Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979 hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Sími 83033 Áskrittargjald 3000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiðsla V ar hátíðin á Kolviðarhóli? Sverrir Hermannsson: Erlent fé fyr- ir bændur? í algjörri uppgjöf í glímu sinni við vandamál þjóðarbúsins er það nú eina haldreipi Framsókn- ar og Lúðvíks Jósepssonar að kenna stjórnarandstöðunni um ófarirnar í landbúnaðarmálum. Dag eftir dag tönnlast Tíminn á málinu og Lúðvík skrifar jafnvel í blaðið til að bera sakir af tveim þingmönnum Alþýðubandalags- ins, sem greiddu atkvæði gegn tillögum um 3,5 milljarðana í Neðri deild. Auðvitað var það ekki skemmtileg aðferð að víkja af fundi við afgreiðslu málsins. En með því voru þingmenn vissu- lega ekki að greiða bændastétt- inni högg, eins og það hefir svo smekklega verið orðað. Þing- menn voru að mótmæla aðferð við framkvæmd fundarskapa. Sú útganga gat þó. engu breytt um afgreiðslu málsins, þar sem fyrir lá, að í Efri deild myndi tillagan kolfalla. Það er enda skýringin á því að hætt var við frekari vandans, enda höfðum við flutt tillögu um það á Alþingi, svo sem að framan greinir. En við hlutum að snúast gegn hinni sérstöku tillögugerð um 3,5 milljarðana, vegna þess að engin svör voru um það gefin hvernig staðið yrði að framkvæmd máls- ins. Helzt var á stjórnarherrun- um að skilja, að fé þetta yrði tekið að láni erlendis. Ríkissjóð- ur tæki lánið og væri ábyrgðar- aðili, en endurlánaði síðan bændum. A að trúa því að aðstoðin við bændur í erfiðieik- um þeirra hafi átt að felast í því að taka erlent lán og endurlána þeim, þótt með ábyrgð ríkissjóðs væri? Attu bændur að endur- greiða þetta fé með vöxtum og fullri gengistryggingu? Allt tal um að lán þessi yrðu endur- greidd með útflutningsbótafé á næstu árum er tómt bull út í hött. Þótt takast megi vonandi að draga eitthvað úr umfram- framleiðslunni, eða öllu helzt að selja hana, verða engar slíkar orði en ekki á borði, og grunur leikur á að fremur beinist að því að bjarga fjárhag S.Í.S. en bændum. Bændum þarf nú að hjálpa yfir erfiðan hjalla með þeim hætti, sem að gagni má koma. í bili þurfa þeir eitthvað að draga saman seglin og auka fjölbreytni í framleiðslu. Má í því sambandi sérstaklega minna á fiskrækt, sem orðið gæti mikilvæg auka- búgrein fjölmargra bænda. Til lengdar má það aldrei verða höfuðstefnan, að íslenzkur landbúnaður framleiði ekki eins mikið og tök eru á af matvælum meðan helftin af íbúum jarðar lifir við sult og seyru. En hver veit nema hin marg- umtalaða afgreiðsla á Alþingi flutning málsins af hálfu stjórn- arliðsins. Málið hafði einfaldlega ekki þingfylgi. Það er kjarni málsins, sem úrslitum ræður, en ekki eitthvert uppátæki þing- manna til að mótmæla fram- kvæmd þingskapa, sem var, satt bezt að segja, óskapfellilegt. Þá er komið að höfuðþætti málsins: Hvers vegna var meiri- hluti þingmanna andstæður til- lögugerðinni um þrjá og hálfa milljarðinn eins og málið bar að? Sjálfstæðismenn höfðu fyrr á þinginu sjálfir borið fram tillögu um heimild til handa ríkissjóði að bæta bændum að allmiklu leyti þá kjaraskerðingu sem við blasti. Sú tillaga var felld af stjórnarliðinu. Skýring stjórnar- liðsins á því háttaiagi er sú, að tillögugerð Sjálfstæðisflokksins hafi að ýmsu öðru leyti verið óaðgengileg. Ekki er það ólík- iegt, þótt illt sé að festa hönd á ýmislegt í málflutningi og af- stöðu stjórnarliðsins til land- búnaðarmála. Það liggur alveg ljóst fyrir, að við sjálfstæðis- menn erum í ýmsum veigamikl- um atriðum andstæðir hug- myndum núverandi stjórnar- flokka um stefnu í málefnum landbúnaðarins og hrófað hefir verið upp undir forystu núver- andi landbúnaðarráöherra. En við erum sammála því að rétta verði hlut bænda vegna búvöru- breytingar á nokkrum árum að stórfé verði aflögu í uppbótar- sjóði til að standa straum af slíkum greiðslum. Þingmenn vildu einnig fá