Morgunblaðið - 12.06.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979
3
Feðgar biðu bana
Ólafsflrði II. júnf
Á laugardaginn um kl. 19 voru þrír feðgar frá ólafsfirði á leið frá
Dalvík þegar bifreið þeirra fór út af veginum í Ólafsfjarðarmúla og
biðu tveir feðganna bana. Þeir sem létuzt voru Guðmundur Willíamsson
49 ára. Brekkugötu 23, og sonur hans Guðmundur Guðmundsson, 19 ára
menntaskólanemi. Arnar Guðmundsson 7 ára komst hins vegar lífs af.
Engar skýringar eru á tildrögum unni fyrir neðan veginn og voru þegar
slyssins sem varð við svokallað
Syðra-Drangsgil, en hins vegar var
talsvert grjóthröngl á veginum, svo
sem títt er í leysingum eins og nú eru.
Annar bíll frá Ólafsfirði var rétt á
eftir þeim feðgum og voru farþegar í
honum vitni að því er bíllinn steyptist
fram af vegbrúninni. Var þegar gert
viðvart og fór björgunarsveitin á
staðinn. Bræðurnir fundust í skrið-
fluttir til Akureyrar þar sem Guð-
mundur lézt. Föðurnum varð hins
vegar að ná frá sjó þar sem bifreiðin
hafði farið alveg niður í fjöru og var
hann látinn þegar að var komið.
Um 100—150 metrar eru þarna frá
vegi niður á sjó. Arnar er á batavegi
þar sem hann liggur í sjúkrahúsi
Akureyrar.
— freftaritari.
Lósmynd Brynjólfur Sveinsson.
Guðmundur Willfamsson
Guðmundur Guðmundsson
Myndin er tekin af veginum í Ólafsfjarðarmúla þar sem bifreið feðganna fór út af.
„Ekki komið vor í sjóinn
99
segir Ingvar Hallgrímsson, f iskif rædingur
og telur að kaldur sjór geti valdið seiðadauða
„SJÓR ÚTI fyrir Suð-Vesturlandi og Norðurlandi er nú mun kaidari en í meðalári. Á
Norðursvæðinu er svo til enginn Atlantshafssjór, heldur pólsjór og hitinn þar er 2 til
4 gráðum lægri í efstu sjávarlögunum en um svipað leyti í fyrra. Þetta veldur því að
allur gróður sjávarins er mjög seint á ferðinni og hætta er á að seyði á fyrsta ári
hreinlega drepist. Við erum hræddir um að þetta geti sagt til sín í minni fiskafla eftir
um það bil 5 ár en ástand seyðanna kemur þó betur í ljós eftir seiðarannsóknirnar,
sem fram eiga að fara í ágúst,“ sagði Ingvar Hallgrímsson, fiskifræðingur, í samtali
við Mbl. í gær en hann er leiðangursstjóri í vorleiðangri Hafrannsóknarstofnunar
sem nú gerir athuganir við Austurland.
Ingvar sagði að djúpt úti af
Suð-Vesturlandi væri sjórinn Vfe til
1 stigi kaldari en á sama tíma í
fyrra og gróður í sjó væri aðeins á
mjóu belti við Suð-Austurlandið. A
svæðinu djúpt úti af Suð-Vestur-
landi væri svo til vetrarástand enn
og sagðist Ingvar gera ráð fyrir að
vorkoma í sjó væri 2 til 3 vikum
seinni en í meðalári. Ingvar sagði
að svo til enginn Atlantshafssjór
hefði enn gengið fyrir Horn, þannig
að fyrir öllu Norður ,og
Norð-Austurlandi ríkir kaldur pól-
sjór.
„Við teljum að þetta geti valdið
því að það verði óskaplega lítið af
þörungum í sjónum þegar líður á
sumarið og þar með verri fæða fyrir
dýrasvifið. Þetta kann að hafa áhrif
á uppvaxandi seiði frá hrygning-
unni í vor en ástand þeirra verður
betur kannað seinna í sumar,“ sagði
Ingvar.
Fram kom hjá Ingvari að í hinum
kalda pólsjó fyrir Norðurlandi væri
norðlægari gróður en venja er til og
áta er undir meðallagi í sjónum
þarna og af annarri gerð en eðlilegt
er á þessu hafsvæði, þegar Atlants-
hafssjórinn ríkir þar. Ingvar sagði
að þessi áta fyndist venjulega í
pólsjónum langt norðan íslands en
er nú ríkjandi á öllu norðursvæðinu
og finnst meira að segja inni á
höfninni á Akureyri.
„Við erum hræddir við að þetta
segi til sín í afla eftir um 5 ár. Það
er ekki komið vor í sjóinn og
ástandinu svipar til hafísáranna á
síðasta áratug," sagði Ingvar.
Breiðþota
Flugleiða
bíður enn
lofthæfnis-
skírteinis
— ÞETTA gekk alveg sæmilega
hjá okkur yfir helgina að koma
farþegum á áfangastað, sagði
Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi Flugleiða er hann var inntur
eftir gangi mála hjá félaginu, en
sem kunnugt er hefur lofthæfnis-
skírteini ekki verið afhent DC-10
þotum í Bandaríkjunum að nýju.
Sveinn sagði að þota Flugleiða
biði enn síns skírteinis í New York
og tíminn hefði verið notaður til
að fjölga í henni sætum, en þau
voru nokkru færri þegar þotan var
í vetraráætlun. Verða þau nú 380 í
stað 358 áður.
Sveinn sagði að nú væri tilbúin
áætlun fyrir þessa viku miðað við
að tían væri enn ekki í flugi og það
hefði kostað talsverðar tilfæring-
ar og breytingar á notkun flug-
flotans, sem hefði áhrif á alla
starfsemina. Þá sagði Sveinn að
þeir Flugleiðamenn hefðu orðið
varir við að fólk t.d. á ferð um
Bandaríkin hefði orðið af ferðum
sínum vegna hinnar miklu röskun-
ar á öllu flugi, sem flugbann á
DC-10 hefði.
Auövitaö n
Benidoirn
/X
UJ
o
flilli
Í)íírfi
Margra ára reynsla,
brautryöjendur í Benidorm feröum.
Reyndir fararstjórar, þjálfaö starfsfólk.
Næsta brottför 20. júní.
Seljum farseöla um allan heim á lægsta verði.
Ferðamiðstöðin hf.
AÐALSTRÆTI 9 — SIMI 28133