Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979 31 Pétur Pétursson þulur:_________________________________Hveragerðispistill Að borða gulrót á réttan hátt og lækna gikt í vitlausum fæti Við skildum seinast við dæg- urfluguna sem suðaði sumarboð- skap sinn á sólskinshádegi þriðjudagsins 29. maí. í dag er fimmtudagur 31. maí og sér naumast til sólar. Fuglar „skríða skjótt að skjóli, skunda veðrum undan“. Annað og háværara suð lætur í eyrum. Afl- og afkasta- mikil steypuhrærivél skröltir með gný sínum og glymjanda undir hælisveggnum. „Gull- ströndin“ teygir sig æ lengra til suðurs. Vaskir verkmenn hella hræru sinni í nýslegin steypu- mót viðbyggingar er senn rís af grunni. Skýjaflotar sigla yfir lönd. Naktar birkihríslur og grenitré nötra í sviptivindum á hælisflötinni. Mislitar bifreiðar hnappast í höm á bílastæðinu dolfallnar yfir bensínverði. Þær hafa misst geltið, eins og hund- arnir í Paradísarheimt. Sumar eru enn á vetrardekkjum og senn komin Hvítasunna. Tjaldurinn spígsporar á heimatúni, klæddur svartri skikkju og hvítu brjósti. Hann veltir vöngum, stingur rauðu nefi sínu í grasgulan svörðinn og minnir á veitingaþjón eða karla- kórsfélaga er hneigist til of- drykkju. Þá er nú eitthvað annað hér á bæ. Hér er eiginlega ekkert drukkið. Annar háttur er hafður á. Tuggið þeim mun meir. Við gluggaborðið situr heimamaður og ber mjólkurglas að vörum. Hann tyggur hvern munnsopa tuttugu sinnum. Hver mjólkur- kýr mætti vera hreykin af kálf- um sínum er svo færu að. Aftur á móti ferst honum ekki líkt því eins vel þegar kemur að gulrót- unum. Um það get ég best dæmt. Ég er sérfræðingur í gulrótaáti. Lærimeistari minn er api í dýra- garðinum í Kaupmannahöfn. Það fer ekki milli mála að í þróunarsögunni hefir sá hlekkur orðið fyrir hnjaski er tengja á nútímamanninn forsögulegu gulrótaáti. Hælisfélagi okkar við gluggann tyggur gulrótina eins og hún kemur fyrir af skepn- unni, ef svo má segja. Kyngir heila gillinu. í stað þess að fylgja fordæmi apans. Náttúrleg álykt- unargáfa apans hefir ýmigust á grænum stönglinum er gulrótin geymir í fylgsni sínu. Lærifaðir minn, apinn í dýragarðinum, tók tveim höndum um rótarávöxtinn og bar að munni sér lárétt, líkt og að rennibekk. Síðan sneri hann gulrótinni fimlega og át ytra byrðið, en fleygði stönglin- um með djúpri sveiflu, svo mein- andi: Farvel Frans. Þú ert tor- meltur fjandi og best kominn á haugunum. Undarlegur misskilningur er þetta með slitgiktina, sem angr- ar mig. Eftir itarlega greinar- gerð um sára verki í hægra hné, röntgenmynd er staðfesti kalk- kúlur við liðamót, þá hafa orðið hausa víxl á ganglimum, ef svo má segja. Ég hef bréf upp á það. Blessaður heimilisdoktorinn minn sendir fyrirmæli um að „ofangreindur maður“ eigi að fá viðeigandi meðferð vegna „slit- giktar í vinstra hné“. Að vísi má segja að hann hafi það sér til málsskýringar, að „ofangreind- ur“ hafi af ýmsum verið talinn tilheyra „róttæklingum" og þar- af komi slitgikt í vinstra hné. En ég er ráðinn í að hampa hægri fæti. A morgun kl. 10 hefi ég mælt mér mót við Úrsúlu hjúkr- unarkonu. Þá ætla ég að teygja fram hægra hné og segja: Beindu nú ylgeislum þínum og hitabyglj- um að Morgunblaðsfætinum. Það er hann sem þarf umhyggju þína og alúð. Vinstri fótur minn er við hestaheilsu. Hinsvegar er svo að sjá sem kalkkúlurnar séu allsráðandi í ganglimum vinstri stjórnarinnar, hvað sem líöur öðrum líkamspörtum guðfeðr- anna. Jarðfræðingar fullyrða að Olfusið sé gamall sjávarbotn. Því til staðfestingar nefna þeir lög hátt í fjöllum er umlykja sléttlendið og geyma minjar því til sönnunar. Hamarsbrúnin í Hveragerði er fornt sjávarbjarg Hjá Sogni, hattar fyrir sjávar- mörkum í 60 m hæð. Sit ég þögull í sæti, segi hreint ekki neitt, hirði ei um heimsins læti, hvílist nú sál mín þreytt. Mér er í Morgunblaðsfæti makalaust orðið heitt. Velta nú veldisstólar Vilmundarfæti á. Sitja með sultarólar Sjevrólettunum hjá, Sambandsins fremstu fólar, fjárhirð Tómasar A. Lyftist nú þak af launum, lausung í æðri mennt. Kotbændur hlaðnir kaunum, kommar með þrjú prósent. Af gulli og grænum baunum gerist nú heldur klént. Sit ég á sjávarbotni, sötrandi grasate, biðjandi þess ei brotni bjarkir og grenitré, bíðandi þess að blotni bið ég um stormahlé. V inningsnúmer í afmælishapp- drætti Sjálf- stæðisflokksins DREGIÐ var í afmælishapp- drætti Sjálfstæðisflokksins hjá borgarfógetanum í Reykjavík 9. júní s.l. Upp komu eftirtalin vinnings- númer: 18028 Ferð fyrir 4 til Mallorka, Úrval. 6639 Ferð fyrir 2 til Grikklands, Útsýn. 52258 Ferð fyrir 2 til Ítalíu, Útsýn. 28617 Ferð fyrir 2 til Mallorka, Úrval. 63627 Ferð fyrir 2 til Ibiza, Úrval. 24513 Ferð fyrir 2 til Ibiza, Úrval. 41766 Ferð fyrir 2 til Costa Del Sol, Útsýn. 51111 Ferð fyrir 2 til Júgóslavíu, Útsýn. 35188 Ferð fyrir 2 til New York, Flugleiðir. 26444 Ferð fyrir 2 til Parísar, Flugleiðir. 6285 Ferð fyrir 2 til Luxemburg, Flugleiðir. 53803 Ferð fyrir 2 til Kaup- mannahafnar, Flugleiðir. 34199 Ferð fyrir 2 til London, Flugleiðir. Eigendur ofantaldra vinnings- miða framvísi þeim í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll, Háaleitisbraut 1. Sjálfstæðisflokkurinn þakkar öllum þeim fjölmörgu, sem þátt tóku í stuðningi við flokkinn með kaupum á happdrættismiðum. Fréttatilkynning frá Sjálfstæð- isflokknum. Birt án ábyrgðar Stórglæsilegt úrval af boróstofuboróum, eldhúsboróum og stólum. Ennfremur er úrvalið af skrifstofu- og skólahúsgögn- um ótrúlega gott. Gjörió svo vel og lítió inn. aml Síóumúla 2 — Simi 39555 Hinar vinsælu Mexikóhillur, sófasett og stólar eiga erindi inn á hvert heimili. Við bjóóum aóeins fyrsta flokks islenska framleióslu og gæói. Stálslegin húsgogn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.