Morgunblaðið - 22.12.1979, Síða 1

Morgunblaðið - 22.12.1979, Síða 1
48 SÍÐUR 284. tbl. 66. árg. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mannfall í átökum í suðausturhluta Irans Tehcran, WashinKton, 21. desember. AP — Reuter FIMM manns féllu og 18 særðust í átökum í borginni Zahedan i Balu- kistan í suðausturhluta írans, að sögn iranska sjónvarpsins. Til átakanna kom meðan Ebra- him Yazhdi fyrrum utanríkisráð- herra hélt ræðu i bænahúsi i borginni, en ekki er vitað hvor aðili átakanna, stjórnarherinn eða hópar Balakista, lét fyrst til skar- ar skriða. Yazdi hvatti Balakista til að rifa götuvigi sem þeir höfðu komið upp í borginni og jafnframt bannaði hann vopnaburð óbreyttra borg- ara. Khomeini trúarleiðtogi skipaði byltingarráðinu í dag að bjóða nokkrum kristnum prestum að heimsækja gíslana í bandaríska sendiráðinu svo að þeir geti haldið jól „i friði og ró“. „Það er nauðsyn- legt að bjóða þangað nokkrum ábyrgðarfullum prestum, einkum svörtum prestum, vegna afstöðu þeirra til „glæpa Bandaríkjanna“.“ Embættismenn skýrðu frá í dag að Carter forseti mundi í dag fara þess á leit við Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna að það samþykkti efnahagsþvinganir á íran í þeim tilgangi að þrýsta á stjórnvöld að láta gíslana í sendiráðinu lausa. Mun Cartér ennfremur snúa sér beint til flestra þjóðarleiðtoga af sömu sökum. Leiðtogar repúblikana og demó- krata í báðum deildum Bandaríkja- þings sögðu í dag að Sovétríkin gætu haft veruleg áhrif á hvort SALT II samkomulagið hlyti stað- Sögulcgar sættir — Samkomulag um frið í Rhódesíu undirritað við athöfn i Lancaster House i Lundúnum í gær. A myndinni eru (f.v.): Silas Mundawarara aðstoðarmaður Muzorewa biskups leiðtoga samstjórnar hvítra og svartra i Rhódesiu, Muzorewa biskup, Carrington lávarður utanríkisráðherra Bretlands, Sir Ian Gilmour aðstoðarutanrikisráöherra Breta, Joshua Nkomo og Robert Mugabe leiðtogar skæruliða sem áttu í stríði við stjórnarherinn. Simamynd - AP. Skugga varpað á friðarsamkomulag London, 21. des. AP. Reuter. LEIÐTOGAR svartra Rhódesiu- manna undirrituðu í dag friðar- samkomulag i Rhódesíudeilunni er kveður á um „alúðlega við- leitni“ til að koma á friði i landinu, en skömmu eftir undir- ritunina var skugga varpað á hinn sögulega atburð er Muzo- rewa biskup kallaði leiðtoga skæruliða „morðingja og nauðg- ara“. „Ef flokkur minn sigrar ekki í kosningunum,“ sem talið er mjög ólíklegt, „liður draumurinn um Zimbabwe undir lok í efnahags- legum og lýðræðislegum skiln- ingi.“ Von, sorg og hatur einkenndi ræðuflutning við athöfnina. Carr- Kaupa Danir olíu frá Saudi-Arabíu? Kaupmannahöfn, 21. desember. AP. DÖNSK stjórnvöld undirbjuggu í dag farvcginn fyrir samninga- viðræður um bein olíukaup frá Saudi-Arabiu, og búist var við samþykki orkunefndar danska þingsins i kvöld. Poul Nielsen orkuráðherra skýrði orkunefnd þingsins í dag frá fyrirætlunum og ráðstöfunum stjórnarinnar, sem þegar hefur rætt við olfufyrirtæki um kaupin. Tilboð Saudi-Arabíu hljóðar upp á rúma milljón smálesta af hráolíu á ári fyrst um sinn, og það skilyrði er sett fyrir viðskiptunum að olían verði hreinsuð í Danmörku, notist heimafyrir og komist ekki í hendur stórra fjölþjóða olíufyrirtækja í Danmörku eða annars staðar. Til- boð Saudi-Arabíú jafngildir sjö af hundraði olíuinnflutnings Dana. ington lávarður sagðist vona að samkomulagið markaði endalok á vígaferlum og fjandskap og Nkomo skæruliðaleiðtogi sagði að ófriðurinn og vígin hefðu verið ónauðsynleg. Vopnahléssamkomulagið tekur gildi á miðnætti og frá og með þeim tíma má hvorugur deiluaðil- inn flytja heri sína yfir landa- mæri nágrannaríkja. Að viku lið- inni skal allt vopnaskak vera hætt. Þá hefst tveggja mánaða kosningabarátta, en kosningar verða í lok febrúar. Hefur Soames lávarður aflétt banni við pólitískri starfsemi fylkinga