Morgunblaðið - 22.07.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.07.1979, Blaðsíða 1
48 SlÐUR 166. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 60 þús. Rússar tilKúbu? Wa>>hington 21. júlí. AP. STÓRFYLKI sovéskra her- manna, að líkindum allt að sextíu þúsund manns, hefur verið flutt til Kúbu á síðustu tveimur vik- um, að sögn ABC- fréttastofunn- ar og var þetta haft eftir banda- rískum fulltrúadeildarþing- mönnum, sem voru ekki nafn- greindir. Fréttastofan sagði, að þessum frásögnum hefði verið harðlega neitað af embættismönnum stjórnarinnar, en þó hefðu þeir viðurkennt að hafa fengið upplýs- ingar um að Sovétríkin væru að skipuleggja ýmsa þætti stjórnun- ar og uppbyggingar í hernaðar- legu tilliti á Kúbu. Fyrr í þessari viku hvatti öld- ungadeildarþingmaðurinn Rich- ard Stone til þess að Carter Bandaríkjaforseti segði allan þann sannleika sem Bandaríkja- menn vissu um umsvif Sovét- manna á Kúbu og að þar væru ekki aðeins ráðgjafar heldur og fjöldi hermanna. Hækkunvaxta hjálpar dollar Dýrasta olíuskipaslys til þessa: „Nú er sumar, sumar, sumar og sól“ London, 20. júlí. Reuter. DOLLARINN hækkaði í verði á gjaldeyrismörkuðum í Evrópu í dag í kjölfar frétta um að banda- ríski seðlabankinn mundi hækka vexti sína í 10% sem er met. Það hjálpaði líka dollaranum, að bandaríska verzlunarráðuneyt- ið tilkynnti að þjóðartekjur hefðu minnkað á vormisseri þar sem þetta getur verið fyrirboði sam- dráttar sem almennt hefur verið spáð og það gæti hamlað gegn verðbólgu. Dollarinn snarlækkaði fyrir tveimur dögum vegna lausnar- beiðni ráðherra ríkisstjórnar Carters forseta og helztu ráðun- auta hans í Hvíta húsinu. Að undanförnu hefur verið uggur á gjaldeyrismörkuðum um mögu- leika á aukinni verðbólgu í Banda- ríkjunum. „Eldtungumar teygðu sig eftir okkur-þetta var martröð líkast” Port of Spain. Scarboroutch, 21. júlf. AP. Reuter. MIKLIR eldar loguðu enn, sfðdegis á laugardag, í risaolíuskipunum Atlantic Empress, 292 þús. tonn, og Aegean Captain, 210 þús. tonn, sem rákust á úti af strönd Tobago í Karabíska hafinu síðdegis á föstudag. Saknað er enn fimmtán manna af Atlantic Empress en öll áhöfn hins skipsins er hólpin. Bæði eru skipin skráð í Líberíu og voru drekkhlaðin olíu og olíuvörum. Björgunarstörf hafa gengið mjög erfiðlega vegna gífurlegs hita og stöðugra sprenginga. Búizt var við að Atlantic Empress myndi þá sökkva á hverri stundu og undirbúningur var hafinn að taka Aegean Cap- tain í tog. Olía fór að flæða úr skipunum fljótlega eftir áreksturinn og um hádegi á laugardag þakti olían fimmtíu fermílna svæði. Óttast er að olían berist að ströndum Mondale harðorður í garð Víetnama Tobago og sót og þungur mökkur hefur borizt yfir eyna. Olíumála- ráðherra Tobago og Trinidad, Errol Mahabir, sagði að svo kynni að fara að 3.5 milljónir hráolíu- tunna færu í sjóinn og óttast menn að þetta kunni að verða dýrasta og mesta ólán af þessu tagi og afleiðingar verði margvís- legar og varanlegar. Loftskeytamaður Aegean Cap- tain sagði í viðtali við karabísku fréttastofuna, sagði að rigning og slæmt skyggni hefði verið á þess- um slóðum, og enginn hefði vitað neitt fyrr en skipin skullu saman. Hafi á sama andartaki blossað upp eldar um allt skipið. Hann hafi reynt að senda út neyðarkall meðan áhöfnin barðist við eldana, en síðan hafi skipstjórinn fljót- lega gefið skipun um að allir færu frá borði. Hefði hann þá séð menn vera að stökkva frá hinu skipinu. „Eldtungurnar teygðu sig eftir okkur. Þetta var eins og martröð,“ sagði loftskeytamaðurinn. 