Morgunblaðið - 09.10.1979, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBKR 1979
35
Sólveig Jóhanmdótt-
ir—Minningarorð
„Hve undurgott er þreyttu höfði að halla
að hjarta því,
er slær af kærleik alltaf fyrir alla.
Hvert angurský,
það svífur burt og svipur liðins tíma
ei særir neitt.
Því lífiö flettir blaði í bókum sinum
á blaðsíðu eitt.“
Hugrún.
Hún Veiga á Leifsgötunni fletti
síðasta blaðinu í lífsbók sinni hér
á jörð 28. september s.l. — Hið
nýja líf, sem hún trúði að biði
hennar á hærra sviði byrjar nú á
blaðsíðu eitt.
Veiga á Leifsgötunni — þessi
setning hafði sérstakan hljómblæ
í munni þeirra sem kynntust
henni og áttu með henni lengri eða
skemmri samleið.
í barmi hannar sló hjarta, sem
var ríkt af kærleika og á andliti
hennar ljómaði bros, sem yljaði
hverjum þeim sem baðaði sig í
geislum þess.
Líklega er það þetta heillandi
Sólveigarbros, sem er mér minnis-
stæðast frá því að ég kom fyrst á
heimili hennar.
Eg veit að nú eru daprir dagar
hjá vini mínum Páli Hallbjarnar-
syni, sem aldinn að árum er
einhentur orðinn — en hann
verður þó aldrei einn, minning
Sólveigar, og faðmur fjðlskyld-
unnar fylgir honum að sólarfalli,
þangað sem hún samkvæmt trú
þeirra beggja bíður hans í ljóma
upprisunnar.
Sólveig Jóhannsdóttir fæddist á
Borðeyri í Strandasýslu 17. maí
1898. Foreldrar hennar voru Jó-
hann Hallgrímsson frá Laxárdal í
Hrútafirði og Guðríður Guð-
mundsdóttir frá Ljárskógum í
Dölum vestra. Á Borðeyri stund-
aði Hallgrímur verslunarstörf.
Sólveig fluttist með foreldrum
sínum til Reykjavíkur og voru þau
búsett þar nokkur ár. Þann tíma
má segja að hún hafi átt annað
heimili hjá frændfólkinu í Ljár-
skógum, enda ættartengslin náin.
Því húsbóndinn þar, Jón Guð-
mundsson var móðurbróðir henn-
ar og húsfreyjan, Anna Hall-
grímsdóttir föðursystir. í Ljár-
skógum voru mörg systkini á
sama reki og Sólveig. Þar átti hún
ánægjulega samleið með æsku-
glöðum frænda- og vinahóp. Þau
vináttubönd héldust meðan
lífsþræðir lágu saman.
Árið 1915 fluttust þau Gruðríð-
ur og Jóhann til Súgandafjarðar,
þar sem hann var starfsmaður við
verslun Jóns Grímssonar kaup-
manns á Súgandafirði. Þarna beið
Sólveigar nýtt umhverfi og ný
viðfangsefni.
Byggðin, sem nú var orðin
hennar heima lá utan alfaraleiðar
og erfitt um öll samskipti við
næstu granna. Þröngur fjörður
krýndur háreistum fjallahring.
Þar varð að horfa hátt til himin-
blámans, og leita lífsbjargar út i
víðáttu vesturhafsins. Ef til vill er
þessi náttúrumynd þess valdandi
bæði fyrr og nú, að samhugur og
samstarf hefur verið blessun Súg-
firskrar byggðar, fjöllin verið
fólkinu skjól en aldrei þrengt þess
hugarheim.
Á veturna var Sólveig á heimili
hjá Jóni Grímssyni kaupmanni og
konu hans, en á sumrin hélt hún
náður uppteknum hætti og dvald-
ist hjá vinum og frændsystkinum í
Ljárskógum.
Árið 1922, þann 22. júlí giftist
hún Páli Hallbjarnarsyni, sem þá
var ungur og ötull sjómaður á
Suðureyri, og hafa þau síðan átt
samleið í 57 ár. Þau eignuðust átta
börn, fjögur þeirra fæddust þar
vestra en fjögur í Reykjavík, en
þagnað fluttust þau hjón árið
1930. Eitt barna sinna misstu þau
— 12 ára telpu. Það var mikil sorg
en ekki ógæfa, sorgartárin þorna
— en ógæfusporin mást aldrei út.
