Morgunblaðið - 06.11.1979, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
23
Ágúst varð
NM-meistari
ÍSLENSKA unglingalandsliðið
i lyftingum hafnaði i fjórða sæti
á Norðurlandameistaramótinu í
lyftingum sem fram fór í Finn-
landi um helgina. Sviar sigruðu
í mótinu. Finnar voru í öðru
sæti og Norðmenn í þriðja.
íslendingar hlutu einn Norður-
landameistara. Ágúst Kárason
sigraði í 110 kg flokki og varði
þar með titilinn sem hann
hreppti í fyrra. Ágúst lyfti 320
kg samanlagt og var eini
maðurinn á mótinu sem lyfti
meira en 300 kg samanlagt.
Ágúst lyfti 140 kg í snörun og
180 kg i jafnhöttun. Ef islenska
liðið hefði ekki misst tvo menn
úr keppninni hefði það átt góða
möguleika á þriðja sætinu í
keppninni.
Þórhallur Hjartarson keppti í
52 kg flokki og varð í 3. sæti, lyfti
132,5 kg. Þorvaldur B. Rögnvalds-
son varð 4. í 60 kg flokki, lyfti 180
1 Lyfllngar ]
kg. Valdimar Runólfsson varð 5. í
sama flokki með 177,5 kg.
Viðar Eðvaldsson krækti sér í
þriðju verðlaun í 67,5 kg flokki,
lyfti 217,5 kg. Haraldur Olafsson
náði öðru sæti í 75 kg flokknum,
lyfti 260 kg. Haraldur setti nýtt
íslenskt met í jafnhöttun, lyfti 150
kg. Það er jafnframt fullorðinsm-
en í þessum þyngdarflokki. Garð-
ar Gíslason varð í fimmta sæti í
þessum flokki, lyfti samanlagt 230
kg.
í 82,5 kg flokknum féll Þor-
steinn Leifsson úr keppni, Gylfi
Gíslason varð hins vegar 5.
í 90 kg flokknum féll Guðmund-
ur Helgason úr keppninni en hann
átti sigurmöguleika, hann var
búinn að snara 127,5 kg og reyndi
því næst við 155 kg sem hefði nægt
til sigurs. Var hann næstum búinn
að spjara sig með þá þyngd, en
mistókst á síðasta augnabliki.
Frammistaða piltanna var í alla
staði góð, og sýnir grósku þá sem
er í lyftingaíþróttinni.
— þr.
Frábær árangur
hjá fötluðum
5 FÉLAGAR í íþróttafélagi
fatlaðra gerðu það gott á hinum
árlegu Solna-leikum i Noregi
um helgina. Edda Bergman
sigraði i sinum flokki í 50
metra baksundi og varð önnur i
50 metra skriðsundi og er þetta
þó i fyrsta skiptið sem Edda
keppir erlendis. Óskar Kon-
ráðsson keppti einnig i fyrsta
skipti á erlendri grund og
hafnaði í þriðja sæti i 50 metra
skriðsundi. Sannarlega frábær
árangur, þvi að alls keppa um
830 iþróttamenn á þessum ár-
legu leikum.
Guðbjörg Eiriksdóttir náði
einnig hörkugóðum árangri. en
hún varð sigurvegari i sínum
flokki í borðtennis. Sævar Guð-
jónsson og Kristín Halldórs-
dóttir einnig og stóðu sig vel.
Þau tóku bæði þátt í borðtenn-
iskeppninni og komust langt.
• Arnór Guðjohnsen fagnar marki hjá Lokeren
Arnór skoraði tvö
íslendingaliðunum i belgísku
1. deildinni gekk sérlega vel
þessa helgi. Lokeren vann ör-
uggan sigur á Winterslag, 3—
0, og heldur enn efsta sætinu.
Það telst til tiðinda úr þeim
leik, að Arnór Guðjohnsen skor-
aði sín fyrstu mörk á haustinu
fyrir Lokeren. Hann var nú í
byrjunarliði Lokeren í fyrsta
skiptið í langan tima og skoraði
tvö fyrstu mörkin. Ralf
Edström skoraði hins vegar
sigurmark Standard, er liðið
vann stórgóðan sigur á útivelli
gegn Molenbeek. Úrslit um
helgina urðu annars þessi.
