Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979 Austri ólíkur sjálfum sér íBí- o.n Austri VaM LIÐ AUSTRA frá Eskifirði er greinilega víðs fjarri því að vera jafn sterkt og í fyrra, þegar það kom verulega á óvart í 2. deildinni. Austra hefur ekki gengið vel til þessa og um helgina tapaði liðið stórt vestur á fjörðum fyrir ÍBÍ, 0—3, en staðan í hálfíeik var 2—0. Heimamenn sóttu undan nokkurri golu í fyrri hálfleik og áttu nokkur góð færi, einkum Andrés Kristjánsson. Hann mis- notaði nokkur, en skoraði úr öðrum, svo sem á 8. mínútu, þegar hann skoraði fyrsta mark Isfirðinga. A 24. mínútu skoruðu heimamenn aftur og átti Andrés allan heiðurinn af því, þó ekki skoraði hann sjálfur. Einar Ólafsson skoraði markið eftir að markvörður Austra hafði varið skot Andrésar en misst knöttinn frá sér til Einars. Austramenn voru afar slakir í fyrri hálfleik og áttu ekki færi sem talandi er um. ísfirðingar héldu undirtökun- um í síðari hálfleik og Andrés bætti öðru marki við fljótlega í síðari hálfleik, 3—0. Eftir það brá svo við að leikurinn, sem reyndar hafði aldrei verið góður, gerðist mjög slæmur. Voru marktækifæri að mestu úr sög- unni og knattspyrna einnig. Það var af eintómri skyldurækni sem leikmenn luku leiknum. En sem fyrr segir, öruggur og sanngjarn sigur hjá IBI, en Austri má vara sig ef ekki á illa að fara. Magní í klípu Þróttur Nes Ob — Magni MAGNI frá Grenivík á enn undir högg að sækja og liðinu gengur illa að innbyrða stig í hinni erfiðu 2. deild. Norðan- menn brugðu sér til Norðfjarð- ar og öttu kappi við Þrótt. Heimaliðið vann öruggan sigur, 3—1, staðan í hálfleik var 2—0. Það er greinilegt, að Sigur- bergur Sigsteinsson er búinn að koma ár sinni vel fyrir borð hjá Þrótti, liðið var heldur slakt í fyrstu leikjunum, en hefur nú unnið tvo leiki í röð og leikið mjög vel þegar best hefur látið. Þróttarar höfðu algera yfirburði í fyrri hálfleik og skoraði þá Sigurður Friðjónsson tvívegis fyrir heimaliðið. Magnamenn léku sem fyrr meira af kappi en forsjá, ef leikmenn liðsins hefðu örlitla boltahæfni í bland með baráttunni væri hér um topplið að ræða. Það ber bara lítið á þeirri hæfni. Siðari hálfleikurinn var mun slakari en sá fyrri, einkum vegna þess að Þróttur var með unninn leik. Liðið bætti þó þriðja mark- inu við og var þar á ferðinni Erlendur Davíðsson, þekktari sem handboltamaður úr Fram. Hringur Hreinsson minnkaði muninn fyrir Magna, en það kom að litlum notum. Þróttur kom, sá og slgraði ka- n.o Þrottur \3rn£m• KA-MENN urðu að bíta í það súra epli að tapa fyrir Þrótti (2:0) í leik liðanna sem fram fór á Akureyri á sunnudaginn. Áhorfendur fengu að sjá ágæta knattspyrnu og jafntefli eða jafnvel heimasigur hefði getað unnist. Þróttarar hófu leikinn af mikium krafti og skoruðu mark strax á 5. mín. Knöttur- inn fór af varnarmanni KA í stöng, Þróttarar fylgdu vel á eftir og Jóhann Hreiðarsson skoraði af stuttu færi, eftir mikinn darraðardans í mark- teig KA. Næstu mínútur sóttu Þróttar- ar stíft að KA markinu og átti Baldur Hannesson þrumuskot af 20 m færi sem small í þverslá. Á 24. mín. bættu Þróttarar öðru marki við og var Sverrir Bryn- jólfsson þar að verki. Horn- spyrna var tekin frá vinstri, skallað var í þverslá og þaðan hrökk knötturinn út í teiginn þar sem Sverrir afgreiddi hann viðstöðulaust með föstu skoti í netið. Síðari hluta hálfleiksins réttu KA-menn úr kútnum og undir lokin átti Jóhann Jakobs- son góðan skalla að marki Þrótt- ar sem fór naumlega framhjá. í síðari hálfleik snerist dæmið algerlega við, og KA-menn, sem iéku undan all snarpri golu, sóttu nær látlaust. Þeir fengu aragrúa marktækifæra, en leik- menn liðsins voru ekki á skot- skónum og því fór sem fór. Hættulegasta færi hálfleiksins átti Gunnar Blöndal á 18. mín. Elmar prjónaði sig í gegnum vörn Þróttar og gaf góða send- ingu fyrir markið á Gunnar sem var á auðum sjó, en þrumuskalli hans hafnaði í þverslá. Þá áttu Jóhann, Njáll og Elmar einnig góð færi sem fóru forgörðum. I upphafi leiksins voru Þróttarar mun sprækari og ákveðnari en eftir mörkin komu KA-menn meira inn í myndina en Þróttar- ar