Morgunblaðið - 09.11.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1979
11
Leikiist
eftir BOLLA
GÚSTAFSSON
vandamáli, sem yfirskyggir allt
annað um þessar mundir. Þannig
hugsar höfundur ekki um afdrif
verksins, eins og eigingjörnum
listamönnum er tamt, virðist ekki
hafa sjónarmið sígildrar listar í
huga. En Örn er ekki ókunnur
leikhúsi eða möguleikum sviðsins
og þá þekkingu notfærir hann sér á
kunnáttusamlegan hátt. Honum
fatast ekki, fyrr en í lokin, þegar
boðskapurinn er orðinn svo fyrir-
ferðarmikill og logandi, að hann
kaffærir einnig hið „sjálfstæða
listform", leiklistina. Þá ganga
leikararnir fram úr skugganum og
bera fram kunnar ásakanir á
íslenskt samfélag eða stjórnvöld;
sbr. „undir yfirskyni viðskipta-
frelsis selur íslenska ríkið börnum
sínum eitur með þrjú þúsund
prósent álagningu."
Ég minnist þess frá bernskudög-
um, að sagt var um ágæta mat-
reiðslukonu, að hún væri svo fær í
sinni grein, að hún gæti búið til
átján kjötrétti úr einum ýsuhaus.
Mér kemur þessi öfgafulla sam-
líking í hug, þegar vikið er að þætti
Þórunnar Sigurðardóttur leik-
stjóra. Hún hefur unnið það þrek-
virki, að gera þessa sýningu að
áhrifaríkri leiklist. Getur engum
dulist sú alúð, sem hún hefur lagt
við verkið. Skiptingar á atriðum, er
gerast á forsviði og þeirra, sem
gerast í stofunni á aðalsviði, eru
hárnákvæmar og valda aldrei
truflun. Hér nýtur leikstjóri einnig
öryggis ljósameistarans, Ingvars B.
Björnssonar. Hann beitir og ljósum
af mikilli leikni í takt við ærandi
tónlist og í samræmi við lát-
bragðsleik handan tjaldsins í upp-
hafi og einnig síðar í stuttum og
snöggum myndslitrum, sem koma
eiga fram í huga Maríu í æðisköst-
um hennar. Leikstjórinn hefur alla
þræði í öruggum höndum, svo
engum leikaranna verður fóta-
skortur í þeirri mögnuðu baráttu,
sem er linnulaus frá upphafi leiks-
ins til enda. Leikmynd Sigurjóns
Jóhannssonar er sannfærandi,
steypumótin, tákn „æðibunusam-
félagsins íslenska","eins og rámitii
um gömlu, vanræktu bárujárns-
húsin við öngstrætið þar sem
„úrhrökin" leita skjóls við ösku
tunnurnar. Aðalhlutverk eru í
höndum Svanhildar Jóhannesdótt-
ur og Sunnu Borg. Svanhildur
leikur Maríu í strætinu, stúlku,
sem orðið hefur fyrir geigvænlegu
áfalli, er hratt henni út í gegndar-
lausa óreglu fjarri heimahögum.
Af mikilli innlifun túlkar Svan-
hildur lánleysi hennar, sturlun,
þrjósku og örvæntingu. Hæst ber
samleik hennar og Sunnu Borg,
sem leikur hina forhertu Önnu,
sem tekur Maríu að sér í strætinu.
