Morgunblaðið - 22.07.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.07.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ1979 29 II hafa verulegt gagn og gaman af tækjum sínum.“ Sæþór sagði ennfremur að Toshiba myndsegulböndin hefðu nær eingöngu verið seld um borð í skip, enn sem komið er, en nú er um ár síðan þau voru fyrst fáanleg á íslandi. Sagði hann að einstakl- ingar væru almennt ekki farnir að fjárfesta í slíkum tækjum, því óneitanlega væru þau nokkuð dýr. „Ég á ekki von á því að verðið á myndsegulbandstækjum eigi eftir að lækka það mikið í framtíðinni, að þau geti orðið almenningseign, allavega ekki eins og sjónvörpin," sagði Sæþór. Sanyo — Gunnar Asgeirsson Sanyo myndsegulbandstækin virðast vera þau ódýrustu á mark- aðnum hérlendis, en þau kosta ný 781 þúsund krónur. Tækin eru framleidd eftir Betamax kerfinu og geta tekið upp efni úr sjónvarp- inu, allt að þrjá daga fram í tímann. Hámarksspólulengd í Sanyo myndsegulbandstækjunum er þrjár klukkustundir, en með hverju seldu tæki fylgir ein óátek- in klukkutíma spóla. Verðið á óáteknu spólunum fer eftir lengd þeirra og er á bilinu 15 þúsund upp í rúm 26 þúsund. Að sögn sölumanns hjá Gunnari Asgeirssyni eru Sanyo myndseg- ulbandstækin búin að vera um hálft ár á boðstólum hérlendis og enn sem komið er eru þau lítið keypt af einstaklingum. Fyrst og fremst eru það fyrirtæki í sam- bandi við sjávarútveg sem slík tæki kaupa til notkunar í fiski- skipum en einnig ýmsar stofnanir og félög. Taldi hann að notkunin hérlend- is miðaði fyrst og fremst við það að fresta sjónvarpsdagskránni og eins að geta horft á sama efnið aftur og aftur. Sagði hann að án efa yrði almenningur kominn með slík tæki inn á heimili sín eftir einhvern tíma, því spólukostnaður ætti eftir að minnka næstu árin og eins myndi framboð af áteknu efni aukast. Nordmende — Radíóbúðin Nú eru liðin nokkur ár frá því að fyrstu Nordmende myndsegul- bandstækin voru flutt hingað til lands og að sögn Halldórs Laxdal jr. sölumanns í Radíóbúðinni hefur sala á slíkum tækjum aukist mjög á síðustu mánuðum, en þau kosta nú 999.950 krónur. Nordmende myndsegulbands- tækin eru framleidd samkvæmt VHS kerfi og hægt er að fá tæki sem stilla má þannig að þau taka upp sjónvarpsefni allt að 8 daga fram í tímann. Þrenns konar spólur eru fáanlegar í Nordmende Sharp — Karnabær Karnabæ sagði að þau myndsegul- bandstæki, sem nú væru á markaðnum hérlendis, hefðu þrjú mismunandi kerfi og hver héldi sínu kerfi á lofti sem því besta. „Sharp myndsegulbandstækin eru japönsk og hafa VHS kerfi, en það virðist vera það kerfi, sem á framtíðina fyrir sér, því það eru svo margir framleiðendur farnir að framleiða myndsegulbönd sam- kvæmt því kerfi," sagði Jón. „Á Sharp tækjunum er hægt að taka upp efni eða spila stanslaust í þrjá klukkutíma. Hægt er að velja sér sjónvarpsefni viku fram í tímann og láta síðan tækið sjá um að taka það upp, ef fjölskyldan þarf t.d. að skreppa eitthvað burt. I tækinu er klukka, sem gengur fyrir sérstakri rafhlöðu, þannig að þótt rafmagnið fari af raskast klukkan ekkert, og tækið sér eftir sem áður um að taka upp sjónvarpsefni á réttum tíma.