Morgunblaðið - 12.06.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979
27
Júlíus Hafstein formaður HSÍ
„íslenzkur handknattleikur
stendur íþróttalega mjög vel“
í lok handknattleiksþingsins
ræddi Mbl. við formann HSÍ um
þau málefni sem voru efst á
baugi á þinginu og hvað fram-
undan væri í störfum HSÍ.
Júlíus, hvert var stærsta málið
á þinginu?
— Stærstu málin voru breyt-
ingar á reglugerð um handknatt-
leiksmót og fjármálin.
Nú var tillagan um úrvalsdeild
felld, olli það þér vonbrigðum að
sú tillaga skyldi ekki ná fram að
ganga?
— Já, það olli mér vonbrigðum
að ekki skyldi vera stofnuð úrvals-
deild. Ég hefði talið það skref í
rétta átt. Þá hefðu verið sex lið í
deildinni og leikin fjórföld umferð.
Það hefði orðið meiri keppni og í
kjölfar þess hefði væntanlega
aukist aðsókn. Að öðru leyti var ég
ánægður með þær breytingar sem
gerðar voru á mótafyrirkomulagi
yngri flokkanna.
Hvernig er staðan í fjármálum
og stefnir í samdrátt í starfi HSÍ?
— Staðan er mjög slæm hvað
fjármálin varðar. Skuldir umfram
eignir eru 11 og '/2 milljón. Þetta
verður að breytast. Samdráttur
verður í erlendum samskiptum. A
þinginu var samþykkt að hætta
við fyrirhugaða Ungverjalands-
ferð með landsliðinu sem er ekki
gott. En varla var um annað að
ræða. Við skerum ýmislegt niður í
almennum rekstri HSI þar á
meðal ýmis útgjöld sem hefði
getað komið sér vel við mótahald.
Tekjur dómaranefndar eru mjög
óljósar sem leiðir til þess að sú
uppbygging sem við teljum nauð-
synlega í dómaramálum getur
dregist á langinn.
Verður landsliðsþjálfarinn
áfram í fullu starfi?
— Já, ég reikna með því. Það
mál, sem hefur forgang hjá Jó-
hanni, er þjálfun unglingalands-
liðsins sem tekur þátt í heims-
meistarakeppni unglinga 21 árs og
yngri í Danmörku í haust.
Hvert er stærsta verkefnið sem
framundan er á starfsárinu?
— Stærsta verkefnið er tví-
mælalaust heimsmeistarakeppni
unglinga. Það er skoðun mín að sú
keppni muni hafa meiri áhrif á
skipan landslið framtíðarinnar
heldur en önnur verkefni til þessa.
Þá er Baltic-Cup ferðin alltaf
mikil keppni og við tökum þátt í
henni í annað skiptið í röð. Og
vonandi verður framhald á því að
íslenska landsliðið verði með í
þeirri keppni. Þetta er með sterk-
ustu landsliðakeppnum í hand-
knattleik sem haldnar eru ár
hvert.
Hvað með landsleiki hér
heima?
— Það er ákveðið að Tékkar
komi í október og leiki hér þrjá
leiki. Pólverjar eru tilbúnir að
koma í janúar og ég reikna með að
af því verði. Frakkar eru væntan-
legir um mánaðamótin
janúar-febrúar. Þetta er það eina
sem er nokkuð ákveðið. Þá gæti
orðið að Danir kæmu hér í
september á leið sinni til Banda-
ríkjanna og reynt verður að fá lið
hingað í lok marz.
Og svo verður farið á NM pilta í
aprílmánuði eins og venjulega.
Mikill áhugi er hjá stjórn HSÍ á
að bæta mótahald og dómaramál.
Hafa mótin í fastari skorðum og
reyna að koma í veg fyrir frestan-
ir og tafir á mptunum þar af
leiðandi. Reynt verður að slíta
mótið ekki í sundur, þó óhjá-
kvæmilegt sé að landsliðin taki
sinn tíma og að smáhlé komi.
Ilver er staða fslensks handknatt-
leiks í dag?
— íslenskur handknattleikur
stendur íþróttalega mjög vel í dag.
Það er mikil gróska í íþróttinni,
iðkendum hefur fjölgað jafnt og
þétt og landsliðið hefur haldið
sínum hlut í keppni við erlendar
þjóðir og vel það. Og sérstaklega
nú síðari hluta keppnistímabils-
ins.