að vita hvort hið tröllaukna sölu- kerfi S.I.S. ætti óbreytt að standa, sem þó hefir alveg svik- izt um að finna markaði erlendis fyrir þá afbragðsvöru og villi- bráð, sem íslenzka lambakjötið er. Svör við því hvort sölusam- tökin ættu eitthvað af mörkum að leggja líka gáfust ekki. Ekki er annað að skilja, að þau eigi óáreitt að fá áfram að leggja umboðslaun sín ofan á útflutn- ingsuppbæturnar, og marg- reikna álagningu sína milii sölu- skrifstofa sinna, heima og er- lendis. Sjálfstæðisflokkurinn er reiðubúinn til að styðja og vinna að lausn á vandamálum land- búnaðarins. En hann sættir sig ekki við að vera handbendi upp- lausnaraflanna, sem nú eiga að heita að stjórna þjóðinni, hvorki í málefnum landbúnáðar né öðr- um. Ef Sjálfstæðisflokkurinn á að vera með í leik, þá krefst hann þess, að tillit sé tekið til sjónarmiðá hans. Hann hafnar með öllu sýndartillögum til hjálpar bændum, sem binda myndu landbúnaðinum dráps- klyfjar skulda um leið. Hann hafnar með öllu að styðja bjarg- ráð til handa bændum, sem eru í muni verða til góðs áður en upp er staðið? Sú er a.m.k. trú mín. Mér býður í grun, af þeim sökum sem fram hafa verið færð, að samþykkt tillögunnar, og fram- kvæmd hennar, hefði ekki farið vel úr hendi. Nú hefir hins vegar verið brugðið á það ráð að stofna nefnd allra stjórnmálaflokka og hagsmunasamtaka bænda, sem vinnur að lausn á vandamálum landbúnaðarins. Binda verður vonir við að sú nefnd nái sam- komulagi og komist að niður- stöðu, sem byggja megi á til frambúðar. Hjálp til bænda, sem hart hafa orðið úti vegna vor- harðinda, mun vonandi ekki héðan af verða megin viðfangs- efni nefndarinnar til trafala. í því efni virðist einstætt að gera Bjargráðasjóð færan um að veita nauðsynlega aðstoð. En skýr og afmörkuð stefna í framleiðslu- málum landbúnaðarins til ein- hverrar frambúðar verður að nást fram. Fyrr en því marki er náð komast menn ekki að skyn- samlegri og sanngjarnri niður- stöðu um stuðning við atvinnu- veginn. A hinn bóginn verða menn nú að hafa í huga, að svo virðist að borin von sé um bjargráð til handa bændum og búaliði, svo og öðrum atvinnugreinum, sem all- ar berjast í bökkum, nema sú ríkisstjórn víki frá völdum, sem stritar við það eitt að sitja. Aukafulltrúaþing Sambands grunnskólakennara: Hótar hörðum aðgerðum verði yfir- vinnuþak á kennara ekki fellt úr gildi Fleiri en einn prestur í Reykjavík minnti söfnuð sinn á það í eftirminnilegum hvítasunnupredikunum, hvernig nú er komið verð- mætamatinu í íslenzkum fjölmiðlum. Þeir gátu um fyrirsögn eins dagblaðanna, þar sem minnzt var á ferða- lög um hvítasunnuhelgina og annað það, sem hún hefði upp á að bjóða, en sérstök áherzla lögð á, að hvíta- sunnuhátíðin væri á Kolvið- arhóli. Menn ættu að staldra við slíkar fullyröingar og gefa því gaum, hvernig verð- mætamat er orðið í þjóðfé- lagi okkar. Eða hvar getur hvítasunnuhátíðin verið haldin annars staðar en á vegum kristinnar kirkju? Menn geta ferðazt um allt landið, haldið mót og sam- komur og gert hvað sem þeir vilja, en hvítasunnuhátíðin er ein af stórhátíðum kristn- innar og hún verður einung- is haldin í hjörtum kristinna manna og í kirkjum lands- ins. Að þessu skyldum við hyggja, ekki sízt þegar haft er í huga, hvernig efnis- hyggjan hefur vegið að kirkju og kristni á síðustu áratugum, ekki einungis á íslandi heldur um heim all- an. Hvítasunnan er e.k. af- mælishátíð kristninnar, því að kirkjan var stofnuð á hvítasunnudag og því hlýtur þessi stórhátíð að eiga fyrst og síðast rætur í kristinni kirkju, eins og verið hefur um margra alda skeið. En kirkjan sjálf þarf að líta í eigin barm og gerá það upp við sig, hvernig hún ætlar að mæta þeim fjölmiðlaáróðri og þeirri brengluðu dóm- greind sem alls staðar veður uppi í samtímanum, ekki einungis hér á landi heldur víðast hvar í heiminum. Kirkjan á að vera óhrædd við að nota nútímaleg vinnu- brögð til að vekja athygli á starfi