Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979
29
L)ú8mynd Mbi. Lmllia
Guðrún Á. og kom-
paní á fullri ferð
Guðrún Á. Símonar og komp-
aní heldur fjórðu kvöldskemmt-
unina í Háskólabíói í kvöld kl.
7,15 en troðfullt hefur verið á
fyrri skemmtanirnar þar sem
uppselt varð á skömmum tíma.
Kvöldskemmtunin sem er í létt-
um dúr og moll tekur um tvær
klukkustundir og fram koma ein-
söngvarar, kór, lúðrasveit, dixie-
landband og nokkur af dýrum
Guðrúnar. A miðri mynd er
Guðrún Á. ásamt kór Söngskólans
í Reykjavík og lengst til vinstri
eru einsöngvararnir Þuríður Páls-
dóttir og Magnús Jónsson. Lista-
fólkinu hefur verið klappað lof í
lófa á hverri sýningu en alls taka
um 50 manns þátt í dagskránni.
„Núverandi stjórn-
arflokkar koma sér
ekki saman um ein-
földustu dægurmál”
— sagdiKristján Torlacíus vid
setningu BSRB-þingsins í gær
„Á því samningstímabili, sem er
að renna út, hafa setið tvær
ríkisstjórnir og það vekur at-
hygli, ef nánar er skoðað, að þar
hefur engin meginbreyting orð-
ið í sambandi við stefnumörkun
í efnahagsmálum almennt og f
afstöðu til hagsmunamála launa
fólks“, sagði Kristján Thoriac-
íus formaður BSRB í upphafi
setningarræðu sinnar á 31.
þingi sambandsins sem hófst í
Reykjavík í gær. Kristján sagði
ástæðu þessa m.a. þá að síðustu
tvær ríkisstjórnir hafi haft sömu
ráðgjafana í enfahagsmálum
„og að svo miklu leyti sem mótuð
hefur verið efnahagsstefna, er
hún að verulegu ieyti komin frá
þessum sömu sérfræðingum“,
sagði Kristján.
Hann sagði að engin breyting
hefði orðið á afstöðu ríkisstjórn-
arinnar til samningamála launa-
fólks og að þar ríkti sú stefna að
sýna þvergirðingshátt og spyrna
við fótum eins lengi og unnt
reyndist.
„Áreiðanlega hafa margir
bundið vonir yið að stefnubreyt-
ing yrði í kjaramálum eftir þær
miklu sviptingar sem urðu á
stjórnmálasviðinu á síðasta ári
og stjórnarskipti í kjölfar
þeirra", sagði Kristján í ræðu
sinni, „en þær sviptingar — þær
breytingar — ættu að sanna
samtökum opinberra starfs-
manna að við megum ekki slaka á
klónni í kjarabaráttunni hvaða
flokkar sem við stjórnvölinn eru.
BSRB og aðildarfélög þess hafa
sagt upp samningum. Áðalkrafa
samtakanna hlýtur að verða að
bætt verði að fullu sú kjaraskerð-
ing sem opinberir starfsmenn
hafa orðið 'fyrir vegna aðgerða
stjórnvalda. Önnur meginkrafan
verður að vera full verðtrygging
launa og uppsagnarákvæði í
kjarasamningum ef verðbótum er
breytt með lögum“, sagði Kristj-
án.
Þá sagði Kristján einnig í ræðu
sinni að það' blasti við hverju
mannsbarni að núverandi
stjórnarflokkar komi sér ekki
saman um lausn á einföldustu
dægurmálum hvað þatum mótun
stefnu í efnahagsmálum, allra
síst kjaramálum.
„Eins og stendur eru atvinnu-
rekendasamtökin hið ráðandi afl
sem króar stjórnmálamennina
smátt og smátt inni, þangað til
atvinnurekendur hafa öll tökin. í
þessu sambandi skipti það of litlu
máli hver við stjórnvölinn er“,
sagði Kristján.
Loks sagði Kristján í ræðu
sinni: „Það sem hér skiptir sköp-
um er, hvort samtök launafólks
bera gæfu til að standa saman
gegn hinu sterka atvinnu-
rekendavaldi. Stóra spurningin
er um það, hvort íslenskt launa-
fólk á að sætta sig við umræðu
um ráðherrabíla og launaþök eða
hvort samtök launafólks verða
samstiga um að móta sjálfstæða
efnahagsstefnu er tryggir hag
fólksins og knýr þá stefnu fram
hvað sem ráðherrarnir heita.
Fyrsta skrefið sem stíga þarf nú
er að ríkisstjórnin snúi sér beint
til samtaka launafólks og nái við
þau samningum um viðunandi
lágmarkslaun í þjóðfélaginu og
verðtryggingu kjara almennt".
Á þingi BSRB eiga rétt til setu
176 fulltrúar úr 33 félögum.
Þingið mun standa fram á
fimmtudag en þá fer fram
stjórnarkjör.
