Morgunblaðið - 06.11.1979, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúí
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiösla
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aöalstræti 6, sími 22480.
Sími 83033
Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands.
í lausasölu 200 kr. eintakið.
Meiri breidd,
meiri samstaða,
meiri sigurlíkur
Ellert B. Schram hefur stórlejia styrkt vígstöðu
sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann hefur tryggt
þingsetu sérstaks fulltrúa sjómanna og annarra launþega
í borginni fyrir hönd Sjálfstæöisflokksins. Hann hefur
kosið aö skipa sjálfur baráttusætið á lista flokksins og
axla þann veg áhættuna. Þessi ákvörðun, sem fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík staðfesti einróma,
skapar framboðslista Sjálfstæðisflokksins meiri breidd,
eflir samstöðu og baráttuhug sjálfstæðismanna, og eykur
líkurnar á hagstæðum kosningaúrslitum. Hundruð og
búsundir launafólks. sem var óánægt með niðurstöður
prófkjörs fyrir hönd fulltrúa sinna, ganga nú fram til
baráttunnar með meiri þrótti og áhuga en nokkru sinni
fyrr.
A fulltrúaráðsfundinum þar sem framboð Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík var endanlega ráðið, sagði Ellert B.
Schram: „Ég vil taka það skýrt fram, að með þessu er ég
ekki að vefengja niöurstöður prófkjörsins né heldur að
óvirða þær. I því prófkjöri hlaut ég góða kosningu og er
þakklátur öllum þeim, sem studdu mig og kusu. Við þessa
kjósendur mína segi ég: Ég er ekki að bregðast ykkur, ég
er ekki aö gefa eftir öruggt sæti að þarflausu. Ef þið
metið mig einhvers og þekkið, þá veit ég að þiö fallist á
það með mér, að listi flokksins fær meiri breidd, meiri
styrk við þessa breytingu, m.a. við það að ég færist í
eldlínuna sjálfa, baráttusætið.... Þessa tilfærslu á
listanum ber að skoða sem táknræna viðleitni, sem
útrétta hönd okkar sjálfstæðismanna til alls þess
launafólks, sem styður okkur og við viljum að styðji okkur
fyrir framgangi sjálfstæðisstefnunnar. Sjálfstæðisflokk-
urinn er víðsýnn og frjálslyndur flokkur ... Hann vill
tr,yiíííja að rödd launafólks heyrist í þingflokki sínum.“
Ellert sagði ennfremur: „Áttunda sætið er okkar
baráttusæti. Ég er reiðubúinn í þá baráttu. Ég legg
pólitíska framtíð mína að veði óhræddur og sigurviss. Ég
veit að þið öll, stuðningsmenn mínir og vinir, allt
sjálfstæðisfólk og reykvískir kjósendur munuð ganga feti
framar og beita ykkur af alefli til að sigur vinnist.“
Sj álfstæðismenn
á Suðurlandi
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi hafa ekki náð samstöðu
um framboðslista sinn fyrir þingkosningarnar. Hluti
þeirra hefur ákveðið að bjóða fram sérstakan lista, sem
meirihluti kjördæmisráðs hefur ákveðið að viðurkenna
ekki sem lista sjálfstæðismanna. Þessi ágreiningur
sjálfstæðismanna á Suðurlandi hefur neikvæð áhrif á
stöðu Sjálfstæðisflokksins almennt í kosningabaráttunni.
Það fer ekki á milli mála. Á hinn bóginn er ljóst, að hér er
ekki á ferðinni málefnalegur ágreiningur meðal sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi. Heldur ekki persónulegur
ágreiningur, sem oft er stjórnmálaflokkum erfiður. Hér
er um að ræða héraðaágreining um skipun efstu sæta á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Slík átök milli héraða
um efstu sæti á framboðslistum eru kunn í öllum
flokkum, þótt þau hafi ekki fyrr komizt á það stig sem nú
í Suðurlandskjördæmi. Þessi héraðaágreiningur sýnir það
fyrst og fremst að núverandi kjördæmaskipan er að
sprengja af sér rammann.
Steinþór Gestsson:
Engin lausn að
við þvinguðum
fram úrslit
• „VITASKULD haía þessi átök
i sambandj við framboðsmálin
sin áhrif. Á þessari stundu, get
ég þó ekki um það sagt i hve
rikum mæli þau verða. Eins og
listinn er upp settur hjá kjör-
dæmisráðinu, er hann að mínu
mati mjög sterkur,“ sagði Stein-
þór Gestsson, fyrrum alþingis-
maður og efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi.
