Morgunblaðið - 22.07.1979, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ1979
37
sjálfsögðu vegna starfs hans sem
endurskoðanda Eimskipafélags-
ins, er hann var kosinn til á
aðalfundi félagsins árið 1962.
Gegndi hann því trúnaðarstarfi til
æviloka eða í rúm 17 ár.
Sveinbirni voru áskapaðar
góðar gáfur, og svo glöggur var
hann og nákvæmur í starfi, að orð
var á haft og til mikillar fyrir-
myndar. Oft komu í ljós einstæðir
hæfileikar hans til að skyggnast
inn í hinar flóknustu reiknings-
færslur og fátt fór framhjá glögg-
um augum hans. Var sem honum
virtist margt augljóst þótt það í
fljótu bragði vefðist fyrir okkur
hinum.
Nú þegar Sveinbjörn er horfinn
úr hópnum, minnumst við félagar
hans á skrifstofu Eimskips fyrst
og síðast samstarfsins við hann og
þökkum honum það. Margir rifja
upp leiðbeiningar, sem hann gaf
þeim af ljúfmennsku og hógværð.
En því verður ekki heldur gleymt,
að hann krafðist þess að verk
væru unnin vel og undanbragða-
laust. Frá því sem rétt var mátti
aldrei hvika.
Víst er um það, að gjarnan var
álits leitað til Sveinbjörns, þegar
nokkuð lá við og orkað gat
tvímælis hvernig best mætti fara,
svo sem við uppsetningu
reikningsskila eða skýringar á
lögum og reglum. Brást ekki að
úrskurður hans reyndist öruggur
og að hann rataði réttu leiðina.
Þess vegna ávann hann sér óbrigð-
ult traust okkar allra.
Fyrir þetta minnumst við
Sveinbjörns með þakklátum huga.
Við hefðum kosið lengra samstarf
með honum, en hlítum möglunar-
laust þeim dómi, sem sá kveður
upp, er örlögum allra ræður. Og
honum felum við framtíð þessa
hugstæða samferðamanns og
starfsbróður, nú að loknu dags-
verki.
Blessuð veri minning Svein-
björns Þorbjörnssonar.
.S.Þ.
Vísnasöngur
á Borginni
VÍSNAVINIR haía sent Morgun-
blaðinu eftirfarandi:
N.k. þriðjudagskvöld kl. 8.30
ætla vísnavinir að halda vínsa-
kvöld að Hótel Borg. Þetta verður
3. vísnakvöldið á Borginni í sumar,
en hin tvö hafa tekist með miklum
ágætum og verið vel sótt. Þessar
samkomur eru öllum opnar og fólk
er hvatt til að leggja sitt af
mörkum, ef það á lög eða ljóð í
pokahorninu, sem það getur
sungið, kveðið, eða lesið upp.
Okkur finnst alltaf mjög gaman
að sjá ný andlit og heyra nýjar
raddir.
Hlaut styrk
við Edinborg-
arháskóla
Sameindalíffræðisamtök Evr-
ópu (European Molecular Biology
Organization, EMBO) hafa veitt
Ólafi S. Andréssyni, líffræðingi,
styrk til rannsókna við Edinborg-
arháskóla frá hausti komanda.
Styrkurinn er til eins árs. Ólafur
Iauk B.S.-prófi í líffræði frá Há-
skóla íslands árið 1974 með ágæt-
iseinkunn og hefur stundað rann-
sóknir og framhaidsnám í iífefna-
fræði og sameindaerfðafræði við
háskólann í Wisconsin frá hausti
1975. Ólafur mun væntanlega
ljúka doktorsprófi þar í haust og
halda þá til frekari rannsókna-
starfa í Edinborg.
AlKil.VslNCASÍMINN KR:
2248D
Afmœlis- og
minnmgargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast
á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra
daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með
góðu línubili.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar,
tengdafööur, afa og langafa
ÞORLEIFS SIGURÐSSONAR,
frá Nesi, Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Ovalarheimilinu Höföa og A-deild
Sjúkrahúsinu Akranesi.
Agatha Þorleifsdóttir,
Ingvar Þorleifsson,
Anna Þorleifsdóttir,
Siguröur Þorleifsson,
Steinunn Þorleifsdóttir,
Bergman Þorleifsson,
Ingunn Þorleifsdóttir,
Sæunn Þorleifsdóttir,
Valdís Ingimundardóttir,
Guömundur Sigurösson,
Heba Stefánsdóttir,
Gíslí Ellertsson,
Auöur Sigurðardóttir,
Gísli Elíasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökk sé öllum þeim er minntust
INGIBJARGAR í. BRIEM
frá Melstaó,
sem lést 7. júlí s.l.
Fjölskyldan.
+
Ástkær eiginmaöur minn og faöir,
MAGNÚS EINARSSON,
skipstjóri,
Álftamýri 12,
veröur jarösunginn frá Kristskirkju Landakoti, miövikudaginn 25.
júlí kl. 10.30 árdegis.
Blóm og kransar afþökkuö en þeim sem vildu minnast hins látna
er vinsamlegast bent á aö láta Kristskirkju njóta þess.
Svanhildur Jónsdóttir,
Einar Magnússon.
+
SIGURÐUR MAGNÚSSON,
matsveinn, Ystabæ 1, Reykjavík,
lést 10. júlí s.l. í Landakotsspítala.
Bálför hans hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Fyrir hönd vandamanna.
Alma Siguröardóttir,
Sigríöur Siguröardóttir,
Hafsteínn Þorgeirsson,
Gunnhildur Snorradóttir,
Pálína Snorradóttir.
Utsölu■
markaöur
Stórkostlegur útsölumarkað-
ur hefst í Iðnaðarmannahús-
inu mánudaginn 23. júlí.
Á boðstólum verður geysilegt
úrval af nýlegum og eldri
vörum Verðlistans.
Nú geta allir gert reyfarakaup.
Allt sérstaklega ódýrt.
Markaðurinn er í lönaðar-
mannahúsinu.
Flest á hálfvirði
og ódýrara.
Athugið lokað laugardaga.
Kápur
kjólar
jakkar
síðbuxur
mussur
blússur
pils
barna-
fatnaður
o.m.fl.
Fata-
markaður
ársins
stendur
aðeins í
tvær vikur.