Um 6% gengissig í
kjölfar fiskverðsins
TALIÐ ER að það gengissig, sem fiskvinnslan þarf vegna nýja fiskverðsins, nemi
um 6%, en á síðustu tveimur mánuðum hefur gengi krónunnar gagnvart
dollarnum sigið um 3%. Til sérstakra verðuppbóta á ufsa og karfa skal verja allt
að 1200 milljónum króna á tímabilinu 15. maí til 31. desember n.k. og verður það
fé sótt í aflatryggingasjóð og tryggingasjóð fiskiskipa. í þá sjóði hefur runnið 6%
útflutningsgjald af sjávarafurðum, sem var lækkað í 5% í vetur, og er nú í sjóðum
þessum tekjuafgangur, sem nemur framangreindri upphæð.
Sjómenn andvígir
„tvöföldu fiskverði”
Fullt samkomulag varð
í yfirnefndinni um
ákvörðun skiptaverðs, en
Óskar Vigfússon fulltrúi
sjómanna lét bóka, að
hann væri ekki samþykk-
ur þeim áformum að
hækka olíugjald til fiski-
skipa utan skipta, en olíu-
gjaldið er tekið af óskiptu
aflaverðmæti.
Óskar Vigfússon sagðist
í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi ekki vilja segja
neitt um fiskverðsákvörð-
unina fyrr en eftir stjórn-
arfund í Sjómannasam-
bandi íslands á morgun.
Hann sagði þó andstöðu
sína við fyrirkomulag
olíugjaldsins byggða á
andstöðu sjómanna við
„allt sem heitir tvöfalt
fiskverð“ og minnti á að
sjómenn hefðu eitt sinn
siglt í höfn til að fylgja
eftir kröfum sínum um
það, að „sjóðakerfið yrði
brotið niður. Með þessu
fyrirkomulagi er verið að
fara inn á þá braut, sem
sjómenn eru andvígir“,
sagði Óskar.
/
Obreytt olíuverð
gerði útslagið
„Yfirlýsing ríkisstjórn-
arinnar um að núgildandi
olíuverð til fiskiskipa
haldist óbreytt á verð-
tímabilinu gerði útslagið
á það að ég samþykkti
þessa nýju fiskverðs-
hækkun, enda ^þótt hún
tryggi útgerðfnni ekki
hallalausan rekstur,“
sagði Kristján Ragnars-
son formaður LÍÚ í sam-
tali við Mbl. í gær. Nýja
fiskverðið varð til þess að
ekki kpm til veiðistöðvun-
ar L.Í.Ú., sem átti að
koma til framkvæmda á
miðnætti í nótt.
„Þessi hækkun fisk-
verðs bætir afkomu báta-
og togaraútgerðar um
15,5% af tekjum“, sagði
Kristján. „Samkvæmt
upplýsingum Þjóðhags-
stofnunar er hallinn eftir
þessa verðákvörðun 5,9%,
sem þýðir 4 til 4,5 millj-
arðar króna, en hallinn
var 21,4% af tekjum fyrir
þessa verðákvörðun.
óskar Vijríússon
Kristján Ragnarsson
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson
Árni Benediktsson
Rekstrargrundvöllur
útgerðarinnar er nú 4%
betri en hann var eftir
fiskverðsákvörðunina í
marz sl.
Með þessu nýja fisk-
verði er rekstrargrund-
völlur - útgerðarinnar
bættur og það er ákaflega
mikils virði fyrir útgerð-
ina að olíuverð skuli hald-
ast óbreytt,“ sagði
Kristján Ragnarsson.
Dæmið gengur
ekkiuppán
aukins gengissigs
„Það varð að koma fisk-
verð. Skýringin á hækk-
uninni liggur í stórum
dráttum í nauðsyn sjó-
manna á að fá launa-
hækkun til jafns við aðra
og nauðsyn útgerðarinnar
að fá bættan hækkaðan
olíukostnað, að minnsta
kosti þann hluta, sem
fram er kominn. Fisk-
vinnslan hefur hins vegar
enga peninga til að borga
þetta og ég samþykkti
þetta fiskverð í von um
skilning á því að fisk-
vinnslunni verði með
gengissigi gert kleift að
mæta hækkuninni", sagði
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson
fulltrúi SH í yfirnefnd
verðlagsráðs sjávarút-
vegsins.
Eyjólfur sagði að eftir
væri að ákveða verð á
hörpudiski, rækju og flat-
fiski, en venjan væri að
hækkunin væri látin
ganga yfir línuna.
„Eins og dæmið stendur
nú er fiskvinnslan í heild
rekin á grundvelli um 14
milljarða króna taps og
þá reikna ég ekki með
þessum þremur prósent-
um, sem til umræðu eru,“
sagði Eyjólfur.
X X X X
„Ef fiskverkunin á að
bera sig verður að reikna
inn auknar tekjur upp á
einhverja milljarða.
Dæmið, eins og það stend-
ur nú, gengur ekki upp“,
sagði Árni Benediktsson,
fulltrúi Sambandsfrysti-
húsanna í yfirnefnd verð-
lagsráðs sjávarútvegsins.
Árni sagði að ekki hefði
verið hægt að horfa fram
hjá geysilegum erfiðleik-
um útgerðarinnar vegna
olíuverðs og nauðsyn sjó-
manna á því að fá svipað-
ar launahækkanir og
landfólkið. „Samþykki
okkar fiskkaupenda er
bundið því, að við treyst-
um því að menn skilji að
fiskverkunina er ekki
hægt að reka með halla“,
sagði Árni.