Antwerp—Anderlecht 0—0
Molenbeek—Standard 0—1
FC Brugge—Cercle Brugge 2—0
Charleroi—Lierse 2-3
Beerschot—Hasselt 4—0
Beveren—Waregem 0-0
FC Liege—Waterschei 2—0
Beringen—Berchem 1—0
Winterslag—Lokeren 0—3
Lokeren hefur 20 stig, FC
Brugge einu minna. Standard og
Molenbeek eru á næstu grösum,
ekki langt undan,
ÞAÐ bar helst til tíðinda í
hollensku knattspyrnunni um
helgina, að Pétur Pétursson
skoraði ekki mark og lið hans,
Feyenoord, náði aðeins jafntefli
á heimavelli gegn Haarlem,
1 — 1. Liðið heldur þó enn for-
ystunni i hollensku deildinni,
en Ajax hefur nú skipað sér á
bekk ofar Feyenoord, hefur
hlotið einu stigi meira.
Haarlem náði snemma foryst-
unni gegn Feyenoord og leit
lengi vel út fyrir að liðið ynni
óvæntan sigur. En Rene Notten
tókst að jafna fyrir Feyenoord
áður en yfir lauk.
Tvötöp
hjá Víking;
íslandsmótjð i blaki hófst
um helgina. Úrslit urðu sem
hér segir: 1. deild karla: ÍS
sigraði Eyfirðinga 3-1. Laug-
dælir fengu Víkinga í heim-
sókn og sigruðu nokkuð ör-
ugglega 3-1. Enduðu hrin-
urnar 13-15, 15-11, 15-7, og
15-9. Víkingar léku tvo leiki
um helgina og töpuðu þeir
báðum; i seinni leiknum
mættu þeir liði Þróttar sem
sigraði 3-1. Hrinurnar end-
uðu 15-12,11-5,15-5 og 15-11.
í 1. deild kvenna fór fram
einn leikur. Víkingsstúlk-
urnar sigruðu Breiðablik 5-
2. Nokkuð kom á óvart að
Breiðabliksstúlkurnar sigr-
uðu í tveimur hrinum. Þá
fóru fram tveir leikir i 2.
deild. ÍMA sigraði KA 3-0,
og Framarar sigruðu
Breiðablik. — þr.
Biak
Kemst IBK
í 3. umferð?
TEKST liði ÍBK fyrst allra
islenskra liða að komast i
þriðju umferð í UEFA-
keppninnar i knattspyrnu?
Svar við þessari spurningu
fæst á gamla Melavellinum á
fimmtudagskvöld er ÍBK
mætir tékkneska liðinu
Brno í siðari leik liðanna í
annarri umferð UEFA-
keppninnar. Liðsmenn ÍBK
hafa æft mjög vel að undan-
förnu og á blaðamannafundi
i gær sagði Hafsteinn Guð-
mundsson að strákarnir
væru ákveðnir í að sigra
Tékkana. Lið þeirra væri
reyndar mjög sterkt en hins-
vegar væru þeir óvanir því
að leika á malarvelli og því
gæti allt eins farið svo að
IBK sigraði þá með tveimur
mörkum gegn engu en það
nægir til að komast áfram.
Fyrri leik liðanna lauk með
sigri Tékka 3-1. Nánar verð-
ur greint frá leiknum í
blaðinu á morgun.
KnaltsDvrna
Öruggt
ÍS SIGRAÐI Eyfirðinga 3-1 í
íslandsmótinu i blaki á Akur-
eyri um helgina. Fyrst vann ÍS
15-5, en UMSE jafnaði 19-17
í æsispennandi hrinu. Síðustu
tvær hrinurnar unnu hins veg-
ar ÍS-menn eftir nokkurn barn-
ing, 15—8 og 15 — 11.
Þá vann iMA öruggan sigur
á KA i 2. deild íslandsmótins i
blaki, 3—0. Hrinurnar enduðu
hjá ÍS
15—3,15—4 og 15—4, öruggt.
