Morgunblaðið - 22.07.1979, Side 15

Morgunblaðið - 22.07.1979, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1979 15 Húsfriðun á ísafirði FJÖGUR hús í Neðsta- kaupstað á Ísaíirði haía verið friðlýst og hefur að undanförnu verið unnið að því að verja þau skemmd- um. Húsafriðunarnefnd ísafjarðar hefur séð um framkvæmdir og bæjar- sjóður langt fram talsvert fé til framkvæmdanna ásamt Húsafriðunarsjóði, sem kostað hefur vinnu arkitekts. Jón Páll Halldórsson, sem sæti á í húsafriðunarnefndinni ásamt Gunnari Jónssyni og Guðmundi Sveinssyni. sagði í samtali við Mbl. að lokið væri við að verja húsin skemmdum og yrði með haustinu farið að huga nokkuð að endurnýjun innanstokks. Sagði hann að húsin hefðu öll verið byggð á fyrri hluta 18. aldar, en þau eru Faktorshúsið, Turnhúsið, Krambúðin og Tjöru- húsið. Jón Páll sagði öll þessi hús tengjast þeirri saltfiskvinnslu er fram fór á ísafirði um þær mundir og væri ráðgert að safna áhöldum og tækjum frá þeim tíma og varðveita á þessu svæði, en að undanförnu hefur verið unnið að niðurrifi gamals íshúss sem þarna var. Húsin fjögur í Neðstakaupstað, sem friðlýst eru og verða endurnýjuð smám saman á næstunni. Danskur ríkisborgari dæmdur í Póllandi Varsjá 20. júlí Rcuter TALSMAÐUR danska sendiráðsins í Varsjá greindi frá því í kvöld, að pólskur dómstóll hefði dæmt danskan ríkisborg- ara, Sylwester Pucek, sem er Pólverji að þjóðerni, í þriggja og hálfs árs fangelsi. Hann var fund- inn sekur um að hafa stundað njósnir í þágu Danmerkur og Bandaríkjanna. I niðurstöðum dómsins sagði, að á árunum 1964 til 1977 hefði Pucek komið pólitískum og efnahags- legum upplýsingum til danskra og bandarískra leyniþjónustumanna. Vægasta refsing fyrir slíkt er fimm ára fangelsi, en Pucek var ekki talinn fullkomlega ábyrgur gerða sinna og því var dómurinn mildari að sögn sendiráðsins. Pucek baðst hælis í Danmörku 1964 er hann var þar á keppnisferð í glímu. Gamla fshúsið hefur nú verið fjarlægt og verður umhverfið síðan snyrt og er ráðgert að húsin fjögur minni á saltfisktímann nsældir Skrýplanna eru sífellt að aukast og eru þeir orðnir góðir vinir í haust koma út hjá Iðunni strumpugóðar teiknimynda- sögur um skrýplana. Þeir heita Strumpar í bókunum. Haraldur ( Skrýplalandi er plata fyrir öllum aldri. Og nú fást litlu plast skrýplarnir á bensín- stöðvum skrýpladag m f mn i A plötunni Haraidur í Haraidar og skrýplanna á skemmtilegan hátt •wBiocwr lif Hafnarstrsetj 5 s. 28155 OLÍUVERZLUN ISLANDS H.F.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.