Morgunblaðið - 22.07.1979, Blaðsíða 48
EFÞAÐER FRÉTT
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINII
\l n|N«. \
SlMINN I K:
22480
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
\i i.nsi\<. \
S|\II\N KK:
22480
SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1979
Landhelgisgæzlan
mótmælir banni
við næturflugi
N.ETURFLUG hefur verið hannað um Reykjavíkurflug-
völl frá kl. 23.30 til klukkan 7 að morgni. Er flugvélum
þá ekki leyft að hefja sig til flugs né lenda nema vélum
er sinna sjúkraflugi eða neyðarþjónustu. „Þetta er mjög
mikil skerðing á möguleikum okkar til landhelgisflugs
og því höfum við borið fram mótmæli." sagði Bjarni
Ilelgason skipherra hjá Landhelgisgæzlunni í gær.
Sagði Bjarni að það væri auðvitað ófært ástand að
bátarnir hefðu tryggingu fyrir því að þeir yrðu óhultir
ef þeir brygðu sér inn fyrir landhelgislínuna að
næturlagi.
— Þetta er í grundvallaratrið-
um lítii breyting, sagði Agnar
Kofoed-Hansen flugmálastjóri er
Mbl. ræddi við hann. Reykjavíkur-
flugvöllur var nr. 2 í röðinni næst
á eftir Óslóarflugvelli að taka upp
bann við flugumferö að næturlagi.
Það er nú víða komið á og sérstak-
lega hefur þeim stöðum fjölgað
síðustu 2—3 árin, sem tekið hafa
upp bann af þessu tagi. Við mun-
um nú banna flugtak eftir kl. 23:30
og algjörlega frá miðnætti og er
þetta gert til þess að meiri friður
verði hér um nætur, en nokkuð
hefur stundum verið um flugum-
ferð um nætur. Við gerum okkur
grein fyrir að þetta kann að koma
illa niður á t.d. áætlunarflugi, sem
kannski er ekki hægt að hefja fyrr
en að kvöldi til vegna veðurs út
um landið, en ég hygg þó að það
verði ekki oft og eins verða að
sjálfsögðu gerðar undantekningar
fyrir sjúkraflug því allir Reykvík-
ingar hljóta að taka með stillingu
truflun þegar þeir vita að hún
stafar af þess konar flugi, sagði
Agnar að lokum.
Gengisfellingm frá áramótum:
10,6% á dollar
- 24,8% á pundi
í FYRSTU gcngisskráningu á
þessu ári, þann 3. jan. 8.1., var
gcngi Bandaríkjadollars í sölu kr.
318.50. cn í vikunni var það kr.
352.30. llefur íslenzka krónan því
fallið um 10.6% gagnvart doliar á
árinu. Gengi sterlingspunds í árs-
byrjun var 645.05 kr., en í vikunni
var það 804.75 kr. og hefur þvf
hækkað um 24,8% á árinu.
Þá hefur ríkisstjórnin ákveðið
aukið gengissig á næstunni og er
talað um i% í sambandi við aðgetðir
ríkisstjórnarinnar. Morgunblaðið
innti Davíð Ólafsson Seðlabanka-
stjóra eftir því í gær hvernig þessari
gengisfellingu yrði hagað, hvort
gengið yrði fellt á einu bretti eða
látið síga á lengri tíma. Davið sagði
að gert væri ráð fyrir því að þetta
ákveðna gengisfall yrði látið koma
til framkvæmda „á næstu vikum eða
mánuðum". „Það fer eftir aðstæðum
á gjaldeyrismörkuðum hér heima og
erlendis eins og gengisskráning hef-
ur verið að undanförnu," sagði
Davíð, „en á meðan verðbólgan er
nær 50%< þá er ekki við öðru að búast
en gengið verði að láta undan."
*
Almarkaðurinn traustur og verð hækkandi:
Unnið að stækkun kerskála tvö í Straumsvík. Skálinn verður fokheldur fyrir áramót og þar verða sett
upp 40 ný ker. Framleiösla áls á að hefjast í nýja skálanum næsta vor. Ljósm. rax.
Öll framleiðsla ísals
á þessu ári er seld
GÓÐUR markaður hefur verið fyrir ál á undanförnum
mánuðum og verðið farið hækkandi, samkvæmt upplýs-
ingum Ragnars Ifalldórssonar, forstjóra ÍSALs. Áætlað
er að framleiðsla Álversins í Straumsvík verði 74
þúsund lestir á þessu ári og er þegar búið,að ráðstafa
allri framleiðslu ársins til viðskiptamanna ÍSALs.
