Morgunblaðið - 06.11.1979, Side 48
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
Toppliðin sigruðu
ÞAÐ óvænta gerðist í ensku knattspyrnunni um helgina, að deildin skipti ekki
um topplið að sinni. Manchester Utd. var efst með Forest á hælunum og þar sem
bæði liðin unnu leiki sína um helgina, breyttist staðan á toppinum lítið. Liverpool
er í þriðja sætinu og líklegt til stórræðanna ef fram heldur sem horfir, liðið ryður
mótherjum sínum úr vegi með fádæma fyrirlitningu og lítilli orku þessa dagana
og virðist miklu sterkara en bæði Forest og Manchester Utd. Ekki er ólíklegt að
deildarkeppnin verði einvígi þessara þriggja félaga. Lítum á leiki helgarinnar.
Hughes fagnað
Gamla kempan Emlyn Hughes
mætti sínum gömlu félögum hjá
Liverpool, er hann leiddi fram
Úlfana sína á Anfield. Hughes
lét hafa það eftir sér fyrir
leikinn, að hann hefði hlakkað
svo mikið til leiksins, að hann
hefði leikið þótt hann hefði verið
fótbrotinn. Áhorfendur fögnuðu
kappanum innilega þegar hann
skokkaði inn á völlinn, risu úr
sætum og klöppuðu allir sem
einn. Hughes var svo hrærður,
að hann færði Liverpool mark á
silfurfati eftir aðeins 4 mínútur.
Kenny Dalglish skoraði þá fyrir
Liverpool. Leikurinn fór að
mestu leyti fram á vallarhelm-
ingi Úlfanna, nánar tiltekið inni
í vítateig þeirra og það kom
fáum á óvart þegar Dalglish
bætti öðru marki við í síðari
hálfleik og Ray Kennedy síðan
því þriðja. Áður hafði hann
skotið í stöng. Úlfarnir áttu
skyndiupphlaup endrum og eins
og Andy Gray var einu sinni
nærri því að skora, en allt kom
fyrir ekki, lokatölur urðu 3—0 og
það var að heyra á frétta-
mönnum BBC, að Liverpool hefði
allt eins getað skorað 6—7 mörk
í leiknum.
Toppliðin
slökuðu ekki á
Manchester Utd. sigraði
Southampton á heimavelli
sínum með marki Lou Macari á
8. mínútu. Skoraði Macari með
því að skalla aftur fyrir sig af
stuttu færi, en knötturinn virtist
hreinlega fara í gegnum heila
hersveit varnarmanna á
1. DEILD
í Manchester United 14 8 4 2 19:8 20
Nottingham Forest 14 8 3 3 25:13 19
Liverpool 13 6 5 2 26:10 17
Cryatal Palace 14 5 72 21:14 17
Norwich 14 6 4 4 25:18 16
Arsenal 14 563 17:10 16
I Tottenham 14 64 4 18:23 16
Woiverhampton 14 63 4 18:16 15
Middlesbrough 14 54 5 12:10 14
Aston Villa 13 46 3 14:13 14
Bristol Clty 14 4 64 14:15 14
West Bromwich 14 4 55 21:18 13
Southampton 14 536 22:21 13
Stoke 14 4 55 19:22 13
Coventry 14 6 1 7 12:29 13
Manchester City 14 53 6 13:21 13
Leeds 13 3 64 15:16 12
Everton 13 364 16:18 12
Derby 14 4 2 8 13:21 10
Ipswich 14 4 1 9 12:21 9
Bolton 14 1 76 12:25 9
: Hrighton 13 238 14:25 7
2. DEILD
Lutun
Q.P.R.
