Morgunblaðið - 06.11.1979, Side 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979
Veður
víða um heim
Akureyri 1 slydda
Amsterdam 9 rigning
Aþena 14 skýjað
Barcelona 17 léttskýjaó
Berlín 10 skýjaó
BrUssel 7 rigning
Chicago 10 skýjaó
Denpasar, Bali 31 skýjað
Feneyjar 8 alskýjað
Genf 11 skýjað
Helsinki 1 skýjað
Hong Kong 27 skýjað
Jerúsalem 20 bjart
Jóhannesarborg 28 bjart
Kaupmannahöfr i 9 bjart
Lissabon 24 bjart
Las Palmas 23 léttskýjað
London 15 bjart
Los Angeles 21 rigning
Madrid 20 bjart
Majorka 20 léttskýjað
Maiaga 19 heiðríkt
Miami 26 rigning
Moskva -4 skýjað
Nýja Delhi 31 skýjað
New York 15 bjart
Ósió 8 bjart
Paris 14 rigning
Reykjavík 1 léttskýjað
Rómaborg 14 bjart
San Francisco 18 rigning
Stokkhólmur 8 skýjað
Sydney 25 bjart
Tel Aviv 24 bjart
Tókýó 25 skýjaö
Toronto 8 skýjað
Vancouver 15 skýjað
Vínarborg 7 skýjað
Karl Bretaprins í Derby
109 ára gömul.
þar ræddi hann við Fanny Berry sem í þessum mánuði verður
Simamynd AP.
Danmörk:
Launa- ojj verðlags-
frysting til áramóta
Kaupmannahöfn, 5. nóvember.
Ap og fréttarítari Mbl. Erik A. Larsen.
ANKER Jörgensen, for-
sætisráðherra Danmerk-
ur, ávarpaði þjóðina í sjón-
varpi í gærdag þar sem
hann lagði þunga áherzlu
á nauðsyn þeirra um-
Bukovsky í hvassyrtri grein:
/
Hundsið Olympíuleikana
— þeir eru svik — glæpur
BrUwtel, 5. nóv. AP.
VLADIMIR Bukovsky,
hinn frægi sovézki and-
ófsmaður, hvatti til þess í
dag, að menn hundsuðu
Ólympíuleikana í
Moskvu sem eiga að íara
þar fram á næsta ári. „Ef
Evrópulönd vilja í alvöru
frið, góð gagnkvæm sam-
skipti og öryggi, er
heimskulegt að ýta undir
hegðan sovézku stjórnar-
innar með því að taka
þátt í Ólympíuleikun-
um,“ segir Bukovsky í
grein sem hann skrifar í
blaðið Le Soir, sem kem-
ur út í Bríissel.
Bukovsky
Bukovsky segir í grein sinni,
að samvinna á sviði menningar
og vísinda, svo og samskipti
varðandi efnahagsmál, goti að-
eins orðið friði til framdráttar ef
Evrópulöndum takist að neyða
sovézku stjórnina til þess að
standa við skuldbindingar sínar.
Hann segir, að tímasetning Ól-
ympíuieikanna í Moskvu sé af-
leit frá pólitísku sjónarmiði og
frá mannúðlegu sjónarmiði séu
þeir svik, frá lagalegu sjónar-
miði beinlínis glæpur.
Bukovsky segir í greininni, að
Sovétríkin uppfylli ekki neina af
hugsjónum Ölympíuleikanna.
Hann segir, að Sovétríkin séu
útþenslustefnuríki og hafi her-
numið ríki og hersitji sum þeirra
enn. Utanríkisstefna þeirra sé í
þessum anda og ekki hafi dregið
úr vopnakapphlaupinu við ná-
grannaríkin.
Bukovsky sagði, að aldrei
hefðu verið haldnar frjálsar
kosningar í Sovétríkjunum og
hann vék einnig að ýmsum
þjóðarbrotum og minnihluta-
hópum í Sovétríkjunum sem
byggju við stórlega skert mann-
réttindi.
fangsmiklu efnahagsað-
gerða sem þegar hafa ver-
ið kynntar. Sagði ráðherr-
ann að ef þessum aðgerð-
um stjórnvalda yrði ekki
hrundið í framkvæmd
blasti ekkert annað við en
efnahagslegt hrun í land-
inu.
Það sem vakti helzt athygli í
sjónvarpsávarpi ráðherrans var
tilkynning um algjöra frystingu
launa og verðlags í landinu það
sem eftir er ársins.
Ráðherrann sagði og að við-
skiptajöfnuður landsmanna væri
sá óhagstæðasti um langan aldur,
búast mætti við því að viðskipta-
jöfnuðurinn yrði óhagstæður um
allt að 15 milljarða danskra króna
á þessu ári, sem næst 1100 millj-
arða íslenzkra króna eða um 25%
af heildar þjóðarframleiðslunni.
Viðbrögðin við tilkynningu for-
sætisráðherrans um launafryst-
ingu voru á einn veg, bæði samtök
atvinnurekenda og samtök laun-
þega lýstu þegar stuðningi sínum
við þær, sögðu þær skynsamlegar
eins og á stæði.
Að síðustu sagði ráðherrann að
gengisfelling dönsku krónunnar
væri alls ekki á dagskrá á næst-
unni, eins og svo mjög hefur verið
rætt um, „en það kemur að því“,
sagði ráðherrann.
Þetta gerðist
1974 — Rússar hvetja tii stofn-
unar Palestínuríkis.
