Morgunblaðið - 22.07.1979, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1979
„Ákaflega vonsvikin”
— segir Dröfn Olafsdóttir um Laufásborgarmálið
„ÉG ER ákaflega vonsvikin
og óánægð með þessa
niðurstöðu og ráðningu for-
stöðukonu til Laufásborg-
ar,“ sagði Dröfn Ólafsdótt-
ir í símtali við Morgunblað-
ið í gær þar sem hún er
stödd í Kanada, en eins og
sagt var frá í blaðinu í gær
hefur borgarráð ráðið
Elínu Torfadóttur for-
stöðukonu Laufásborgar
með atkvæðum Sigurjóns
Ólafssonar, Kristjáns
Benediktssonar og Alberts
Guðmundssonar, en
Markús Örn Antonsson og
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
greiddu Dröfn atkvæði.
„Annars get ég ekkert sagt um
petta á þessu stigi málsins," sagði
Dröfn, „fjarlægðin er svo mikil
heim til Islands héðan að ég hef
ekki getað fylgst vel með gangi
þessa máls. Eg hef ekki tekið
neina ákvörðun um hvað ég geri,
en ætli það skýrist ekki þegar ég
kem heim í september."
Guðni Þórð-
arson lætur
af starfi for-
stjóra Sunnu
„MÉR finnast þessi ferða-
mál öll standa á tímamót-
um nú. Það hafa orðið
miklar breytingar, sér-
staklega á þessu ári og
mér finnst það liggja á
borðinu, að það verði að
stokka upp og endurskipu-
leggja öll þessi mál. Þessi
samkeppni er komin út í
öfgar. Eg hef hugleitt það
í nokkurn tíma að draga
mig í hlé á þessum vett-
vangi og nú læt ég verða af
því,“ sagði Guðni Þórðar-
son í Sunnu í samtali við
Mbl. í gær, en urr. þessa
helgi lætur hann af störf-
um sem forstjóri ferða-
skrifstofunnar Sunnu.
„Sunna heldur áfram," sagði
Guðni. „Seglin verða eitthvað
dregin saman og starfsemin end-
urskipulögð. En sama starfsfólkið
mun halda áfram og mínir
starfsmenn taka við af mér.“
Guðni hefur starfað að ferða-
málum í 22 ár. Hvað tekur nú við?
“Það er alveg óráðið, þegar til
lengri tíma er litið," svarar hann.
„Ég á jörð í Borgarfirði sem hefur
verið í eign ættarinnar í 100 ár, og
gæti vel hugsað mér að sinna
henni eitthvað meðan ég er að
hugsa málið. Það er alltaf hægt að
fá eitthvað að gera.“
Borg í Grímsnesi á þriðjudagskvöld:
Flóttafólkið væntanlegt
til íslands í september
Rauði krossinn undirbýr móttökur
RAUÐI KROSS íslands undirbýr
nú móttöku flóttamanna frá
Vietnam. en ríkisstjórnin fól RKÍ
að undirbúa og annast móttöku
þeirra. Hefur þegar verið undir-
búin framkvæmdaáætlun vegna
komu þeirra og var sr. Sigurður
H. Guðmundsson skipaður full-
trúi stjórnar RKÍ til umsjónar
þessu máli og Björn Þórleifsson
deildarstjóri RKÍ framkvæmda-
stjóri flóttamannahjálparinnar.
Danski rauði krossinn og flótta-
mannahjálpin danska hafa boðið
aðstoð sína og mun Sigurður
Guðmundsson fara í næstu viku
til að kynna sér hvernig staðið
hefur verið að móttöku flóttafólks
þar í landi og semja við þessa
aðila um námskeiðahald hérlendis
fyrir þá sem á einhvern hátt taka
þátt í starfinu hér. Þá hefur stjórn
RKÍ samþykkt drög að skilmálum
varðandi komu fólksins en þar er
m.a. farið fram á að hópurinn
verði eins konar þversnið úr þjóð-
félaginu og verði um heilar fjöl-
skyldur að ræða og eiga aldur,
fötlun eða sjúkdómar ekki að vera
til hindrunar.
I lok ágúst munu síðan tveir
fulltrúar RKÍ fara til Malaysíu
þar sem ísland verður kynnt í
flóttamannabúðum og fulltrúarnir
velja úr hópi þeirra er áhuga hafa
á að fara til íslands. Verður
flóttafólkinu komið fyrir á einum
stað þegar það kemur hingað og
eftir nokkra fræðslu hugað að
framtíðarbúsetu og e.t.v. endur-
hæfingu vegna framtíðarstarfa
þess hér.
Björn Þórleifsson kvaðst búast
við að flóttafólkið myndi því koma
til íslands um miðjan september.
Straumsvík:
meirihluta Alþingis til 3,5 millj-
arða lántöku vegna útflutnings-
uppbóta til bænda á sl. vori.
Flestir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins stóðu að þeirri af-
greiðslu. Þess vegna má búast
við, að marga fýsi að kynnast
viðhorfum formanns Sjálfstæð-
isflokksins til þessara mála.
Steinþór Gestsson, sem er frum-
mælandi á fundinum ásamt Geir
Hreinsibúnaður-
inn reyndist vel
FYRSTI áfangi hins fullkomna
hreinsibúnaðar í Álverinu í
Straumsvík hefur verið í notkun
um tveggja mánaða skeið og
hefur reynzt vel.
Að sögn Ragnars Halldórs-
sonar, forstjóra Isals, var hreinsi-
búnaður fyrir fyrstu 40 kerin
komin í endanlegt horf í maí s.l.