Skráð verð á heimsmark-
aðnum er nú 1400 dollarar
hvert tonn af áli. Hefur verðið
hækkað tvívegis á þessu ári,
en það var 1235 dollarar í
ársbyrjun. Er hækkunin 13%.
Þess eru dæmi að undanförnu
að ál hafi verið selt á hærra
verði en skráðu markaðsverði
og kvað Ragnar það benda til
þess, að skráð verð ætti að öllu
óbreyttu að hækka áður en
langt um liði. Að sögn Ragn-
ars eru menn bjartsýnir á að
markaðurinn haldist góður
a.m.k. út þetta ár en óneitan-
lega eru ýmsar blikur á lofti
vegna óvissunnar í orkumál-
um heimsins.
Unnið er af fullum krafti við
stækkun kerskála tvö í
Straumsvík, en þar verða sem
kunnugt er 40 ný ker. Stefnt er
að því að gera skálann fok-
heldan fyrir áramót og eftir
áramótin verður hafist handa
við að koma kerjunum og
öðrum útbúnaði fyrir. Er
áformað að starfræksla nýju
kerjanna hefjist í apríl eða
maí á næsta ári, og verður þá
álframleiðsla í 320 kerjum í
Straumsvík.
Orf eus og
Evredís
jólaópera
Þjóðleik-
hússins
Norskri herflugvél bjarg-
að upp af botni Þ jórsár
Eina vélin sinnar tegundar sem vitað er um
ÍSLENZKIR, norskir og bandarískir aðilar ætla í ágústbyrjun að
bjarga upp af botni Þjórsár norskri herflugvél af Northropgerð,
sem fórst þar í aprílmánuði 1943. Tveir menn voru í vélinni, sem
var á leið frá Reyðarfirði tii Reykjavíkur. Báðir björguðust og er
flugstjórinn fyrirliði norska hópsins, sem tekur þátt f björgun
vélarinnar. Þetta er eina vélin
heiminum.
24 flugvélar voru framleiddar
af gerðinni Northrop N-3PB og
afhentar norsku útlagastjórn-
inni í London, sem sendi þær til
íslands og var 21 vél staðsett hér
á landi 1941—‘43. Vélar þessar
gátu sér gott orð sem herflug-
vélar og tóku meðal annars þátt
í árásinni á Bismarck.
Þann 21. apríl 1943 fór ein
þessara véla í góðu veðri frá
Reyðarfirði áleiðis til Reykjavík-
ur, þar sem átti að rífa hana.
þessarar tegundar, sem til er í
Þegar kom fyrir norðan Vatna-
jökul versnaði veðrið og fór svo
að flugmaðurinn neyddist til að
lenda á Þjórsá, skammt neðan
við Búrfell.
Ætlunin er að flytja vélina til
Bandaríkjanna, þegar henni
hefur verið náð upp úr Þjórsá.
Þar verður hún gerð upp og höfð
til sýnis og síðan flutt hingað til
lands og sýnd og loks verður hún
flutt til Noregs, þar sem hún
verður sett á safn.
Northrop N-3PB á reynsluflugi f Kalifornfu.
Það eru íslenzka flugsögu- ríkjunum, sem að björgun vélar-
félagið, norski herinn og norska innar vinna, alls 35 manns.
sjóminjasafnið og Nort-
hrop-verksmiðjurnar í Banda- Sjá bls. 16.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur ákveðið
að sýna óperuna Orfeus og Evre-
dís á komandi jólum og er undir-
búningur þegar hafinn að sögn
Sveins Einarssonar þjóðleikhús-
stjóra. Orfeus og Evredís hefur
ekki verið sýnd á sviði á íslandi
fyrr, en í verkinu syngja þrír
einsöngvarar, allt konur, ballett-
flokkur og fjölmennur kór.
Ákveðið er að 6 söngvarar skipt-
ist á að syngja þessi þrjú hlut-
verk og kvað Sveinn það gert
með tilliti til þess hve margar
góðar söngkonur væru til staðar.
Ekki er enn fullskipað f hlutverk,
en það verður skjótt.
Óperan Orfeus og Evredís er
eftir Gluck og er hún frá 18. öld.
Flestar óperur sem hér hafa verið
fluttar eru hins vegar frá 19. öld
og Þrymskviða Jóns Ásgeirssonar
frá 20. öld. Tónlistin úr óperunni
er mjög kunn, t.d. aría Orfeusar og
balletttónlistin.
Hljómsveitarstjóri verður
Ragnar Björnsson, leikstjóri
Kenneth Tillson frá Bretlandi og
hann stjórnar einnig ballettinum,
en leikmynd mun Alister Powell
gera, sá sem gerði leikmyndina í
Imyndunarveikina. Þýðandi óper-
unnar er Þorsteinn Valdimarsson.