Morgunblaðið - 06.11.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979 19
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Látum hendur standa
f ram úr ermum - Svar
til Jakobs V. Hafstein
MEÐ LÍNUM þessum langar
mig að þakka Jakobi V. Hafstein
grein hans í Mbl. sl. laugardag
og svara honum örfáum orðum
þótt ég sé sammála flestu sem í
grein hans stendur. Enginn vafi
leikur t.d. á því í mínum huga, að
allt það sé rétt, sem hann segir
um framtíð fiskiræktar, ef rétt
og djarfmannlega er staðið að
framkvæmdum. Einmitt þess
vegna hefur Tungulax h.f. gert
samstarfssamning við Mowi í
Noregi til að reyna að koma hið
bráðasta á fót einni sjóeldisstöð,
þar sem hagnýtt væri sú þekk-
ing, sem fyrirtækin ráða yfir,
bæði við uppbyggingu og starf-
rækslu.
Islendingar yrðu meirihluta-
eigendur þessa fyrirtækis og það
lyti að sjálfsögðu í einu og öllu
íslenzkum lögum. I kjölfarið
mundu svo efalaust fylgja mörg
alíslenzk fyrirtæki, smá og stór,
þegar fleiri en sá fámenni hópur,
sem við Jakob H. Hafstein fyll-
um, sjá og skilja að þetta er
framtíðin. En sannast sagna er
ég að verða jafn þreyttur og
hann á sinnuleysinu og ætla
helzt ekki að horfa upp á einn
áratug enn af því taginu.
Jakob V. Hafstein spyr hvort
ég vilji beita mér fyrir því á
næsta Alþingi, að þingsályktun-
artillaga um að Fiskiræktarsjóð-
ur fái 900 millj. kr., sem flutt
hafi verið á síðasta Alþingi, nái
fram að ganga. Það segir sig
sjálft, því að ég gerði það þegar á
sl. vori. Þá ritaði ég með eigin
hendi lagagreinar í samráði við
Árna Jónasson, form. Fiskirækt-
arsjóðs. Fjárhags- og viðskipta-
nefnd efri deildar stóð í heild að
flutningi málsins og frumvarpið
var samþykkt einróma í efri
deild undir þinglok, en dagaði
upp í efri deild.
I annan stað víkur Jakob að
því, hvort ég muni beita mér
fyrir framgangi þeirrar stefnu
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
markað sér í fiskiræktarmálum.
Því er fljótsvarað. Ég berst nú
sem fyrr fyrir framgangi stefnu-
mála þess flokks og ekki sízt í
atvinnumálum.
Vikið er að störfum nefndar til
að endurskoða lög- um lax- og
silungsveiði, sem ég var skipaður
í á sl. vori. Ég hef aldrei verið
boðaður á fund í nefndinni.
Formaður hennar er Páll Pét-
ursson, fyrrv. alþm. Þar hafa
ríkt sannkölluð vinstristjórnar
vinnubrögð.
Jakob V. Hafstein skorar á
mig að leitast við að laða saman
öfl sem áhuga hafa á fiskirækt-
Eyjólfur Konráð Jónsson.
armálum. Þeirri áskorun tek ég
þótt nokkur bið verði líklega á
verulegu framtaki því að næstu
vikurnar hef ég öðrum hnöppum
að hneppa. Annars leyfist mér
líklega að greina frá því, að allt
frá stofnun Fiskiræktarfélags
Islands, hef ég í stjórn þess öðru
hverju vakið athygli á þessu
máli, þótt ekki hafi mér tekizt að
bera það fram til sigurs þar
fremur en annars staðar.
Aftur á móti hvorki vil ég né
get á þessu stigi gert þetta „án
aðstoðar frá hinum norsku fiski-
ræktarmönnum í Mowi“ eins og
komizt er að orði í lok greinar-
innar. Ég vil það ekki vegna
þess, að ég veit af biturri reynslu
að þá dregst allt enn úr hömlu og
get það ekki vegna þess, að ég
hef undirskrifað samning um að
taka þetta samstarf upp, ef
athuganir, sem nú fara fram,
reynast jákvæðar, sem ég efa
ekki að verði. Og helzt vil ég
standa við gerða samninga.
Sauðárkróki 3. nóv. 1979.