Þau ker eru alveg lokuð, þeim
miðjuþjónað og gasið látið fara í
gegnum hreinsistöð. Er nú ekki
um mengun að ræða frá þessum 40
kerjum hvorki í sjálfum ker-
skálanum né í andrúmsloftinu. Þá
er þess að geta, að búnaðurinn var
tölvutengdur í síðustu viku en
hreinsibúnaðurinn i Straumsvík
verður tölvustýrður.
Ragnar Halldórsson sagði, að
eins og alltaf þegar væri um nýjan
útbúnað að ræða hefði ýmislegt
komið í ljós sem betur mætti fara
og myndu tæknimenn fyrirtækis-
ins fikra sig áfram smátt og
smátt.
Áætlað er að hreinsibúnaður
verði kominn á öll ker í skála tvö á
næsta ári og búnaður verði
kominn á ker í skála eitt og þar
með alla verksmiðjuna í árslok
1981.
Prestvígsla í Kristskirkju
Ágúst K. Eyjólfsson var í gær vígður til prests í Kristskirkju, og
er hann þar með orðinn annar maðurinn sem vígist til
prestsstarfa fyrir kaþólsku kirkjuna frá siðaskiptum hér á landi
árið 1550. Áður var séra Hákon Loftsson vígður til prests í
Kristskirkju árið 1947. í dag verður þess sfðan minnst með
hátíðarguðsþjónustu í Kristskirkju, að fimmtíu ár eru liðin síðan
kirkjan var vígð. Hefst athöfnin klukkan 10.30 árdegis og syngur
biskup kaþólskra, dr. Hinrik Frehen, messuna.
„ Allt fór í vitleysu og upplausn
þegar pallurinn brotnaði”
-- sagði Halldóra B jörk fulltrúi ís-
lands í sögulegri Miss Universkeppni
„ÉG STÓÐ vinstra megin við
pallinn og var töluvert frá þeim
stað sem brotnaði niður. Ég var
ekkert að flýta mér að komast að
Miss Universe vegna þess að ég
vissi að ég gæti óskað henni til
hamingju á eftir. Þó nokkrir
íslendingar voru í salnum og ég
var einmitt að veifa þeim þegar
ósköpin dundu yfir,“ sagði Ilall-
dóra Björk Jónsdóttir fulltrúi
íslands í Miss Universe-keppninni
í Ástralíu, en frá þessu atviki var
nokkuð sagt í Mbl. í gær. „Það fór
allt í upplausn og vitleysu og
ringlureið eins og geta má nærri.
Stúlkurnar sem duttu niður í
gryfjuna slösuðust að vísu ekki
alvarlega, en þær mörðust og
skrámuðust og flíkur rifnuðu og
margar stúlknanna fengu snert af
taugaáfalli. Ég held ekki að Miss
Universe hafi orðið fyrir neinu
hnjaski sjálf og menn þustu strax
til hennar að bjarga henni í burtu.
Ungfrú Skotland sem hafði dottið
niður rétti fram höndina eftir
hjálp og þurfti að kalla margsinn-
is áður en henni var sinnt,“ sagði
Halldóra Björk.
„Annars er mikil óánægja með
niðurstöðu dómenda og öllum ber
saman um að það sé ekkert réttlæti
í því að hún skyldi kosin. Ungfrú
Bermuda hafði verið talin langlík-
legust. Menn tala hér um að dómur-
um hafi verið mútað. Miss Universe
sem er frá Venezuela kom hingað í
einkaþotu með foreldrum sínum og
hefur allan tímann reynt að ota sér
Halldóra Björk Jónsdóttir.
og pota. En hún er köld í framkomu
og þykir ekkert sérstök í útliti, svo
að flestum ber saman um að hér
hafi peningar verið aflið sem úrslit-
um réð.“
Halldóra Björk sagði að fyrir sig
hefði þetta verið mikið ævintýri, en
hún væri fegin að þessu væri lokið
og hún hlakkaði mjög til að koma
heim, væntanlega á þriðjudaginn
kemur.
Geir Hallgrímsson og Steinþór Gestsson
á almennum fundi um landbúnaðarmál
Sjálístæðisfélögin í Ár-
nessýslu efna til almenns
fundar um landbúnaðar-
mál að Borg í Grímsnesi
n.k. þriðjudag 24. júlí og
hefst fundurinn kl. 21.
Fundurinn er öllum op-
inn, hvar í flokki, sem
þeir standa. Frummæl-
endur verða þeir Geir
Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og
Steinþór Gestsson, fyrrv.,
alþingismaður. Að lokn-
um framsöguræðum
verða fyrirspurnir og al-
mennar umræður. Bænd-
ur og áhugamenn um
landbúnaðarmál í Ár-
nessýslu og nærliggjandi
byggðum eru hvattir til
að fjölmenna á þennan
fund.
Landbúnaðarmálin hafa verið
mjög í brennidepli í vor og
sumar, ekki sízt vegna afstöðu
Hallgrímssyni, á sæti í nefnd
þeirri, sem landbúnaðarráðherra
skipaði í sumar til þess að fjalla
um þann vanda sem steðjar að
bændum vegna harðinda í vor og
er því gjörkunnugur þeim
vandamálum, sem leitt hafa af
vorharðindum, en hann hefur
um langt árabil verið einn af
helztu forystumönnum bænda og
talsmönnum landbúnaðarins í
Sjálfstæðisflokknum.