Lækjargötu.
Þauv/sa
veginn
í fargjaldafrumskóginum
Lög og alþjóölegar reglur um flugfargjöld Þaö er ekki óeölilegt þótt mörgum gangi
eru flókin, svo flókin aö oft er talaö um illa aö rata - en þaö kemur ekki aö sök.
„fargjaldafrumskóginn“. Þess vegna lítum Allirsem hyggja á ferö meö okkur
viö á umboösmenn okkar og starfsfólk á fá örugga leiösögn.
söluskrifstofum, sem leiösögumenn íþeim Þeir láta í té nauösynlegar upplýsingar um
skógi.
Þaö ermargtsem hefuráhrifá endanlegt
fargjald s. s. lega ákvöröunarstaöar-
lengd feröar, fjöldi þeirra er feröast
saman - aldur þeirra - hvernig gist er
og fleira og fleira.
feröatilhögun - og leiösögumaöurinn
um fargjaldafrumskóginn finnur hagkvæmustu
leiöina og lægsta mögulega fargjaldiö -
og ekki bara þaö hann pantar líka hótel og
bílaleigubíla, svo eitthvaö sé nefnt.
STARFSFÓLK OKKAR VEITIR
FARSÆLA OG ÖRUGGA LEIÐSÖGN
ALLA LEIÐ.
FLUGLEIÐIR