Morgunblaðið - 09.11.1979, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 09.11.1979, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1979 Fötin á myndun- um, sem hönnuð eru aí þekktum tískuírömuðum, eins og Givenchy, Saint Laurent, Hal- ston, Calvin Klein 0.11. eiga það sam- eiginlegt, að vera úr mjög skrautleg- um elnum, silki hrokaði og satíni. Mikið er um gyllt- an lit og silfurlitað- an, og einnig eru pallíettur til skrauts. Eins og sjá má er þetta latnaður ætlaður til að nota að kvöldi. Soðin síld í karrý Hjá ungu mönnunum í fiskbúðinni minni hefur verið til ný síld undanfarið, og það meira að segja flökuð. Vonandi er svo á fleiri stöðum. í þeirri von er komið hér á framfæri danskri uppskrift: Soðin síld í karrý 1 kg. síld 2 matsk. fínt saxaður laukur dál. persille safi úr einni sítrónu 1 dl. af vatni. í sósuna: 2 barnaskeiðar af karrý 25—50 gr. smjörlíki fisksoðið 1 dl. rjómi ef vill. Hæfilega stór pottur smurður að innan, laukurinn settur í botninn og upprúlluð síldarflökin lögð ofan á. Salt, persille, sítr- ónusafi og vatn sett yfir og flökin látin sjóða við hægan straum í 6—8 mín. Sósan: Smjörlíkið brætt, karrýið sett út í, hveitið hrært út í og þynnt út með fisksoðinu. Rjóma bætt í. Borið fram með soðnum hrísgrjónum. Kínversk áhrif Það gætir greinilega kínverskra áhrifa í fatnaðinum á myndum þeim, sem hér fylgja með. Fötin eru hönnuð af Saint Laurent og eru hluti af því, sem hann sýndi fyrir veturinn. „Af hverju spurðu þeir ekki Evans? Agatha Christie. Aðdáendur Agöthu Christie, en þeir eru áreiðanlega fjöl- margir get ég glatt með því, að von er á sjónvarpsþáttum gerð- um eftir bók hennar „Why Didn’t They Ask Evans?" og ekki ólíklegt, að þeir birtist á skjánum hjá okkur einhvern- tíma á næstu árum. Þessi bók, sem kom út 1934 hefur verið talin eina bók höf- undar, sem kalla má gaman- sama, en kímni eða gamansemi þóttu ekki áberandi þættir í fari eða skrifum skáldkonunnar. En hvað sem því líður, er þessi bók hennar alveg sérstak- lega skemmtileg aflestrar, og óvenjuleg að því leyti, að sögu- hetjurnar Bobby Jones og lafði Frances Dervent, sjá sjálf um að leita sökudólgsins og leysa morðgátuna. Af þeim kynnum, sem fengist hafa af þrem mismunandi út- gáfum af Hercule Poirot, í jafn mörgum kvikmyndum, jafnvel þó að góðir leikarar eins og Albert Finney og nú síðast Peter Ustinov hafi átt í hlut, er dálkahöfundur feginn að sleppa við frekari vonbrigði á túlkun þeirrar sögufrægu persónu. Við endurlestur þessarar bók- ar nú, þegar vitað er um fyrirhugaða sjónvarpsþætti, er ég sannfærð um, að þættirnir hljóta að verða mjög spennandi. Söguhetjan Bobby Jones kemur að stórslösuðum manni, sem í fyrstu er álitið að hafi orðið fyrir slysi, og síðustu orð hins deyjandi manns eru: „Af hverju spurðu þeir ekki Evans“? Bobþy og bernskuvinkona hans lafði Frances, taka málin í sínar hendur og lenda í ótöldum æfintýrum og raunum við leit að morðingjanum. Það tók 18 mánuði að semja um rétt til kvikmyndatöku þessarar sögu, og margir um hituna. London Weekend Tele- vision varð hlutskarpast í þeirri viðureign, og mun ætía að hafa sjónvarpsþættina þrjá, og verð- ur hver um sig klukkustundar langur. Aðalsöguhetjurnar eru leikn- ar af James Warwick, sem er Bobby, og Francesku Amis, sem er lafði Frances. Af öðrum leikurum má nefna Sir John Gielgud, sem leikur prest og Eric Porter, sem leikur lækni. Er ekki annað að sjá, en val leikara ætti að verða til að auka við ánægjuna, þegar, (— og ef —), þættirnir verða sýndir hér í sjónvarpinu. Við aðdáend- ur Agöthu Christie verðum að vona það besta. Francesca Annis i hlutverki iafði Frances.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.