reyndu að halda fengnum hlut. Hjá KA voru Gunnar Gíslason og Einar Þórhallsson bestir ásamt Elmari Geirssyni, en sá síðastnefndi gerði mjög mikinn usla í vörn Þróttar og sköpuðust flest færi KA í leikn: um eftir sendingar frá honum. I liði Þróttar bar mest á Ársæli Kristjánssyni en annars er liðið mjög jafnt að getu. í stuttu máli: SANA-völlur 1. deild, sunnudag- ur 10. júní, KA — Þróttur 0—2 (0—2), mörk Þróttar: Jóhann Hreiðarsson á 5. mín og Sverrir Brynjólfsson á 24. mín. Áminn- ingar: Jóhann Hreiðarsson og Sverrir Einarsson Þrótti og Gunnar Gíslason KA. Áhorfend- ur 480. íslendingar skora • Mark íslands í Ieiknum á móti Sviss. Hörkuskot Janusar á leið í netmöskvana. Á efri myndinni gerir svissneski markvörðurinn örvæntingafulla tilraun til þess að verja, en allt kemur fyrir ekki. Og á neðri myndinni hefur boltinn hafnað í bláhorni marksins, án þess að markvörðurinn hafi nokkrum vörnum komið við. Pétur Pétursson lengst til vinstri er við öllu búinn. Ljósmynd. Kristján. • Brian Robson Enskir unnu ENSKA landsliðið, 21 árs og yngri, vann sigur á Svíum í vináttulandsleik í knattspyrnu um helgina. Sigurinn var lítill, en þó öruggur 2—1. Ekkert var skorað í fyrri hálf- leik, en á 60. mfnútu náðu Eng- lendingar forystunni með marki Brian Robson (WBA). Félagi hans, Cirel Regis, skoraði síðan á 71. mínútu. Lennart Nielson svaraði fyrir Svía á 81. mínútu. Karfan á Ítalíu Evrópukeppni landsliða í körfu- knattleik fer fram um þessar mundir á ítalíu. Úrslit nokkurra leikja þar um helgina uröu þessi: Tékkóslóvakía-Grikkl.74—67(41—30) Spánn-Holland 105—83(48—52) Frakkland-ísrael 92—83(37—42) Sovétr.-Búlgaría 104—71(49—39) Ítalía-Belgía 86—76(44—41) Landsliðshópur í golfi valinn LIÐSSTJÓRI landsliðs íslands í golfi, Kjartan L. Pálsson hefur valið eftirtalda átta leikmenn til æfinga fyrir Evrópumeistaramótið f golfi, sem haidi verður í Esbjerg í Danmörku í lok þessa mánaðar. Hannes Eyvindsson, GR Geir Svansson, GR Sigurjón R. Gíslason, GK Óskar Sæmundsson, GR Sigurð Ilafsteinsson, GR Jón H. Guðlaugssons, NK Svein Sigurbergsson, GK Björgvin Þorsteinsson, GA Af þessum 8 leikmönnum verða 6 valdir í Iiðið á EM og verður það gert einhvern næstu daga, en liðið heldur utan þann 24. júní. Á Evrópumeistaramótinu keppa 19 þjóðir að þessu sinni og sendir hver 6 manna lið til mótsins. í forkeppni mótsins verður leikinn höggleikur en þjóðunum síðan raðað í riðla eftir árangri þeirra þar. í riðlakeppninni verður svo leikin holukeppni (maður á móti manni) og tvíliðaleikur, þar sem tveir menn leika einum bolta og slá annað hvert högg. Pierre Robert í tiunda sinn HIÐ ÁRLEGA Pierre Robert golfmót verður haldið á Nesvellinum á Seltjarnarnesi dagana 14—17 júní n.k. og er þetta 10. árið í röð sem Pierre Robert golfmótið er haldið. Pierre Robert golfmótið nýtur sívaxandi vinsælda og er nú orðið langstærsta og fjölmennasta golfmótið á landinu næst á eftir sjálfu íslandsmótinu. Keppt verður í átta flokkum karla, kvenna og unglinga. Raðað er í karla- og kvennaflokk eftir íorgjöf viðkomandi en í unglinga og drengjaflokk eftir aldri, 18 ára og yngri fara í eldri flokk, 15 ára og yngri í drengjaflokk. Aldur miðast við 1. júlí n.k. Þeir piltar sem hafa forgjöf 7 eða lægri leika f meistaraflokki karla en keppni þeirra verður sunnudaginn 17. júní. Búist er við öllum bestu kylfingum landsins þar sem keppnin gefur mikilvæg stig til landsliðsins. Annars hefst keppnin á fimmtudaginn þá leika konur og unglingar en daginn eftir verður leikið í 3 flokki karla með forgjöf 19—24. Á laugardaginn verður keppt í tveim flokkum 1 flokki karla með forgjöf 8—13 og 2. flokki karla með forgjöf 14—18. Leiknar eru 18 holur í þessum flokkum. Búist er við miklu fjölmenni á sunnudaginn sem er síðasti keppnisdagur og þá berjast meistaraflokksmenn f 36 holu keppni. 011 verðlaun til keppninnar eru gefin af umboðsmanni Pierre Robert hér á landi íslensk Ameriska, Verslunarfélaginu h.f. Skráning á mótið er hafin í golfskálanum á Stór Reykjavíkursvæð- inu. Síminn í golfskálanum á Nesinu er 17930.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.