Morgunblaðið - 12.06.1979, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979
Það verða tuttuguogfimmþús-
undsjöhundruðogfimmtíu krón-
ur fyrir tannfyllinguna.
... James Bond er nú kominn
inn um gluggann og er búinn
að berja þrjótinn í gólfið...
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Venjulega er ein ákveðin
meðferð litar kölluð öryggisspila-
mennska. Þá er reynt að tryggja,
að ekki tapist of margir slagir á
tiltekinn lit með því að spila
honum á ákveðinn hátt. Algengt
dæmi er að taka á ás áður en
spiiað er að drottningu þegar í
litinn vantar kóng, gosa og tíu.
En öryggisspilamennska
kemur upp á ólíklegustu stöðum.
Vestur gaf, norður-suður á
hættu.
Norður
S. 10743
H. Á542
T. D73
L. 65
COSPER
Ég batt hnút á vasaklútinn til að minna mig á að
sakna þín, elskan!
Iþróttaþættirn-
ir það besta
Þar sem alioft eru skrif í dálk-
um þínum um dagskrár útvarps og
sjónvarps, langar mig að leggja
þar nokkur orð í belg, þó sjálfsagt
verði mér ekki allir sammála. Eg
tel nefnilega sjónvarpsdagskrána
og útvarpsdagskrána yfirleitt
góðar, þó að sjálfsögðu fljóti þar
með ýmislegt sem öllum líkar
ekki. Ég tel að íþróttaþættirnir
séu með því albesta sem í dag-
skránum er, enda umsjónarmenn
og þulir þeirra með ágætum og
efnið mjög fjölbreytt. Þá eru
margir ágætir þættir í sjónvarp-
inu, svo sem framhaldsmyndirnar,
og hestaþátturinn sem nýlega var
á „skjánum" ágætur þótt æski-
legra hefði verið að hafa meir af
myndinni tekið nær. Skemmti-
þættirnir sem svo eiga heita eru
yfirleitt mjög lélegir, þó með
einstaka undantekningum, eins og
t.d. „Skonrok-k“ sem er góður og
ágætur þulur með hann. Einnig
eru flestir fræðsluþættirnir ágæt-
ir. Sem sagt finnst mér sjónvarps-
dagskráin góð yfirleitt, þó alltaf
hljóti að falla með eitthvað af
„rusli", en þá horfir maður bara
ekki á það. En mér finnst mjög
nauðsynlegt að koma með þáttinn
„að kvöldi dags“ miklu fyrr en í
dagsrkárlok. Væri ekki hægt t.d.
að hafa hann áður en kvöld-
myndin byrjar, svona um kl. 22.00.
Ég er sannfærður um að fjöldinn
allur, sem vildi gjarnan hlusta á
þessa þætti, er sofnaður svo sem
flest eldra fólk, sem og þeir sem
dvelja á sjúkrahúsum og vist-
heimilum.
Vil ég þakka alveg sérlega séra
Sigurði Hauki Guðjónssyni fyrir
frábæra þætti sem hann flutti nú
nýlega.
Þá er það með útvarpið. Mér •
finnst dagskráin alltof lengi á
kvöldin, mætti alveg ljúka henni
með fréttum og veðurfregnum kl.
22.30. Sjálfsagt er það sem síðast
er flutt ætlað meira unglingum
svo sem dansmúsik og „pop“, en
flestir eða allir á þeim aldri hafa
nú orðið segulbandstæki og hægt
er að fá nóg af „spólum" með
þeirri tónlist sem þeir geta þá
valið sjálfir. Ekki er heldur nauð-
synlegt á „sparnaðartímum"
Suður
S. ÁKD975
H. 63
T. Á52
L. ÁK
Vestur opnaði á þrem hjörtum,
sem var eðlileg hindrunarsögn,
norður og austur sögðu báðir pass
en suður stökk í fjóra spaða, allir
pass og vestur spilaði út hjarta-
kóng.
Hvernig spilar þú svona spil?
Þegar spilið kom fyrir byrjaði
suður á að telja tökuslagi sína. Sex
á tromp, einn á hvorn rauðu
litanna og tveir á lauf og útkoman
varð tíu ef hann fengi þá alla. Og
eins og oft er tilfellið var það
hindrunarsögn vesturs, sem kom
sagnhafa á sporið.
Ekkert var sennílegra en vestur
ætti sjölit í hjartanu og þá fengi
suður ekki á hjartaásinn er hann
léti hann strax úr borðinu. Austur
myndi trompa og slagirnir gætu
ekki orðið nema níu. Sagnhafi lét
því lágt spil frá borðinu. Á daginn
kom, að austur fylgdi ekki lit og
vestur fékk slaginn. Hann fékk
einnig að eiga næsta slag en þriðja
hjartað trompaði sagnhafi, tók
trompin af andstæðingunum og
trompliturinn sá um innkomu á
borðið svo taka mætti á hjartaás-
inn, sem beið hress og hraustur.
