Morgunblaðið - 09.10.1979, Qupperneq 33
ffclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979
41
„Gracie
okkar”
er lútin
+ Þessi hressilega gamla
dama. brezka söngkonan
Gracie Fields, er nýlega látin
81 árs gömul suður á Capri,
sem var hennar annað föð-
urland. — Söngferill hennar
hófst er hún var barn að
aldri. Henni tókst að syngja
sig inn í hjörtu brezku þjóð-
arinnar í þess orðs beztu
merkingu. Og heimsfrægð
hlaut hún vissulega fyrir
söng sinn. Hún var öðluð og
bar titilinn samkvæmt því
Dame Gracie Fields. Þá hafði
Elízabeth drottningarmóðir
kallað hina aldurhnignu
söngkonu til konungshallar-
innar brezku snemma á
þessu ári. Þar var hún sæmd
einu æðsta heiðursmerki
Breta. — í fregninni af láti
hennar var þannig komizt að hennar minnst „sem hennar
orði, að á Bretlandi yrði Gracie okkar“.
Alihœttir
— og þó ekki
+ A ársþingi Alþjóðlega hnefa-
leikasambandsins, sem haldinn
var fyrir skömmu í Miami á
Florida, kom það fram, að
Muhammad Ali, margfaldur
heimsmeistari i þungavigt
hnefaleikara, hefði fengið
greiddar 500.000 dollara fyrir
að draga sig til baka úr box-
hringnum og keppninni um
heimsmeistaratitilinn. En um
leið má lesa í öðrum fréttum af
hinum sigursæla hnefaleika-
kappa, að hann hafi lofað að
mæta i hringinn í Chicagoborg
i næsta mánuði til að berjast
þar við eina hnefaleikamann-
inn, sem hann hefur barizt við
og ekki tekizt að sigra. Hann
heitir Kent Green. En hann og
Ali mættust i hringnum fyrir
21 ári er Ali var enn áhuga-
maður og tapaði hann þá fyrir
Green.
Það verður eftir um það bil
einn mánuð sem hnefaleika-
keppnin fer fram í Chicago.
Verður það 10 umferða keppni.
Það verur enginn sýningarleik-
ur það, drengir sagði umboðs-
maður Alis við blaðamenn.
Annar hvor fer í gólfið!
Sophia
Loren
kœrði
blaðið
+ ítalska kvikmyndaleikkon-
an Sophia Loren hefur kært
italskt vikublað í Rómarborg
fyrir að hafa skert rétt henn-
ar til einkalifs. — Þetta blað
sem heitir „Gente“ birti mynd
af leikkonunni þar sem hún lá
nakin í sólbaði. Hafði Ijós-
myndari blaðsins notað að-
dráttarlinsu við ljósmyndun-
ina. — Slíkt brýtur í bága við
lögin þar i landi. — Þau mæla
svo fyrir, að óheimilt sé að
nota ljósmyndavélar með að-
dráttarlinsu til þess að Ijós-
mynda fólk úr leyni á einka-
lóðum, eins og var i þetta
skipti.
Andljtsböð
Húöhreinsun únglingá — Litun
— Kvöldsnyrting — Handsnyrting
Dömur athugiö
Sérstakur afsláttur af
3ja skipta andlits-
nuddkúrum. ^
Qtyan 's/f GI^Í
jafnaði úrvalsvörur þegar um er að ræða plast
og járnfittings, ásamt flestu þvi sem pípulagn-
ingamenn vinna úr.
Hitt vita færri að við höfum nýverið gert
hagkvæma samninga um sölu á framleiðslu frá
BOCH í Belgíu og KLUDI í V-Þýskalandi.
Ef þú á annað borð vilt góða hluti á góðu
verði, höfum við lager af tækjum, sem þú ættir
að líta á nú þegar, svo sem:
Hvít salernistæki, sambyggð BOCH Kr. 69.700.-
Lituð salernistæki sambyggð BOCH Kr. 92.200.-
Blöndunartæki á böð KLUDI Kr. 21.700.-
Blöndunartæki i eldhús KLUDI Kr. 13.610.-
Blöndunartæki með þvottavélatengingu Kr. 34.700,-
Vatnsvirkinn hf.
Ármúla 21 sími 86 4 55
Sérverslun með vörur til pípulagna