Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 38

Morgunblaðið - 12.06.1979, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979 Ingibjörg Bjamadóttir Sólvöllum — Minning Fædd 23. ágúst 1901. Dáin 1. júní 1979. Bjarni faðir Ingibjargar var tvíkvæntur og bjó með fyrri konu sinni, Ingibjörgu Þóru, að Hvoli í Vesturhópi í Vestur-Húnavatns- sýslu. Konu sína missti Bjarni frá tveim börnum ungum, Skarphéðni og Herdísi. Síðar fluttist hann að Neðra-Vatnshorni í sömu sveit. Seinni kona hans var Soffía Jóhannsdóttir úr austursýslunni. Elst barna þeirra var Kári (hann fór til Vesturheims) annað Ingi- björg, þriðja Björn er lengst bjó í Ilafnarfirði, málaram., og sú yngst sem hér er kvödd. Steingrímur trésm.m. einnig í Hafnarfirði. Ég man allvel Vatnshorns-heimilið í tíð Bjarna sáluga föðurbróður míns. Þar var oft mannmargt og gestrisni við brugðið. Að vísu var ekki jafn fjölferðugt þá sem nú, en ég held að engum kunnugum hafi dottið í hug að fara þar framhjá í venju- legum ferðum. Fyrir utan góðar veitingar, var Bjarni fróður og skemmtinn, fljúgandi hagmæltur og minnugur vel. Eina grein hagmælskunnar, sem allvinsæl hefur löngum verið hér á landi, stundaði hann þó alls ekki, last og níðvísur voru honum fjarri skapi, gerði þó tilneyddur eftir harða áskorun eins hófs-félaga eina skammvísu um hann, sem héraðsfleyg varð, og hann sá alla tíð eftir. Lífsfegurðin var honum betur að geði, eins og hann raulaði við sitt fríða barn, Steingrím: Þckkir hvurki norg ní Hynd sáiin barnHÍnH hrcina. ÞaA t r cíiih ot? entdÍHmynd andlitið á Steina. Að vonum var enginn auður gulls á þessu risnuheimili, en greindur sveitungi sagði mér löngu eftir daga Bjarna: Bjarni frændi þinn var sannkallaður höfðingi sveitarinnar þó hann væri ekki ríkur, en risna og reisn heimilisins var sérstök. Soffía var glæsileg kona, stór vexti og gerðarleg og drottning alls fagnaðar er svo bar undir. Báðar voru eiginkonurnar, frænd- konur hans. Upp úr þessum jarð- vegi var Ingibjörg sprottin og þótti snemma bera merki þess, enda lík móður sinni. Nokkuð stórt skap áttu þau hjón bæði og nokkuð vonlegt að Ingibjörg hafi notið nokkuð erfða þar af. Þótt ég hefði ekki náð að fylla fyrsta áratuginn 1917, er faðir minn kom heim frá dánarbeði Bjarna bróður síns, hefur mér aldrei gleymst stakan er hann nam af vörum Bjarna á síðustu stundunum Lækka buðar Kíh á drofn Kkn hvar veitÍHt þjáðum. Bla-sir við mér heiíöK höfn. hliðið opnast bráðum. Gott væri að sem flestir gætu orðið svo rólega við dauða sínum. Soffía lifði mann sinn mörg ár, var síðast í Hafnarfirði hjá sonum sínum og lést þar. Leiðir okkar, barna þessara bræðraheimila skildust um skeið eins og gengur, en er leiðir okkar Ingibjargar lágu næst saman, hitti ég hana að Reykjahvoli í Mosfellssveit. Þar átti hún ungan dreng, Braga Friðriksson, Guðjónssonar úr heimasveit hennar (hann er kvæntur Katrínu Eyjólfsdóttur). Var fyrsti framkv.stj. Æskulýðs- ráðs, nú prestur Garðasóknar og prófastur. skapað hlýlegt og snoturt heimili í litlu plássi. Já, það sannast oft að auðæfin mestu er manngildið sjálft en hvorki varan né gullið. Ungur að árum mun Magnús hafa þráð meiri menntun í sinni starfsgrein. Það urðu — eins og hjá fieirum á fyrri árum — að nægja námskeið