þjóðernissinn- aðra skæruliða. Undirritun friðarsamkomulags- ins var víða fagnað í dag og von látin í ijós um varanlegan frið í landinu, sem hefði mátt þola sjö ára átök stjórnarhersins og skæruliða er kostað hafa tugi þúsunda mannslífa. Búizt er við að öryggisráð SÞ aflétti í kvöld efnahagsþvingunum og viðskipta- bönnum af Rhódesíu. festingu, með því að leggja Banda- ríkjamönnum lið {tilraunum þeirra við að fá gíslana í sendiráðinu í Teheran lausa úr prísundinni. Sheikh Ezzedin Nosseini, andleg- ur leiðtogi rúmlega þriggja millj- óna Kúrda, sagði í dag að fulltrúar Kúrda hefðu hafnað stjórnaráætl- un er miðaði að takmarkaðri sjálf- stjórn Kúrda, en sagði ekki af hvaða sökum. Nosseini sagðist hlynntur pólitískri lausn en and- vígur vopnuðum átökum. Viðræður hafa staðið yfir milli fulltrúa Kúrda og stjórnarinnar í Teheran frá því að vopnahlé varð á átökum skæruliða Kúrda og stjórn- arhersins fyrir mánuði. Námsmennirnir sem halda gísl- unum í sendiráðinu í Teheran sögðust enn hafa fundið ný skjöl, m.a. fölsuð vegabréf er starfsmenn sendiráðsins hefðu gert. Sögðust þeir ekkert mark taka á þeirri skoðun Ayatollah Sadeq Khalkali fyrrum aðalsaksóknara byltingar- dómstólanna að gíslarnir væru saklausir og bæri að láta þá lausa þegar í stað. Washington, 21. descmber. Reuter. JIMMY Carter forseti vann í dag meiriháttar sigur er nefnd þingmanna úr báðum deildum samþykkti að mæla með skatti á hagnað olíufyrir- tækja næstu tíu árin. Aætlað er að skattarnir nemi um 228 milljörðum dollara á tímabilinu sem hann verður lagður á fyrirtækin. Odvar Nordli um Jan Mayen deiluna: „Lausn fyrir næstu vertíð er von mín“ Ósló. 21. dcsembcr. Frá Jan Erik Laure, fróttaritara Mbl. „ÞAÐ ER von mín aö lausn verði komin á Jan Mayen- málinu áður en næsta vertíð hefst,“ sagði Odvar Nordli forsætisráðherra á árlegum fundi sínum með blaða- mönnum. Nordli ræddi mjög lítið um Jan Mayen deiluna og vísaði til þess að málið væri í biðstöðu vegna stjórnar- kreppunnar á íslandi. Hallsteinn Rasmussen segir í nýársviðtali að norskir sjómenn ættu að fá að veiða við Jan Mayen, þar sem svæðið væri óumdeilan- lega norskt. „Þeir eiga að fá að Sprengja ætluð ráðherra London, 21. desember. AP. ÁRVÖKULL póstmaður kom í dag auga á bréfasprengju sem ætluð var James Prior atvinnu- málaráðherra, en hún var sams konar og tíu sprengjur sem talið er að írskir hryðjuverkamenn hafi sent síðustu daga. Sprengjurnar hafa allar verið póstlagðar í Belgíu. Ennfremur fannst sprengja sem ætluð var kunnum bankamanni, Richard Lloyd, áður en hún komst í hendur hans. Sprengjurnar eru þannig úr garði gerðar að þær geta limlest menn, en tæpast deytt. veiða þar og það án þess að vera sagðir þjófar," sagði Rasmussen sem sagðist einnig vona að Jan Mayen-deilan leystist á næsta ári. Enn er óljóst hvort norskir sjómenn loki höfnum í þeim til- gangi að þrýsta á stjórnvöld um að þau lýsi yfir 200 sjómílna efnahagslögsögu við Jan Mayen. Útvegsmenn um allt land eru hlynntir því að deilan verði leyst með samningum. Veiðikatta- sveitin fær jólabónus London, 21. des. AP. Veiðikattasveitin í British Museum mun fá góðan jóla- bónus í ár, að því er skýrt hefur verið frá í London. Sérstök fjársöfnun fór fram á vegum starfsfólks safnsins eg komu inn um 28 sterlings- pund, um 3 þúsund islenzkar krónur, og dugar það til að festa kaup á sérstakri há- tíðasteik handa veiðiköttun- um Susie, Tiger, Daisy, Bertie, Viktoríu og Albert. Kettirnir í British Museum fá að éta sex daga vikunnar til að tryggt sé að þeir verði ekki svo makindalegir að þeir hætti að veiða mýsnar sem eiga til að herja á dýrgripi safnsins. Forstöðumaður safnsins sagði að frammistaða veiði- kattasveitarinnar hefði verið með ágætum á árinu og því hefði verið ákveðið að umbuna köttunum með þessum hætti nú um hátíðina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.