“ „Á Sharp myndsegulbands- tækjunum er fleiri en ein hraða- stilling og auk þess sem hægt er að sýna myndina með venjulegum hraða, er hægt að tvöfalda hrað- ann. Á sama hátt er hægt að minnka hraðann um helming til þess að sýna myndina hægt og eins er hægt að stöðva myndina ef viðkomandi vill skoða hana betur," sagði Jón. „Einnig má geta þess að Sharp tækin eru fjarstýrð að því leyti að fjarstýringin er tengd sjálfu tækinu með sex metra langri snúru, þannig að ekki þarf að standa upp, þegar breyta á um stillingu á tækinu,“ bætti Jón við. „Sharp myndsegulbandstækið hefur líka þann kost að ef t.d. fleiri en einn sjónvarpsþáttur er á sömu spólunni, getur tækið sjálft fundið hvar seinni þátturinn byrjar. Fólk losnar þá við að þurfa að spóla fram og aftur 1 leit að réttum stað. Ennfremur segir tækið til um það hvað mikið er eftir á spólunni, í mínútum, þegar hún er spiluð og er það mjög hentugt." Að sögn Jóns fylgir ein óátekin spóla með Sharp tækinu þegar það er keypt. „Við munum sennilega ekki vera með mikið af spólum með áteknu efni á lager, en við getum útvegað þær með lítilli fyrirhöfn,“ sagði Jón. Sjánæstusíðu myndsegulböndin, eins, tveggja og þriggja tíma spólur og kosta þær frá 15 þúsund krónum í 29 þúsund krónur. Auk þess eru þeir í Radíó- búðinni nú að koma upp safni af alls kyns myndaefni á myndsegul- bandsspólum, sem þeir ætla síðan að leigja út til fólks. Nú sem stendur eru þeir aðallega með tónlistarþætti og bíómyndir, en ætlunin er að bæta alls kyns fræðsluþáttum í safnið svo eitt- hvað sé nefnt. „Þessa þjónustu geta allir not- fært sér, sem eiga myndsegul- bandstæki er starfa samkvæmt VHS kerfi," sagði Halldórs. „Að vísu ganga þeir fyrir, sem eiga Nordmende tæki, en fram til þessa höfum við einnig getað sinnt öðrum, sem óskað hafa eftir því að fá leigðar spólur." Aðspurður um það hvað kostaði að fá leigða átekna spólu sagði Halldór að þeir hefðu miðað við 200 krónur á sólarhring, en þó væri sú tala nokkuð sveigjanleg, sérstaklega þegar lánað væri út á land. „VHS kerfið virðist vera vinsæl- asta kerfið í myndsegulböndum í Ilalldór Laxdal sagði að töluvert hefði selst af Nordmendemyndsegulbandstæjunum hérlendis. Ljówm.: Kristján. Hægt er að fá fjarstýringu með nýja Sharp-myndseguibandstækinu. Kenichi Takefusa virðir fyrir sér Sony-myndsegulbandstækið. Ljósm.: Kristjin Hjá Karnabæ fengust þær upp- lýsingar að á næstunni ættu þeir von á nýju og mjög fullkomnu myndsegulbandstæki frá Sharp. Jón Þ. Sveinbjörnsson hjá dag og er það kerfi í mikilli uppsiglingu. Innan skamms eru væntanlegar á markað spólur, sem duga allt að 6 klukkutíma, og verða þær eflaust vinsælar," sagði Halldór. „Ég er þeirrar skoðunar að útbreiðsla myndsegulbanda eigi eftir að verða eins almenn og sjónvarpa nú,“ bætti Halldór við. „Fólk vill eiga möguleika á sinni eigin dagskrá, en ekki vera bundið við mjög takmarkað^n út- sendingartíma sjónvarpsins. Að minnsta kosti hafa þessi tæki fengið mun betri undirtektir, en við þorðum að vona í fyrstu."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.