Liggur við að reisn og glæsileikur
leikkonunnar beri hlutverk sigr-
aðrar utangarðsmanneskju ofur-
liði. Með ögun verður því forðað, en
hún leikur á þeim mörkum til enda,
svo sársauki dapurlegra örlaga
verður magnaður, verkinu til
ávinnings. Guðbjörg Guðmunds-
dóttir leikur Maríu sem ungling í
föðurhúsum. Guðbjörg er ung og
óreynd leikkona, reyndar vart af
barnsaldri, svo að sú hugsun
hvarflar að manni, hvort henni sé
ekki ætlað of mikið að taka þátt í
þeim ógnþrungnu og miskunnar-
lausu átökum, sem fram koma í
samleik hennar og Theódórs Júlí-
ussonar í hlutverki bróðurins. En
Guðbjörg skilar hlutverki sínu með
öryggi og á þann veg, að þráðurinn
milli hennar og Svanhildar, sem
lýsir Maríu fimm árum síðar, er
nógu sterkur. Theodór nær þeim
tökum, sem hægt er að ná á erfiðu
hlutverki, sem dregið er fremur
daufum dráttum af höfundi, ekki
síst, þegar fram í sækir. Foreldra
Maríu leika Þráinn Karlsson og
Sigurveig Jönsdóttir. Þráinn leikur
hér erfiðismann, sem stendur
spyrjandi og ráðþrota á barmi
þeirrar gjár, sem nefnt er kyn-
slóðabil. Af nærfærni lýsir hann
því, hvernig skilningsskortur og
hlýjar tilfinningar vega salt í
þessum roskna manni. Móðirin er
taugasjúklingur og á valdi sterkra,
róandi lyfja, sem draga hana að
lokum til dauða. Lýsing Sigurveig-
ar á þessari rugluðu manneskju er
sannfærandi og hófsamleg. Líkt er
um leik hennar í hlutverki deildar-
hjúkrunarkonu, sem er fulltrúi
þeirra, sem reyna „að tjasla fólki
saman líkamlega, og reyna að
húrra það upp andlega." Tekst
Sigurveigu mætavel að túlka
þreytu og vondepurð hjúkrunar-
fólks, sem horfir á eftir tauga- og
geðsjúklingum út í samfélag, sem
ekki er tilbúið að veita þeim þá
uppörvun og þá vináttu, sem það er
í þörf fyrir. Viðar Eggertsson
leikur Pétur, ungan mann, sem
María kynnist á geðveikrahælinu.
Slær Viðar á rétta strengi, nær að
sýna barnslega viðkvæmni hans og
síðar óhug við óvænta árekstra og
vonbrigðin, sem hrekja hann ráð-
þrota frá Maríu. Leikur Gests
Jónassonar í hlutverki rónans er
afbragðsgóður. Allt látbragð og
svipbrigðin lýstu þessum lang-
drukkna lánleysingja á þann veg,
að hvergi er of langt gengið.
Vandlæting Kristjönu Jónsdóttur í
hlutverki kerlingar, sem verður
sífellt fyrir ónæði, er ósvikin. Hún
tilheyrði glugganum eins og nauð-
synlegur dráttur í leikmyndinni.
Bjarni Steingrímsson leikur fjögur
lítil hlutverk og gefur ekkert þeirra
tækifæri til átaka, en öll leysir
hann þau vel af hendi.
Augljóst er, að leikstjóri og
leikendur hafa lagt hart að sér til
þess að þessi sýning L.A. verði sem
best úr garði gerð. Það er ekki of
djúpt í árinni tekið að segja, að hún
sé vönduð. Það er vel, ekki síst
vegna þess að félaginu hefur verið
boðið með hana til Svíþjóðar á
norrænt mót landshlutaleikhúsa,
sem haldið verður í Örebro 3.-8.
desember. Er ekki að efa, að þar
mun hún vekja verðuga athygli.
Oft er að því vikið, að ungum
höfundum, sem mikið er niðri fyrir,
sé nauðsynlegt að láta gamminn
geysa. Þá sé við því að búast, að í
kjölfar fylgi vandaðri verk, þegar
þeir eru komnir úr röstinni. Erni
Bjarnasyni liggur mikið á hjarta
og hann skortir hvorki einlægni né
löngun til þess að vekja samfélag
okkar. Ég vona, að hann láti ekki
hér við sitja, haldi áfram, en
sniðgangi þá helst ekki veigamik-
inn þátt bókmennta í næstu leikrit-
um. Óska ég honum velfarnaðar í
glímunni.
Guðbjörg Guðmundsdóttir (Maria sem ung stúlka) og Theódór
Júliusson (bróðir Mariu).
LKIASSI
Það er klárt mál að Van Gils fatnaðurinn írá Belgíu
er l.klassi,enda viðurkennt nafn í bransanum heimshorna
á milli. Nú bjóðum við bráðfallegan fatnað frá þessu ágæta
fyrirtæki.
Fyrst skal nefna ,,peysufötin" en þau eru sett saman
úr jakka og flannelsbuxum með prjónuðu vesti auk
bindis og trefils í stíl, eftir vali.
Einnig mikið úrval af fötum, stökum
jökkum, frökkum og ullarblússum.
KOMDU OG SKOÐAÐU NÝJU
* LÍNUNA FRÁ VAN GILS, HÚN ER 1. KLASSI.
BANKASTRÆTI 7. SÍMI 29122. AÐALSTRÆTI 4.SÍMI 15005.