sínu, enda þótt hún geti aldrei keppt við vígorða- glamur þeirra, sem lægst ieggjast. Hún á að senda fjölmiðlum margvíslegar upplýsingar um boðskap sinn og starfsemi og reyna að beina athygli að því merka starfi, sem hún vinn- ur í kristnu samfélagi eins og okkar. Það er skoðun Morgunblaðsins að von sé til þess, að íslenzkir fjölmiðlar tækju betur við sér, veittu henni meiri stuðning en ver- ið hefur, ef hún sækti sjálf fast fram og óhikað á þeim vígstöðvum, þar sem barátt- an nú stendur: í blöðum og öðrum fjölmiðlum. Þann dag sem við viðurkennum t.a.m., aö hvítasunnuhátíðin sé einhvers staðar annars — og kannski alls staðar annars staðar — en í kirkjum lands- ins og á vegum kristinna safnaða, þann dag á kirkjan að gaumgæfa hlutverk sitt og stöðu, spyrna við fótum og grípa til þeirra varnarað- gerða, sem nauðsynlegar eru til að staða kirkjunnar efl- ist, en versni ekki. Það er ástæðulaust að óttast nýjar aðferðir til að kynna starfsemi annarrar grónustu stofnunar íslenzku þjóðarinnar, kirkju landsins, en hún er, ásamt Alþingi, bakhjarl sögulegra hefða rótgróinnar menningar og mikilla verðmæta og sá grundvöllur, sem Is- lendingar geta aldrei án verið. Megi þróunin verða sú, að engum komi til hugar að hvítasunnuhátíðin sé annað en kristin hátíð á íslandi, minning eins mesta at- burðar frumkristninnar, en að sjálfsögðu jafnframt staðfesting þess, sem sr. Jón Auðuns fyrrum dómprófast- ur, lagði áherzlu á í hug- vekju sinni hér í blaðinu um hvítasunnuhelgina, að kristnir menn eiga að lifa í samfélagi sáttar og eining- ar, — „enda hafði meistari þessara manna sagt kveldið fyrir krossfestinguna: allir eiga þeir að vera eitt. . . . Eitt sagði hann, en ekki eins. Til þess sá hann of langt.“ Við sjáum skammt. En samt ættum við að geta í miklu umróti samtímans minnt á undirstöðu kristinn- ar kirkju, mikilvægt hlut- verk hennar og boðskap, jafnframt því sem kirkjan ætti að gera meiri kröfur til þátttöku í fjölmiðlum og krefjast þeirrar athygli, sem hún á öðrum fremur skilið. Svo getur menn greint á um ýmsar trúarsetningar, tákn og túlkunaraðferðir — án þess það komi sjálfri undir- stöðunni við. En guðdóm Krists geta menn þó ekki dregið í efa. Kirkjan ætti a.m.k. að fá frið til að minnast afmælis síns án þess það komi öllum við — nema henni. Gleð- skapur, ferðalög og fjölda- samkomur geta verið ágæt, en komá ekki í staðinn fyrir boðskap jólanna, fyrirheit páskanna og þá hvítasunnu- hátíð, sem er hin eina og sanna. Á aukafulltrúaþingi S.G.K. sem haldið var í Melaskóla 6.-7. júní 1979 var mótmælt harðlega þeim vinnubrögðum mennta- málaráðherra og menntamála- ráðuneytisins að setja yfirvinnu- þak á kennara án nokkurs sam- ráðs við kennarastéttina. Taldi þingið æskilegt að draga. sem mest úr yfirvinnu allra stétta, en taldi jafnframt slíkt ekki ger- legt með einhliða ákvörðun gagn- vart kennarastéttinni einni. Skor- aði þingið á stjórn S.G.K. að vinna að því í samstöðu við félög skóla- stjóra og yfirkennara og önnur kennarasamtök að ákvörðun þessi verði felld úr gildi og að fullt samráð verði haft við kennara- samtökin um þessi mál. Beri það ekki árangur felur þingið stjórn- inni að beita hörðum aðgerðum til að knýja á um lausn þessa máls. Aukafulltrúaþingið vakti einnig athygli foreldra og annarra er láta sig skólamái varða á þeirri breyt- ingu á framkvæmd menntastefnu grunnskólalaga er lýsir sér í þeirri ákvörðun Alþingis og stjórnvalda að skerða framlög til grunnskól- ans. Vakti þingið athygli á því að niðurskurður þessi kemur mjög misjafnt niður á skólum og er í andstöðu við þá skólastefnu að nemendur hafi jafnan rétt til náms án tillits til búsetu. Að lokum taldi aukaþingið skóla hafa rétt til að ráðstafa stuðn- ings- og hjálparkennslu eins og verið hefur en úthlutun fræðslu- skrifstofa á þessum stundum eigi eingöngu að miðast við viðbótar- þörf einstakra skóla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.