til að ná starfs- réttindum. Hins vegar tókst hon- um á fjórða tug ára að vinna hin mikilsverðu þjónustustörf á veg- um Rafmagnsveitu Reykjavíkur- borgar með þeim hætti að hann hlaut traust og virðingu sinna samstarfsmanna. Nú við leiðarlok vil ég fyrir hönd fjölskyldu minnar þakka honum hjartanlega samfylgdina. Við vottum eftirlifandi eigin- konu hans og börnum þeirra inni- lega samúð okkar og biðjum þeim allrar blessunar. Hvað er Horg — hvað er tfleði á lífnandans leið? Er ei Iíf vort «em veikhyKKÖust rós? — Eitt er víst — þegar dimmir og dagsljós vort þver dvín ei eiíffa Guð.xneistans Ijós. Einar Kristjánsson. Það er ekki ætlun okkar að skrifa langa grein, heldur aðeins að minnast elsku Magga í nokkr- um orðum, sem var börnum sínum og tengdabörnum ekki aðeins góð- ur faðir, heldur einnig mætur félagi. Vandamál okkar barnanna voru einnig hans vandamál, alltaf var hann reiðubúinn að hjálpa og veita leiðsögn. Við munum seint Sérstæð varð í mínum huga Ingunn húsfreyja á Reykjahvoli er mér heyrðist hver maður dá og virða vegna sérstakra mannkosta. Helga bónda kynntist ég lítið. Þessi merku hjón voru að verða tengdaforeldrar Ingibjargar. Þau Finnbogi Helgason og Ingibjörg reistu nokkru neðar með læknum býlið Sólvelli og hafa búið þar alla tíð síðan. Þeim fæddust þrjár dætur: Ingunn gift Ásbirni Sigurjónssyni, Álafossi; Aðalheiður Auður, gift Ingþóri Þórðarsyni, byggðu og búa gleyma því liðsinni sem hann veitti okkur, þegar við vorum að byrja búskap. Sú einlæga ást sem hann sýndi barnabörnum sínum þegar þau fæddust og uxu úr grasi, verður til þess að það er okkur foreldrunum erfitt að útskýra fyrir þeim hvers vegna afa Magga nýtur ekki leng- ur við. Þau munu eiga í framtíð- inni óljósa mynd af manni sem tók þau á kné sér og hampaði þeim og átti þá huggun sem afanum er einum lagið. En við eigum margar dýrmætar minningar um þennan mæta mann, og við trúum því að Guð gefi honum styrk og ljós í hjarta til þess að mæta nýjum heim- kynnum. I.K.E. S.R.M. G.Þ.M. Ö.í. í næsta húsi við foreldra hennar, Soffía er ógift símamær í Reykja- vík. Öllum sem að Sólvöllum komu, bar saman um að lofa myndarskap Ingibjargar og reisn og risnu heimilisins og hið ljúfa viðmót Finnboga. Hann óvenjulega orð- var maður, sgm aldrei lætur stór- yrði né lastmæli af vörum sér. Einn nágranni þeirra nú löngu horfinn til Danmerkur sagði við mig eitt sinn: Það sópar af henni frænku þinni. Helst mundi hún aldrei vilja þurfa að fá neitt lánað hjá öðrum, en eiga sjálf allt til að lána, sem aðra kynni að vanta. Hún hefur sérstaka ánægju af að gefa.“ Áratuga kynni mín og ekki síst nú þau síðustu hafa stutt vel þessa lýsingu. Ingibjörg var orðin sjúk og þreytt og farin að búa sig til farar svo sem faðir hennar, og sagði er hún fór í sitt síðasta ferðalag: Ef ég kem ekki aftur, þá lætur þú þetta til einhverrar líknarstofn- unar. Hún minntist með virðingu, þökk og aðdáun heimamundar föður síns til barna sinna, að sýna lífi sínú þá trúmennsku er hann kenndi og hafa að leiðarljósi heilræði Hallgríms Péturssonar sálmaskálds: Aldrei finnur maður eins til vanmáttar síns og smæðar, og aldrei verður eins erfitt að átta sig á lögmálum lífsins eins og þegar menn, sem maður telur að enn eigi mikið dagsverk eftir, eru