Morgunblaðið - 22.07.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1979
7
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 10. Þáttur
Eins og fram hefur komið í
þættinum, eru fleiri forsetn-
ingar í málinu en til og frá,
þær sem hafa sams konar
merkingu. En ýmsum finnst
að þessar tvær séu nú svo
mjög notaðar á kostnað ann-
arra, að til málfátæktar og
leiðinlegrar einhæfni horfi.
Björn Stefánsson í Reykjavík
hringdi til mín út af auglýs-
ingu sem hann hafði heyrt
um ferð frá Landmannalaug-
um til Þórsmerkur. Hann tók
þetta sem dæmi um ofnotkun
þessara forsetninga þegar
farið er úr einum stað í
annan, enda væri þetta ekki í
samræmi við sunnlenska
málvenju. Þar væri talað um
að fara úr Landamannalaug-
um í Þórsmörk.
Björn minnti einnig á
hversu prófessor Jón Helga-
son í Kaupmannahöfn hefði
orðið undrandi og feginn, er
ágæt kona svaraði spurningu
hans um uppruna hennar
með því að segja að hún væri
úr Reykjavík. Jón kvaðst
ekki hafa hitt þann Reykvík-
ing lengi sem ekki segðist
vera frá Reykjavík.
Málvenjan er misjöfn um
einstaka staði. Sjálfum er
mér tamt að segja að ég sé
frá Akureyri, en úr Svarfað-
ardal.
Margir hafa fundið að því
málfari, þegar í gegnum er
notað í tímamerkingu.
Dæmi: Þetta hefur gengið
svo í gegnum árin, aldirnar
eða tíðina. Ég hef sama
smekk. Mér þykir þetta ekki
fallegt. Og margt er hægt að
segja annað sem betur mætti
fara, t.d. árum saman, tím-
unum saman og öld eftir öld.
Guðmundur Jónsson á
Eskifirði spurði mig um
orðalagið að draga dulur á
eitthvað, sama sem að draga
dul á eitthvað, þ.e. leyna
einhverju. Ég hef alltaf
heyrt sagt að draga dul í
þessu sambandi, en orðabæk-
ur greina að hitt sé einnig til:
draga dulur (kvenkyn, fleir-
tala), og þó að það tal sé mér
ekki tamt, treysti ég mér
ekki til að útskúfa því.
Kvenkynsorðið dul merkir
ekki aðeins leynd, heldur
einnig of mikið sjálfsálit,
sjálfsblekking. Menn dyljast
ágalla sinna. Og margur seg-
ir, líklega oft af takmarkaðri
hreinskilni, að hann ætli sér
ekki þá dul að vita þetta eða
hitt.
Vil og dul
tælir virða sonu,
þá er tíkjast á fé,
segir í Sólarljóðum. Þetta er
líklega svo að skilja, að
eigingirni og sjálfsblekking
dragi margan þann á tálar
sem girnist fjármuni. Þarna
birtist okkur týnd sögn að
fíkjast, en lýsingarorðið fík-
inn og nafnorðið fíkn lifa enn
góðu lífi.
Það þykir málgalli, er
tengiorðinu að er hnýtt aftan
í tilvísunarfornafnið sem,
þannig að sagt er til dæmis:
Þetta er maðurinn sem að
kom í gær. En mörgum
málsnjöllum verður á, og
hefur orðið, að grípa til þessa
þægilega smáorðs, ekki síst í
kveðskap, þegar fylla þarf
upp í braglínuna, svo að
hrynjandin verði rétt. Ekki
treysti ég mér til að leiðrétta
Jónas Hallgrímsson, enda of
seint, þótt hann kvæði sem
allir kunna:
Þá er það víst, að bestu blómin gróa
í brjóstum, sem að geta fundið til.
Og svo fer eins og segir í
22. passíusálmi:
Yfirmönnunum er því vant,
undirsátarnir hnýsa grannt
eftir því, sem fyrir augun ber,
auðnæmast þó hið vonda er.
Hvað höfðingjarnir hafast að,
hinir meina sér leyfist það.
Enn er komin tillaga um
orð fyrir túrismann. Högni
Torfason, sem er höfundur
góðra nýyrða, stingur upp á
orðinu ferðun, í sama beyg-
ingaflokki og hegðun.
Vísan um herra og séra
ætlar að bögglast fyrir mér. í
síðasta þætti hafði ég hana
skakkt eftir Jóni Benedikts-
syni og vona að nú setji ég
vísuna rétt á blað, eins og
hann lærði hana af gömlu
fólki:
Sælir verið þér, séra minn,
sagði ég við biskupinn.
Aftur kvað við ansa hinn:
t>ú áttir að kalla mig herra þinn.
Biskupinn þúar múga-
manninn á móti þérun hans.
Fylgdarmaður læknis nokk-
urs vildi í lok erfiðrar ferðar
vera kurteis og hrósmáll við
lækninn fyrir dugnaðinn, en
komst þannig að orði: Það er
mikið hvað yður druslist.
amCONCORD
4x4
Amenski lúxusbíllinn
Concord er væntanlegur með
fjórhpóladrifi og hækkaður
Sölumenn okkar taka nú þegar á móti
pöntunum og veita nánari upplýsingar
Allt á sama stað Laugavegi 118 - Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HE
TOPPURINN
frá FINNLANDI
Sendum um
allt land
Sérstakt
kynningarverð.
verö 578.800.-
Staðgr: 556.648.-
BUÐIN
/
29800
Skipholti19
• 26 tommur.
• 60% bjartari mynd.
• Ektaviður:
palisander, hnota.
• 100% einingakerfi.
• Gert fyrir
fjarlægöina 2-6 m.
• Fullkomin þjónusta.
y
50 ára
3 ára
ábyrgð
á myndlampa
HJÓLASKÓFLA
Til sölu Mitchígan 75 B, hjóla-
skófla 2,5 rúmm. árgerö 1972.
Sameign kemur til greina.
Upplýsingar í síma 19711.
Kvöldsími 74156.
Guðmundur Karlsson
Austurstræti 17, 5. h.
MIÐ-EVROPUFERÐ
16. ágúst
Leiðin liggur m.a. um Luxemburg,
Worms, Rínar- og Móseldali, Freiburg,
Basel, Luzern, Lichtenstein, Innsbruck,
Salzburg, ítalíu, Tyrol, Munchen, Hei-
delberg, Koblenz.
Iðnaðarhúatiftu
28580