Leicester
Newcautle
BirminKham
Wrexham
Notts County
Preston ,
Swansea
Sunderland
Chelsea
Cardiíf
Oldham
West Ham
Orfent
Cambridge
Watford
Fuiham
Charlton
Shrewsbury
Bristol Rovers
Burnley
14 842
14 824
14 743
14 7 43
14 74 3
14 8 1 5
14 64 4
14 182
14 64 4
14 635
13 7 1 5
14 6 35
14 4 64
13 6 25
14 455
14 266
14 347
14 4 28
14 266
14 338
14 338
14 059
27:13 20
27:13 18
27:19 18
18:12 18
19:14 18
18:14 17
21:14 16
18:14 16
16:16 16
18:14 15
14:13 15
17:19 15
16:15 14
12:13 14
15:18 13
14:18 10
12:19 10
19:29 10
15:26 10
17:22 9
19:27 9
14:31 5
marklínunni. United sótti lát-
laust gegn Southampton, sem
lék án Dave Watson sem var
með magapínu. United tókst
ekki að nýta yfirburði sína til
fleiri marka og það kom liðinu
næstum í koll þegar Charlie
George fékk skyndilega dauðaf-
æri rétt fyrir leikhlé. En Garry
Bailey varði skot Gogga snilldar-
lega. Árangur MU á heimavelli
er mjög glæsilegur það sem af er
hausti. Liðið hefur leikið 7 deild-
arleiki á Old Trafford og unnið
þá alla, skorað 13 mörk en fengið
á sig aðeins eitt. MU hefur hins
vegar fengið aðeins 6 stig af 14
mögulegum í útileikjum sínum.
Forest sótti lengst af gegn
Ipswich, sem lék oftast með
minnst níu manna vörn. En það
var ekki fyrr en á 75. mínútu, að
Forest tókst loks að finna leiðina
í netið. Þá átti Larry Lloyd
skalla í stöng, knötturinn hrökk
þaðan út til Trevor Francis, sem
renndi honum í opið markið. Á
lokasekúndum leiksins bætti
Francis síðan öðru marki við.
Þrátt fyrir tap, lék Ipswich mjög
vel að þessu sinni og staða
liðsins við botn deildarinnar
þykir ekki gefa rétta hugmynd
um raunverulega getu liðsins.
Palace á
uppleið á ný
Crystal Palace virðist vera á
uppleið á nýjan leik eftir frekar
slæman kafla sem varð til þess
að liðið hrapaði úr efsta sæti
deildarinnar og niður í sjötta
sætið. Palace vann verðskuldað-
an sigur á Manchester City á
heimavelli sínum. Palace hefði
getað skorað fleiri mörk heldur
en tvö, en City fékk líka færi sem
ekki nýttust. Ian Walsh skoraði
fyrra mark Palace snemma í
leiknum eftir óvænt mistök hjá
Joe Corrigan. Nálægt miðjum
síðari hálfleik fékk Palace siðan
hornspyrnu. Caton, miðvörður
City, skallaði frá en Palace
leikmaðurinn Paul Hinselwood
skaliaði knöttinn rakleiðis til
baka til Dave Swindlehurst sem
afgreiddi knöttinn í netið með
þrumufleyg. Palace skaust í
fjórða sætið með sigri þessum.
Hér og þar
um England
Tottenham lék sinn áttunda
leik í röð án taps, er liðið sótti
Middlesbrough heim og hélt á
brott með eitt stig. Tottenham,
með þá Ardiles, Villa og Hoddl í
fararbroddi, lék fágaðri knatt-
spyrnu en heimaliðið, en Boro
átti engu að síður hættuleg
tækifæri. T.d. bjargaði Villa á
marklínu skalla Mark Procter og
Mick Burns skallaði í þverslá.
Hoddle, Villa og Ardiles voru
allir nærri því að skora fyrir
Tottenham og Gerry Armstrong
átti þrumuskalla í stöng í síðari
hálfleik. Leikur þessi var í heild
stórskemmtilegur, spennandi og
í hann vantaði ekkert nema
eitthvað af mörkum.