skyndi- lega í burtu kallaðir. Þannig er okkur vinnufélögum Magnúsar Gísla Þórðarsonar innanbrjósts þegar við kveðjum hann nú í dag. Magnús hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur í jarðlínudeild árið 1945. Árið 1974 var hann ráðinn sem vaktmaður við húsveituvaktina, og sem varð- stjóri var hann ráðinn 1977. Öll störf sín vann hann með stakri prýði og samviskusemi, hver sem þau voru. Það er skarð fyrir skildi, þegar slíkir menn falla frá fyrir aldur fram. Magnús hafði átt við vanheilsu að stríða að undanförnu, en fáir hafa sjálfsagt gert sér grein fyrir því, hversu alvarleg eðlis veikindi hans voru, þar sem Magnús var ekki sá, sem kveinkaði sér við aðra, en bar sig alltaf jafnvel og var alltaf sama prúðmennið á hverju sem gekk. Við vinnufélagar Magnúsar vilj- um með þessum fátæklegu orðum þakka honum samfylgdina, sem hvergi bar skugga á. Fjölskyldu hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj ur. Kveðja frá vinnufélögum. Magnús G. Þórðarson varðstjóri — Minning Fæddur 25. júní 1929. Dáinn 1. júní 1979. „Menn halda stundum skammt á ieikinn liðið. oií Kfið dreKUr tjaidið fyrir sviðið. ok drottnar þar hin djúpa þöKn.~ D. St. Fyrir rúmri viku síðan, þegar vorið fór að taka völdin, kom kaldur gustur dauðans skyndilega inn á heimili fjölskyldunnar að Efstasundi 79 hér i borg. Hús- bóndinn, Magnús Gísli Þórðarson, varð bráðkvaddur að kvöldi 1. þ.m. Þannig er líf vort. Fáir vita hvenær tjald lífsins fellur. Magnús var fæddur á Grænu- mýri á Seltjarnarnesi 25. júní 1929. Foreldrar hans voru þau Guðrún Gísladóttir og Þórður Magnússon sjómaður og vélstjóri. Magnús kynntist snemma harðri vinnu foreldranna og þeim kjörum, sem fátækt verkafólk bjó við á fyrri helmingi þessarar aldar. Á sextánda ári byrjar hann að vinna hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur og er stuttu síðar orðinn fastráðinn starfsmaður. Hjá þeirri stofnun vann hann síðan alla tíð til dauðadags. Magnús kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu Guðrúnu Sigurðardóttur, pípulagninga- meistara Jóhannssonar, 17. nóv- ember 1951. Þeim varð fjögurra barna auðið. Þau eru: Sigurður Rúnar, póstbifreiða- stjóri, kvæntur Ingibjörgu Kr. Einarsdóttur ritara; Guðrún Þóra, bankaritari, gift Erni ísleifssyni sölumanni; Þórður Axel, vinnur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur- borgar, Guðni Karl, nemandi í skóla. Þannig er í örstuttu máli lífs- ferill Magnúsar G. Þórðarsonar. Þegar fjölskyldur okkar tengd- ust fyrir fimm árum síðan, kom hann mér fyrir sjónir sem hlé- drægt prúðmenni. Sú mynd breyttist ekki við nánari kynni, en við bættust ýmsir aðrir eiginleik- ar, sem ég mat mikils, svo sem glaðværð, hjálpsemi og traust- leiki. Sambúð þeirra hjóna var með því fegursta og besta, sem ég hefi kynnst og var í hvívetna til fyrir- myndar. Ung að árum bundust þau þeim tryggðum, sem aldrei síðar bar skugga á. Um það bar heimili þeirra fagurt vitni. Áður en þau eignuðust húsnæð- ið að Efstasundi 79 áttu þau lítið hús inn í Blesugróf. Þar mun margur gestur hafa glaðst við komu sína, er hann sá hversu hagar hendur húsbændanna og meðfædd snyrtimennska höfðu Vilborg Guðrún Gísla dóttir — Minning Fædd lfi. júlí 1927. Dáin 2. júní 1979. Vilborg kom til