Hér í Reykjavík hafa þau hjón
átt heimili í 49 ár, lengst af á
Leifsgötu 32 eða 44 ár.
Eftir að þau Sólveig og Páll
gengu í hjónaband, var hennar
starfsvettvangur eingöngu innan
veggja heimilisins. Að gera það
hlýtt og laðandi fyrir makann og
börnin var hennar æðsta markmið
í lífinu, enda hefur fjölskyldan átt
þar athvarf jafnt í blíðu og stríðu.
Um langt skeið var Páll Hall-
bjarnarson umsvifamikill kaup-
sýslumaður, sem þurfti mörgu að
sinna út á við. Gerð heimilisins
hvíldi því að stærri hlut á hús-
móðurinni.
Það er því nær hálfur fimmti
áratugur síðan ég fyrst kynntist
heimili þeirra Sólveigar og Páls og
á tímabili ævinnar eftir að ég
tengdist Ljárskógarfólkinu, var ég
þar tíður gestur, því eftir að
Sólveig var orðin húsfreyja, þá var
heimili hennar athvarf Ljárskóga-
systkinanna, hvenær sem þau
þurftu þess með. Þá var lífið
leikur og gleði á Leifsgötu 32.
Þeim lífsleik er nú lokið en
ljúfar minningar og hlýr andi
húsbændanna þar, Sólveigar og
Páls Hallbjarnarsonar vermir
þennan stað um ókomin ár, jafn-
vel eftir að þær uppistöður, sem
mölur og ryð fá grandað hafa
fyrnst og fallið. — Gengin spor
þeirra sem vel og lengi hafa lifað
mást ekki, jafnvel þótt öldur
tímans falli yfir sandinn.
Mér varð það fljótlega ljóst, hve
mikinn andlegan styrk Páll sótti
til broshlýju kærleiksríku kon-
unnar sinnar.
Það er sjálfsagt erfitt að full-
yrða neitt um einkalíf fólks fyrir
þá sem eru aðeins áhorfendur, en
mér sýnist allt benda til þess að
samfylgd þessara hjóna gegnum
lífið hafi verið hnökralítil óslitin
ástarsaga — ástarsaga, sem gott
er að hafa lifað og gert hefur
skuggafallið sem oftast hendir
léttbærara.
Hlýhugurinn sem streymndi frá
Sólveigu og heimili hennar náði
lengra en til þeirra sem næstir
stóðu. Þau ár sem við hjónin
bjuggum í Reykjavík gekk fjöl-
skylda okkar þar um garða eins og
heimafólk. Drengirnir okkar —
bræðurnir þrír, hafa frá bernsku
til fullorðinsára mætt þar ástúð
og vináttu. Þá vináttu þakka þeir
nú við leiðarlok. Hönd Sólveigar
sem strauk mjúklega um vanga og
vermdi kaldar hendur er horfin —
en hönd Páls er ennþá hlý. —
Lítill drengur, fjórði ættliður frá
föðursystur og móðurbróður Sól-
veigar Jóhannsdóttur, er einn
þeirra, sem ungur rataði leiðiná
heim á Leifsgötu 32 til Palla og
Veigu frænku.
í helgri bók — trúarbók á
heimili Sólvegiar og Páls segir
svo: „Sá sem tekur á móti litlu
barni í mínu nafni, hann tekur á
móti mér.“
Þannig tók hún Veiga á Leifs-
götunni á móti hverju barni sem
til hennar leitaði.
Við feðgarnir getum ekki í fáum
fátæklegum orðum tjáð þá þökk
sem við eigum að gjalda hinni
látnu heiðurskonu — en sé eilífðin
„náttlaus veraldar veröld," þá
skynjar andi hennar hug okkar
þar
— sem svífur yfir sigurhæðum
sólhlýr himinblær.
Þorst. Matthíasson.