Ertu bjartsýnn á framtíð hand-
knattleiksins?
— Ég er sæmilega bjartsýnn.
Þaö er ekki hægt aö vera mjög
bjartsýnn þegar fjármálin eru
jafn erfið og raun ber vitni. Ef það
tekst að rétta úr kútnum hvað þau
varðar þá er ég ekki hræddur um
framtíð Handknattleikssam-
bandsins og störf þess.
— þr
Erfiö fjárhagsstaða H.S.I.
Á þingi Handknattleikssam-
bands íslands sem fram fór um
helgina kom f ljós að enn sem
fyrr hefur erfið fjárhagsstaða
lamandi áhrif á allt starf sam-
bandsins og ljóst er að draga
verður úr samskiptum við erlend-
ar þjóðir til að létta á skulda-
byrðinni. Þegar litið er á tekju-
hlið rekstrarreiknings kemur í
ljós, að tapið á rekstri H.S.Í.
undanfarna fimm mánuði nemur
sem svarar rúmum 1,4 milljónum
króna á mánuði. Þá eru lausa-
skuldir upp á tæpar 19 milljónir.
Skuldir umfram eignir eru hins
vegar 11 og '/2 milljón króna.
Af gjöldum sambandsins eru
utanferðir landsliða langstærsti
liðurinn, en þær eru nauðsynlegar
ef hægt á að vera að fá þjóðir í
landsleiki hingað og jafnframt ef
framfarir eiga að nást í íþróttinni.
Svo slæmt er ástandið að
stjórnarmeðlimir hafa skotið
saman um sex milljónum króna í
reksturinn frá áramótum.
Sýnir það glöggt hversu ástand-
ið er slæmt. Stjórnarmenn fórna
ekki eingöngu dýrmætum tíma í
starfið heldur lána líka fé til þess
að halda starfseminni gangandi.
Á því stutta starfstímabili sem
stjórnin skilaði af sér bar hæst
árangur A-landsliðs karla í for-
keppni Ólympíuleikanna á Spáni í
feþrúar og marz s.l. en þar hafnaði
liðið í 4. sæti. Þá náði landsliðið
ágætis árangri í Baltic-keppninni,
og vann meðal annars sigur á
Dönum á útivelli í fyrsta sinn.
Stjórn H.S.Í. skipa nú Júlíus
Hafstein formaður, Gunnar
Torfason, Svana Jörgensdóttir,
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
Gunnlaugur Hjálmarsson, Jón
Óskarsson og Hilmar Sigurðsson
sem kjörinn var í stað Jóns
Magnússonar sem ekki gaf kost á
sér til endurkjörs.
- þr.
Júlíus Hafstein formaður HSÍ, ásamt Sigurði Jónssyni formanni HSÍ
síðustu árin og Sveini Ragnarssyni sem var þingfroseti.
Ljósm. Rax.
Tillaga um
úrvalsdeild
var lettd
— ÞAÐ er skref afturábak að fella þess tillögu, sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson landsliðsþjálfari og einvaldur, þegar tillaga um
úrvalsdeild hafði verið felld á handknattleiksþinginu. 35 greiddu
atkvæði á móti tillögunni en 33 með. 1 seðill var auður. Breyting
verður hins vegar á niðurröðun í mót yngri flokkanna. Svæðaskipt-
ingin heldur sér, en leikið verður í formi skyndimóta. Þá var rætt um
að reyna að veita landsbyggðinni fleiri verkefni fyrir unga fólkið.
Tekjuskipting var samþykkt á þinginu, þess efnis að leikaðilar
skipti með sér tekjunum eða tapi af leikkvöldinu. Af brúttótekjum
leikja hækkar hlutur HSÍ úr 5% í 7% og hlutur HKRR lækkar úr 10% í
7%. Þannig verður hlutur félaganna 1% meiri en verið hefur.
Sundlandslið
á faraldsfæti
DAGANA 17. júní til 6. júlí fer landslið íslands í sundi í keppni- og
æfingaferð til þriggja landa, Skotlands, Belgíu og írlands. í Skotlandi
vcrður dvalið í átta daga og tekið þátt í skoska meistaramótinu, sem
háð er í Édinborg 20., 21. og 23. júní. Þá verður haldið til Belgíu og
tiar tckið þátt í keppni landsliða átta þjóða, Belgíu, Skotlands, Wales,
sraels, Sviss, Noregs og Spánar. Þetta er tvcggja daga mót. Síðan er
landsliðinu svo boðið til írlands og fjögurra daga sjónvarpssundmót,
sem haldið er dagana 4.-5. júlí, og sjónvarpað um allt írland og
víðar. Þær þjóðir sem taka þátt í þessu móti eru ísraelar, Portúgalir,
írar og íslendingar en keppnin fer fram í Dublin.