155fórust í flóðbylgju Jakarta. 21. júlí — AP. FLÓÐBYLGJA skall á eynni Lomblen í Indónesíu og 155 manns fórust. Flóðbylgjan, sem náði 150 metra inn á land, skall á eynni þegar flestir eyjarskeggja voru sofandi. Um 25 manns slösuðust þegar hús þeirra hrundu undan vatnsþunganum, en vatnselgurinn hrifsaði með sér mörg hús og tré til sjávar. N ý st jórn í N icaragua: Genf,21. júlí — AP.Reutcr WALTER Mondale, varaforseti Bandaríkjanna, lagði til á flótta- mannaráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í Genf í dag, að flutningar fólks á haf út frá Víetnam yrðu stöðvaðir og væru þær aðgerðir í sjö iiða áætlun Bandaríkjastjórnar til lausnar flóttamannavandamáiinu í Suðaustur-Asíu. Hann gagnrýndi Víetnam harðlega. „Við verðum að binda enda á dauða þúsunda á hafi úti en í þess stað koma á manneksjulegri áætlun fyrir brottflutning fólks frá Víetnam,“ sagði hann. Dynjandi lófaklapp kvað við í ráðstefnusalnum að lokinni ræðu Mondale en fulltrúar Víctnama sátu svipbrigðalausir. Walter Mondale sagði, að Bandaríkjastjórn myndi biðja þingið um 105 milljón dollara fjárveitingu til aðstoðar, og þann- ig meira en tvöfalda aðstoð sína. Bandaíkin væru reiðubúin að senda sjálfboðaliða til Suðaust- 'ur-Asíu ásamt öðrum þjóðum. Að komið yrði á fleiri búðum fyrir flóttafólk. Hann lagði til að komið yrði á sérstökum sjóði til aðstoðar flóttafólki og ef aðrar þjóðir væru reiðubúnar, þá myndu Bandaríkin leggja fram 20 milljónir dollara þegar á fyrsta ári. Jimmy Carter, Bandaríkjaforseti, sendi fjögur skip til viðbótar til S-Kínahafs til bjargar fólki frá Víetnam. Walter Mondale líkti ástandinu í Suðaustur-Asíu við Gyðinga- vandamálið í Þýzkalandi nazismans. Haldin var ráðstefna árið 1939 um Gyðingavandamálið en ríki gátu ekki komið sér saman um aðstoð. „Við megum ekki gera sömu mistökin aftur,“ sagði Mondale og hvatti þjóðir til að auka aðstoð við flóttamenn frá Víetnam. Kínverjar tilkynntu á ráðstefn- unni í Genf að þeir væru reiðu- búnir að taka við tíu þúsund flóttamönnum, þó eins og þeir sögðu, að þeir hefðu þegar tekið við 250 þúsund þegar. Starfid kallar á blóó, svita og tár Managua, 21. júlí. Reuter. NÝ ríkisstjórn sandinista tók við völdum formlega í morgun. Mikill fögnuður er sagður meðal íbúa Nicaragua og láta menn óspart gleði sína í ljós vegna sigurs sandinista og brottfarar Somoza úr landi, svo og draga menn andann léttar yfir því að blóðugri og mannska>ðri borgarastyrjöld er nú lokið. Fyrsta verk stjórnarinnar nýju var að gera upptækar allar eigur Somoza og margra fylgismanna hans og leysa upp þjóðvarðliðið sem varð einkaher forsetans fyrrverandi. Tomas Borge, einn forsvarsmanna þjóðfylkingar sandinista, sagði að stríðinu gegn þjóðvarðliðum Somoza væri að vísu lokið, en nú yrði að hefja nýtt stríð — á hendur fátækt, fáfræði, siðleysi og eyðileggingu. Hann sagði að uppbyggingarstarf- ið myndi taka langan tíma og það myndi útheimta blóð, svita og tár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.