„Hér í Árnessýslu var það okkar
fyrsta tillaga, að fram færi próf-
kjör eftir nýsettum reglum Sjálf-
stæðisflokksins. Þessu hafnaði
stjórn kjördæmisráðsins og aðeins
fulltrúar Arnessýslu mæltu með
tillögu um þetta. Síðan gerðum við
tillögu um, að ég skipaði 1. sæti
listans. Menn urðu fljótlega sam-
mála um þetta, en það sem olli því
að leiðir skildu, var að ekki náðist
samkomulag um 2., 3. og 4. sætið.
Það var utan við áhugasvið okkar
Arnesinga að beita okkur varð-
andi röðun manna í þessi sæti og
ég tel, að lausn hefði ekki fengizt
með því, að við hefðum þvingað
fram úrslit í því máli.“
Guðmundur Karlsson:
Vantaði vilja
ogviðleitni
• „ÞAÐ er auðvitað ósköp ömur-
legt, að við skyldum ekki ná
saman um einn lista, en það
sýndist engin leið til þess, að
samstaða næðist. Til þess vantaði
vilja og einhvers staðar einhverja
viðleitni. Úr því sem komið er
verður það að vera svona,“ sagði
Guðmundur Karisson fyrrum al-
þingismaður, 2. maður á D-listan-
um í Suðurlandskjördæmi.
„Við Vestmannaeyingar reynd-
um í byrjun, að hnika málunum
til,“ sagði Guðmundur. „Við buð-
um á fyrsta fundinum, að við
skyldum taka 3. sætið og fengjum
þá 4. sætið með, en þetta yrði þá
að gerast á þessum fundi og síðan
myndum við allir ganga út sem
einn maður, kynna okkar lista og
hefja baráttuna af krafti. Því
miður báru þeir í Rangárvalla-
sýslu og Vestur-Skaftafellssýslu
ekki gæfu til að geta þegið þetta
boð. Rangæingum tókst að vísu að
fá Skaftfellinga til að fallast á
þetta, en þeir settu það skilyrði, að
4. sætið yrði einskis virði fyrir
Vestmannaeyinginn, sem í því
yrði, heldur yrði Skaftfellingurinn
í 5. sætinu hinn raunverulegi
varamaður, sem sitja átti á þingi
hálfan mánuð í senn fyrir hvern
þingmann. Þarna voru mér allt í
einu sett skilyrði fyrir því, að ég
færði mig niður í 3. sætið og satt
að segja finnst mér ekki að þetta
sýni mikla teygni í sálarlífi þess-
ara manna. Eg tel, að það sé ekki
hægt að kenna mér, að samkomu-
lag tókst ekki.
Ég tók skýrt fram, að þetta tilboð
okkar Vestmannaeyinganna stæði
aðeins þennan stutta tíma, því áð
ætlun mín og þess litla hóps
Vestmannaeyinga, sem með mér
var, var að taka þetta samkomu-
lag með okkur til Vestmannaeyja
sem gerðan hlut og standa eða
falla með því, þar sem fulltrúaráð
Sjálfstæðisflokksins í Vestmanna-
eyjum hafði ekki verið tilbúið til
að samþykkja þetta fyrirkomulag
og því hefði verið útilokað fyrir
okkur að koma til Vestmannaeyja
og biðja um að fá að gera þetta."
„Ég get ekki annað séð en að
staða okkar sé sterk. Við erum
með góðan lista og ég get ekki séð
neina ástæðu til annars en að vera
bjartsýnn með framgang hans,“
sagði Guðmundur Karlsson að
lokum.
Sigurður Óskarsson:
Veit af stuðningi
margra Sjálf-
stæðismanna
austan Þjórsár
• „Ég byggi mina afstöðu á
þremur meginatriðum“, sagði
Sigurður Óskarsson fram-
kvæmdastjóri Verkalýðsfélagsins
Rangæings í samtali við Mbl. í
gær. „í fyrsta lagi tel ég að sá
ágreiningur, sem upp kom varð-
andi skipan framboðslistans hafi
verið auðleysanlegur, ef ákveðnir
aðilar hefðu ekki brennt allar
brýr að baki sér strax i upphafi,
en við þau vinnubrögð var ég
ekki sáttur. í öðru lagi fékk ég
áskorun frá framkvæmdastjórn
verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks-
ins um að taka sæti á lista
flokksins. Og í þriðja lagi veit ég
Gengu tvisvar i
VIÐ upphaf kjördæmisráðs-
fundarins á Selfossi síðastliðinn
laugardag kom í ljós, að menn
voru engu nær samkomulagi um
skipan 2. og 3. sætis framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins en áð-
ur. Jón Guðbrandsson héraðs-
dýralæknir á Selfossi bar þá upp
tillögu um að varpað yrði hlut-
kesti um það, hvort Eggert Hauk-
dal eða Guðmundur Karlsson
skipuðu 2. sætið. Hvorugur
þeirra gat þó fallizt á þessa
tillögu og mun Guðmundur hafa
varpað fram þeirri hugmynd, að
ef hlutkesti ætti að ráða, yrði það
látið ráða öllum fjórum efstu
sætum listans. Þegar tillagan
kom svo til atkvæða, gengu full-
trúar Rangæinga og Skaftfell-
inga af fundi, nema Sigurður
Óskarsson. Jón dró þá tillögu
sína til baka. Komu menn þá
aftur inn á fundinn.