P.S. Var a fá Þjóðviljann þar
sem mér er helguð forsíðan
vegna þessa máls. Nota ég tæki-
færið til að þakka það. Hef satt
að segja verið hálfleiður yfir
áhugaleysi blaðsins á málefnum
mínum á undanförnum árum, en
einu sinni fékk ég forsíðuna
vegna baráttu fyrir almennings-
hlutafélögum og eignaraðild
fólksins að atvinnurekstri,
nokkrum sinnum vegna baráttu
fyrir byggingu olíuhreinsunar-
stöðvar og margsinnis vegna
álverksmiðjunnar og Búrfells-
virkjunar. Lesendur blaðsins
hljóta þá að hafa haldið að ég
væri æði útsmoginn og ætti allt
draslið, enda stefndi ég að því að
koma mér upp svo sem eins og 20
smiðjum! Ér því eðlilegt að
fiðringur fari nú um „kollega"
mína á blaðinu.
Prófkjör sjálfstæðismanna á Austfjörðum:
Sverrir Hermannsson
fékk flest atkvæði
ATKVÆÐI haía verið tal-
in í prófkjöri .sjálfstæð-
ismanna á Austfjörðum er
fram fór sl. föstudaK ok
laugardag. í prófkjörinu
tóku þátt 1145, sem er
nokkru fleiri en kusu lista
sjálfstæðismanna í síðustu
kosninjíum. en það voru
1062.
Sverrir Hermannsson fyrrver-
andi alþingismaður fékk flest
atkvæði í prófkjörinu, í fyrsta
sæti 795 og samanlagt í 1.—3. sæti
961 atkvæði eða 85,6%. í öðru sæti
varð Eggert Jónsson, bóndi Selja-
völlum, með 349 atkvæði í fyrsta
og annað sæti og 439 í 1,—3. sæti
eða 39,1%. Tryggvi Gunnarsson,
skipstjóri Vopnafirði, varð þriðji
með 423 atkvæði í 1,—3.sæti eða
37,7%, fjórði varð Pétur Blöndal
framkvæmdastjóri Seyðisfirði
með 335 atkvæði eða 29,8%. og
fimmti Þráinn Jónsson fram-
kvæmdastjóri Egilsstöðum með
305 atkvæði eða 27,1 %.
Sókn sjálfstæðismanna
á Austfjörðum hafin
ÉG VIL færa öllum þeim er studdu
mig sérstakar þakkir fyrir þennan
frábæra stuðning og þeim er stóðu
að framkvæmd prófkjörsins, sem
tókst með ágætum. Það er ótrúleg
sókn sem sjálfstæðismenn hafa
hafið á Austfjörðum og hefi ég ekki
lengi fundið slikan andblæ, sagði
Sverrir Hermannsson er Mbl.
ræddi við hann um úrslit prófkjörs
sjálfstæðismanna eystra um helg-
ina, en þar fékk Sverrir 85,6%
greiddra atkvæða.
Starfið hér eystra hefur stórauk-
ist að undanförnu og við trúum því
að listi okkar sé sterkur, en um hann
var algjör einhugur þegar hann var
skipaður að loknu prófkjörinu. Tók
aðeins fáa tíma að koma honum
saman og erum við hér ákaflega
bjartsýnir. Við teljum mjög sterkt
að hafa Egil Jónsson bónda í öðru
sæti því hann er eini bóndinn á lista
hér eystra, sem hefur einhverja
möguleika á að ná á þing.
Þátttakan í prófkjörinu var slík
að 80 fleiri greiddu þar atkvæði, en
flokkurinn fékk hér í síðustu kosn-
ingum og það er ekki hægt að leggja
út á annan veg en að hér sé um
eindregið stuðningsfólk að ræða; það
er með ólíkindum að svo mörg
atkvæði hefðu komið í hlut okkar
efstu manna ef einhverjir aðrir en
stuðningsmenn okkar hefðu tekið
þátt í prófkjörinu.
Sverrir Hermannsson.
Hlýtur að skapa aukinn meðbyr
ÞAÐ sem vekur athygli við
prófkjörið á Austurlandi er hin
mikla þátttaka þar sem hún varð
meiri en nam atkvæðamagni
Sjálfstæðisflokksins í síðustu
kosningum i kjördæminu. Hinn
mikli sigur Sverris Hermannsson-
ar sýnir ótvirætt hve mikils
trausts hann nýtur i kjördæminu,
sem hiýtur að skapa flokknum
aukinn meðbyr i kosningunum.
