Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
41
unarráðs íslands, að núgildandi
vaxtatilkynning um dráttarvexti
sé skýr og ótvíræð, og gildi í
almennum viðskiptum bæði um
lánsviðskipti á grundvelli gjald-
frests á vöruúttekt til tiltekins
tíma. Þessi skilningur hefur þegar
skapað sér hefð í almennri við-
skiptavenju.
Þótt skuldarar séu samkvæmt
þessum ákvæðum skyldaðir til frá
eindaga skuldar að greiða skuld-
areiganda hæstu leyfilega drátt-
arvexti, telur stjórn Verzlunar-
ráðs íslands nauðsynlegt og í
samræmi við góða viðskiptavenju,
að greinilega sé samið um
greiðslukjör, áður en dráttarvöxt-
um er beitt. Upplýsingar um
greiðsludag, eindaga og beitingu
dráttarvaxta ættu þar að koma
skýrt fram.
Dráttarvextir í
viðskiptum við
opinbera aðila
Á undanförnum árum hafa op-
inberir aðilar og stofnanir ríkis og
sveitarfélaga yfirleitt neitað að
hlíta auglýstum viðskiptaskilmál-
um um gjalddaga skulda og
greiðslu dráttarvaxta, þótt opin-
berir aðilar beiti ávallt fullum
dráttarvöxtum er þeir innheimta
kröfur sínar á hendur atvinnulíf-
inu. Fyrirtæki þurfa því að inna
greiðslur opinberra gjalda skil-
víslega af hendi á sama tíma og
opinberir aðilar skulda fyrirtækj-
um mun hærri fjárhæðir lang-
tímum saman. Vegna þessa
ástands ritaði Verzlunarráð
íslands fjármálaráðuneytinu bréf,
dags. 19. október 1977. í svari
fjármálaráðuneytisins dags. 25.
október 1977 segir:
„Að því er varðar þá fyrirspurn
yðar, hvort ráðuneytið vilji fall-
ast á þá reglu, að greiddir verði
dráttarvextir af öllum reikning-
um vegna vöruúttektar ríkis-
stofnana, sé reikningur eigi
greiddur 10. þess mánaðar, sem
næstur kemur úttektarmánuði,
þá vill ráðuneytið taka fram, að
það sér ekki ástæðu til að aðrar
reglur gildi um reikningsvið-
skipti ríkisins og stofnana þess
en þær sem almennt gilda um
slík viðskipti."
Samkvæmt þessu svari hefur
fjármálaráðuneytið fyrir hönd
ríkisins og stofnana þess fallizt á
að greiða dráttarvexti eftir sömu
reglum og dráttarvöxtum er al-
mennt beitt í viðskiptum. Þrátt
fyrir það hefur lítil, ef nokkur,
breyting orðið á skilvísi greiðslna
frá opinberum aðilum. Eru þess
enn dæmi að greiðslur reikninga
hjá ríkissjóði hafi dregizt í hálft'
ár. Vill stjórn Verzlunarráðs'
íslands hvetja fyrirtæki til þess að
nýta rétt sinn á þessu sviði, svo að
ríkið og stofnanir þess njóti ekki
óeðlilegra sérréttinda í viðskipta-
kjörum.
Niðurstaða:
Til þess að auka skilvísi við
greiðslu skulda, jafna rétt opin-
berra aðila og einkaaðila og til að
eyða þeirri óvissu, sem skapazt
hefur um heimild til töku drátt-
arvaxta, vill stjórn Verzlunarráðs
íslands lýsa yfir:
1. Samkvæmt vaxtatilkynningu
Seðiabanka íslands frá 31. ág-
úst 1979 eru hæstu leyfilegir
dráttarvextir af gjaldfallinni
fjárhæð nú 4,5% á mánuði eða
54% á ári. Samkvæmt tilkynn-
ingu Seðlabanka íslands og á
grundvelli 5. greinar laga nr.
58/1960 gilda þessir dráttar-
vextir bæði í hliðstæðum og
sambærilegum lánsviðskiptum
utan innlánsstofnana svo og í
skuldaskiptum, þ.e. við reikn-
ingsskil og uppgjör skulda.
2. Nauðsynlegt er að setja lög,
sem rýmka rétt fyrirtækja og
einstaklinga til skuldajöfnunar
við opinbera aðila. Jafnframt
þarf að gera opinberum aðilum
skylt að greiða dráttarvexti af
viðskiptaskuldum sínum, sem
ekki eru greiddar á eindaga.
KARAMELLU
SAMKEPnflM
z
G
O
V
Snilldarkarlarnir HATTUR og FATTUR
bjóða öllum skemmtilegum krökkum á
aldrinum 6-12 ára að taka þátt í sérstakri
KARAMELLUSAMKEPPNI
Hattur og Fattur hafa lofað að verðlauna
tuttugu bestu karamelluuppskriftirnar með
nýju hljómplötunni sinni HATTUR OG
FATTUR KOMNIR Á KREIKen þaraðauki fá
verðlaunahöfundar bestu uppskriftanna
risapoka með alvöru karamellum frá NÓA.
Reglurnar í Stóru karamellusamkeppninni
eru þessar:
1. Skrifaðu góða karamelluuppskrift á
blað. (Pabbi og mamma mega hjálpa
þér).
2. Skrifaðu nafnið þitt, heimilisfang og
símanúmer á blaðið.
4.
5.
Litaðu mynd af vagninum þeirra Hatts
og Fatts og sendu hana til okkar.
Klipptu auglýsinguna út úr blaðinu, og
sendu hana til okkar fyrir þann
20. desember næstkomandi.
Heimilisfangið er:
Stóra Karamellusamkeppnin
Hattur og Fattur
Pósthólf: 5266
Reykjavík
Þeir, sem velja svo bestu uppskriftirnar
eru þeir Hattur, Fattur, Haraldur Skrípla-
pabbi og karamellusérfræðingurfrá Síríus og
Nóa.
Athugið!
Þessi samkeppni er stranglega bönnuð
fullorðnu fólki!
sldnor hf