Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 45 ifr 7/ !)(!) IH91 /~> ~ ív VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI */r Mujjaravi-'ua'ún umburðarlyndi, strangheiðar- legur, gæddur djúpri réttlætis- kennd og brennandi samúð með mönnum og dýrum. Afrek hans var í því fólgið, að hann safnaði saman hálfvilltum þjóðum Arabíuskagans og gerði úr þeim máttuga og siðmenntaða þjóð. Hann bannaði blóðhefnd og út- burð barna, veitti konum stórauk- in réttindi frá því sem áður var og takmarkaði þar.n fjölda kvenna við fjórar, sem menn máttu kvæn- ast — að því tilskildu að eigin- maðurinn gæti gert þeim öllum jafn hátt undir höfði. Hann kenndi og iðkaði réttlæti, heiðar- leik, samúð með bágstöddum og gjafmildi við fátæka. Sú viðleitni prófessorsins í þessum sjón- varpsþætti að gera Múhameð ábyrgan fyrir óhæfuverkum og siðblindu Khomeinis, kumpána hans og skoðanabræðra í islömsk- um löndum, er ámóta sanngjörn og að kenna Kristi um bræðravíg kristinna manna í Evrópu í þús- und ár, ódæði rannsóknarréttar- ins eða ofsóknir kirkjunnar á hendur heimspekingum og vís- indamönnum fram eftir öldum. Lög Kóransins voru sniðin að eyðimerkurþjóðfélagi, sem ein- kenndist af siðleysi og villi- mennsku í viðskiptum og sam- skiptum manna. Engum siðuðum Múslim dettur í hug, að það sé rétt eða eðlilegt að þessari löggjöf sé beitt á okkar dögum. Þeir sem heimta framlengingu þessara eldfornu laga eru einmitt islamska klerkastéttin sjálf, enda eru völd hennar og áhrif undir því komin að henni takist að viðhalda þessari refsilöggjöf. Það er mikið óþurftarverk að ala á óvild milli þjóða og trúar- bragða þeirra og skiptir þar engu máli hvort í hlut eiga múllar í íran eða prestar á Vesturlöndum. Hvað segir það t.d. um múham- eðstrú þótti Idi Amín og Bokassa fyrrum keisari séu Múslimar? Segir það ekki jafn mikið og ef því er slegið fram að Aldolf Eiehmann hefi verið kristinn og Stalín stundað nám í guðfræði? Þess finnast engin dæmi að höfundar trúarbragðanna hafi gert lítið úr öðrum trúarbrögðum eða reynt að upphefja sína eigin trú með því að niðurlægja aðra. Þeir kenndu þvert á móti allir umburðarlyndi og kærleika. Ef leiðtogar trúar- bragðanna, hvaða nafni sem þau nefnast, fetuðu í fótspor meistara sinna og reyndu að skilja í stað þess að fordæma, að umbera í stað þess að hallmæla, þá væri heimur- inn annar en hann er og trúar- brögðin sömuleiðis. Eðvarð T. Jónsson, ísafirði.“ Þessir hringdu . . . • Vantar umsagnir G.G.: — í haust höfum við mátt njóta þess að sækja góða tónleika hjá Söngskólanum í Reykjavík, en þeir eru nefndir hádegistónleikar og standa yfir í tæpan klukku- tíma. Þessa nýbreytni hafa margir kunnað að meta og menn átt góðar stundir í nokkur skipti á hádegis- tónleikunum. Eitt hefur mér þó fundist vanta, en það er að gagnrýnendur skrifi umsagnir um tónleikana, en af þeim hefi ég séð mest lítið. Tónleikarnir eru orðnir 5 eða 6 á þessu hausti og byrjaði Rögnvald- ur Sigurjónsson, og hafa síðan hver öðrum færari menn siglt í kjölfarið og nú síðast Garðar Cortes sjálfur og síðan kammer- sveit ungs fólks. Einhvern veginn grunar mig að þessir tónleikar hafi farið framhjá sumum gagn- rýnendum dagblaða og vildi því láta þess getið hér ef tónleikarnir skyldu halda áfram eftir áramót, því þeir eru vissulega þess virði að menn skrifi um þá og veki á þeim athygli. Vona ég síðan bara að Söngskól- inn haldi áfram á þessari braut, án efa er nóg af tónlistarfólki sem vill koma þarna fram og leggja sitt af mörkum til að viðhalda þessari skemmtilegu nýbreytni, sem verður kannski fastur liður í borgarlífinu þegar fram í sækir. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á ALÞJÓÐLEGA skákmótinu í Wroclav í Póllandi í ár kom þessi staða upp í skák þeirra Kubics, Póllandi, og Klarics, Júgóslavíu, sem hafði svart og átti leik. 49... -b5! (Hótar máti. Svar hvíts er þvingað), 5050. Kxb5 — Db3+ - Hb4 - Hxb4+, 52. cxb4 - Da2! og hvítur gafst upp, því að hann er óverjandi mát í næsta leik áa6. vorur í glæsilegu úrvali m ^lafossbúöin VESTURGOTU 2 - SIMI 13404 ♦ ,‘ + * ‘át/ t ; • Þverbrekku 8 Kópavogi. Símar 42040 og 44140. 30% álagningarafsláttur af ístertum Mackintosh 1. kg. dósir kr. 6.600.- 3. kg. dósir kr. 14.800.- Mikiö úrval af konfektkössum og jólasælgæti. Nýir og niðursoönir ávextir í miklu úrvali á góöu veröi. Kvöld og helgarsala opió til kl. 11.30. Oskum viðskiptavinum okk- ar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu, sem er að líða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.