Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
35
gáfu að geta gert allt að hláturs-
efni, jafnvel hinar sorglegustu
aðstæður, sem oft má finna í
stjórnmálunum hjá okkur. Það er
annars algerlega að bera í bakka-
fullan lækinn að bera lof á Sig-
mund hér. Hann gerir það miklu
betur sjálfur með teikningu sinni
á sínum stað í blaðinu. En dagblöð
eru með því fyrirgengilegasta í
okkar tíð. Því er það gleðiefni, að
út er komin bók með yfir 150
mynda Sigmunds. Það er Prent-
húsið í Reykjavík, sem stendur
fyrir þessari útgáfu, en stuttur
formáli fylgir eftir I.G.Þ.,(Indriða
G. Þorsteinsson rithöfund?). Þetta
er ein sérkennilegasta bók á
markaði fyrir þessi jól, en það er
ekki í fyrsta skipti, sem út kemur
bók af þessu tagi. Hér á árunum
var það skopteiknari frá Mið-
Evrópu, sem teiknaði mikið af
þekktum íslendingum og síðan
voru Rauðkurnar, sem Spegillinn
gaf út og ef til fleira, er ég man
ekki í svipinn. Bretar hafa átt
mikið af góðum teiknurum og eiga
enn. Eina bók á ég eftir skopteikn-
arann Low, er var allra manna
þekktastur á sínum tíma í Bret-
landi og teiknaði meira að segja
eina mynd frá íslandi, en það er
önnur saga og ekki meir um það.
Sigmund er einn þeirra örfáu
manna, sem með snilligáfu sinni
getur miðlað öðrum í ríkum mæli.
Gleði hans og alvara eru af því
tagi, sem hverri þjóð er hollt að
taka mark á. Einn af mínum
horfnu góðvinum hélt því ætíð
fram, að þeir einir væru hinir
sönnu velgerðarmenn mannkyns,
er miðlað gætu kæti og glatt sína
samferðamenn. Hinir alvarlegu
postular menningar og þjóðar-
samvisku kæmust ekki með tærn
ar, þar sem hinir fyrrnefndu væru
með hælana. Mér finnst þessi
ívitnun eiga sérlega vel við starf-
semí Sigmunds.
Ég hef flett þessari bók Sig-
munds, en ekki vil ég um það
dæma, hvort hér eru bestu myndir
hans eða ekki. Enda held ég, að
seint verði valið svo úr verkum
hans, að það verði kallað það
besta. Ég hafði óskerta ánægju af
Sigmund á Skopöld, og þótt ég
hafi hana handa á millum, klæjar
mig í lófana að sjá, hvað hann
gerir í Morgunblaðinu í fyrramál-
ið.
Valtýr Pétursson.
satt í alla staði, því að það sannar
til fulls gengi hans og lífsgæfu. En
hins vegar læt ég yfirleitt lönd og
leið það, sem hann rekur hornin í;
má þar nefna að hans dómi
ótímabær verkföll og blaðaum-
mæli, stundum stjórnarathafnir
ráðamanna ríkisins og síðast en
ekki sízt framtak bæjarfélaga í
útgerðarmálum.
Alveg án tilits til þessa er það
sannfæring mín, að af fiskveiða-
lýsingum hans og útgerðarháttum
má mikið þarflegt læra, en samt
mun sumt það vefjast fyrir út-
gerðarmönnum, sem hefur rennt
stoðum undir velfarnað hans. Ég
minnist þess, að þá er nýsköpun-
artogararnir voru að koma hver af
öðrum, dró ég stórlega í efa, að
takast mætti flestum eigendum
þeirra, að fá á þá nægilega fiskna,
stjórnsama og hagsýna skipstjóra.
Sama máli gegndi um útvegun vel
færra og einnig samvizkusamra
vélstjóra. Þessi efi minn reyndist
því miður ekki ástæðulaus. Það er
ekki að því hlaupið að velja sér
skipstjóra, sem jafnist á við Guð-
mund kenndan við Skallagrím,
bræðurna Jón og Gísla Oddssyni,
Tryggva Ófeigsson, Vilhjálm
Arnason, Bjarna Ingimarsson og
þá feðga Guðmund og Markús, svo
að nokkrir séu nefndir. Ékki
heldur vélstjóra, sem séu líkar
þeirra Hallgríms Jónssonar og
Jónasar Ólafssonar, sem ég nefni
af því að ég raunþekkti þá báða.
Loks skal það tekið fram, þó að
það sé í rauninni hverjum manni
auðvitað, að bókin er fróðleg um
þróun íslenzkrar útgerðar og sjó-
sóknar á þessari öld.
Guðmundur Gíslason Hagalín
35=
„NÁIN KYNNIAF VERSTU GERГ
Nú þegar venjuleg hljómplata
kostar u.m.b. kr. 8.000- þá er auövitað
aöalatriöiö aö hún endist sem lengst
og að þú hlustandi góöur njótir hennar vel.
Besta tryggingin fyrir góöri
endingu er aö platan sé leikin meö góöri nál
á góöum hljómtækjum.
Nú er rétti tíminn til að fá sér ný hljómtæki
því að viö tökum
gömlu tækin upp í ný
Ef þú ert ekki sáttur viö okkar verðmat á
þínu tæki þá tökum við þaö í umboðssölu.
VersliÓísérverslun með
LITASJÓNVÖRP og HUÓMTÆKI
29800
BÚÐIN Skipholti19