Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 3 Kjartan Jóhannsson viðskiptaráðherra: Eldd hægt að aftur- kalla Barðamálið „ÞETTA Barðamál er komið svo langt, að því verður ekki aftur snúið“, sagði Kjartan Jóhannsson viðskiptaráðherra, er Mbl. spurði hann um málið í gær. „Fyrrverandi viðskiptaráðherra gaf út tilskyldar heimildir, enda þótt ríkisstjórnarheimild lægi ekki fyrir, eins og tilskilið er í lögum. En það er ekki nóg, að fyrrverandi viðskiptaráðherra hafi ekki farið að lögum í þessu tilviki. heldur gekk hann líka gegn þeirri stefnumótun að byggja upp innlendan skipasmíðaiðnað. En niðurstöður rannsóknar minnar á málinu eru þær, að ekki sé grundvöllur fyrir mig til að afturkalla heimildir af þessu tagi, þrátt fyrir aðdraganda málsins. Hins vegar verð ég að segja það, að í huga minum met ég það við þá Norðfirðinga, að þeir virðast hafa gengið tryggilega frá þvi, að gamli Barðinn fari úr landi. en á slíku virðist hafa verið misbrestur“. RJÚPAN KEMUR VÍÐA VIÐ — Þessa skemmtilcgu mynd tók fréttaritari Morgunblaftsins á Keflavikurflugvclli, Guðjón Sigurðs- son, fyrir utan flugstóðvarbygginguna fyrir skömmu. Þokkaleg r júpnaveiði frá upphafi veiðitíma „ÞÆR skýrslur sem við tókum af átta rjúpnaskyttum í upphafi rjúpnaveiðitimans verða innan skamms sendar saksóknara ríkis- ins tii frekari umfjöllunar,“ sagði Ásgeir Magnússon, fulltrúi sýslumanns í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu, í samtali við Mbl. í gær. „Málið tafðist nokkuð í meðför- um hér vegna þess að mikilla gagna þurfti að afla frá ýmsum aðilum," sagði Ásgeir ennfremur. Hann sagði, að ekki hefði komið til frekari skýrslutöku af veiði- mönnum enda hefðu bændur ekk- ert kvartað yfir rjúpnaveiði- mönnum að meintum ólöglegum veiðum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér í öðrum landshlutum mun rjúpna- Reknetaver- tíðinni lýkur á fímmtudag REKNETAVEIÐAR hafa verið bannaðar frá og með hádegi næst- komandi fimmtudag. I fréttatilkynningtr frá sjávarút- vegsráðuneytinu frá í gær segir, að þar sem afli reknetabáta nemi nú um 14.500 lestum afturkalli ráðu- neytið öll leyfi til reknetaveiða frá 12 á hádegi fimmtudaginn 8. nóv- - ember. Kvóti sá, sem ákveðinn var fyrir síldveiðar í reknet, var 15 þúsund lestir, en 20 þúsund lestir í hringnót. veiðin hafa gengið þokkalega það sem af er á flestum stöðum. Þó telja menn að heldur minna hafi veiðst en í meðal ári. Þá má geta þess að rjúpan er enn ekki komin í verzlanir í Reykjavík. Mbl. spurði viðskiptaráðherra, hvers vegna hann teldi sig ekki geta afturkallað heimildir forvera síns í embætti likt og Bragi Sigurjónsson iðnaðarráðherra hefði gert með leyfi Hjörleifs Guttormssonar fyrir Bessa- staðaárvirkjun. „ Á þessum málum er sá meginmunur, að Bessastaðaár- virkjun var mál innan ríkisgeirans og var auk þess ekki komið neitt áleiðis, þegar Bragi afturkallaði það, en Barðamálið snertir einstakling, eða fyrirtæki utan ríkisgeirans og er að heita frágengið, þegar ég loksins sem viðskiptaráðherra fæ fest hendur á því“. — Gaztu ekki fest hendur á því sem sjávarútvegsráðherra í fyrri ríkis- stjórn? „Ég leitaði eftir upplýsingum um máiið hjá þeim aðilum, sem málið hefði átt að fara um, en fékk hvergi neina staðfestingu á því, að málið væri komið til meðferðar eða af- greiðslu". — Hvað með fyrrverandi viðskipta- ráðherra? „Ég spurði hann aldrei persónulega um málið". — Hvers vegna? „Ég kunni hreinlega ekki við það, eins og málum var háttað". — En nú var gefin skrifleg heimild til skipakaupanna? „Það er rétt. Mér tókst hins vegar ekki að hafa upp á því bréfi fyrr en Svavar Gestsson var hættur sem viðskiptaráðherra. — En hvað með önnur skipakaup? „Ég komst að því að Svavar Gests- son hafði á elleftu stundu sem viðskiptaráðherra veitt útflutnings- leyfi fyrir þremur skipum, Gunnari og Snæfugl frá Reyðarfirði og Blika frá Húsavík. Nú er