Grundarfjarðar ásamt manni sínum og tveim yngstu sonum þeirra til þess að gleðjast með systur sinni og fjöl- skyldu hennar vegna fermingar á hvítasunnudag — en tími hennar var útrunninn — því að kvöldi 2. júní varð hún bráðkvödd. Þetta varð hennar síðasta ferð á æsku- stöðvarnar en alltaf hélt hún mikla tryggð við fæðingarsveit sína og skyldfólk og vini þar. Vilborg var fædd 16. júlí 1927 að Skallabúðum í Eyrarsveit, dóttir hjónanna Gísla Karels Elíssonar bónda þar og Jóhönnu Hallgerðar Jónsdóttur. Hún var elst fjögurra systkina. Móðir þeirra dó aðeins 31 árs — eða þegar Vilborg var tæpra 10 ára og varð hún því snemma að taka mikla ábyrgð á sínar ungu herðar, með því að hjálpa föður sínum ásamt yngri systkinum að halda saman heimil- inu og fjölskyldunni eftir því sem tök voru á. Fermingarárið fer Vilborg í vist til presthjónanna á Setbergi og er þar í fjögur ár. Mun það hafa verið henni góður skóli. Vilborg stofnar sitt eigið heimili í Grundarfirði með manni sínum, Haraldi Breið- fjörð Þorsteinssyni, 1946. Fluttust þau til Reykjavíkur í ársbyrjun 1950. Vilborg og Haraldur eignuð- ust sjö börn sem öll eru á lífi. Þau eru Jóhanna, gift Gunnlaugi Val- týssyni, og eiga þau þrjá syni; Helga, gift Jóni Sveinssyni, og eiga þau tvo syni; Ásgerður, gift Sölmundi Kárasyni eiga þau tvö börn; Kristín, gift Birgi Þór Sigur- björnssyni og eiga þau einn son; Gísli, kvæntur Bergdísi Guðna- dóttur, og eiga þau þrjár dætur; Sævar, 15 ára; Haraldur Vilberg, 9 ára. Vilborg var ein af þeim mann- eskjum sem fólk hændist ósjálf- rátt að vegna léttrar lundar og hlýrrar framkomu. Leið manni alltf vel í návist hennar. Blíðlyndi Vilborgar varð til þess að hún varð ósjálfrátt tengiliður milli fjölda fólks, og höfðu allir ánægju af. Það var því ekki af tilviljun að gestkvæmt var oft hjá þeim hjón- um, enda samtaka í því að taka vel á móti fólki. Heimili þeirra var ætíð opið frændum og vinafólki. Aldrei var svo mannmargt á hennar heimili að ekki væri rúm fyrir systkin og systkinabörn sem voru á ferð í Reykjavík. Vilborg var dugleg með afbrigðum. Heim- ili hennar var ætíð til fyrirmynd- ar. Henni var lagið að láta allt ganga vel, og afköstin voru svo mikil að undrum sætti. Það var sama hvort það var á hennar heimili, við hreingerningar í Breiðagerðisskóla eða við garðinn þeirra. Vilborg og Haraldur höfðu komið sér upp snyrtilegu smáhýsi í Skammadal. Vilborg naut þess að skreppa þangað og komast í snertingu við náttúruna og njóta útiverunnar. Venjulega var margt fólk í kringum Vilborgu, því barnabörnin höfðu gaman af að heimsækja ömmu þegar hún var í matjurtargarðinum í Skarnmadal. Ég vil ljúka þessum skrifum með vísu eftir föður Vilborgar og afa minn. Til hvers er að safna aeim kú er spurninK vakin. Fáklæddur ík fer úr heim, fæddÍHt f hann nakinn. Ég vil senda eiginmanni, börn- um, tengdabörnum og barnabörn- um hinar innilegustu samúðar- kveðjur og bið Guð að styrkja þau í þeirra mikla missi. Gísli Karel Halldórsson. Hún Vilborg er dáin. Skyldi nokkur af okkur samstarfskonum hennar í Breiðagerðisskóla hafa dottið í hug að við ættum ekki eftir að sjá hana aftur, þegar við hættum að starfa þar 31. maí og aldrei aftur ættum við eftir að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.