Eddy Grey skoraði eftir aðeins
18 sekúndur fyrir Leeds gegn
Bristol City á Elland Road og
framan af virtist sem lið Leeds
myndi fylgja óskabyrjun sinni
eftir og sökkva liði Bristol með
manni og mús. Bristol-liðið náði
sér hins vegar hægt og bítandi á
strik og Kevin Mabbutt tókst að
jafna fyrir hlé. Tvö mörk á
þremur mínútum snemma í
síðari hálfleik sökktu síðan
Leeds endanlega, það voru þeir
Mabbutt og Geoff Merrick sem
mörkin skoruðu.
Fyrrum Manchester Utd.
-leikmennirnir Gordon Hill og
Gerry Daly sáu um að Derby
innbyrti tvö dýrmæt stig í botn-
baráttunni, en liðið fékk WBA í
heimsókn á Baseball Ground.
WBA lék miklu betur framan af
og náði verðskuldaðri forystu á
9. mínútu með marki Brian
Robson. Þó að jöfnunarmarkið
skrifist á Hill, vissi hann lítið
hvað fram fór, þrumuskot bak-
varðarins David Langan breytti
nefnilega stefnu af afturendan-
um á Hill og plataði þannig Tony
Godden í marki WBA. Sigur-
• Trevor Francis skoraði bæði
mörk Forest gegn Ipswich um
helgina.
markið skoraði Gerry Daly um
miðjan síðari hálfleik.
Coventry tapaði sínum fyrsta
leik á heimavelli á haustinu og
Stoke vann jafnframt sinn
fyrsta sigur á útivelli er liðin
mættust og verður því að segj-
ast, að úrslitin hafi verið óvænt.
Þetta var ekki dagur Coventry,
liðið misnotaði nokkur góð
marktækifæri áður en bakvörð-
urinn David Jones sendi knött-
inn í eigið net. Tveimur mínút-
um síðar skoraði Adrian Heath
eftir slæm varnarmistök 2—0
fyrir Stoke. Bobby McDonald
minnkaði muninn fyrir heima-
liðið með glæsimarki úr auka-
spyrnu rétt fyrir leikhlé, en í
jöfnum síðari hálfleik tókst
Stoke aðeins að skora og var þar
að verki Garth Crooks.
Aston Villa kastaði næstum
frá sér auðveldum sigri gegn
Bolton á heimavelli sínum. Stað-
an í hálfleik var 2—0 með
mörkum Garry Shaw og Alan
Evans. Villa réð síðan gangi
leiksins allt þar til skammt var
til leiksloka, að Niel Whatmore
tókst að minnka muninn fyrir
Bolton. Leikmenn Bolton lögðu
þá allt í sóknina og misnotuðu
algert dauðafæri til þess að
jafna áður en Dennis Mortimer
tók af skarið og skoraði þriðja
mark Villa.
Arsenal lék botnliðið Brighton
sundur og saman. Leikmenn
Lundúnaliðsins voru þó ekki á
skotskónum í fyrri hálfleik, þeir
voru þess í stað þeim mun
duglegri í þeim síðari. Graham
Rix, Liam Brady (víti) og Alan
Sunderland skoruðu mörk Ars-
enal.
Kevin Keelan, hinn 36 ára
gamli markvörður Norwich, lék
sinn 664. deildarleik fyrir Norw-
ich, met. Leik Norwich og Evert-
on lyktaði með jafntefli og voru
engin mörk skoruð, bæði liðin
fengu þó sín færi, en markverð-
irnir voru á sínum stað.
• Liverpool vinnur nú hvern leikinn af öðrum með miklum tilþrifum og Ray Kennedy (t.h.) hefur
verið drjúgur við að skora mörk.
