Morgunblaðið - 22.07.1979, Side 39

Morgunblaðið - 22.07.1979, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ1979 39 fólk f fréttum málsins voru ráðnar barst boðskapur hans úr Neskaup- stað austur. „Neskaupstaður hefur staðið af sér vonda ráðherra og vondar ríkis- stjórnir fyrr, og gerir það áfram,“ sagði Lúðvík Jóseps- son, formaður Alþýðubanda- lagsins, títtnefndur yfirráð- herra og stundum kallaður „guðfaðir" ríkisstjórnarinn- ar. Þann dag sem Alþýðu- bandalagsráðherrarnir sam- þykktu „vitleysuna" var ekki mögulegt fyrir blaðamenn að ná þeim í síma, en gárung- „Stöndum afokkur vonda ráðherra og ríkisstjórnir ” ÞAÐ mál sem mest reyndi á stjórnarstoðirnar í vikunni var ekki olíuverðsvandinn, heldur togarakaupamálið svonefnda. Aðalstjarna málsins var þó ekki svo mjög í sviðsljósinu, en er lyktir arnir sögðu þá hafa hímt út í horni einhvers staðar í borg- inni í tríói eftir að að það fréttist að „gamli maðurinn" hefði lagt upp frá Neskaup- stað þá síðdegis til Reykja- víkur. Friðrik í fiskvinnslu áHnífsdal EUertorðinn togarakarl ÞÁ ER Ellert kominn til sjós eins og sagt er, en alþingis- maðurinn vildi skola af sér mollu hins pólitíska lífs og réð sig á einn af Búr-togur- unum fyrir skömmu, Bjarna penediktsson. Ku Ellert láta vel af sjómennskunni, enda vanur að standa í pusi póli- tíkurinnar. Baldur ogKonni ífullufjöri Baldur Georgs og Konni eru komn- ir á skrið á ný í skemmtistússinu, en við rákumst á þá félaga á Skólavörðustígnum fyrir skömmu. Þeir félagar eru nú að undirbúa efni fyrir plötu og sitthvað fyrir skemmtiiðnaðinn. Þeir félagar hafa nýlega verið að skemmta víða úti á landi, sérstaklega hjá börnum og má nefna t.d. Grindavík og Vestfirði. Þá munu þeir vera með margar nýjungar á prjónunum fyrir haustið, en Baldur sagðist ekkert vilja tala um það, benti bara á Konna í síma einn einn átta sjö tveir. Ljósm. Kristján. FRIÐRIK Sóphusson alþingis- maður starfar nú í sumar sem framkvæmdasstjóri Hraðfrysti- hússins í Hnífsdal þar sem hann leysir framkvæmdastjórann af. Við hringdum í Friðrik og lét hann vel af starfinu, kvað vinnu mikla og að jafnaði 50—60 manns í starfi. „Það vantar í rauninni fólk í vinnu, því þótt fólkið hér sé mjög duglegt þá er vinnan of mikil, en annars geng- ur fiskvinnslan vel og það er skemmtilegt að taka þátt í þessu starfi hjá vel reknu fyrirtæki," sagði Friðrik. María með tízkumynda- stofu íNew York María Guðmundsdóttir sýningarstúlka hefur nú hafið rekstur eigin ljósmyndafyrirtækis í New York, en María er hætt að starfa sem sýningarstúlka fyrir nokkru. í fyrirtæki hennar sem heitir Studio Mulé starfa nokkrir ljósmyndarar og auk þess ljósmyndar hún sjálf. í Studió Mulé eru teknar alls kyns auglýsingamyndir með fyrirsætum. María kemur þó oft heim til íslands og þessi mynd var tekin af henni fyrir skömmu ásamt Ragnheiði móður hennar. Arnaldur Arnarson gítarleikari hefur að undarförnu stundað tónlistarnám í Englandi í Royal Northern College of Music í Manchester. Hann hélt fyrir skömmu gítartónleika í Reykjavík þar sem hann lék léttklassíska gítartónlist frá Englandi, Japan, Spáni, Suður-Ameríku og víðar. Arnaldur starfar hér heima í sumar við gítarkennslu en nánari úpplýsing- ar er ugglaust unnt að fá í síma tveir fimmtíu og tveir fjörtíu og einn. Arnaldur heldur utan til frekara náms í haust. Mörgjárn íeldinum hjá Sigríði Ellu Leikurheims- verk á gítarinn Hvað kempurnar á myndinni eru að ræða um skal látið ósagt, en Tk/f'f* JM JM allavega er þetta hin knálegasta mynd úr Vesturbæjarsundlauginni KflP//// þar sem þeir ræða málin Sigurður Líndal prófessor, Guðmundur Jónsson óperusöngvari og dr. Sturla Friðriksson. Ljósm.: Kristján. SIGRÍÐUR Ella Magnúsdóttir söngkona er með mörg járn í eldinum að vanda. Hún er nýkomin frá Norðfirði þar sem hún söng fyrir heimamenn með sænskri hljómsveit og nú er hún á förum til Brctlands til þess að syngja fyrir umboðsmenn. Þá er hún byrjuð að undirbúa sig fyrir aðalhlutverk í óperu í Þjóðleikhúsinu í vetur, Orfeus og Evredís eftir Gluck. Þá er Sigríður Ella að undirbúa tón- listarverkefni fyrir barnaárið og síðast en ekki sízt á hún sjálf von á barni í haust. Sigríður Ella mun syngja hlutverk Or- feusar, karlhlutverk, og það kann að vera að það verði í fyrsta skipti sungið af söngv- ara sem verður með barn á brjósti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.