Jakob Hafstein, formaður Full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Árnessýslu mælti þá fyrir tilmæl-
um til kjörnefndar um að hún
hagaði röðun á listann þannig, að í
1. sæti yrði Árnesingur, 2. Vest-
mannaeyingur, 3. Rangæingur og
4. Skaftfellingur. Jón Þorgilsson á
Hellu lýsti því þá yfir, að sjálf-
stæðismenn austan Þjórsár væru
Eggert Haukdal:
„Unum ekki
ólýðræðislegum
bolabrögðum”
• „MEGINATRIÐI þessa máls
er það, að við vildum leysa
þennan ágreining, sem hefur
verið uppi hér hjá okkur við
siðustu uppröðun á lista Sjálf-
stæðisflokksins og stefndi einnig
í að verða aftur nú, með próf-
kjöri,“ sagði Eggert Haukdal,
fyrrum alþingismaður, í samtali
við Morgunblaðið í gær. Hann
sagði: „Þetta var að mati okkar
sjálfstæðismanna í Rangárvalla-
og Vestur-Skaftafellssýslum eina
ráðið til þess að leysa þennan
ágreining.“
Morgunblaðið spurði Eggert
hvort prófkjör þetta hefði átt að
fara fram í samræmi við þær
prófkjörsreglur, sem forysta
Sjálfstæðisflokksins hefði sam-
þykkt. Hann sagði: „Að sjálfsögðu
í samræmi við reglur Sjálfstæðis-
flokksins, en þó vildum við að
tekið yrði tillit til sjónarmiða hér
heima fyrir með smábreytingum."
Þau sjónarmið kvað Eggert fyrst
og fremst hafa verið, að þegar
endanlega yrði raðað upp á list-
ann, hefðu öll gömlu héruðin
fulltrúa í efstu sætum listans,
þannig að ekkert hérað hefði þar
tvo fulltrúa.
„Þetta var fellt fyrir okkur,“
sagði Eggert, „af meginþorra full-
trúa úr Vestmannaeyjum og Ár-
nessýslu." Þá sagði Eggert að
hann teldi þann lista, sem sjálf-
stæðismenn á Suðurlandi austan
Þjórsár hefðu nú boðið fram mjög
sigurstranglegan. „Við unum því
ekki sjálfstæðismenn austan
Þjórsár, að vera settir út og eiga
ekki mann í öruggu sæti. Við
höfðum vænzt þess að fá annað
sætið í samkomulagi, en hefði
verið farin prófkjörsleiðin, hefð-
um við að sjálfsögðu unað því sæti
sem prófkjörið skipaði okkur í, en
ekki ólýðræðisleg bolabrögð." Þá
tók Eggert sérstaklega fram að
enginn ágreiningur hafi verið um
fyrsta sæti listans, Rangæingar
hafi sætt sig við Árnesing í því, en
þeir hefðu talið rétt, að yrði gripið
til prófkjörs yrði kosið um öll
sætin.
Siggeir Björnsson:
Allar sátta-
tilraunir okkar
komu fyrir ekki
• „ÞVÍ ER haldið fram að við
Rangæskir sjálfstæðismenn
harma ofbeldi meirihlutans
FUNDUR í fulltrúaráði sjálf-
stæðisfélaganna i Rangárvalla-
sýslu, haldinn að Hellu, 4. nóv-
ember 1979, samþykkir eftirfar-
andi:
„Fulltrúaráðið harmar það of-
beldi, sem naumur meirihluti
kjördæmisráðs í Suðurlandskjör-
dæmi beitti við röðun á fram-
boðsMsta flokksins við næstu al-
þingiskosningar, eftir að hafa fellt
tillögu um lýðræðislegt val á
frambjóðendum í prófkosningum.
Fulltrúaráðið vekur athygli á
því, að enginn frambjóðandi á
lista meirihlutans er settur fram
eða studdur af sjálfstæðisfélögun-
um í Rangárvallasýslu. Þá mót-
mælir fundurinn harðlega þeim
vinnubrögðum meirihluta kjör-
dæmisráðs, að neita minnihluta
ráðsins um að bjóða fram í nafni
flokksins eftir að 29 fulltrúar
höfðu yfirgefið fundinn.
Full-
trúaráðið lýsir yfir fullum stuðn-
ingi við sér framboð sjálfstæð-
ismanna í Rangárvalla- og Vest-
ur-Skaftafellssýslu.“