Að því er sjálfan mig varðar var
útkoman betri en ég átti von á og
hefi ég ekki neina skýringu þar á.
Enga kosningabaráttu háði ég né
heldur mínir stuðningsmenn. Þeg-
ar ég fékk hvatningu þar um vísaði
ég til starfa minna og kynna af
Austfirðingum í 25 ár, það yrði að
duga. Kosningarnar til prófkjörs-
ins voru háðar af fyllsta drengskap
Egill Jónsson.
og einungis réttar leikreglur við-
hafðar það er ég til veit. Af því
leiðir að menn eru ósárir eftir og
því reiðubúnir að halda baráttunni
áfram þótt á öðrum vettvangi sé.
Enginn vafi er á því að prófkjörið
hefur verið ákaflega þýðingarmik-
ið innlegg í kosningabaráttu Sjálf-
stæðisflokksins á Austurlandi.
Fari svo sem er almenn skoðun á
Austurlandi, að tveir menn af lista
Sjálfstæðisflokksins verði kjörnir
til Alþingis, verður sá sigur án efa
að sínu leyti rakinn til prófkjörs-
ins.
Að endingu þakka ég það traust
er ég hlaut í prófkjörinu. Annað
sætið á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins er baráttusætið í Austur-
landskjördæmi og sjálfstæðismenn
munu sameinast um að sigra í
þeirri baráttu.
Tryggvi Gunnarsson.
Setjum mark-
ið á tvo menn
VIÐ erum allir bjartsýnir og
listann teljum við vel settan
saman og leyfum okkur þess
vegna að setja markið á tvo
menn inn, sagði Tryggvi Gunn-
arsson er Mbl. ræddi við hann í
gær.
Hjá okkur ríkir baráttuvilji og
teljum við að þetta vaxandi fylgi
eigi eftir að skila sér í kosning-
unum og setjum markið þess
vegna svo hátt. Ég vil einnig
nota tækifærið og þakka fyrir
það traust, sem mér hefur verið
sýnt og vonast til að verða þess
trausts verður.
Sterkur
listi á Aust-
fjörðum
ÉG er fyrir mitt leyti ánægður og
hin mikla þátttaka i prófkjörinu
bendir til þess að sjálfstæðis-
menn séu i mikilli sókn á Aust-
fjörðum, sagði Pétur Blöndal er
Mbl. ræddi við hann um úrslit i
prófkjöri sjálfstæðismanna á
Austfjörðum.
Listinn er eins sterkur og
mögulegt er að fá út úr þeim
efnivið sem við höfum og erum við
bjartsýnir og sigurglaðir á þessari
stundu, enda fengum við hlut-
fallslega meiri þátttöku í próf-
kjörinu heldur en í síðustu kosn-
ingum og tel ég það vita á gott.
Hvort sóknin verður svo mikil á
kjördag er erfitt að spá um, en
vonandi verður vel ferðafært hér
um slóðir svo að fólk eigi auðvelt
með að komast á kjörstað.
Pétur Blöndal.
Þráinn Jónsson.
Teljum þetta
marktækt fylgi
HÉR er mjög góð stemmning og
Sverrir Hermannsson segir að
hann hafi aldrei fundið svo góðar
undirtektir sem nú síðan hann
fyrst fór að hafa afskipti af
stjórnmálum og ferðast hér um
kjördæmið, sagði Þráinn Jónsson
á Egilsstöðum er Mbl. ræddi við
hann um úrslit prófkjörsins.
Listinn er vel skipaður með
vanan stjórnmálamann í fyrsta
sæti, bónda í öðru sæti og skip-
stjóra í þriðja og eru frambjóð-
endur líka frá hinum ýmsu
stöðum úr kjördæminu, allt frá
Hornafirði til Vopnafjarðar.
Þátttakan í prófkjörinu hefur líka
verið betri en björtustu vonir
stóðu til og sérstaklega erum við
ánægð yfir fylgi Sverris Her-
mannssonar sem fékk nærri eitt
þúsund atkvæði af þeim 1145 sem
greidd voru og teljum við þetta
vera vel marktækt fylgi fyrir
komandi kosningar.