Það snertir ávallt í hjartastað
þegar fregnast að einhver kær-
kominn sé dáinn. — Nú er Sólveig
dáin. — Frá því ég var barn þekkti
ég Sólu, eins og við kölluðum
hana. Við Eddi sonur hennar erum
jafnaldra og ég var heimagangur á
Leifsgötu 32 frá því ég man eftir
mér og fram undir tvítugt. Var
hún mér sem önnur mamma þessi
ár og taldi ekki eftir sér að annast
mig sem sitt barn. Ég man þær
stundir, þegar við Eddi vorum inni
að leika okkur með fyrirgangi og
ærslalátum eins og strákum er títt
— eða komum utan frá götunni,
óðum inn glorsoltnir og vildum fá
í svanginn. Öllu tók Sóla með
rósemi, brosti, klappaði okkur á
vangann og sagði: „Allt í lagi,
strákar mínir“ og ekki man ég til
þess að hún hafi nokkurn tíma
skammað okkur.
Nú þegar hugurinn leitar í
minningasjóðinn, man ég framar
öllu hve Sóla var glæsileg kona,
með mikið fallegt hár. En mest
var þó hennar innri fegurð, mildi
og hlýleiki, sem geislaði frá henni
hvar sem hún var. Hún gaf öllum
gleði með brosinu sínu. Nú brosir
hún hinum megin, hjá þeim, sem
jörðina skóp, og bíður þar eftir
okkur hinum, sem enn höfum hér
jarðvist.
Palla föðurbróður mínum,
frændum og frænkum, sendi ég
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Það sannast sem fyrr, að
enginn veit hvað átt hefur, fyrr en
misst hefur.
Sigurður Mar.
Elliot Gould í aðal-
hlutverki í Nýja bíói
Nýja bíó hefur hafið sýningar á
bandarisku gamanmyndinni
C.A.S.H. Framleiðandi er George
Barrie en leiksljóri er Ted Post.
Með aðalhlutverkin fara Elliot
Gould, Eddie Albert, Harry Guar-
dino, Godfrey Cambridge og Jenni-
fer O’Neill.
Efnisþráður C.A.S.H. er í stuttu
máli sá, að herinn í Utah er með
heilmiklar tilraunir með efnafræði-
leg vopn og er Dudley Frapper
(Elliot Gould) aðaltilraunadýr hjá
þeim. í gegnum árin hafa verið
gerðar á honum ólíklegustu tilraun-
ir og hafa þær ekki allar verið
þægilegar og er Dudley nú farinn
að missa hárið, heilsuna, næstum
því orðinn vitstola og alveg orðinn
getulaus. Dudley og konan, sem
hann elskar, Scottie, reyna allt sem
þeim dettur í hug til að Dudley
læknist af þessu getuleysi sínu, en
allt kemur fyrir ekki.
Kvöld eitt er Dudley er orðinn
vonlaus um bata hittir hann starfs-
bróður sinn og hafa rannsóknirnar
farið eins illa með hann og Dudley.
Þetta kvöld fremja þeir sitt fyrsta
rán af mörgum ótrúlegum og
hnittnum.
Elliot Gould leikur aðal-
hlutverkið í C.A.S.H. Hér er
hann ásamt Telly Savalas
(Kojak) í kvikmyndinni
Capricorn One.
Látiö oKkill'
veria
vaðninn
Ry óva r na r ská 1 i n n
Sigtum5 — Simi 19400
''m
y
U'/A
7
">A
vetrar-'M
skoðun
y
CHRYSLER
DODGE PLYMOUTH
SIMCA HORIZON
Nú er nauðsynlegt að láta yfirfara bílinn fyrir
veturinn, bæði til að tryggja notagildi hans í öllum
veðrum og koma í veg fyrir óþarfa
eldsneytisnotkun. Við bjóðum upp á
fyrirbyggjandi vetrarskoðun fyrir fast verð. Við
framkvæmum eftirtalin atriði:
3.
4.
1. vélarþvottur
2. rafgeymasambönd
athuguð
viftureim athuguð
rafgeymir og hleðsla
mæld
vél þjöppumæld
skipt um platínur
skipt um kerti
skipt um loftsíu
skipt um bensínsíu
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
vél stillt
kælikerfi þrýstiprófað
frostþol mælt
kupling yfirfarin
öll Ijós yfirfarin
aðalijós stillt
undirvagn athugaður
vökvi á höfuðdælu ath.
hemlar reyndir
rúöuþurrkur ath.
frostvari settur á
rúðsprautur
Innifalið efni:
kerti, platínur,
bensínsía, loftsía
og frostvari á
rúðusprautu.
pr. 4 cyl. vél kr. 29.845
pr. 6cyl. vél kr. 36.912
pr. 8 cyl. vel kr. 42.968