öll um helgina
Knatt-
spyrnu-
úrslit
England, 1. deild:
Arsenal—Brighton 3-0
Aston Villa—Holton 3-1
Coventry—Stoke 1-3
Crystal Palace— Manch. City 2-0
Derby-WBA 2-1
Leeds—Bristol City 1-3
Liver pool—Wolves 3-0
Manrh. Utd—Southampton 1-0
Middlesbrough—Tottenham 0-0
Norwich—Everton 0-0
Nott. Forest—Ipswich 2-0
England, 2. deild:
Bristol Rovers—QPR 1-3
Burnley—Orient 1-2
Cambridge—Luton 1-2
Cardiff—Notts Country 3-2
F ulham—Birmingham 2-4
Oldham—Newcastle 1-0
Preston—Char Iton 1-1
Shrewsbury—S wansea 2-2
Sunderiand—Chelsea 2-1
Wat ford—Leicester 1-3
West Ham—Wrexham 1-0
England, 3. deild:
Brentford—Reading 2-2
Burny—Plymouth 2-1
Carlisle—Sout hend 4-0
Chester—Wi mbledon 3-1
Chesterf ield—Mansf ield 2-1
Exeter—Grimsby 1-2
Gillingham—Blackpool 1-1
Millwall—Blackburn 1-0
Rot herham—Oxford 0-2
Sheffleld Wed—Barnsley 0-2
Swlndon—Sheffield Utd 3-2
England, 4. deild:
A Idershot—Huddersf ield 0-2
Bournemouth — Rochdale 4-0
Crewe—Bradford City 2-0
Ilalifax—Tran mere 0-0
Northampton—Doncaster 1-0
Peterbrouth—Lincoln 3-1
Portsmouth—Hartlepool 2-1
Port Vale—Newport 2-0
Scunthorpe—Torquay 1-1
Wigan—Darlington 4-1
York City—Hereford 3-1
Skotland, úrvalsdeild:
Aberdeen—Dundee Utd. 0-3
Dundee—Hibemian 2-1
Kilmarnock—Celtic 2-0
Morton—St. Mirren 0-0
Rangers— Partíck Thistle 2-1
Staðan i akosku úrvaisdeildinni er
nú sú, að Celtic ok Morton hafa beeði
hlotið 17 stig að loknum 12 umferðum.
Morton hefur hins vegar mun betri
markatðlu. Siðan er fjðgurra stiga
munur niður i þriðja til fimmta sætið,
en Abberdeen. Rangera og Kilmar-
nock hafa öll hlotið 13 atig.
Austur Þýskaland
Dynamó Dresden—Karl Marx Stadt
1-0
Chenie Halie—Dynamó Berlin 3—1
Loko Leipzig—Magdeburg 1—1
Carl Zeiss Jena—Wismut Aue 3—0
Zwichau—Frankfurt/Oder 1—1
Union Berlin—Stahl Reisa 2—0
RW Erfurt—Chemie l.eipzig 2—2
Dynamó Dresden hefur örugga for-
ystu sem stendur. 16 stig, en Dynamó
Beriin, Jena og Chemie Halle hafa öll
hiotið 13 stig.
Ítalía
Bolognia—Cagliari 0—1
Catanzarro—Roma 2—2
Lazfó—Juventus 1—0
AC Milanó—Fiorentina 2—0
Napóli—Avelino 0—1
Pescera—Perugia 1 — 1
Torino—Inter 0—0
Udlnese—Ascoli 3—1
Sigurmark Imzíó gegn Juventus var
sjálfsmark Vinicio Verza og úrslit
leiksins voru þau óva-ntustu i umferð-
inni. Inter hefur forystu í keppninni
eins og sakir standa, hefur hlotið 13
stig. AC Mílanó og Cagliari hafa bæði
11 stig, Juventus og Torinó hafa 10
stig.
Belgía
FC Brugge—Cercle Brugge 2-0
Molenbek—Standard 0-1
Charleroi—SC Lierse 2-3
Winterslag—Lokeren
Beerschot—Hasselt 4-0
Beveren—Waregem 0-0
FC Liege—Waterschei 2-1
Antwerp—Anderlecht 0-0
Beringen—Berchem 1-0