Ileim kemur svo liðið 6. júlí. Þetta er einn liður í undirbúningi og
skipulagðri sundþjálfun fyrir næstu Ólympíuleika. En alls taka 14
sundmenn þátt í þessari för.
Endanlegt val landsliðsins fcr ekki fram fyrr en eftir Reykjavíkur-
meistaramótið í sundi. Aðalfararstjóri í ferðinni fer formaður
Sundsambands íslands, Hörður Óskarsson, Landsliðsþjálfari er
Guðmundur Iiarðarson og Þórður Gunnarsson liðstjóri. — þr.
í viðamikilli skýrslu HSÍ er birt skipting á útbreiðslustyrk ÍSÍ og fer sú tafla hér á
eftir.
Sérsamböndin: Iðkenda- fjöldi 1977 50% 30% 20% Samtals:
Blaksamband íslands 2257 800.000.- 267.550,- 1.067.550.-
Badmintonsamband íslands 3280 800.000,- 388.820.- 100.000,- 1.288.820,-
Borðtennissamband íslands 1739 800.000,- 206.150,- 1.006.150,-
Frjálsíþróttasamb. íslands 7100 800.000.- 841.640.- 900.000,- 2.541.640,-
Fimleikasamband íslands 3277 800.000.- 388.460.- 300.000,- 1.488.460,-
Glímusamband Islands 255 800.000.- 30.240,- 830.240,-
Golfsamband íslands 1164 800.000.- 137.980,- 937.980.-
Handknattleikssamb.íslands 9363 800.000.- 1.109.890,- 700.000.- 2.609.890,-
Judosamband íslands 646 800.000.- 76.590.- 150.000.- 1.026.590,-
Körfuknattleikssamb. Isl. 4055 800.000,- 480.680.- 500.000.- 1.780.680,-
Knattspyrnusamb. Íslands 14629 800.000,- 1.734.140- 1.000.000,- 3.534.140,-
Lyftingasamband íslands 598 800.000,- 70.900,- 870.900,-
Siglingasamband íslands 310 800.000.- 36.760.- 836.760,-
Skíðasamband íslands 6702 800.000.- 794.450,- 500.000,- 2.094.450,-
Sundsamband íslands 4898 800.000.- 580.620,- 500.000,- 1.880.620.-
Skotsamband íslands 465 55.130,- 150.000.- 205.130,-
SAMTALS: 60738 12.000.000.- 7.200.000.[ 4.800.000.- 24.000.000.-
Hugi sigursæll
■ Eðvarð með sveinamet
OPIÐ sundmót fór fram á
Selfossi í leiðindaveðri á laugar-
daginn. Keppt var í 9 greinum.
Hæst bar árangur Huga S.
Harðarsonar, sem sigraði í 3
greinum. Eðvarð Þ. Eðvarðsson
úr ÍBK kom einnig með sögu, en
hann setti eina metið á mótinu,
sveinamet í 200 metra fjórsundi
karla, synti á 2:55,2 minútum.
Efstu menn í hverri grein voru
1:23,5
57,8 sek
Sonja Hreiðarsd. Æ
100 m skriðsund karla:
Bjarni Björnsson Æ
100 m skriðsund stúlkna:
Margrét M. Sigurðard. UBK 1:06,2
100 m flugsund pilta:
Hugi S. Harðarson Self. 1:11,2
50 m bringusund meyja:
Guðrún F. Ágústsd. Æ 42,6 sek
50 m skriðsund sveina:
Eðvarð Þ. Eðvarðss. ÍBK 31,6 sek.
200 m fjórsund kvenna:
sem hér segir: mín. Sonja Hreiðarsd. Æ 200 m fjórsund karla: 2:40,1
200 m skriðsund kvenna: Hugi S. Haröars. Self. 2:25,4
Ólöf Sigurðard. 2:20,2 4x100 m skriðsund kvenna:
200 m baksund karla: Sveit Ægis 4:37,7
Hugi S. Harðars. Self. 2:19,7 4x100 bringusund karla:
100 m bringusund kvenna: Sveit Selfoss 5:27,0