það svo, að innflutningur á skipum er frjáls, þannig að aðhaldi verður ekki beitt nema í gegn um lánastofnanir, eins og ég gerði í fyrri umferð Barðamálsins. Hins vegar hef ég séð ástæðu til þess nú að skrifa gjaldeyrisdeildinni og siglingamála- stjóra til að vekja athygli á þeim reglum, sem í gildi eru varðandi innflutning á skipum". — Sem eru? „Siglingamálastjóri verður að mæla með skipakaupunum og sam- kvæmt reglunum má hann ekki mæla með kaupum á skipum, sem eru eldri en tólf ára. Ég tel eðlilegt að gjaldeyrisdeildin gangi úr skugga um að tilskilin meðmæli liggi fyrir, ef til hennar er leitað varðandi gjaldeyris- yfirfærslu vegna skipakaupa". Hraktist um Mývatn í nærri tvo tíma: , ,Hékk á bor ðstokknum og stefndi út á vatnið” TUTTUGU og sjö ára starfsmaður Kisiliðjunnar við Mývatn varð fyrir þeirri óskemmtilegu lifsreynslu aðfararnótt mánudags að detta í Mývatn og dragast með báti sinum um vatnið í hátt á annan tima. Var hann kominn út að dælupramma til að ieysa starfsfélaga sinn af. Skrikaði honum fótur þegar hann steig uppúr bátnum og féll i vatnið, en stormurinn greip bátinn þegar hann hugðist vega sig upp i hann og hrakti frá prammanum. Ég er allur lurkum laminn, bólginn og marinn, en ekki hefur þó komið neitt alvarlegt fram, sagði Finnur Baldursson er Mbl. ræddi við hann í gær og virtist hinn hressasti. -Ég flaug þarna útí vatnið þegar ég var að binda bátinn, en náði strax taki á borðstokknum og tókst að halda mér þar þegar vindurinn hrakti bátinn frá prammanum, sagði Finnur, en félagi hans sem var þá enn við dælingu hafði ekki orðið var við að hann féll í vatnið. Ég náði þó ekki að vega mig upp í bátinn þar sem klaki var á borðstokknum og ég þungur af vatninu og stefndi ég nú út á vatn. Skömmu síðar rakst báturinn þó á leiðslu frá dæluprammanum og breytti hann um stefnu. Hefur það áreiðanlega bjargað mér því nú stefndi ég í átt að sérstökum millipramma sem var þarna ekki mjög langt frá. Prammann hafði rekið þangað kvöldið áður og veit ég heldur ekki hvernig hefði farið ef hann hefði ekki verið á þessum stað. Finnur sagði að rok hefði verið nokkuð og stöðugt gefið yfir hann og hann því fljótt orðið ískaldur og misst tilfinningu í fótum. Var hann klæddur samfestingi, en sagðist hafa getað sparkað af sér skónum. Vatnið er talið hafa verið kringum 0 gráðu heitt, enda sums staðar íshröngl. -Þegar ég var kominn nálægt milliprammanum sleppti ég bátn- um og hélt mig á leiðslunni að prammanum nokkra stund enda var ég þá slituppgefinn og leið sjálfsagt hálftími þar til ég lagði í að fleyta mér að prammanum og vega mig upp og komst ég þar í hita frá vélinni og gat lokað að mér. Um stund var ég að hugsa um að fara lengra með bátnum, sem nú stefndi í átt til lands, en það var eins gott ég gerði það ekki því hann festist í íshröngli spölkorn frá landi. Starfsfélagi Finns í dælu- prammanum varð fljótt var að Finnur skilaði sér ekki og reyndi að ná talstöðvarsambandi við verksmiðjuna er hann sá hvað gerst hafði, en þá var hún biluð. Brá hann því á það ráð að blása upp gúmbát, lét reka í land og hringdi í Bóas Gunnarsson verk- stjóra við dælinguna, en hann er einnig félagi í björgunarsveitinni sem kölluð var strax út. Hélt Bóas þegar á báti út á vatnið og sá strax bát Finns. Kvaðst hann hafa ætlað að halda að honum þegar hann sá hvar búið var að ioka hurðum milli prammans og datt þá í hug að Finnur hefði komist þangað. Var hann þegar fluttur í hús og eftir læknisskoðun kom í ljós að hann var þrekaður mjög, en ekki í alvarlegri hættu. Ljóst er þó að ekki hefur mátt muna miklu eftir nær tveggja tíma volk í ísköldu Mývatni. /f London næsta brottför 24. nóv. Florida 3ja vikna ferðir Kanarí eyjar í allan vetur Seljum farseöla um allan heim á hagkvæmasta veröi. || Ferðamiðstöðin hf. AÐALSTRÆTI 9 — símar 28133, 11255

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.