Hverfi skelfingarinnar—
61
urra vitna fór hann úr búðinni
kortér fyrir tíu. Sjálfur segist
hann aðeins hafa brugðið sér
frá í nokkrar mínútur. Kvöldið
sem frú Christensen er myrt
situr kaupmaðurinn við sjónv-
arpið. Kona hans sefur og þess
vegna gæti hann sem hægast
hafa iæðzt út úr húsinu og verið
í burtu í fimm tíu mfnútur án
þess nokkur yrði þess var. í
íyrrinótt fór Petersen á stúfana
að finna dóttur sfna um miðn-
ættið. Hann getur ekki tilgreint
nákvæmlega hvenær, en það
eina örugga er að ekki er hægt
að loka augunum fyrir þvf að
hann hefur tfmans vegna haft
tök á þvf að fremja þriðja
morðið.
Svo eru það vinkonurnar
tvær. Tæknilega séð hafa þær
einnig möguleika tii að fremja
fyrsta morðið. Almennilega
fjarvistarsönnun hefur hvorug.
Hins vegar virðist ekkert sem
bendir til að skorti á að f jarvist-
arsannanir þeirra í seinni tvö
skiptin séu pottþéttar. En þar
skyidi tekið með f reikninginn
að þar segja þær frá.
Finn Christensen hafði frí-
tfma milli tfu og ellefu þann
morgun sem Inger Abilgaard
var drepinn. Þann áttunda
febrúar var hann á kennaraf-
undi en enginn getur gefið
honum fjarvistarsönnun eftir
klukkan hlafnfu. Hann staðhæf-
ir sjálfur að hann hafi verið f
Alley Cat og síðan farið í
kvikmyndahús. Og í gærkvöldi
þegar Solvej Lange gengur á
vit örlöga sinna segist hann
hafa verið heima hjá sér alit
kvöidið unz honum skýtur upp
hjá Lesbesystrunum rétt eftir
miðnætti.
Sfðastur þeirra sem veruiega
kemur til greina er Steen Torp.
Kannski er ég ögn fordómaf-
yllri f hans garð en æskiiegt
væri, en froðusnakk hans og
röfl og haldiitlar skýringar
iykta langar ieiðir. Hann hefði
scm hægast gctað verið að
snuðra við hús frú Lange og
vakið með þeim skelfingu svo
að Caja lagði á f lótta og þá voru
honum hæg heimatökin að
drepa Solvej. Hann hefur iíka
tæknilega séð möguleika á að
myrða Janne Christensen. Ég
gef iítið fyrir frásögn konu
hans um að hann hafi verið f
bflskúrnum að gera við bílinn
sinn. Aftur á móti getur orðið
erfitt að sanna að hann hafi
ekki verið á vinnustað sfnum
morguninn sem Inger Abilg-
aard var drepin. öllum vinnuf-
élögum hans ber
ásamt um að þaðan hafi hann
ekki vikið.
Lögregluforinginn hallaði
sér aftur á bak f stólnum svo að
brakaði í.
— Ilvað ástæðunni viðkem-
ur, byrjaði Mortensen, en hinn
greip þá fram í fyrir honum. —
Hvað ástæðunni viðkemur er
þetta auðvitað teygjanlegt og
sveigjanlegt. Venjulega getur
maður áttað sig á að einhver
áþreifanleg ástæða liggi þarna
að baki. En f þetta skipti er það
svo skrftin staða að við getum
með vissu fundið morðingjann f
hópi fáeinna grunaðra. En þótt
mótsagnakennt sé þá setur
þetta okkur í enn meiri vanda.
Ef biáókunnugur maður ryðst
inn f hús hjá nakinni konu og
stingur hana hnífi er ekki
fjarri lagi að láta sér detta f
hug að þar sé á ferðinni kynóð-
ur maður. En þegar glæpurinn
er síðan endurtekinn gagnvart
fleiri konum — og öllum má
Ijóst vera að morðinginn er
manneskja sem konurnar
þekkja og bera traust til, þá
breytast viðhorfin veruiega. Við
GETUM hér átt í stríði við
geðsjúkling. Það getur verið að
hér sé um að rœða afbrýðism-
orð. Eða hefnd. eða eitthvað enn
eitt...
— Ekki er hægt að loka
augunum fyrir því hversu við-
urstyggiiega morðin eru fram-
in. Sú grimmd og sá tryllingur
sem þar kemur fram er vissul-
ega meira en lftið sjúklegur ...
reyndi Mortensen að segja en á
ný var tekið fram í fyrir
honum.
— Já, þér segið það. Ég veit
svo sem ekki hvort þessi morð