1968 — Viðræður um frið í
Víetnam hefjast í París,
1962 — Ailsherjarþingið hvetur
til efnahagslegra refsiaðgerða
gegn Suður-Afríku.
1956 — Vopnahlé samþykkt við
Súez — Vinna hefst við Kariba-
stífluna.
1942 — Flóðbylgja verður 10.000
að bana í Bengal.
1937 — ítalir ganga í Andkom-
intern-bandalag Þjóðverja og
Japana.
1936 — Umsátrið um Madrid
hefst og spænska stjórnin hörfar
til Vaiencia.
1860 — Abraham Lincoln kos-
inn forseti Bandaríkjanna.
1846 — Austurríkismenn inn-
lima Ki aká-lýðveldið í trássi við
Vinar-sáttmálann.
1632 — Gústaf Adolf fellur í
orrustunni við Lutzen.
Aímæli — Adoiphe Sax, belgísk-
ur hijóðfærasmiður (1814—1894)
— Jonas Lie, norskur rithöfund-
ur (1833—1908) — Peter I.
Tchaikovsky, rússneskt tónskáid
(1840-1893) - John Philip
Sousa, bandarískt tónskáld
(1854—1932) — James Jones,
bandarískur rithöfundur
(1921-1978).
Andlát — Sir Charles Napier,
sjóliðsforingi, 1860.
Innlent — Kirkja við Austurvöll
vígð 1796 — f. Jón Halldórsson
prófastur í Hítardal 1665 —
Gottrup sýsiumaður tekur hús á
Oddi Sigurðssyni á Rifi 1723 —
Fensmark fv. bæjarfógeti á ísa-
fírði náðaður 1885 — Fyrsta
járnbrautarlestin kemur til
Nýja íslands 1914 — Mótmæli
gegn kauplækkun í atvinnubóta-
vinnu 1932 — „Naust“ opnað
1954 — d. Bjarni Sæmundsson
1940.
Orð dagsins — Guð skapaði
sveitina og maðurinn skapaði
bæi — William Cowper, enskt
skáld (1731-1800).
James Earl
Ray reyndi
að flýja úr
fangelsi
Petros, Tennessee, 5. nóvember.
AP. Reuter.
JAMES Earl Ray, morðingi
blökkumannaleiðtogans
Martin Luther Kings,
reyndi í dag að strjúka úr
fangelsi. Hann komst
ásamt nokkrum öðrum
föngum upp á þak fangels-
isbyggingarinnar. Þar sá
vörður þá og eftir að við-
vörunarskoti hafði verið
hleypt af gáfust fangarnir
upp.
íheirn-
sókn hjá
aðdáenda
Derby, Englandi 5. nóv. AP.
CHARLES Bretaprins fór um
helgina að heimsækja einn af
mörgum aðdáendum sínum úr
röðum kvenna. Hann flutti sér-
stakt afmælisávarp til heiðurs
Fanny Berry, vistmanni á War-
wick-elliheimilinu í Derby, er hún
verður 109 ára þann 12. nóvember
næstkomandi. Sjálfur á prinsinn
afmæli 14. nóvember og sagði í
ávarpi sínu, glaðbeittur og beindi
orðum til Fannyjar: „Er ekki allt
bezta fólkið fætt í nóvember?"
Skröfuðu þau síðan saman í tíu
mínútur og eftir að prinsinn fór á
braut sagði Fanny himinlifandi:
„Hann er undursamlegur. Hann er
ákaflega sjarmerandi maður.
Hann er frábær og hann er
nákvæmlega eins og ég held að
kóngur eigi að vera.“
Yosef Burg.
Begin
ávítar
Burg
Tel Aviv 5. nóv. AP. Reuter.
YOSEF Burg, innanrikis-
ráðherra ísraels, fékk ákúr-
ur á ríkisstjórnarfundi í
Jerúsalem á sunnudag fyrir
að láta hafa eftir sér, að
ísraelsmenn kynnu að fást
til að tala við Frelsissamtök
Palestinumanna ef PLO
hætti hryðjuverkum. Begin
forsætisráðherra mun hafa
varað ráðherra sína mjög
eindregið við allri laus-
mælgi.
Burg brá við skjótt og tók
aftur yfirlýsingu um að hann
væri fylgjandi því að end-
urskoða afstöðu sína ef PLO
bytti tafarlaust enda á
hryðjuverkin. Burg er í for-
svari nefndarinnar sem fjall-
ar um sjálfsstjórnarmál
Palestínumanna við Egypta.
Begin mun hafa notið
stuðnings allra samráðherra
sinna á fundinum, að sögn.
Burg talaði við fréttamenn að
loknum fundinum og dró þá
úr orðum sínum.
Umræður um hið umdeilda
frumvarp er miðar að breyt-
ingu á fóstureyðingarlöggjöf
Ísraels fóru fram í dag og
verður að líkindum atkvæða-
greiðsla um það í kvöld eða á
morgun. Talsmaður smá-
flokksins Aguadat, sem berst
fyrir því að löggjöfin verði
hert, sagði í dag að hann
myndi aðeins styðja tillögu
Begins um að útnefna annan
aðstoðarforsætisráðherra ef
frumvarpið næði fram að
ganga í Knesset. Begin hefur
lagt áherzlu á, að Simcha
Ehrlich, hinn umdeildi fyrr-
verandi fjármálaráðherra
hans, fái starfann.