Þá má geta þess, að hand-
knattleikslið HK var á Akur-
eyri um helgina og lék tvo
æfingaleiki. Fyrst gegn Þór og
lauk leiknum með jafntefli,
21—21. Á sunnudaginn sigraði
HK síðan KA með 20 mörkum
gegn 14, en þess má geta, að KA
lék án þeirra Alfrcðs Gíslason-
ar og Jóns Árna Rúnarssonar.
sor.
Simonsen haltur
ALAN Simonsen mun ekki leika
knattspyrnú, næíta mánuðinn
eða svo, en hann tognaði illa á
liðböndum er Barcelona lék um
helgina gegn Burgos. Það er
synd og skömm fyrir kappann,
því að hann var að koma veru-
lega til eftir slæman kafla.
Barcelona vann engu að síður
1—0 og Landaburu skoraði sig-
urmarkið. Hansi Krankl lék með
að nýju eftir að hafa verið settur
úr liðinu í síðustu þremur leikj-
um liðsins. Hann stóð fyrir sínu
þó ekki tækist honum að skora.
Úrslit leíkja á Sþáni um hélgina
urðu þessi:
Las Palmas — Gspanol 1—0
Bilbao — Atlerico Madrid 2—1
Valencia — Sevilla 2—1
Rayo Vallecano — Malaga 5—1
Barcelona — Burgos 1— 0
Almeria — Gijon 0—0
Zarajfoza — Hercules 1—0
Real Betis — Real Sociedad 1 — 1
Real Madrid — Salamanca 2—0
Sporting Gijon er efst með 15
stig, Real Madrid hefur einu
minna. Salamanca og Real Socie-
dad hafa bæði hlotið 12 ság.
Sterkir Rússar í heimsókn
Handknattleiksdeild Vikings
fær afar sterkt sovéskt lið í
heimsókn á næstunni og mun
það leika hérlendis 4-5 leiki,
m.a. við KA á Akureyri á
mánudag, gegn Þór í Vest-
mannaeyjum á sunnudag o.fl.
Hugsanlegt er einnig að liðið
leiki á Akranesi.
Lið þetta heitir Kunszova og
er frá Moskvu. Er það i 4.-5.
sæti sovésku deildarkeppninnar
um þessar mundir og er því að
sjá býsna sterkt lið. Nokkrir
landsliðsmenn eru i hópi Kunz-
sova og má þar helst geta
fyrirliðans Belovs, en hann er
ekki aðeins fyrirliði A-landsl-
iðsins, heldur var hann einnig
fyrirliði unglingalandsliðsins
sem varð heimsmeistari í Dan-
mörku í siðustu viku. Yfirburð-
aleikmaður mikill.
Loks má geta þess, að búið er
að ákveða leikdag fyrir leiki
Víkings og sænska liðsins Heim
i Evrópukeppni bikarhafa.
Leikið verður ytra 2. desember
og heimaleikurinn fer siðan
fram 9. desember.
Fékk tvær milljónir
38 með ellefu rétta
í 11. leikviku getrauna kom
fram einn seðill með 12 réttum
og var vinningurinn kr.
1.989.000 en þar sem þetta var
kerfisseðill, komu einnig 6 rað-
ir á honum með 11 réttum. Með
11 rétta voru 38 raðir og
vinningshlutinn kr. 22.400.- á
hverja. Alls hlýtur þessi kona
úr Reykjavík, sem náði því að
hafa alla leikina rétta, kr.
2.123.400.- og er það í fyrsta
sinn, að getraunavinningur fer
yfir 2 milljónir kr.
Nýlega komu út reikningar
dönsku getraunanna fyrir s.l.
starfsár. Alls nam veltan 50
milljörðum ísl. kr. og hagnaður
um 11.3 milljörðum. en að auki
hirti danski ríkiskassinn rúm-
lega 11 milljarða, kr. Af hagn-
aði fékk danska íþróttasam-
bandið 3.5 milljarða, dönsku
ungmennafélögin 3.3 milljarða
og knattspyrnusambandið og
olympinefndin danska 1.6 miilj-
arða hvor aðili, allt ísl. krónur.